Morgunblaðið - 11.10.2007, Page 58
58 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
BLOODGROUP
var stofnuð fyrir
tveimur árum á
Egilsstöðum af
þremur systkinum
og einum Fær-
eyingi en fyrir
stuttu bættist plötusnúðurinn DJ B Ruff í
hópinn, en hann er m.a. þekktur fyrir góð
störf í þágu rappsveitarinnar Forgotten Lo-
res.
Hallur Kristján Jónsson, eða Halez, segir að
sveitin hafi á undanförnum árum verið að
breytast úr svefnherbergissveit yfir í „lifandi“
tónleikasveit, en Bloodgroup hefur orð á sér
fyrir að vera mikil gleðisveit á þeim vettvang-
inum. Þetta ár er þá búið að vera einkar við-
burðaríkt og Hallur telur að það sé búið að
rúlla upp fjórum til fimm tugum af tónleikum.
„Svo erum við búin að vinna linnulaust að
plötunni okkar, Sticky Situation, í sumar,“
segir hann. „Hún er klár, og kemur út 1. nóv-
ember. Við gefum hana sjálf út.“ Bloodgroup
er skilgetið barn alþjóðavæðingarinnar og
tækniveröld samtímans. Netið, og þá einkum
hið áhrifaríka vefsvæði MySpace, hefur verið
drjúgt í kynningarmálunum og þá var platan
tekin upp hér og hvar fyrir tilstilli færanlegs
hljóðvers. Meðlimir sjálfir hafa þá verið á víð
og dreif, Hallur er nú búsettur í Reykjavík en
systkini hans tvö eru enn fyrir austan og Ja-
nus, Færeyingurinn, flýgur vikulega á milli
heimalandsins og Íslands.
101 ára
Hvað dægurtónlist varðar hafa Austfirðir
helst verið þekktir fyrir þungarokk, fremur en
stuðvæna raftónlist. „Já, við erum algerlega
að eyðileggja þetta orðspor,“ segir Hallur og
kímir. „En ég hef ekki fundið fyrir því að það
væri litið á okkur sem einhver viðrini hérna,
síður en svo. En við erum sem stendur eina
sveitin sem er að spila svona tónlist.“ Hróður
Bloodgroup barst síðan fljótlega út fyrir land-
steinana og að baki eru tónleikar bæði í New
York og Berlín. Frekari útrás er þá í spil-
unum á næstu mánuðum. En hvernig er það
fyrir sveit frá Austfjörðum, sem hefur óneit-
anlega mikla „101“ áru í kringum sig, veri það
fyrir klæðnað eður hljómlist, að hasla sér völl
á meðal miðbæjarrottnanna? „Já, ég skil alveg
hvað þú ert að fara,“ svarar Hallur. „Vissulega
sitjum við ekki við sama borð og aðrir í þess-
um geira. Ég er ekki að meina að við höfum
mætt einhverri andúð, heldur bara þá blá-
köldu staðreynd að sökum búsetu höfum við
ekki haft kost á því að hanga á Sirkusbarnum
um hverja helgi. Þannig að tengslanetið okkar
í bænum er ekki eins þétt og innfæddra!“
Halli er þó til efs að landsbyggðin hafi haft
áhrif á tónlistarsköpunina sjálfa.
„En samt … örugglega hefur það haft ein-
hver áhrif en þetta er allt fremur alþjóðlegt í
grunninn. En upptökuferlið var óneitanlega
sérstakt, þar sem við rúntuðum á milli skjól-
sælla félagsheimila með einn og hálfan bílfarm
af græjum. Og ætli það sé ekki þessi ró og
þetta næði í sveitunum sem við höfum verið að
hagnast mest á. Aðgangurinn að friði er auð-
veldur úti á landi …“
Austfirska rafstuðsveitin Bloodgroup hristir upp í Loftbylgjunum
Portrett Þrír Íslendingar og einn Færeyingur.
Einhvers staðar á bakvið leynist svo DJ B Ruff.
