Morgunblaðið - 11.10.2007, Síða 38
38 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞAÐ hefur líklega ekki farið
framhjá neinum að vandamál tengd
offitu aukast hérlendis dag frá degi
og það í öllum aldursflokkum. Al-
varlegust er aukningin hjá börnum
og ungmennum, því
þau eiga alla framtíð-
ina fyrir sér og miklar
líkur eru á því að þau
þurfi að berjast við of-
fituna það sem eftir
lifir með tilheyrandi
líkamlegum og fé-
lagslegum erfiðleikum.
Við lifum í þjóð-
félagi bílasamgangna
og geigvænlegs sjón-
varpsgláps sem krefst
þess að við hreyfum
okkur hálftíma til
klukkutíma á dag til
þess eins að halda okkur í kjör-
þyngd. Það er því miður takmark
sem fáir ná, hvorki ungir né aldnir
enda lifa þeir við sömu aðstæður.
Ég hef oft velt því fyrir mér í
forundran hvernig verslunareig-
endum og sælgætisframleiðendum
leyfist að stilla sælgæti og annarri
óhollustu beint fyrir framan augu
barna meðan beðið er á kassa í
verslunum? Þetta er kaldrifjuð og
óprúttin sölumennska sem ekki
ætti að líðast í siðmenntuðu þjóð-
félagi.
Verslunareigendur og sælgæt-
isframleiðendur ættu að sjá sóma
sinn í því að fjarlægja þessar sæl-
gætisgrindur frá kössum verslana
tafarlaust. Einhver vitundarvakn-
ing virðist þó vera að eiga sér stað
hjá verslunareigendum þar sem ný-
verið undirrituðu forsvarsmenn
matvöruverslana yfirlýsingu þess
efnis að verslunarmenn ætluðu sér
að hvetja til betra mataræðis og
hollari lífshátta. Ég get ekki annað
en glaðst yfir þessu framtaki Sam-
taka verslunar og þjónustu. Nú
bind ég vonir mínar við að þetta
séu ekki bara orðin tóm og að raun-
veruleg breyting verði á vöruúrvali
og uppstillingu matvara í versl-
unum.
Önnur svívirða framleiðenda
óhollrar matvöru eru endalausar
auglýsingar þeirra í barnatímum
sjónvarpsins. Ég biðla til alþing-
ismanna þjóðar vorrar
að sporna við þessari
hneisu með löggjöf.
Nágrannaþjóðir okkar
Norðmenn og Svíar
hafa þegar bannað
auglýsingar sem er
sérstaklega beint að
börnum. Væri pen-
ingagræðgin hérlendis
ekki algjör þyrfti ekki
að grípa til banna af
þessu tagi.
Það eru ekki ein-
ungis verslunareig-
endur sem geta stuðl-
að að auknu heilbrigði barnanna
okkar. Borgar- og bæjaryfirvöld
geta tekið höndum saman, bætt við
útivistarsvæðum og fjölgað hjól-
reiðastígum í stað þess að bæta við
enn einum mislægum gatnamótum.
Draga mætti verulega úr þeim um-
ferðarteppum sem myndast á höf-
uðborgarsvæðinu á háannatímum
með betra aðgengi fyrir hjólreiða-
fólk að því ógleymdu að hjólið er í
senn frábært og vistvænt sam-
göngutæki. Undanfarin ár hef ég
dvalið í Danmörku en þar notar
aragrúi fólks reiðhjól til að ferðast
á milli staða. En frændur vorir
Danir eru á heimsmælikvarða hvað
varðar aðgengi fyrir hjólreiðafólk.
Það hryggir mig að hérlendis virð-
ist ekki nokkur vilji vera fyrir því
að bæta aðgengi hjólreiðamanna
eða almenningssamgöngur almennt.
Það eru miklar líkur á að maður
verði keyrður niður eða hjóli ein-
faldlega á gangandi vegfaranda
treysti maður sér á annað borð til
þess að ferðast einhverjar vega-
lengdir á hjóli innan höfuðborg-
arsvæðisins
Taka verður það fram í þessari
umræðu að í Danmörku eru brekk-
ur nánast engar og veðrið er mun
skaplegra en hér á landi. En við er-
um harðgerð þjóð sem lifað hefur
hér norður í ballarhafi öldum sam-
an og ættum því að umbera smá
mótlæti á hjóli.
Borgar- og bæjaryfirvöld geta
einnig stuðlað að hollari næringu
barna með því að koma í veg fyrir
sölu á sætindum og gosdrykkjum í
grunnskólum landsins.
En þegar öllu er á botninn hvolft
þá erum það líklega við foreldrar
sem berum hvað mesta ábyrgð á
holdafari og heilbrigði barna okkar.
Við erum jú fyrirmyndir barnanna,
auk þess sem við kaupum matinn
sem neytt er á heimlinu. Hvernig
getum við ætlast til þess að börnin
okkar hreyfi sig meira eða borði
hollari fæðu þegar við förum á bíln-
um til nágrannans, förum reglulega
á skyndibitastaði og hökkum í okk-
ur sætindi yfir imbakassanum á
kvöldin?
