Morgunblaðið - 11.10.2007, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 11.10.2007, Qupperneq 64
FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 284. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Deilt í Ráðhúsinu  Áheyrendapallar í Ráðhúsi Reykjavíkur voru þéttsetnir í gær þegar borgarfulltrúar tókust á um málefni OR, REI og GGE. Deilt var um aðdraganda málsins og hverjar málalyktir skuli verða. » Forsíða Undirbúa kjaraviðræður  Rúm 75% Flóafélaganna svoköll- uðu vilja leggja sérstaka áherslu á verulega hækkun lægstu launa. Við- ræður eru hafnar milli launþega- samtaka og vinnuveitenda um viðræðuáætlanir fyrir komandi kjarasamninga. » 2 Umboðsmaður spyr  Umboðsmaður Alþingis spyr sveitar- og bæjarstjórnir sem hlut eiga í Orkuveitu Reykjavíkur hvern- ig staðið var að sameiningu REI og GGE. » 4 Hamas að gefa eftir?  Ismail Haniya, leiðtogi Hamas- samtakanna, lýsti því yfir í gær að samtökin væru tilbúin að ræða við Fatah, en þessi tvenn samtök hafa keppt um völdin í Palestínu. » 31 SKOÐANIR» Staksteinar: Vinstri stjórn í gerjun? Forystugreinar: Næsta skref | Auðlindir í almannaeigu Ljósvaki: Gömul minning úr sveitinni UMRÆÐAN» Kvótakerfið og hjónaskilnaðir Skjótt skipast veður í lofti Er Samfylkingin á réttri leið? Skyndifæðið fitar Ekki góð aðferð að breyta öllu … Áhættan er aðalmunurinn Stefnumót fyrirtækja í Færeyjum Öllum steinum velt hjá EADS VIÐSKIPTI »  4 4 4 4    5  !6$% .# $+ #! 7 #" &# #"$$3$ . $ 4 4  4 4 4  4 4 4 4 - 81 %   4 4 4 4 4  4  9:;;<=> %?@=;>A7%BCA9 8<A<9<9:;;<=> 9DA%8$8=EA< A:=%8$8=EA< %FA%8$8=EA< %2>%%A3$G=<A8> H<B<A%8?$H@A %9= @2=< 7@A7>%2+%>?<;< Heitast 10°C | Kaldast 2°C  Austlæg átt. Dálítil rigning eða slydda í fyrstu norðaustan til. Hvessir af suðaustri og fer að rigna í kvöld. » 10 Gunnhildur Finns- dóttir veltir fyrir sér stílbroti í miðborg- inni og breyttum hugmyndum um fegurð húsa. » 61 AF LISTUM» Boðflenna á Austurvelli FÓLK» Travolta vill fljúga Spice Force One. » 59 Sverrir Bergmann er búinn að heyra sömu spurninguna aftur og aftur: „Er platan ekki að koma, Sverrir?“ » 57 TÓNLIST» Þriggja ára meðganga TÓNLIST» Eivör víkur ekki úr toppsætunum. » 60 TÓNLIST» Bloodgroup er ekki svefn- herbergissveit. » 58 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Trump og sjómaður í hár saman 2. Vakin með kossi fimm að morgni 3. Sviplegur endir á … lífshlaupi 4. Jackson yfirgefur barnfóstruna BANDARÍSKI ljósmyndarinn Bob Gruen, sem staddur er hér á landi og var náinn vinur John Lenn- ons, segist vona að friðarsúla Yoko Ono í Viðey veki fólk til um- hugsunar um mikilvægi friðar í heiminum. „Ég held að John sé líka mjög hrifinn af þessu verki, hvar sem hann er staddur,“ segir hann í viðtali í Morgunblaðinu í dag. Vildi kynnast listamanni Gruer segir John hafa hrifist mjög af Yoko sem listamanni strax í upp- hafi en þau kynntust á sýningu sem hún hélt í London. „Hann fór ekki á sýninguna til þess að kynnast kynþokkafullri stúlku heldur til þess að kynnast listamanni. Og hann kunni að meta það sem fyrir augu bar, og hann hefði án efa kunnað að meta þetta verk líka,“ segir Gruen. Gruen vann náið með þeim hjón- um en hefur auk þess unnið með mörgum af þekktustu tónlist- armönnum heims, meðal annars Rolling Stones, Bob Dylan og Led Zeppelin. | 54 Frábært verk Bob Gruen ÞAÐ eru ekki margir íþrótta- menn eða -konur sem reyna að halda í þá gömlu hefð að stunda tvær keppnis- íþróttir allt árið. Hér áður fyrr var það nánast regla að karlar eða konur æfðu tvær boltagreinar en í dag er það und- antekning. Málarinn Sverrir Þór Sverrisson er einn fárra sem leggja það á sig að sparka bolta á sumrin og skjóta á körfu yfir vetrartímann. Sverrir hefur nú skipt um lið í körfuknattleiknum