Morgunblaðið - 11.10.2007, Side 43

Morgunblaðið - 11.10.2007, Side 43
uðborgarsvæðisins var hann óskap- lega hógvær í tali um það mikla ævi- verk sem hann skildi eftir sig í húsum, raðhúsum, fjölbýlishúsum og þannig mætti lengi telja. Hann var maður sem lét verkin tala. Afi Kiddi bar aldurinn óvenju vel, allt þar til undir það síðasta. Hann var íþróttaunnandi af lífi og sál og lifði samkvæmt boðskapnum um hrausta sál í hraustum líkama. Hann var vel á sig kominn líkamlega allt þar til undir það síðasta og naut þess að styðja barnabörnin og barna- barnabörnin á vettvangi íþróttanna. Lét sig ekki vanta meðal áhorfenda á kappleiki, í íþróttagallanum og hlaupaskónum og kunni þá dýru list að koma fram við þau sem sigurveg- ara, hvernig svo sem leikurinn fór. Hann á eflaust íþróttaiðkun æsku- áranna því að þakka, hvað honum entist þrek fram eftir öllum aldri. Þá var afi Kiddi afar hófstilltur og ag- aður maður gagnvart sjálfum sér. Fór á fætur við fyrsta hanagal og sleppti aldrei verki úr hendi. Stæðum við hjónin í einhverjum stórræðum, eins og flutningum eða öðrum fram- kvæmdum, var hann mættur fyrstur á svæðið og hlífði sér hvergi. Á 77. aldursárinu bar hann þannig nær alla búslóðina okkar með honum Ninna út í flutningabílinn af annarri hæð. Og nær 83 ára gamall var hann hand- langari, þegar við réðumst í kvist- byggingu við húsið okkar. Geri aðrir betur. Helsti löstur hans, ef löst skyldi kalla, var að árin urðu smám saman fleiri og aldurinn hærri en eiginlegur aldur hans sagði til um. Hann var af þessum sökum tregur til að tileinka sér ýmsar viðteknar venjur eldri borgara og notaði t.d. ekki gleraugu nema nauðsyn krefði. Eins og ég þekkti hann, þá var hann alltaf á þessum óræða sextugsaldri, lifandi lífinu lífandi, hlaupandi við fót. En þar kom, að líkaminn hlýddi ekki eins vel og áður og þótt hann bæri sig vel, þá reyndist það honum eflaust erfitt. Nú ertu allur, elsku afi Kiddi. Ég fæ þér aldrei fullþakkað allt sem þú gerðir fyrir okkur. Blessuð sé minn- ing þín. Helga. Góður maður hefur kvatt þennan heim. Kristinn var hlýr og skemmti- legur maður. Hann sýndi öðru fólki mikinn áhuga, átti mörg áhugamál og fjölda vina. Kristinn gaf mikið af sér til fjölskyldu og vina. Ég er honum innilega þakklát fyrir alla góðsemi og gjafmildi og er heppin að hafa kynnst honum og konu hans, nöfnu minni, þegar ég kom inn í fjölskylduna fyrir 18 árum. Kristinn var alltaf til staðar að hjálpa til. Smíðagallinn var til dæmis tekinn fram þegar við fluttum inn í íbúð okkar fyrir 11 árum. Parket og gólflistar fóru niður á methraða og af miklum myndarskap. Það verður skrýtið að venjast af- mælum barnanna þar sem ekki verð- ur hringt á bjöllunni á slaginu og vinaleg og sæt hjón fylla húsið hlýju og húmor. Nú byrja slík hóf ekki lengur á fallegum ljóðum í afmæl- iskortum frá afa Kidda. En mörg þeirra eru enn til og við höldum í margar yndislegar minningar um góðan fjölskyldumann. Kristinn passaði vel upp á að allir hefðu það gott og fengju vel að borða. Sjálfur var hann þekktur fyrir mikla hófsemi og heilbrigt líferni. Kristinn var góður leiðbeinandi og stórkostleg fyrirmynd. Hans er sárt saknað en við vitum þó að hann er hvíldinni feg- inn eftir erfið veikindi síðustu