Þessari skelfilegu þróun er unnt
að snúa við en þá þarf að grípa til
róttækra aðgerða. Hættið að skutla
börnunum ykkar út um allt, tak-
markið notkun sjónvarps og tölvu
og finnið hreyfingu fyrir barnið
sem því finnst skemmtileg. Setjið
skýrar reglur á heimilinu um
neyslu sætinda og annarrar óholl-
ustu t.d. með því að koma á einum
nammidegi í viku. Hættið að fara
reglulega á skyndibitastaði með
börnin ykkar en með slíku háttalagi
gerið þið ekkert annað en að stuðla
að verra líkamlegu atgervi ykkar
og það sem alvarlegra er, barnanna
ykkar.
Til þess að taka á offituvand-
anum í eitt skipti fyrir öll þarf þjóð-
félagið í heild sinni að vakna til lífs-
ins .Berum ábyrgð á heilsu barna
okkar og okkar eigin í leiðinni.
Það er vissulega hvorki auðvelt
né fljótgert að breyta lífsstíl sínum
til hins betra en ég get lofað ykkur
því að launin eru erfiðisins virði, og
vel það.
Skyndifæðið fitar
Geir Gunnar Markússon skrifar
um næringu og lífsstíl » Þegar öllu er ábotninn hvolft þá
erum það líklega við
foreldrar sem berum
hvað mesta ábyrgð á
holdafari og heilbrigði
barna okkar.
Geir Gunnar Markússon
Höfundur er næringarf-
ræðingur og faðir.
MORGUNBLAÐIÐ er með í
notkun móttökukerfi fyrir að-
sendar greinar. Formið er að
finna ofarlega á forsíðu fréttave-
fjarins mbl.is undir liðnum
„Senda inn efni“. Ekki er lengur
tekið við greinum sem sendar
eru í tölvupósti.
Í fyrsta skipti sem formið er
notað þarf notandinn að skrá sig
inn í kerfið með kennitölu, nafni
og netfangi, sem fyllt er út í þar
til gerða reiti. Næst þegar kerf-
ið er notað er nóg að slá inn net-
fang og lykilorð og er þá not-
andasvæðið virkt.
Ekki er hægt að senda inn
lengri grein en sem nemur
þeirri hámarkslengd sem gefin
er upp fyrir hvern efnisþátt.
Þeir, sem hafa hug á að senda
blaðinu greinar í umræðuna eða
minningargreinar, eru vinsam-
legast beðnir að nota þetta
kerfi. Nánari upplýsingar gefur
starfsfólk greinadeildar.
Móttöku-
kerfi að-
sendra
greina
Nýbýlavegur – mjög góð kaup
3 - 4ra herbergja á jarðhæð
Í einkasölu falleg íbúð á jarðhæð í mjög vel staðsettu húsi miðsvæðis í
Kópavogi. 3 svefnherbergi þar af er eitt forstofuherb. Stofa, eldhús og
baðherb. Verð aðeins 18,9 millj.
Þórarinn M.Friðgeirsson
lögg.fasteignasali
Sími 899-1882
Sími 588 4477
Sogavegur – 4ra herb.
Íbúð á útsýnisstað.
Með aukaherbergi og góðri sameign
Í einkasölu mjög góð 4ra herb. íb. á 2. hæð í fallegu nýlega máluðu húsi á
útsýnisstað ásamt aukaherb. í kj. 2-3 svefnherb. á hæðinni og mikið út-
sýni, parket, flísalagt baðherb. Suðursvalir, glæsil. útsýni. Mjög góð stað-
setning. V. 26,9 m./tilboð
Andrésbrunnur – Grafarholti
3ja herbergja nýleg íbúð m. bílskýli
Í einkasölu glæsileg fullbúin 3ja herbergja ca 96 fm íb. á efstu hæð (3ju) í
fallegu vel staðsettu lyftuhúsi á útsýnisstað. Ljósar viðarinnrétt. Glæsilegt
útsýni. Parket og flísar. Stórar svalir. Stæði í 3ja bíla bílskýli, innangengt
úr sameign. V. 25,4 millj.
Vindakór, 3ja – 4ra herb.
Lyftuhús - til afhendingar strax
Nýjar glæsilegar 3ja og 4ra herbergja íbúðir á frábærum stað efst í Kóra-
hverfinu. Stærðir eru frá 105 – 130 fm og verðið er frá 24,9 – 30,9 millj.
Íbúðirnar eru til afhendingar strax fullfrágengnar án gólfefna, innréttaðar á
vandaðan hátt. Útsýni úr hluta íbúðanna.
Upplýsingar á www.nybyggingar.is eða hjá sölumönnum
Heimsferðir bjóða allra síðustu sætin til Búdapest í október á frábærum
kjörum. Ein fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara þangað í
þúsundatali á hverju ári með Heimsferðum. Haustið er frábær tími til að
heimsækja borgina. Búdapest býður einstakt mannlíf, menningu og skemmtun
auk frábærra veitinga- og skemmtistaða. Fyrstur kemur – fyrstur fær!
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð frá kr. 19.990
Netverð á mann, m.v. flugsæti báðar leiðir með sköttum, út 19. okt. og heim 22. okt.
Helgarferð 19.-22. okt.
frá kr. 34.990 – flug + gisting
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli á Hotel Atlas *** í 3 nætur með morgunverði.
Gisting á Hótel Erzebet + kr. 5.000 aukalega.
Búdapest
19. október
frá kr. 19.990 (helgarferð)
Allra síðustu s
ætin - bókaðu
núna!