Morgunblaðið - 09.10.2007, Blaðsíða 44
ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 282. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Hugsanlegur kaupandi
Kaupandi að hlut Orkuveitunnar í
Reykjavík Energy Invest hefur gef-
ið sig fram, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, en hluthafar í REI
eiga forkaupsrétt á hlutnum, komi
til sölu hans. » Forsíða
Toppskarfur í hættu
Norrænir sjófuglafræðingar vara
við slæmu ástandi sjófuglastofna á
Norður-Atlantshafi og benda á að
afkoma margra tegunda hafi verið
slæm um árabil. Ævar Petersen
dýrafræðingur segir að með sama
áframhaldi sé ekki langt í að topp-
skarfur hverfi úr íslensku fuglaríki
og telur ástæðu til að setja hann á
válista. » 2
Afpláni heima
Á síðustu tveimur árum var um 25
til 35 útlendingum vísað úr landi eft-
ir að hafa afplánað refsidóma hér-
lendis. Forstjóri Fangelsismála-
stofnunar vill kanna hvort hægt sé
að láta útlendinga, sem hljóta dóm
fyrir afbrot á Íslandi, afplána í
heimalandinu. » 4
Metveiði
Sjöþúsundasti laxinn veiddist í
Eystri-Rangá í gærmorgun og hafa
aldrei veiðst svo margir laxar í ís-
lenskri á á einu tímabili. » 2
SKOÐANIR»
Staksteinar: Samfylking vaknar
Forystugreinar: Rétt niðurstaða |
Að semja eða herja
Viðhorf: Hámörkun hagnaðar |
Halló! Halló! Vaknið! Taka tvö
Ljósvaki: Sjónvarpsfólk á mörgum …
UMRÆÐAN»
Meðganga, móðir, barn
Sljóir stjórnmálamenn
Hvaðan koma fordómar?
Skilningur rýfur … einangrun
2
2
2
2 2 2 3 23
323
4# 5 ,'(
'
6'
''1+$, 23 2 2 3 23 32 32 *7%/
23 2 2 3 23 2
89::;<=
>?<:=@6 AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@ 77<D@;
@9< 77<D@;
E@ 77<D@;
0= @1F<;@7=
G;A;@ 7>G?@
8<
?0<;
6?@6= 0( =>;:;
Heitast 10°C | Kaldast 3°C
Austan 8-15 metrar
á sekúndu, en hægari
vindur norðan til. Dá-
lítil slydda með köflum
austanlands. » 10
Karlottu og Önnu
Júlíu fannst vanta
blað um myndlist á
Íslandi og ákváðu að
koma því sjálfar á
laggirnar. » 36
MYNDLIST»
Nýr
Sjónauki
TÓNLIST»
BonSom leikur djass en
samt ekki. » 41
Ásgeir Ingólfsson
fór á kvikmyndahá-
tíð í Króatíu og ók á
mann sem tók því án
allrar Mel Gibson-
dramatíkur. » 40
AF LISTUM»
Kvikmyndir
í Króatíu
TÓNLIST»
Fönkkóngurinn fær góða
umsögn. » 38
FÓLK»
Olivia Harrison er vænt-
anleg í Viðey. » 41
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Lést af völdum líkamsárásar
2. Dorrit segir frétt DV móðgandi …
3. Stefnt að því að selja hlut OR í REI
4. „Mönnum hreinlega ofbýður …“
EGILL Már
Markússon segist
hafa orðið knatt-
spyrnudómari
fyrir slysni en
Egill batt enda á
langan dóm-
araferil sinn um
síðustu helgi þeg-
ar hann dæmdi
bikarúrslitaleik
FH og Fjölnis á
Laugardalsvelli.
,,Ég er nú ekki búinn að henda
flautunni en þetta er ágætis tíma-
punktur enda búinn að vera að í tutt-
ugu tímabil,“ sagði Egill Már Mark-
ússon í samtali við Morgunblaðið.
Hann dæmdi sinn fyrsta leik í
efstu deild árið 1988 og telur að hann
hafi frá þessum tíma dæmt 166 leiki í
efstu deild og þá hefur hann komið
að 111 milliríkjaleikjum.