mán- uði. Hvíl í friði elsku Kristinn og takk fyrir allt. Megi góður Guð gefa Rögnu og fjölskyldunni allri kraft og styrk á þessari erfiðu kveðjustund. Ragna Sæmundsdóttir. Með Kristni Sigurjónssyni er genginn einn mesti afreksmaður frjálsíþróttahreyfingarinnar. Þótt á sínum tíma hafi Kristinn verið liðtæk- ur í íþróttinni eru það afrek hans utan vallar sem halda nafni hans á lofti í huga þeirra sem hann þekktu. Það var mér ómetanlegt að fá tæki- færi til að kynnast og vinna með manni sem hafði ekki aðeins mikla reynslu af störfum og þekkingu á sögu hreyfingarinnar, heldur líka áhuga og metnað fyrir því sem var að gerast þá stundina. Ekki var að finna hjá honum tómlæti vegna reynslu- leysis eða óþolinmæði okkar sem vor- um að feta okkar fyrstu skref í fé- lagsstörfum innan hreyfingarinnar. Þvert á móti var hann hvetjandi á sama tíma og hann gaf holl ráð og skoraði á okkur að halda áfram á sömu braut. Það var ánægjulegt að finna bæði ævinlega jákvætt þel hans til íþrótt- arinnar og þeirra sem þar störfuðu. Kristinn sóttist aldrei eftir embætt- um eða vegtyllum, en gegndi samt fleiri trúnaðarstörfum en margur annar innan hreyfingarinnar. Oftar en ekki var leitað til hans með að finna fólk til trúnaðarstarfa fyrir Frjálsíþróttasambandið og þeir eru ófáir sem fengu upphringingu frá honum. Það reyndist undirrituðum m.a. erfitt að færast undan áskorun hans um að taka sæti í stjórn sam- bandsins á sínum tíma. Það var erfitt að fara ekki að ráð- um Kristins eða hugmyndum. Hann var þeim ráðagóður og hjálpsamur sem til hans leituðu, enda var sóst eft- ir starfskröftum hans og ráðlegging- um löngu eftir að hann var hættur formlegum afskiptum af íþróttum eða öðrum störfum. Oft kom reyndar fyrir að leitað var til hans með að setja niður ágreining sem upp kom og sem fyrr var erfitt fyrir jafnvel hörð- ustu deilendur að sættast ekki fyrir hans orð. Þótt hann væri einstaklega tillitssamur og kurteis kom hann stundum skemmtilega á óvart með skemmtilegum umsögnum um bæði menn og málefni. En úrræða Kristins naut ekki eingöngu á vettvangi íþrótta því hann reyndist mörgum sem hann þekktu vel við húsbygging- ar eða kaup og þá gat skipt miklu máli að geta leitað til manns með reynslu og þekkingu sem hægt var að treysta. Áhugi hans á íþróttamálefnum var ætíð fyrir hendi og þeim á tíma sem okkar leiðir lágu saman kom það ósjaldan fyrir að hann gerði vart við sig eða kæmi við á skrifstofu FRÍ „svona rétt til að forvitnast“ eða heilsa upp á mannskapinn. Þótt spjallað væri um daginn og veginn höfðu heimsóknir hans og símtöl iðu- lega einhvern tilgang. Vegna vinskapar okkar Kristins og náinna samskipta var það mér sér- stök ánægja afhenda honum skjal sem heiðursfélaga FRÍ árið 1999. Eftirlifandi konu Kristins, Rögnu Halldórsdóttur, börnum þeirra og öðrum aðstandendum færi ég samúð- arkveðjur og þakkir fyrir góð kynni. Jónas Egilsson, fyrrv. for- maður FRÍ. Mætur vinur og góður félagi í Ár- manni kveður þetta jarðlíf og heldur á fund feðra sinna, yfir móðuna miklu til þess heims er hann trúði á. Kristinn minn, sól þín er hnigin til viðar. Megi sú birta og ylur er þú veittir okkur samferðafólki þínu lifa með okkur um ókomin ár. Minningar um góðan dreng lifa í hjörtum okkar er þekktum þig og unnum. Líf þitt var fagurt, allir eðlisþættir spunnir af slíkum næmleik náttúrunnar að unun var. Lífsstarf þitt var jafnvægi nátt- úrunnar, jafnvægi milli hins sterka og veika, eldri sem yngri, manns og konu. Já, lífsins í heild sinni. Já, þú varst sannur sjálfstæðismaður – Kristinn minn. