Morgunblaðið - 09.11.2007, Page 2

Morgunblaðið - 09.11.2007, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is HUGMYNDIR um að Reykjanes- bær kaupi meirihluta hlutafjár í Hitaveitu Suðurnesja ganga ekki upp að mati Júlíusar Jónssonar, forstjóra hitaveitunnar. Rekstur fyrirtækisins stendur ekki undir vaxtagreiðslum hvað þá afborg- unum af slíkri fjárfestingu að hans sögn. Þetta kom fram hjá Júlíusi á fundi sem sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ héldu í Njarðvík- urskóla í gærkvöldi. Um 200 manns sátu fundinn. Árni Sigfússon bæjarstjóri lagði á það áherslu á fundinum að Reykjanesbær hefði öll tök á mál- efnum hitaveitunnar og lagði áherslu á að umræðan færi ekki út og suður. Hann sagði frá samn- ingsmarkmiðum Reykjanesbæjar vegna hugsanlegra breytinga á eignarhaldi hitaveitunnar og sagði að þau miðuðu öll að því að halda og efla starfsemi hitaveitunnar á Suðurnesjum. Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysir Green Energy, sagði frá aðkomu fyrirtækisins að Hitaveitu Suðurnesja og starfsemi GGE. Fundurinn var m.a. haldinn til að skýra sjónarmið forráðamanna Reykjanesbæjar og hitaveitunnar vegna umræðu um málefni hita- veitunnar. M.a. hefur Hannes Friðriksson, íbúi í Reykjanesbæ, safnað undirskriftum undir áskor- un þar sem lögð er áhersla á að Hitaveita Suðurnesja verði í meiri- hlutaeign sveitarfélaganna. Hafa rúmlega fimm þúsund íbúar skrif- að undir þessa áskorun, að hans sögn. Fyrirhugað er að afhenda undirskriftalistana á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suð- urnesjum á morgun. Að loknum framsöguerindum tjáðu nokkrir fundarmenn sig um málefnið. Hannes Friðriksson kvaddi sér m.a. hljóðs og sagði að um tíma hefði hann velt því fyrir sér að Reykjanesbær keypti meiri- hluta í hitaveitunni. Nú væri hann kominn á þá skoðun að það væri ekki raunhæfur möguleiki. Fram komu mismunandi sjónarmið í máli annarra sem tjáðu sig. Segir Reykjanesbæ hafa öll tök Forstjóri HS telur meirihluta- kaup óraunhæf Ljósmynd/Víkurfréttir Hitamál Fundur sjálfstæðismanna um málefni Hitaveitu Suðurnesja, sem haldinn var í Njarðvíkurskóla í gærkvöldi, var vel sóttur. HÁSKÓLI Íslands og Fudan-háskóli í Shanghai undirrituðu í gær samning um rannsóknarsamstarf og nemendaskipti. Vilji beggja aðila er að geta veitt sameiginlegar prófgráður, bæði á meistara- og doktorsstigi, og stuðla þannig að öflugu rann- sóknarsamstarfi. Stjórnsýslurektor Fudan-háskóla, prófessor Qin Shaode, og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, skrifuðu undir samninginn, að viðstöddum sendiherra Kína á Íslandi, Zhang Keyuan og gestum. Morgunblaðið/Kristinn HÍ í samstarf við kínverska háskóla DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ segir kröfur Lögreglufélags Suð- urlands um endurskoðun á fjár- veitingum til lögreglunnar á Sel- fossi byggðar á misskilningi. Að sögn Þórunnar J. Hafstein, skrif- stofustjóra hjá dómstóla- og lög- gæsluskrifstofu ráðuneytisins, stafar umræddur misskilningur líklega af því að embættið annaðist sjúkraflutninga fram til 2006 sam- kvæmt samningi við heilbrigðisyf- irvöld. Þegar lögreglan hefði sagt upp samningnum hefði losnað um lögreglumenn sem áður sinntu sjúkraflutningum. Með því hurfu sértekjur af sjúkraflutningunum. Þótt breytingar hafi orðið á tekju- samsetningu embættisins hafi fjár- veitingar ekki lækkað, heldur hækkað ef eitthvað er. Tekur hún fram að þótt tekjur embættisins hafi lækkað sé ekki um niðurskurð að ræða. Dómsmálaráðuneytið eigi í góðum viðræðum við lögregluna á Selfossi og sé með málefni hennar til athugunar líkt og raunin sé með önnur lögregluembætti. Fjárveit- ingar ekki lækkað Sértekjur minnkuðu hjá Selfosslögreglu Eftir Andra Karl andri@mbl.is AÐALSTJÓRN íþróttafélagsins Fylkis hefur sent skipulagsstjóra Reykjavíkurborgar erindi þar sem formlega er óskað eftir lóð við Rauðavatn. Samkvæmt upplýs- ingum frá skipulags- og bygg- ingasviði verður bréfið tekið fyrir á fundi skipulagsstjóra í dag. Um er að ræða gamla hugmynd en árið 2005 var teiknuð upp hug- mynd að deiliskipulagi við Rauða- vatn. Þær hugmyndir gerðu ráð fyrir tveimur knattspyrnuvöllum, æfingavöllum og fjölnota íþrótta- svæði svo fátt eitt sé nefnt. Hug- myndir Fylkismanna hafa hins vegar þróast þannig að þeir vilja reisa við Rauðavatn fimleikahús