Morgunblaðið - 11.10.2007, Page 30

Morgunblaðið - 11.10.2007, Page 30
helgartilboðin 30 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Bónus Gildir 10.-13. okt. verð nú verð áður mælie. verð Kf hangiframpartur m. beini .................. 599 719 599 kr. kg Kf sveitabjúgu, kofareykt ....................... 299 369 299 kr. kg KF folaldakubbasteik ........................... 399 499 399 kr. kg Ferskt ísl. 100% ungnautahakk............. 799 1304 799 kr. kg Danskar svínalundir, frosnar ................. 1.259 1.698 1.259 kr. kg Kjúklingur, heill, steiktur, 1.150 g .......... 489 675 425 kr. kg Bónus kartöflumús, 220 g .................... 98 129 445 kr. kg Frosin hörpuskel, 200 g........................ 0 0 1.990 kr. kg Frosin sjávarblanda, 250 g ................... 298 0 1.192 kr. kg Krónan Gildir 11.-14. okt. verð nú verð áður mælie. verð Grísalundir m/ rjómaost&pappadew ..... 1.998 2.698 1.998 kr. kg Grísalundir m/ rjómaost&sólþ.tómötum 1.998 2.698 1.998 kr. kg Lamba rib eye...................................... 2.232 3.189 2.232 kr. kg Móa kjúklingabringur............................ 1.499 2.515 1.499 kr. kg Goða sviðasulta, lamba........................ 1.250 1.785 1.250 kr. kg Goða súpukjöt, lítill poki....................... 398 538 398 kr. kg McCain garlic fingers, 472 g ................. 398 498 843 kr. kg Krónu fylltir lakkrísbitar, 400 g .............. 349 399 872 kr. kg 7UP & 7 UP Free, 2 l ............................ 89 153 45 kr. ltr Charmin salernispappír, 16 rúllur .......... 599 799 599 kr. pk. Fjarðarkaup Gildir 11.-13. okt. verð nú verð áður mælie. verð FK hamborgarhryggur ........................... 998 1.426 998 kr. kg Nautagúllas úr kjötborði ....................... 1.398 1.598 1.398 kr. kg Nautasnitsel úr kjötborði ...................... 1.478 1.690 1.478 kr. kg FK jurtakryddað lambalæri.................... 1.298 1.854 1.298 kr. kg Matfugl læri/leggur .............................. 396 609 396 kr. kg Freschetta pitsa Bric oven, 570 g .......... 398 598 700 kr. kg Nóatún Gildir 11.-14. okt. verð nú verð áður mælie. verð Lambafille með fiturönd ....................... 2.498 3.398 2.498 kr. kg Lamba rib eye...................................... 2.298 3.498 2.298 kr. kg Lambalundir........................................ 2.998 3.998 2.998 kr. kg Ungnautahakk..................................... 898 1.398 898 kr. kg Móa kjúklingavængir, magnpakkning..... 141 281 141 kr. kg Labeyrie andabringur, franskar.............. 2.989 3.498 2.989 kr. kg Skyr.is drykkir, 5 tegundir, 330 ml ......... 97 108 294 kr. ltr Baguette hvítlauksostabrauð ................ 277 369 277 kr. stk. HD 100% safi, 3 teg., 2 l ...................... 259 289 130 kr. ltr EF uppþvottalögur, 3 teg....................... 398 498 398 kr. pk. Samkaup/Úrval Gildir 11.-14. okt. verð nú verð áður mælie. verð Kjötborð nautahakk ............................. 969 1.294 969 kr. kg Borgarnes lambalæri, sítrónukryddað .... 1.341 1.916 1.341 kr. kg Borgarnes bjúgu .................................. 399 575 399 kr. kg Matfugl kjúklingaleggir, magnkaup ........ 426 609 426 kr. kg Ísfugl 1/1 kjúklingur, ferskur ................. 458 655 458 kr. kg Hatting ostabrauð, 2 stk. ...................... 199 281 199 kr. stk. Coca cola 1 lítri ................................... 89 157 89 kr. ltr Lays snakk paprika, 200 g.................... 139 243 695 kr. kg Tómatar .............................................. 189 259 189 kr. kg Melóna, katnilópur............................... 189 259 189 kr. kg Þín verslun Gildir 11.-17. okt. verð nú verð áður mælie. verð Dalfour hindberjasulta, 284 g ............... 219 342 771 kr. kg Borgarnes kindakæfa, 200 g ................ 224 280 224 kr. kg Maxwell House kaffi, 500 g................... 398 429 796 kr. kg Almondy Daim terta, 400 g................... 589 859 1.473 kr. kg Almondy Snickers terta, 450 g .............. 598 835 1.329 kr. kg Egils epla cider, 2 l .............................. 115 225 57 kr. ltr Egils Mix, 2 l........................................ 115 178 57 kr. ltr Hatting ostabrauð ................................ 198 259 99 kr. stk. Daloon Kínarúllur, 720 g ...................... 