og mun hann leika með Njarðvíkingum í úrvals- deildinni – líkt og hann gerir í knattspyrnunni. „Ég var kominn með upp í háls af fótboltanum í sumar en það er aldrei að vita hvað ég geri næsta sumar. Það er því best að segja sem minnst en kannski leik ég með „old boys“ á næsta ári,“ segir Sverrir Þór Sverr- isson en vinnur líka með þessu öllu saman sem málari. | Íþróttir Er í íþrótt- um allt árið Sverrir Þór Sverrisson SLÖKKVIÁLFARNIR Logi og Glóð heimsóttu elstu krakkana í leikskólanum Hæðarbóli í Garðabæ í gær ásamt tveimur slökkviliðsmönnum frá Slökkvi- liði höfuðborgarsvæðisins til þess að fræða þá um eldvarnir. Að sögn leikskólastjórans, Sonju M. Halldórs- dóttur, áttu mörg barnanna erfitt með svefn í fyrri- nótt vegna spenningsins yfir að hitta slökkviliðs- mennina, sem þó þóttu svolítið ógnvekjandi í fullum herklæðum, en sumpart líka yfir því að karlmenn kæmu í leikskólann. Þeir eru frekar fáséðir fuglar í „kvennastétt“ leikskólakennara. | 26 Samtaka gegn eldhættu Eldvarnaátak slökkviliðanna í leikskólum Morgunblaðið/Frikki AF 33 vörutegundum sem bornar voru saman í verðkönnun sem verð- lagseftirlit ASÍ gerði í fjórum lág- vöruverðsverslunum á höfuðborgar- svæðinu í gær var Bónus með lægsta verðið í 20 tilfellum og Krón- an í 10 tilvikum. Í 13 tilvikum mun- aði einni krónu og þrisvar var mun- urinn 2-4 krónur. Nettó var með hæsta verðið í 21 tilviki. Eins og fyrr segir var könnunin gerð í gær, miðvikudag, en daginn áður hafði verðlagseftirlit ASÍ gert samskonar könnun í sömu búðum. Niðurstöðurnar eru þó einungis fengnar úr seinni könnuninni. Eysteinn Helgason, fram- kvæmdastjóri Kaupáss, sem m.a. rekur Krónuna, gerir verulegar at- hugasemdir við þessa endurtekn- ingu og í samtali við Morgunblaðið sagði hann að í gær, þegar könnunin fór fram, hefði Bónus lækkað verð á veigamiklum vöruliðum. Sama verð hefði gilt í báðum könnunum hjá Krónunni. Viðskiptavinir Krónunn- ar gætu vel við unað. Í þeim til- vikum þar sem varan væri til í öllum verslunum, væri verð körfunnar í Krónunni lægst eða 8.655 krónur en karfan hjá Bónusi væri þúsund krónum hærri. Guðmundur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Bónuss, sagði að Bón- us hefði ekki breytt verði á milli kannana. Hins vegar hefði ekki ver- ið kannað verð á sömu vörumerkj- um á kjötvörum báða dagana. Aftur á móti hefði Bónus sent athuga- semdir við vinnubrögð Krónunnar til verðlagseftirlits ASÍ þar sem Krónan hefði, meðan seinni könn- unin fór fram, sett upp skilti um að 10% afsláttur væri á öllum ostum og 20% afsláttur af öllum unnum kjöt- vörum. ASÍ hefði greinilega látið blekkjast af þessum vinnubrögðum. Fleira væri ámælisvert. Þetta er í fyrsta skipti sem ASÍ gerir verðkannanir með eins dags millibili en að sögn Ólafs Darra Andrasonar, hagfræðings ASÍ, er ástæðan sú að ákveðnir hnökrar voru á framkvæmd fyrri könnunar- innar og til þess að framkvæmdin yrði hafin yfir vafa var ákveðið að endurtaka hana. Ólafur Darri vildi ekki greina frá því í hverju mistökin voru fólgin en þau hefðu komið í ljós við skoðun innanhúss. Aðspurður hvort einhver hætta væri á því að verslanir hefðu spilað á verðlagseft- irlitið með því að lækka verð á milli kannana, sagði hann að engin hætta ætti að vera á því. „Verslanirnar höfðu enga vitneskju um að við myndum endurtaka könnunina strax daginn eftir,“ sagði Ólafur Darri. Bónus og Krónan bítast  20 sinnum var ódýrast í Bónus en 10 sinnum í Krónunni  Í 13 tilvikum munaði krónu og þrisvar var munurinn 2–4 krónur Í HNOTSKURN » Könnunin var gerð í eftir-töldum verslunum: Bónus í Holtagörðum, Krónunni við Hvaleyrarbraut, Nettó í Mjódd og Kaskó í Vesturbergi. ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.