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast þessum mikla öðlingi, ungur að árum, gegnum vinnu hjá honum og íþróttaiðkun og síðar á æv- inni áttum við ánægjulegt og skemmtilegt samstarf gegnum Glímufélagið Ármann, er við bárum báðir mikið stolt til. Þú varst mér sem eldri bróðir, er leiddir mig til þess þroska, færni og vitundar um gildi íþrótta og allra þátta mannlegs lífs – sem fáum er gefið – en allir menn njóta ávaxtanna frá. Slíkur maður varst þú á lífsgöngu þinni er nú er á enda runnin. En mótunaráhrif þín lifa áfram meðal samferðamanna er vorum svo lánsamir að kynnast þér og vinna með. Þar sem orð og athafnir, von og trú til uppvaxandi kynslóða skipti öllu máli. Er mótar umgjörð þess ævi- skeiðs er hún er vaxin frá og með rót- festu til genginna kynslóða. En það var ekki það sem gerði manninn eftirminnilegan í huga okk- ar – heldur það er gert var: Þótt meira en nóg væri fyrir verkin þín ein, handbragð þitt við byggingar húsa og mannvirkja, og manna. En umfram allt er ljósast var í þínu fari var mýktin og mildin sem fylgdi þér og umvafði allt er lífsandann dró. Við Ármenningar og aðrir félagar, unnendur góðra íþrótta, minnumst þín með innilegu þakklæti fyrir störf þín og þitt fórnfúsa starf í þágu þeirra sem og fyrir vort félag, sem reyndar má muna sinn fífil fegurri – þess söknum við báðir það veit ég. Nú ert þú horfinn sjónum okkar. Ljósgeisli augna þinna er slokknaður og þú hverfur frá þessari jörð til þeirrar moldu er allir eru sprottnir frá. Dauðinn er blanda tíma og eilífðar. Þegar góður maður deyr eygjum við eilífðina gegnum tímann. (Goethe) Konu hans Rögnu Halldórsdóttur og eftirlifandi börnum þeirra og öðr- um aðstandendum sendi ég og frjáls- íþróttadeild Ármanns, er hann unni hugástum, okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Hann Kristinn vinur minn á góða heimkomu vísa. Þetta var maður. Hvíl í friði mæti vinur. Eyjólfur Magnússon Scheving. Í dag kveður félag íþróttavina einn af sínum ágætu félögum, við fé- lagarnir sem allir koma úr röðum stjórnarmanna Frjálsíþróttasam- bands Íslands og höfum átt því láni að fagna að starfa með Kristni Sigur- jónssyni, margir hverjir um langan tíma innan vébanda sambandsins og kynnast þar vel mannkostum hans og drengskap. Þegar svo fyrir um 20 árum var ákveðið að halda hópinn áfram var Kristinn að sjálfsögðu þar með og hefur í öll þessi ár verið hinn dyggi og góði þátttakandi í öllum okkar fund- um og samkomum. Það er öllum ljóst að þátttaka Kristins í íslensku frjálsíþróttalífi var af sannri einlægni og gleði yfir góðu gengi íþróttafólks, sem átti í honum góðan og traustan vin og félaga, og mun minnast hans með þökk. Óhætt er að segja að slíkt sé einnig um okkur félagana, þar sem Kristinn skilur eftir tómarúm og ljúfar og góð- ar minningar um alla okkar samfundi þar sem Kristinn lagði ætíð gott til málanna og af sinni einstöku hóg- værð og innileika sem var honum