425 585 590 kr. kg Morgunblaðið/Þorkell E N N E M M / S ÍA / N M 3 0 13 6 Ingvar Helgason, Sævarhöfða 2, sími 525 8000, www.ih.is ÞÉR ER BOÐIÐ Við hjá Ingvari Helgasyni bjóðum þér í heimsókn með alla fjölskylduna um helgina. Við frumsýnum nýjan Subaru Impreza, við færum þér kaffi, pönnukökur og fleira góðgæti. Þú mátt koma inn á skónum og krakkarnir mega vera með læti. Sjáumst. B jörg hefur lengst af verið efnalaug en fór einnig út í þvotta- húsrekstur árið 2000. Fönn byrjaði hins veg- ar sem þvottahús fyrir áratugum en tekur nú ekki síður fatnað og annað í hreinsun, rétt eins og gert er í efnalaugum eða fatahreins- unum, eins og slík fyrirtæki eru líka kölluð. Sparar tíma fyrir alla Áherslurnar hafa breyst nokkuð nú síðustu árin hjá þeim sem sækj- ast eftir þjónustu þessara fyr- irtækja og annarra sem bjóða sömu þjónustu. Þeim Kristni og Þorra kemur saman um að það sé vegna þess að fólk vilji gjarnan nýta tíma sinn sem mest og best þegar það er ekki í vinnunni. Þvottur og fatn- aður hefur lengi verið sóttur heim og sendur til fólk, í mismiklum mæli þó. Nú gerist það æ algeng- ara að fyrirtæki leyfa starfs- mönnum að koma með þvottinn, kannski aðallega fatnað, í vinnuna og láta sækja hann þar á ákveðnum degi. Síðan kemur hann til baka hreinn og finn að nokkrum dögum liðnum og menn taka pakk- ann sinn með sér heim. Við þetta sparast mikill tíma, eiginlega bæði fyrir starfsmennina og fyrirtækin, því það vill brenna við að menn fái að skreppa frá í einkaerindum af og til, en með þessu móti dregur úr því. Þjónustar eldri borgara Fönn býður eldri borgurum sér- staka þjónustu sem felst í því að sóttur er þvottur og fatnaður til hreinsunar tvisvar í viku, á mánu- dögum og fimmtudögum milli klukkan 17 og 19 og síðan er komið með hann aftur að viku liðinni. Þetta á bæði við um eldri borgara á stofnunum og hina sem búa enn heima og geta átt erfitt með að sækja sér þessa þjónustu sjálfir. Fönn hefur alla tíð þjónað fyr- irtækjum á svipaðan hátt og sama gildir um Björg, að sögn Kristins. Hann segir töluvert um að fólk nýti sér að láta koma heim, taka niður gluggatjöld, hreinsa þau og fara svo aftur með þau og hengja upp að nýju, og ekki að furða því fátt er erfiðara og leiðinlegra en að bjástra við að koma gluggatjöld- unum fyrir gluggana. Gera við saumsprettur og fleira Í Björg er mikið gert af því að gera við fatnað fyrir viðskiptavini og þangað berast milli 5 og 10 flík- ur á hverjum degi sem óskað er eftir smáviðgerð á. „Við saumum á hnappa, gerum við saumsprettur, styttum, síkkum, víkkum og þrengjum,“ segir Kristinn en segir að ekki sé saumastofa hjá Björg heldur sé þjónustan sótt út fyrir fyrirtækið. Í Fönn er einnig gert við en þó aðallega vinnufatnað fyrir fyrirtæki og hefur það tíðkast lengi og er viðgerðunum sinnt á staðn- um. Það er greinilegt að straufríar skyrtur hafa ekki rutt úr vegi skyrtuþvotti og straujun því Krist- inn segir að skyrtuþvotturinn vaxi stöðugt og sú þjónusta fyrirtæk- isins sé mjög vinsæl. Endirinn varð sá að fyrir þremur árum var keypt sérstök hágæðavél til verksins, Rollsinn í þessum bransa, og ár- angurinn er eftir því, að hans sögn. Kapphlaupið við tímann virðist vaxa stöðugt svo það er ekki að undra þótt fólk nýti sér að hægt er að fá þvottinn sóttan, og honum skilað aftur þvegnum og frágengn- um, fötin hreinsuð og skyrturnar þvegnar og straujaðar eins og þær séu að koma nýjar úr búðinni. Í staðinn geta menn nýtt tímann til að gera eitthvað skemmtilegt. Eyðum ekki tíma í þvotta og viðgerðir Ýmsir halda því fram að tíminn sé peningar og svo eru líka aðrir sem meta tímann ekki einungis til fjár heldur öllu fremur til lífsgæða. Þeir telja að allan frítíma beri að nota sem best og í eigin þágu og sinna nánustu. Þetta kemur vel fram í spjalli Fríðu Björnsdóttur við Þorra Helgason, verkstjóra í Þvottahúsinu Fönn í Skeifunni, og Kristin Guðjónsson, framkvæmdastjóra í Björg efnalaug við Háaleitisbraut. Morgunblaðið/Golli Tekið niður og sett upp Kristinn Guðjónsson sýnir okkur gluggatjöld sem eru á heimilið til uppsettningar. Morgunblaðið/Golli Hreint og strokið Sara Guðmundsdóttir í Fönn hefur tekið saman þvott og gengur frá honum til heimsendingar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.