Á ferð og flugi Austfirska rafsveitin Blood-
group á hljómleikum í Nýju Jórvík.
JAPANAR geta nú keypt íslenska hönnun
í gegnum japönsku vefsíðuna iceland-
cafe.com.
„Það eru margir listamenn á Íslandi
sem ættu að afhjúpa hæfileika sína á al-
þjóðavettvangi og við erum ákveðin í því
að gera þá listamenn þekkta í Japan,“ seg-
ir í tilkynningu frá stofnendum vefsíð-
unnar.
Vefsíðan kynnir hvern listamann vel og
þá íslensku menningu sem liggur á bak við
list hans. Sem stendur eru aðallega skart-
gripir frá Aurum til sölu á síðunni.
Eigandi vefsíðunnar er Yuka Ogura sem
er mikil áhugamanneskja um Ísland og
hefur verið dugleg við að koma íslenskri
menningu á framfæri í Japan. Hún heldur
líka úti vefsíðu þar sem hún selur íslenska
tónlist og í fyrra skipulagði hún m.a. sína
eigin ferð með japanska tónlistaraðdá-
endur á Iceland Airwaves og mun mæta
aftur í ár.
Reuters
Ifbot En hvað ætti þjóð sem býr til svona
vélmenni að vilja með íslenskar vörur?
Ísland í Japan
www.icelandcafe.com
www.icelandia.shop-pro.jp
6
dagar
Iceland Airwaves
Að koma blóðinu á hreyfingu
www.myspace.com/bloodgroup
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Halloween kl. 5:30 - 8 - 10:25 B.i. 16 ára
Superbad kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Superbad kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS
Shoot’em Up kl. 10:10 B.i. 16 ára
Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 3:50 - 6
Hairspray kl. 5:30 - 8
Knocked Up kl. 10:20 B.i. 14 ára
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 4
The Simpsons m/ísl. tali kl. 3:45 (Síðustu sýn) 300 kr.
Halloween kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
SuperBad kl. 6 - 8 B.i. 12 ára
Chuck and Larry (Síðustu sýn.) kl. 6 - 10:10 B.i. 12 ára
Sími 564 0000Sími 462 3500
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
Sími 551 9000
Halloween kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára
The 11th Hour kl. 6 - 8 - 10
Veðramót kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
Brothersom Man kl. 6 - 8 - 10
Frá gaurnum sem færði okkur The 40
Year Old Virgin og Knocked Up
Ver
ð aðeins
600 kr.
“Skylduáhorf fyrir alla unglinga”
- Dóri DNA, DV
- J.I.S., FILM.IS
Dómsdagur djöfulsins!
Frá meistara Rob Zombie kemur ein svakalegasta mynd ársins!
Sló í gegn í
Bandaríkjunum
og fór beint á
toppinn
Missið ekki af þessari mögnuðu hryllingsmynd!
Stranglega bönnuð innan 16 ára
“Ferskur og fyndinn smellur”
- T.S.K., Blaðið
- H.J., MBL
Leonardo DiCaprio
kynnir
The 11th Hour
Það er okkar kynslóð sem fær
að breyta heiminum... að eilífu!
Heimildarmynd um vaxandi umhverfisvandamál og hvernig
mögulegt er að leysa þau á skynsamlegann máta.
SAGAN SEM MÁTTI EKKI SEGJA
eeee
- S.V., MBL
eeee
- R.H., FBL
eeee
- E.E., DV
eeee
- S.G., Rás 2
eeee
- R.V.E., FRéttablaðið
eeee
- S.V., MoRgunblaðið
eee
T.V. Kvikmyndir.is
eee
- J.I.S., Film.is
eee
„Skotheld skemmtun“
- T.S.K., Blaðið
eeee
- A.M.G., SÉÐ OG HEYRTSÝÐUSTU
SÝN.
* Gildir á allar
sýningar í Regn-
boganum merktar
með rauðu
450
kRónuR
í bíó
*
Ver
ð aðeins
300 kr.
Hasar og adrenalín flæði frá upphafi til enda
eee
Dóri DNA - DV