Morgunblaðið - 09.10.2007, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2007 41
WWW.SAMBIO.IS
/ KEFLAVÍK / SELFOSSI/ AKUREYRI
HVERSU LANGT MYNDIRU
GANGA FYRIR BESTA
VIN ÞINN?
YFIR 44.000
MANNS
Frá gaurnum sem færði okkur
The 40 Year Old Virgin og Knocked Up
eeee
- JIS, FILM.IS
eeee
- A.S, MBL
eeee
- RÁS 2
Vinsælasta kvikmyndin á íslandi í dag
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
STARDUST kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 10 ára
NO RESERVATIONS kl. 8 LEYFÐ
3:10 TO YUMA kl. 10 B.i. 16 ára
ASTRÓPÍA SÍÐUSTU SÝNINGAR kl. 6 LEYFÐ
STARDUST kl. 8 B.i. 10 ára
SUPERBAD kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
MR.BROOKS kl. 10:30 B.i. 16 ára
CHUCK AND LARRY kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
NO RESERVATIONS kl. 8 LEYFÐ
SHOOT´EM UP kl. 10:20 B.i. 16 ára
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
“Skylduáhorf fyrir
alla unglinga”
- Dóri DNA, DV
- J.I.S., FILM.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
eeee
– KviKmyndir.is
SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA
SKEMMTILEGUSTU
VINKONUR Í HEIMI
ERU MÆTTAR.
06.10.2007
8 15 19 27 33
6 2 7 3 4
3 1 0 0 1
30
03.10.2007
1 3 10 27 28 46
2211 17
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
EIN af þeim
tónlistar-
stefnum sem
munu bylgjast
um tónlistarhá-
tíðina Iceland Airwaves er djassinn.
Íslenska sveitin BonSom er ein
þeirra sem sér um þann þátt en að
sögn Andrésar Þórs Gunnlaugs-
sonar, gítarleikara sveitarinnar, er
tónlist sveitarinn vart djass lengur,
þó að meðlimir komi úr þeim geir-
anum og sveitin hafi siglt um þau
mið upprunalega. Upphaflega átti að
blanda djassinum við pönk, rokk,
þjóðlagatónlist og fleira, en í dag er
tónlistin óræð, einhvers konar rokk,
og er sveitin því verðugur gestur á
Airwaves, þar sem fjölbreytnin ræð-
ur ríkjum. Allir meðlimir leggja
jafnt til í sköpunarpúkk-
ið, en auk Andrésar
skipa sveitina þeir Eyj-
ólfur Þorleifsson saxó-
fónleikari, Þorgrímur
Jónsson kontrabassa-
leikari og Scott McLe-
more trommuleikari.
Sveitin á sér um eins
og hálfs árs langa sögu og var sett á
laggirnar í kringum
Djasshátíð Reykjavík-
ur. Andrés segir að það
sem hafi rekið hljóm-
sveitina saman hafi lík-
lega verið sú staðreynd
að meðlimir séu komnir
í ákveðinn hring.
„Þegar ég var yngri t.a.m. hlustaði
ég á hluti eins og popp og þungarokk
á fullu. Svo fór ég í nám og henti mér
eðlilega á kaf í djassheiminn. En svo
þegar því ferli lýkur og maður fer að
starfa við þetta fer maður að líta til
baka á nýjan leik.“ Þeir allra hörð-
ustu hafa slengt því fram að nám
kæfi allt frelsi til sköpunar. Viðhorf
Andrésar til þessa er stóískt.
„Jaa… þetta er bara mjög per-
sónubundið. Sumir komu stífir út úr
þessu en aðrir eru til muna frjálsari
til að skapa en áður en þeir fóru í
námið. En maður er hvort eð er allt-
af að læra. Það sem er breytt í dag
er að maður er að læra af sam-
ferðamönnum sínum, ekki kenn-
urunum.“ Andrés segir að vel gangi
að æfa og spila og samstarfið hefur
þegar borið ávöxt í formi hljóðrit-
unar, en plata samnefnd sveitinni
kom út í sumar á vegum útgáfunnar
Dimmu. Hann segir að sveitin
skemmti sér vel en meðlimir voru
allir góðir félagar áður en hljóm-
sveitin var sett á laggirnar. Andrés
segir að stefnt verði á sem mesta
spilamennsku næsta misserið og
áhersla lögð á að þróa tónmálið
áfram.