Egill Már segist skilja sáttur við
starfið en hann mun þó ekki hætta
afskiptum af knattspyrnunni því
hann mun væntanlega eins og Gylfi
Þór Orrason, sem á dögunum lagði
flautuna á hilluna, vinna í kringum
dómgæslu þó svo að hann verði ekki
innan vallar.| Íþróttir
Egill hætt-
ir sáttur
Egill Már
Markússon
KRAFTUR, feg-
urð og glæsileiki,
eru orðin sem
gagnrýnendur
þýsku dagblað-
anna hafa yfir
söng Gunnars
Guðbjörnssonar í
óperunni Meist-
arasöngvurunum
í Nürnberg eftir
Richard Wagner,
en Gunnar syngur eitt þriggja burð-
arhlutverka óperunnar. Þetta er í
fyrsta sinn sem Gunnar syngur
hetjutenórshlutverk, en hann hefur
frá upphafi sungið lýrísk hlutverk. Í
rúmt ár hefur hann þjálfað og æft
sig í söngtækni hetjutenórsins, og
allt þar til hálfum mánuði fyrir frum-
sýningu var tvísýnt um hvort Gunn-
ar hefði þetta, því óperan er fimm
tíma löng og krefst bæði þessarar
raddtækni og mikils líkamlegs
þreks. „Þeir eru miklu betri en ég
þorði að vona,“ sagði Gunnar í gær
um dómana. „Þetta er stærsti séns-
inn sem ég hef tekið á mínum söng-
ferli, það er engin spurning.“ | 16
Meistara-
söngvarinn
fær góða
dóma
Gunnar
Guðbjörnsson
VÍÐA er snjólaust á láglendi norðaustanlands þrátt
fyrir norðanáhlaup um helgina, en það má glöggt sjá af
þessari fallegu tunglmynd sem tekin var í hádeginu í
gær frá gervitunglinu Terra sem er í eigu bandarísku
geimferðastofnunarinnar, NASA. Víða er snjólaust á
fjöllum líka en að sögn Haraldar Ólafssonar, prófessors
í veðurfræði við Háskóla Íslands, er þó ekki alls staðar
snjólaust á láglendi. Hann segir að nokkuð hafi snjóað
úti við ströndina á Norðurlandi, þótt lítið hafi snjóað
inn til dala. Þetta megi til dæmis sjá á Hrísey og í
Skagafirði.
Haraldur segir að norðanáttin um helgina hafi verið
mjög vestanstæð. Úrkoma var mun meiri úti við strönd-
ina en fram til dala þar sem vestlægar áttir standa af
fjöllum og eru því gjarnan þurrari en þar sem norð-
vestanáttin kemur beint af hafi.
Snjólétt þrátt fyrir norðanáhlaup
Gervitunglið Terra myndar Ísland utan úr geimnum
Ljósmynd/NASA
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
HLJÓMSVEITIN Sigur Rós hlaut í
gær nýbreytniverðlaun breska tón-
listartímaritsins Q, en verðlaunin
voru afhent við hátíðlega athöfn í
Lundúnum. Verðlaun voru veitt í fjöl-
mörgum flokkum og fékk Sigur Rós
verðlaun fyrir það sem á ensku kall-
ast „innovation in sound“. „Ég skil
þetta eiginlega ekki sjálfur, en þýðir
„innovation“ ekki að vera framsækinn
eða að gera eitthvað nýtt?“ segir Orri
Páll Dýrason, trommuleikari Sigur
Rósar, um verðlaunin. Hann segir
þetta vissulega mikinn heiður. „Þetta
virkar þó ekki beint eins og hvatning,
heldur meira svona eins og bónus,“
segir hann, en það var The Edge, gít-
arleikari írsku hljómsveitarinnar U2,
sem hlaut verðlaunin í fyrra.
Á meðal annarra flytjenda sem
fengu verðlaun á hátíðinni voru Kylie
Minogue, Damon Albarn, Ian Brown,
Muse, Amy Winehouse og Paul
McCartney, en sá síðastnefndi fékk
sérstök heiðursverðlaun. Bítillinn
fyrrverandi kynnti sig formlega fyrir
meðlimum Sigur Rósar, en ekki vildi
betur til en svo að Orri missti af kapp-
anum. „Ég var því miður bara úti að
reykja þegar hann kom og kynnti
sig,“ segir hann og hlær.
Sigur Rós á sigurbraut
Hlaut nýbreytniverðlaun breska tónlistartímaritsins Q
Morgunblaðið/Eggert
Framsækin Hljómsveitin Sigur Rós vekur athygli um víða veröld.