eðl- islægur. Að leiðarlokum sendum við eftirlif- andi eiginkonu hans og fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur. Minningin um góðan félaga mun lifa meðal okk- ar. Félag íþróttavina. Ég kynntist Kristni fyrst 1975, þegar ég réðst til hans í vinnu. Fyrsta sumarið og haustið vann ég í hand- langi en sumarið á eftir var ég farinn að smíða með honum. Hjá honum vann ég síðan á sumrum, fríum og flestum helgum í 10 ár. Hann var húsasmíðameistari og hafði fólk í vinnu eftir því sem verkefni kröfðust. En hjá honum var ég í vinnu eins oft og mikið og ég gat komið við gegnum mín námsár. Þessara ára er gott að minnast. Kristinn var þannig gerður, að hann var léttur í spori og léttur í lund. Hann var útsjónarsamur í vinnu og átti auðvelt með að finna lausnir á flóknum verkefnum, þegar upp komu. Það var mikil gleði sam- fara því að vinna með honum. Áhugi hans og drift voru smitandi og hann leiðbeindi á jákvæðan hátt. Þegar mætt var að morgni var hann fullur af orku og átti til að segja okkur fregnir af veðri frá því um kl. 5 um morg- uninn, þegar hann hafði vaknað. Ég held að honum hafi aldrei dottið í hug að vinna á annan hátt en að gera sitt ýtrasta, og þó að afköstin væru mikil og þreytan farin að segja til sín, var alltaf gaman í vinnunni. Eftir að námi mínu lauk, héldum við sambandi og 1999, þegar ég þurfti sjálfur að smíða mér bílskúr, hafði ég samband við Kristin, sem þá var að mestu hættur smíðum. Það breytti ekki því að hann kom og við skemmt- um okkur í viku við þetta verk. Kristinn var áhugasamur um íþróttir frá unga aldri. Hann hafði sjálfur keppt í frjálsum íþróttum og glímu. Áhugi hans á íþróttum entist út ævina og hann var oft og iðulega fenginn til starfa við íþróttamót, þar sem jákvæðni hans og hvatning gagn- aðist mörgum keppandanum. Kristinn var næmur á fólk og mannþekkjari. Og svo gott átti hann með að umgangast aðra, að hann var gjarnan fenginn til að ganga á milli og sætta fólk í málum þar sem allt virtist komið stál í stál. Slíkum málum gat hann lent þannig að báðir aðilar urðu nokkuð sáttir. Samhliða smíðum tók Kristinn að sér að tjónamat á húsbyggingum fyr- ir borgardóm og hélt því áfram eftir að hann var hættur að smíða. Kristinn var þjóðlegur maður. Hann átti það til að yrkja fólki kvæði á afmælum eða á tilefnisdögum og flutti síðan með ávarpi. Við lok hans jarðvistar er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa kynnst svo fágætum heiðursmanni. Með því að hafa mig í vinnu studdi hann mig og mína fjölskyldu gegnum námsár- in. En ekki bara það, því á margan hátt lærði ég af honum og tók hann mér til fyrirmyndar. Þannig að í heildina tekið reyndist hann mér bet- ur en flestir, skyldir sem óskyldir og verð ég honum ævinlega þakklátur. Þegar svo skemmtilegur og kraft- mikill maður fer yfir móðuna miklu, má búast við gleðilátum á himnum, og ég er viss um að vel hefur verið tekið á móti honum. Konu hans Rögnu, börnunum fjór- um, tengdafólki, niðjum og ættingj- um öllum votta ég samúð mína við fráfall þessarar kempu, sem ætti fremur skilið að einhver semdi um hann og hans verk þrítuga drápu fremur en þessi takmörkuðu kveðju- orð mín, sem engan veginn gefa fulla mynd af honum. Að lokum bið ég þessum vini mínum Guðs