Það er hins vegar komið að tóm-
um kofunum þegar spurt er hvort
BonSom sæki í einhverjar erlendar
fyrirmyndir hvað tónlistarlega nálg-
un og almennt fyrirkomulag varðar.
„Helst þá U2,“ segir Andrés og
hlær við. „Fjórir góðir vinir að búa
til tónlist saman.“
Morgunblaðið/G.Rúnar
Félagar BonSom leitar helst til U2 eftir áhrifum.
Djass en eiginlega alls ekki…
Hljómsveitin BonSom treður upp á Iceland Airwaves í næstu viku
www.myspace.com/bonsom
www.icelandairwaves.is
8
dagar
Iceland Airwaves
Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur
sigridurv@mbl.is
FRIÐARSÚLA Yoko Ono sem reist
er í minningu John Lennons verður
vígð í Viðey í kvöld og stendur und-
irbúningur fyrir athöfnina sem
hæst. Samkvæmt upplýsingum frá
skipuleggjendum munu um 300–400
manns verða viðstaddir og hátt í
annað hundrað manns koma frá út-
löndum, bæði blaðamenn og boðs-
gestir. Yoko Ono sjálf mun vígja
friðarsúluna en við athöfnina verður
einnig sonur hennar Sean Ono Len-
non sem kom til landsins á laug-
ardag. Ljóst er að getgáturnar sem
uppi hafa verið um að Ringo Starr
kæmi til landsins reyndust réttar,
því hann kemur til landsins í dag.
Við vígsluna verður líka ekkja
George Harrison, Olivia Harrison.
Eins og Ringo kemur hún til lands-
ins á afmælisdegi John Lennons,
sem hefði orðið 67 ára í dag.
Íslenskir og erlendir blaðamenn
héldu til Viðeyjar í gær til að virða
fyrir sér verkið og skoða aðstæður
fyrir vígsluna. Flestir í hópnum voru
frá Japan en japanskir fjölmiðlar
hafa sýnt vígslu friðarsúlunnar afar
mikinn áhuga. Hingað til lands er
einnig komið fjölmiðlafólk frá
Bandaríkjunum, Ástralíu og meg-
inlandi Evrópu, svo sem Bretlandi
og Frakklandi.
„Við getum stöðvað stríð, ef við
bara viljum það,“ fullyrti ástralski
blaðamaðurinn Richi York um leið
og hann snaraði sér í land í Viðey.
Hann bætti við að hann hefði unnið
með John Lennon og Yoko Ono í
War is Over herferðinni 1968–1969.
„Ég heillaðist alveg af boðskapnum
og ákvað þess vegna að taka þátt í
þessu með þeim.“
Aðrir blaðamenn gátu ekki státað
af persónulegum tengslum við þau
hjón en virtust á hinn bóginn afar
áhugasamir um friðarsúluna og að
hún yrði reist á Íslandi. „Það er flott
fyrir Ísland að fá að hafa hana,“
sagði Minni Cherries frá Ástralíu.
Libby Casey frá Bandaríkjunum var
nýlent á Íslandi, skjálfandi úr kulda,
og staðráðin í að taka með sér vett-
linga í athöfnina í kvöld.
Friðarsúlan sjálf er ljósgeisli sem
streymir upp úr brunni sem áletr-
unin „Hugsa sér frið“ hefur verið
grafin í á 24 tungumálum. Athöfnin í
kvöld er lokuð almenningi en verður
í beinni útsendingu bæði á RÚV og
Stöð 2. Hún hefst kl. 19:30.
„Ef við bara
viljum það“
Friðarsúla Yoko Ono vígð í Viðey í kvöld
Frekari upplýsingar um friðarsúl-
una má finna á www.imagine-
peace.com
Friðarsúla Erlent fjölmiðlafólk spáir í aðstæðurnar í Viðey.Ringo Starr Olivia Harrisson
Morgunblaðið/RAX