Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 11 FRÉTTIR KYNFERÐISLEGT ofbeldi gegn börnum er alvarlegt mál og aukin áhersla er lögð á að stöðva það. Lög- reglustofnunin Interpol er með gagnagrunn þar sem finna má 700 þúsund myndir af um 20 þúsund börnum, en að- eins um 600 börn hafa fundist. Dr. Ethel Quayle, sál- fræðingur og kennari við Cork- háskólann á Ír- landi, telur að netið hafi dregið úr þeirri vernd, sem grein 34 í barnasáttmála Samein- uðu þjóðanna kveður á um að börn eigi að njóta gegn kynferðislegu of- beldi. Hún kemur fram á ráðstefnu Barnaheilla, Save the Children, sem haldin verður í Norræna húsinu í dag milli kl. 9 og 17. Quayle er framkvæmdastjóri verk- efnis, sem nefnist COPINE og snýst um að berjast gegn upplýsingaveitum um kynferðislegt ofbeldi gegn börn- um í Evrópu. „Þetta er lítið rannsóknarverkefni, sem varð til úr öðru verkefni, sem snerist um hvernig börn eru ber- skjölduð þegar þjóðfélagslegar breyt- ingar eiga sér stað. Við vorum í sam- starfi við aðrar stofnanir og lögreglan hafði gert okkur grein fyrir þeim vandamálum, sem fylgdu netinu fyrir börn. Við fórum því að skoða hvernig börn yrðu að fórnarlömbum á netinu og hvernig netið gæti ýtt undir kyn- ferðisofbeldi gegn börnum.“ Hvernig hefur COPINE stuðlað að því að draga úr ofbeldinu? „Með tvenns konar hætti. Annars vegar með rannsóknunum sjálfum, sem hafa haft áhrif á löggjöf á Bret- landi. Eitthvað af þeim viðmiðum, sem tekin hafa verið upp við upp- kvaðningu dóma á Bretlandi, er sprottið úr niðurstöðum þeirra rann- sókna, sem við höfum gert. Hitt atrið- ið er að við höfum tekið þátt í að bera kennsl á börn og gerendur af mynd- um og þar kom að gögnin, sem við höfðum safnað af myndum, voru send til Interpol og urðu hluti af þeirra gagnagrunni.“ Stofnunin hefur einnig hugað að fyrirbyggjandi aðgerðum og unnið að því að finna leiðir til að taka á vanda- málum gerenda, sem stjórnvöld hafa tekið upp. COPINE hefur kannað áhrifin á börn, sem verða fórnarlömb kynferð- islegs ofbeldis, sem er tekið upp eða myndað og endar á netinu, þar á með- al þegar börn verða fyrir ofbeldinu ut- an heimalanda sinna. „Sumt af því sem við höfum unnið við er fólgið í að koma boðskap til skila og þess vegna höfum við unnið með Barnahjálp til að fá meiri áhuga innan Evrópusambandsins til að taka fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum og hvernig netið ýtir undir brotlega hegðun,“ sagði hún. Mikilvægi góðrar löggæslu Hún sagði að tæknin skipti ekki alltaf meginmáli, heldur góð löggæsla og viljinn til að taka mál að sér. „Eitt vandamálið við rannsókn þessara mála, sérstaklega í sambandi við fórn- arlömbin, er að ekki er vitað í hvaða landi barnið býr,“ sagði hún. „Lög- reglan þarf því að glíma við gríðarleg- an vanda þegar kemur að löggæslu utan hennar umdæmis. Það tekur bæði tíma og mannskap. Samvinna milli lögreglu í hinum ýmsu löndum hefur hins vegar batnað verulega, bæði hvað snertir að skiptast á upp- lýsingum og rannsaka mál í samein- ingu. Þar skiptir líka máli að málstað- urinn er sá sami.“ Quayle telur að hingað til hafi að- allega verið hugað að því að stöðva dreifingu efnis, sem sýnir barnaklám og kynferðisofbeldi gegn börnum á netinu, með því að setja upp hindranir og síur og fjarlægja efni, þegar það finnst. „En einnig mætti hugsa sér einfaldari hluti,“ sagði hún. „Við höld- um flest að við séum frekar ósýnileg þegar við notum netið, en það er ekki svo og það á að sjá til þess að fólk átti sig á því hversu auðvelt er að rekja slóð þess og ýmislegt annað til þess að draga úr framboðinu á þessu efni.“ Quayle sagði að það færi eftir aldri barna hvað gera mætti til að verja þau gegn kynferðislegu ofbeldi á net- inu, en sérstaklega þyrfti að huga að táningum. „Mesti vandi margra for- eldra er að þekking þeirra er oft mun minni en þekking barnanna á netinu,“ sagði hún. „Börnin geta breytt still- ingum og í raun meinað foreldrum sínum aðgang, ekki vegna þess að þau geri hræðilega hluti, heldur vilja þau taka áhættu og prófa hluti. Foreldrar þurfa einfaldlega að fylgjast betur með og tileinka sér tæknina vilji þeir axla sína ábyrgð.“ Vernd barna gegn kynferðisofbeldi Dr. Ethel Quayle • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 15% afsláttur af drögtum og stökum jökkum Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 Laugavegi 54, sími 552 5201 Ný sending Samkvæmiskjólar Síðir og stuttir Stærðir 34-46 M bl 9 20 69 1 Kringlunni - sími 568 1822 – www.polarnopyret.se Kringlukast 20-30% afsl. af völdum vörum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.