Morgunblaðið - 09.10.2007, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 09.10.2007, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ WWW.SAMBIO.IS SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDIVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á / ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA FRÁBÆR RÓMANTÍSK GAMANMYND MEÐ CATHERINE ZETA JONES OG AARON ECKHART. SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI HLJÓÐ OG MYND Í KRINGLUNNI CATHERINE ZETA JONES AARON ECKHART STARDUST kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.10.ára DIGITAL STARDUST kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS VIP NO RESERVATIONS kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ SUPERBAD kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12.ára CHUCK AND LARRY kl. 8 - 10:30 B.i.12.ára MR. BROOKS kl. 8 B.i.16.ára BRATZ kl. 5:30 LEYFÐ DISTURBIA kl. 10:30 B.i.14.ára ASTRÓPÍA kl. 6 LEYFÐ HLJÓÐ OG MYND STARDUST ER MÖGNUÐ ÆVINTÝRAMYND STÚTFULL AF GÖLDRUM, HÚMOR OG HASAR. STARDUST kl. 6:30 - 9 B.i. 10 ára DIGITAL NO RESERVATIONS kl. 8 - 10:10 LEYFÐ DIGITAL MR. BROOKS kl. 10:10 B.i. 16 ára ASTRÓPÍA kl. 6 - 8 LEYFÐ RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 5:40 LEYFÐ DIGITAL / KRINGLUNNI ROBERT DE NIRO OG MICHELLE PFEIFFER Í FRÁBÆRRI MYND SEM VAR TEKINN UPP Á ÍSLANDI OG ALLIR ÆTTU AÐ HAFA GAMAN AF! Claire Danes Michelle Pfeiffer Robert DeNiro Ég er nýkominn til Splitþegar við keyrum á gaml-an mann. Það heyrist hár smellur þegar risastór hlið- arspegillinn rekst utan í hann en þegar bílstjórinn reynir að biðjast afsökunar þá yppir sá gamli öxl- um kæruleysislega, brosir og seg- ir að þetta sé allt í lagi, öxlin er komin aftur í liðin án nokkurrar Mel Gibson-dramatíkur og ég reyni að reikna út hversu mörg- um styrjöldum sá gamli er líkleg- ur til að hafa tekið þátt í.    En ég er kominn til Split tilþess að fara á kvik- myndahátíð. Miðbær þessarar höfuðborgar Dalmatíu, fjölmenn- ustu borgar Króatíu á eftir Zag- reb, er undirlagður af hinni æva- fornu höll Díókletesar en höllin er í raun miðbærinn og miðbær- inn byggist út frá höllinni. Maður veit varla hvort maður er úti eða inni, þröngar göturnar eyða öll- um slíkum hugmyndum og maður hreinlega labbar óvart inn á næsta bar á röltinu á kvöldin eft- ir bíó.    Díókletes var rómverskur keis-ari sem hafði sérstaklega gaman af því að ofsækja kristna menn – kaldhæðni örlaganna hag- aði því svo að við innganginn að höllinni stendur þekktasta kenni- leiti borgarinnar, risastytta af biskupnum Gregorins frá Nin sem á tíundu öld barðist fyrir því að nota króatísku í guðþjónustum í stað latínu. Og mitt í þessari höll er heilmikið líf, það eru veitinga- hús, barir og verslanir – til dæm- is Grgur þar sem ég borðaði ófá- ar pítsur með hinni ljúffengu dalmatíuskinku og velti fyrir mér hvort kjötið væri nokkuð fengið af Dalmatíuhundunum eftir að Grímhildur grimma hafði hirt feldina. Og fjöldi fólks býr þarna líka eins og allar þvottasnúrurnar eru vitni um.    Hinir hátíðargestirnir sem éghitti virðast flestir úr öðrum heimi en ég, ég er bíónördinn en þau virðast flest rata betur um ranghala innsetninga og videól- istaverka. En mörkin eru hægt og rólega að hverfa. Eins og á öðr- um bíóhátíðum eru bæði ömurleg- ar myndir og frábærar á hátíð- inni. Forðist til dæmis með öllum ráðum að horfa á dómadagsleið- indin Lá-Bas en reynið allt sem þið getið til þess að sjá hina dýrð- legu Fido, þar sem uppvakningar eru komnir í hlutverk heim- ilishundsins og húshjálparinnar í bandarískum úthverfum með drepfyndnum afleiðingum. En um leið segir myndin þó ískyggilega sannferðuga sögu um bandarískt samfélag – og svo var ég farinn að sakna Carrie-Ann Moss og allt- af gott að vita að maður á ennþá séns í hana þótt maður sé orðinn steindauður zombí. Engin mynd situr þó jafn fast í manni og tálm- inn rússneski, Blokada.    Blokada. Vatn fiskað í fötur,frosin lík. Hermenn sem í al- vörunni voru að bjarga heim- inum. Stytturnar hljóðlát vitni. Það verður kaldara og kaldara. Gamall maður með staf – lyk- ilorðið: áfram! (ekki frjósa í hel) Hver tekur myndina? Hvað fékk fólk til að gera eitthvað sem ekki var bráðnauðsynlegt? Hvað fékk tökumanninn til að hugsa um ei- lífðina, okkur, þessar fáeinu hræður sem sátum í kvikmynda- sal í Dalmatíu og eignuðumst ör- litla hlutdeild í eilífðinni? Við erum stödd í Leníngrad (nú St. Pétursborg) í seinni heims- styrjöldinni. Blokada er það sem Rússarnir kalla umsátrið um Len- íngrad og þótt flestir telji sig hafa séð einhverjar myndir frá umsátrinu eru það nær örugglega sviðsetningar. Í þessari tæplega klukkutíma mynd safnar Sergey Loznitsa hins vegar saman öllu því myndefni sem til er í rúss- neskum söfnum og skilar því ó- klipptu til áhorfenda. Hann bætir þó við hljóði, hljóðvinnslan er svo mögnuð að það er ekki fyrr en eftir á að maður kemst að því að þetta voru ekki raunveruleg um- hverfishljóð.    Þau ganga framhjá líki. Einnsparkar í það, kannski sofn- aði hann bara, en hér er svefninn sjálfur dauðinn. Kannski fékk hann sér aðeins einu vodkastaupi of mikið, en hér sér enginn mun- inn lengur, hann er orðinn töl- fræði og það skiptir minnstu máli hvernig hann dó. Loks: Flug- eldar, snjókorn eða sprengj- uregn? Það rennur saman í eitt og myndirnar ljúga misvísandi sögum að manni á meðan maður sér loks bros og það er dansað. Leníngrad, Króatíu Þvottasnúrur Í Split býr almúgafólk í rómverskum höllum og hengir þvottinn sinn upp fyrir túristana. AF LISTUM Ásgeir H. Ingólfsson »Hvað fékk töku-manninn til að hugsa um eilífðina, okkur, þessar fáeinu hræður sem sátum í kvikmynda- sal í Dalmatíu og eign- uðumst örlitla hlutdeild í eilífðinni? asgeirhi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.