með samtengdri áhorfendastúku og knattspyrnuvöll, þannig að stúkan yrði staðsett miðlægt við völlinn. Áður var gert ráð fyrir að sú uppbygging færi fram í Laut- inni – íþróttasvæði Fylkis – en nú hefur að mestu verið horfið frá þeim áformum, m.a. vegna þess að framkvæmdir í Lautinni myndu takmarka starfsemi félagsins í eitt til eitt og hálft ár og slíkt er óvið- unandi fyrir félag í örum vexti. Áfram yrði öflugt unglinga- og uppeldisstarf Fylkis í Lautinni, enda hentar svæðið afar vel. Svæðið sprungið Á aðalfundi knattspyrnudeildar Fylkis sem fram fór 30. október sl. var samþykkt að beina því til aðalstjórnar að hlutast til um mál- ið og hefur það verið gert. „Félag- ið hefur lengi einblínt á að byggja í Lautinni en það hefur komið á daginn að svæðið er sprungið,“ segir Halldór Páll Gíslason, gjald- keri stjórnar knattspyrnudeildar Fylkis. „Í dag eru um sex hundr- uð knattspyrnuiðkendur í Fylki og þetta svæði er ekki nógu stórt fyr- ir þennan fjölda. Eins og staðan er í dag þurfum við þetta svæði [við Rauðavatn] til að halda úti eðlilegri félagsstarfsemi.“ Hönnun fari fram í vetur Ekki hefur verið gengið frá end- anlegri útfærslu hugmyndar Fylk- is, s.s. um hvað margir knatt- spyrnuvellir eigi að vera þar eða æfingavellir, en vonast er til að hönnun geti farið fram strax í vet- ur og framkvæmdir því hafist á næsta ári. Það er þó háð því að málið fari hratt og örugglega í gegnum borgarkerfið. Halldór segir að lóðin hafi lengi verið eyrnamerkt félaginu þó svo að hún hafi formlega ekki verið úthlutuð því. „Þannig að ég held að borgaryfirvöld hafi haft þann skilning að við værum að sprengja utan af okkur svæðið.“ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, lofaði fé- laginu nýju fimleikahúsi og stúku og hefur fjármagn verið lagt til vegna framkvæmdanna. Þegar Morgunblaðið hafði sambandi við Dag B. Eggertsson borgarstjóra sagðist hann þekkja málið en gæti lítið tjáð sig um það að svo komnu máli.  Núverandi húsnæði orðið of lítið  Vilja reisa fimleikahús með áhorfendastúku og knattspyrnuvöll Fylkir vill fá lóð við Rauðavatn                    !"  MÖRG aðildarríki NATO hafa boðið fram flugsveitir til loftrým- isgæslu við Ísland næstu þrjú árin. Frakkar munu hafa hér flugsveit í 5-6 vik- ur fyrri hluta árs 2008 og Bandaríkjamenn senda flugsveitir í 2-3 vikur næsta sumar og aftur sumarið 2009. Danir og Spánverjar hafa gefið almenn fyrirheit um þátttöku árið 2009 og Norðmenn munu eiga frekara samráð við íslensk stjórnvöld um þátttöku. Þá senda Pólverjar flugsveit hingað árið 2010. Tilkynnt var um þátttöku aðildarland- anna í loftrýmisgæslunni á mannafla- ráðstefnu NATO sem haldin var í her- stjórnarmiðstöð bandalagsins í Mons í gærmorgun, samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. „Niðurstaðan er að mínu viti þess efn- is að það eru greinilega fleiri tilbúnir að taka þátt í loftrýmiseftirlitinu en við hefðum kannski talið að óreyndu,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan- ríkisráðherra. Hún sagði þátttöku bandalagsríkj- anna koma í kjölfar ákvörðunar fast- aráðs Atlantshafsbandalagsins frá 26. júlí sl. um framkvæmd loftrýmisgæslu við Ísland. Í þeirri ákvörðun hefði falist að tengja þyrfti ratsjárkerfið hér við ratsjárkerfi Evrópu svo hægt væri að hafa lofthelgiseftirlit á því svæði sem ratsjárkerfið næði til. Einnig þyrfti loft- rýmiseftirlit ársfjórðungslega til að við- unandi varnarviðbúnaður væri hér á landi. Ingibjörg Sólrún sagði eftir að meta hver þáttur Íslendinga yrði í kostnaði við loftrýmiseftirlitið. Nú lægi einungis fyrir vilji þjóða til að koma að eftirlit- inu. Mörg Nato-ríki bjóða sig fram til loftrýmiseftirlits Ingibjörg Sólrún Gísladóttir HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest farbann yfir pólskum ríkisborgara vegna aðildar hans að nauðgun sem er til rannsóknar hjá lögreglunni á Selfossi. Maðurinn sætir far- banni til 17. desember nk. Í greinargerð með kröfu lögreglustjór- ans á Selfossi kemur fram að maðurinn hafi neitað sök, en kærandi og vitni beri á annan veg. Þá segir að beðið sé niðurstöðu á fatnaði kæranda auk lífsýna úr mann- inum. Hann liggi undir rökstuddum grun um að hafa framið alvarlegt kynferðisbrot gegn kæranda. Hæstiréttur stað- festir farbann

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.