blessunar. Hlynur Þorsteinsson. Kveðja frá glímudeild KR. Heiðursmaðurinn Kristinn Sigur- jónsson lést á heimili sínu föstudag- inn 5. október sl. Kristinn var hávax- inn, myndarlegur maður og ávallt vel til fara og hafði prúða framkomu. Kristinn var góður glímumaður, eldsnöggur og skarpur. Hann var fjölhæfur íþróttamaður. Auk glím- unnar æfði hann frjálsar íþróttir með góðum árangri. Hann tók þátt í sinni fyrstu Íslandsglímu 1943 og varð fjórði, sem var góður árangur. Hann gekk til liðs við glímudeild KR haustið 1942. Á þessum tíma var mikil og góð þátttaka í glímunni í KR. Á árinu 1944 mun hafa verið mjög góð þátttaka á glímuæfingum KR. Þess er getið að 26. febrúar 1944 hafi yfir 30 glímumenn úr KR farið til Keflavíkur. Hafði glímu- deildin fengið ungmennafélagshúsið lánað til þess að halda þar skemmt- un. Þar var haldin glímusýning og bændaglíma. Sýningarglíman þótti góð, en sérstaka athygli vakti bændaglíman. Vildu margir að glím- an yrði framlengd. Kristinn var fánaberi á lýðveld- ishátíðinni á Þingvöllum 1944 og þátttakandi í Íslandsglímu en varð að ganga úr keppni vegna meiðsla. Kristinn gerðist lögregluþjónn í Reykjavík 1942 og gegndi því starfi í nokkur ár, þar til hann fór í iðnnám og gerðist afkastamikil húsasmíða- meistari. Hann var lengi formaður Breiðfirðingafélagsins í Reykjavík. Kristinn Sigurjónsson var ferming- arbróðir pabba og frændi. Enda byrjaði hann alltaf að segja við mig komdu sæll frændi. Hann var þekkt- ur íþróttaunnandi og var duglegur að mæta á íþróttaviðburði og hafa samband við eldri og yngri félaga í glímudeild KR. Þegar ég var for- maður glímudeildar KR fékk ég Kristin oft til að afhenta verðlaun og slíta glímumótum og fórst honum það afar vel úr hendi. Ég hitti Krist- in á síðustu Íslandsglímu og hafði hann sterkar skoðanir á dómgæslu og glímulagi keppenda. Ég hafði frétt að hann hefði slasast í árekstri og hefði verið á spítala um tíma en væri kominn heim. Hann náði sér ekki eftir slysið og varð bráðkvaddur heima hjá sér. Blessuð sé minning Kristins R. Sigurjónssonar. Við félagar í glímudeild KR send- um Rögnu Halldórsdóttur og börn- um innilegar samúðarkveðjur. Ásgeir Víglundsson. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 43 ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HAUKUR MATTHÍASSON, Sóltúni 5, Reykjavík, sem lést á Landakotsspítala laugardaginn 6. október, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 12. október kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á FAAS, félag aðstandenda Alzheimersjúklinga, sími 898-5819 og 533-1088. Arnfríður Aradóttir, Matthías Pétur Hauksson, Janet Monsen, Arnar Páll Hauksson, Aldís M. Norðfjörð, Ásrún Hauksdóttir, Torstein Tveiten, Ari Jóhannes Hauksson, Sólveig Magnúsdóttir og barnabörn og langafabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR frá Bergstöðum, til heimilis að Birkigrund 51, Kópavogi, lést á Hjúkrunarheimilinu Grund mánudaginn 8. október. Útförin auglýst síðar. Gestur Pálsson, Bergljót Sigvaldadóttir, Þorleifur Jónatan Hallgrímsson, Guðrún Halldóra Gestsdóttir, Sveinn Kjartansson, María Páley Gestsdóttir, Vignir Smári Maríasson, Aðalgeir Bjarki Gestsson, Brynja Guðnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.