Morgunblaðið - 11.10.2007, Page 20

Morgunblaðið - 11.10.2007, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is EVRÓPURÁÐIÐ stóð í gær fyrir „Evrópudeginum gegn dauðarefs- ingum“ þrátt fyrir tilraun pólskra ráðamanna til að hindra hann. Evrópusambandið hugðist skipu- leggja slíkan baráttudag en pólska stjórnin beitti neitunarvaldi sínu til að hindra það. Hún krafðist þess að dagurinn yrði ekki aðeins helgaður baráttunni gegn dauðarefsingum, heldur einnig líknardrápum og fóst- ureyðingum. Ólíkt Evrópusambandinu þurfti Evrópuráðið ekki samþykki allra að- ildarlandanna til að skipuleggja sér- stakan baráttudag gegn dauðarefs- ingum. Dauðarefsingar eru bannaðar í öll- um 27 aðildarlöndum Evrópusam- bandsins en forseti Póllands, Lech Kaczynski, hefur hvatt sambandið til að heimila þær að nýju. Pólland, Ír- land og Malta eru einu ESB-ríkin sem banna fóstureyðingar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hægristjórnin í Póllandi er á önd- verðum meiði við stjórnvöld í öðrum ESB-löndum. Stjórn Jaroslaws Kac- zynskis, forsætisráðherra Póllands og tvíburabróður forsetans, hefur oft deilt við Evrópusambandið um um- hverfisvernd og réttindi homma og lesbía. Gleðigöngur samkynhneigðra hafa verið bannaðar í Póllandi og Kaczynski forseti hefur sagt að mannkynið kunni að deyja út fái samkynhneigð pör sömu réttindi og gagnkynhneigð. Stjórn Kaczynskis forsætisráðherra neyddist nýlega til að falla frá tillögu um að banna hommum og lesbíum að kenna börn- um eða gegna öðrum störfum með börnum. Andstaða pólsku stjórnarinnar við „Evrópudaginn gegn dauðarefsing- um“ er túlkuð sem tilraun af hálfu stjórnarflokksins Laga og réttar (PiS) til að vinna kjósendur á sitt band fyrir þingkosningar sem fram fara í Póllandi 21. þessa mánaðar. Um 63% Pólverja eru hlynnt dauða- refsingum og 31% andvígt, ef marka má skoðanakönnun sem gerð var í mars. Höfnuðu Evrópu- degi gegn aftökum AP Jaroslaw (t.v.) og Lech Kaczynski. Í HNOTSKURN » Amnesty International ogfleiri samtök stóðu í gær fyrir alþjóðlegum degi gegn dauðarefsingum. » Amnesty segir að skráð-um aftökum í heiminum hafi fækkað um 25% á síðasta ári, úr 2.148 árið 2005 í 1.591. Hvíta-Rússland er eina Evr- ópulandið sem leyfir aftökur. PÓLSKA lög- reglan braut í gær á bak aftur nunnuuppreisn í klaustri í bænum Kazimierz Dolny en kaþólska kirkjan var áður búin að setja þær út af sakrament- inu. Um 150 lög- reglumenn notuðu stiga til að kom- ast inn fyrir klausturmúrana og fundu þar fyrir 65 nunnur, ungabarn og munk af reglu Fransiskana en hann var eins konar andlegur leið- togi nunnanna. Deilan snerist um það, að kirkjan vildi koma burtu abbadísinni, sem var komin í beint samband við heil- agan anda, en því neituðu nunnurnar og lokuðu sig inni í klaustrinu. Voru þá nokkrar þeirra settar út af sakra- mentinu. Voru þær sakaðar um að hafa stofnað til eins konar sértrúar- safnaðar. Nunnuupp- reisn kveð- in niður Nunna í höndum lögreglunnar. SÚ ákvörðun Breta að flytja heim helming herliðsins í Írak, 5.000 her- menn, fyrir næsta vor er áfall fyrir Bandaríkjamenn og ekki það eina. Bandalagið, sem svo hefur verið kall- að, er að molna í sundur. Um mitt næsta ár verða aðeins 7.000 her- menn eftir í fjölþjóðahernum fyrir utan Bandaríkjamenn en voru 50.000 fyrst eftir innrásina. Um 300.000 hermenn frá 38 ríkj- um voru í fjölþjóðahernum þegar mest var, 250.000 frá Bandaríkjun- um, 40.000 frá Bretlandi en færri frá öðrum ríkjum. Nú standa 20 ríki að þeim herafla, sem eftir er, og að minnsta kosti sex hyggjast fækka í honum. Heita má, að Danir hafi flutt allt sitt lið frá Írak, þar er nú aðeins fá- menn þyrlusveit, og Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dan- merkur, sagði nýlega í blaðaviðtali, að honum og öðrum hefði skjátlast er þeir töldu, að erlendum hermönnum yrði fagnað sem frelsurum í Írak. Nokkur ríki, t.d. Ástralía, Pólland, Suður-Kórea og Rúmenía, láta eng- an bilbug á sér finna en Anthony H. Cordesman, áður háttsettur í leyni- þjónustu bandaríska varnarmála- ráðuneytisins, segir, að heimsbyggð- in líti yfirleitt á Íraksstríðið sem ranglátt stríð, sem Bandaríkjamenn hafi stofnað til á röngum forsendum. Fjölþjóðaherinn æ þunnskipaðri AP Óvinsælt stríð Bandarískir her- menn við eftirlit suður af Bagdad. 28 ríki stóðu að honum eftir innrásina í Írak en eru nú 20 og fer fækkandi ÁSTRALSKIR vísindamenn óttast, að villtum dýrum í landinu, til dæm- is kóalabjörnum og nefdýrum, sé hætta búin af sjúkdómum á borð við smitandi æxlisvöxt. Hefur hann reynst afdrifaríkur fyrir „tasman- ísku djöflana“, sem svo eru kallaðir, rándýr og pokadýr líkt hundi. Æxlisvöxturinn, sem er í raun krabbamein og afskræmir dýrin í framan, hefur drepið um 90% „djöflanna“ á sumum svæðum og vísindamennirnir hafa nú komist að því, að það er erfðafræðilegur fá- breytileiki, sem gerir dýrin svona veik fyrir. Það, sem veldur erfðafátæktinni, er, að dýrunum hefur fækkað mikið, verið drepin eða búsvæði þeirra eyðilögð, og þá verður meira um innrækt eða skyldleikarækt. Það þýðir, að kannski er að finna sömu veikleikana í flestum einstak- lingum heillar tegundar, að minnsta kosti á sumum svæðum, og því get- ur ákveðin veiru- eða bakteríusýk- ing haft mjög alvarlegar afleiðingar. Óttast erfðafá- tæktina Sirnak. AP, AFP. | Tyrkneskir her- menn gerðu í gær sprengjuárásir á búðir kúrdískra uppreisnarmanna í norðurhluta Íraks eftir að stjórn Tyrklands tilkynnti að hún hygðist óska eftir heimild þingsins til að senda hersveitir yfir landamærin. Tyrkneska stjórnin sagði að hún hefði skipað hernum að undirbúa hugsanlega innrás í Norður-Írak til að leita uppi uppreisnarmenn í Verkamannaflokki Kúrdistans. Recep Tayyip Erdogan, forsætis- ráðherra Tyrklands, sagði í gær að verið væri að undirbúa þingfund um heimild til slíks hernaðar en ekki var vitað hvenær hann yrði haldinn. Ólíklegt er að heimildin verði af- greidd á þinginu fyrr en eftir að fjög- urra daga trúarhátíð lýkur á sunnu- daginn kemur. Óttast er að árásir tyrkneska hersins yfir landamærin kveiki ófrið- arbál á einu af þeim fáu svæðum í Írak sem hafa verið tiltölulega frið- samleg. Íraskir Kúrdar hafa heitið því að verja landamærin. Andvíg innrás Hefji Tyrkir stórfelldar árásir yfir landamærin gætu þær stefnt tengslum þeirra við Bandaríkja- stjórn í hættu. Bandaríska utanrík- isráðuneytið hvatti Tyrki til að leggj- ast ekki í hernað í N-Írak. Heimili tyrkneska þingið innrás í N-Írak getur herinn annaðhvort lát- ið til skarar skríða strax eða beðið til að láta á það reyna hvort Banda- ríkjamenn grípi sjálfir til aðgerða gegn kúrdísku uppreisnarmönnun- um til að afstýra innrás Tyrkja. Tyrkir gerðu yfir tuttugu sinnum innrásir í Norður-Írak frá níunda áratugnum til ársins 1997. Tugir þúsunda hermanna tóku þátt í síð- ustu innrásinni. Á síðustu tólf dögum hafa liðs- menn Verkamannaflokks Kúrdist- ans orðið 25 manns að bana í Tyrk- landi í árásum frá N-Írak. Þrettán tyrkneskir hermenn féllu í árás í Sirnak-héraði á sunnudag og tólf óbreyttir borgarar biðu bana í skot- árás á rútu í héraðinu 29. september. Her Tyrklands hóf sókn í Sirnak- héraði fyrr í vikunni og gerði loft- árásir á flóttaleiðir kúrdískra upp- reisnarmanna. Tyrkneskar hersveit- ir gerðu einnig sprengjuárásir á fylgsni liðsmanna Verkamanna- flokks Kúrdistans í norðurhluta Íraks. Óttast nýtt ófriðarbál geri Tyrkir innrás í N-Írak                    !  " " " # $% &' #'#!  (( ) *   +'+,  -''' " ('   "*    .  /  . 0  $ 1                       # "   ! "     "#$"%"! !   1 ".!   &  "'() '(*+,) -(*.(() '((" NÁMSMENN í óperubúningum taka þátt í skrúð- göngu í Taipei á þjóðhátíðardegi Taívans í gær. Her landsins sýndi tvær taívanskar eldflaugar á fyrstu hersýningunni í landinu í sextán ár til að minna stjórnvöld í Kína á að Taívanar hafa vopn til að verja sig komi til stríðs. Reuters Taívanar sýna Kínverjum mátt sinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.