Morgunblaðið - 09.11.2007, Side 25
mælt með ...
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2007 25
Harmonikuball
Alveg kjörið smjörið að skella sér
í dansinn og liðka legginn. Ekki láta
eftir sér að liggja heima í leti þegar
stendur til boða að snúast í hringi á
dansgólfinu undir tónum sem koma
úr þöndum nikkum. Harmoniku-
félag Reykjavíkur blæs til Harm-
onikudansleiks á morgun, laug-
ardag, í Húnabúð, Skeifunni 11,
uppi á þriðju hæð klukkan 22.00.
Kona úr fortíðinni
Ekki spurning. Fara í Þjóðleik-
húsið á sunnudagskvöld kl. 20.00 og
sjá leikritið Konan áður eftir leik-
skáldið Roland Schimmelpfennig
sem er eitt mest leikna samtíma-
leikskáld Þýskalands í dag. Um
verkið segir meðal annars:
Hún stendur við útidyrnar og
segir: „Hingað er ég komin, til að
minna þig á.“ Þetta hljómar í senn
eins og hótun og vináttuvottur.
Konan úr fortíðinni minnir Frank á
loforðið sem hann gaf henni fyrir
tuttugu og fjórum árum, um að
hann myndi alltaf elska hana.
Frank og Kládía hafa verið gift í
nítján ár, þau eru miðaldra og þrá
breytingar. Þau hafa pakkað bú-
slóðinni niður í kassa og ætla að
hefja nýtt líf með syni sínum hand-
an við hafið, þegar æskuástin birtist
skyndilega og krefst þess að hús-
bóndinn efni gamalt loforð.
Í þessu verki leikstýrir Hafliði
Arngrímsson þeim Baldri Trausta
Hreinssyni, Eddu Arnljótsdóttur og
Eddu Björgu Eyjólfsdóttur.
Ráðstefna um kvenna-
og kynjarannsóknir
Ráðstefna um kvenna- og kynja-
rannsóknir í dag kl. 13.15 í Rann-
sóknastofu í kvenna- og kynjafræð-
um við Háskóla Íslands,
aðalbyggingu. Meðal gesta eru
Drude Dahlerup, prófessor í stjórn-
málafræði, og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra. Nán-
ari upplýsingar um ráðstefnuna og
dagskrá má nálgast á heimasíðu
RIKK: www.rikik.hi.is Ráðstefnan
er öllum opin og aðgangur er
ókeypis.
Sankt Martin skrúðganga
Lagt verður upp í skrúðgöngu frá
Hafnarfjarðarbókasafni á morgun,
laugardag, kl. 17.00. Þessi ganga
tengist Sankt Martinsdeginum í
Þýskalandi sem er á morgun. Dag-
urinn er nefndur eftir heilögum
Martin sem var uppi 316-397 eftir
Krist. Hann var góðhjartaður her-
maður sem sýndi góðvild í verki.
Hann lét skírast og helgaði líf sitt
kristni. Seinna varð hann biskup og
enn í dag þekkja allir Þjóðverjar
sögu hans. Á hverju ári safnast fjöl-
skyldur í öllum fylkjum Þýskalands
saman til þess heiðra minningu
hans með því að fara í skrúðgöngu.
Þessi ganga hefur verið farin í
nokkur skipti hér á landi með sí-
aukinni þátttöku og áhuga. Í þetta
sinn mun sagan vera sviðsett með
leikurum og hesti og hljóðfæraleik-
arar taka þátt.
Hafnarfjarðarbókasafn mun hafa
opið lengur til þess að allir geti
fengið sér smáhressingu eftir á.
Kúra heima með kertaljós
Dásemdin við dimmuna á haustin
og yfir vetrartímann er hversu
notalegt er að kúra með kertaljós
og jafnvel kakóbolla í hönd og
hlusta á veðrið úti og njóta hlýj-
unnar inni við. Ótal margt er hægt
að gera í kúri: Það er til dæmis
mjög gaman að kúra með börnum
sínum undir stóru teppi og skiptast
á að segja draugasögur eða deila
hinum ýmsu vetrarminningum.
Börnum finnst gaman að heyra sög-
ur af mömmu og pabba þegar þau
voru lítil og myrkfælin og rafmagn-
ið fór af. Eða þegar þau þurftu að
ganga ein í myrkrinu á milli bæj-
anna í sveitinni þar sem engin raf-
lýsing var við veginn. Og það er
gaman fyrir foreldra að heyra sög-
ur af börnum sínum, ævintýrum
þeirra í leikskólanum eða grunn-
skólanum. Það er líka hægt að spila
á gömlu góðu spilin undir teppi,
með vasaljós, eins og í tjaldútilegu.
Og það er kunnara en frá þurfi að
segja að þeir sem eru ástfangnir
geta dúllað sér endalaust saman
undir teppi.
Morgunblaðið/Kristinn
Morgunblaðið/Jim Smart
Morgunblaðið/Ómar
Sími: 551 1200
midasala@leikhusid.is
www.leikhusid.is/
LÍFRÆNT fram-
leiddar matvörur
eru heilsu-
samlegri en aðrar
vörur, samkvæmt
viðamikilli fjög-
urra ára rann-
sókn, sem kostuð
var af Evrópu-
sambandinu. Sérfræðingar við há-
skólann í Newcastle á Englandi
leiddu rannsóknina. Rannsóknin
leiddi í ljós að lífrænt ræktaður mat-
ur inniheldur mun meira af andoxun-
arefnum og minna af fitusýrum en
matur, ræktaður á hefðbundinn hátt.
Niðurstöður benda til að andoxunar-
efni í lífrænni mjólk séu 50–80%
meiri en í venjulegri mjólk og lífrænt
ræktað hveiti, tómatar, kartöflur,
hvítkál, laukur og salat inniheldur
20–40% meira af næringarefnum en
ólífræna ræktunin.
„Nú þegar sýnt hefur verið fram á
það að lífræna ræktunin hafi kosti
umfram aðra ræktun, er óhjákvæmi-
legt að við taki rannsóknir, sem snúa
að því í hverju þessi munur liggur í
reynd. Við þurfum að svara því m.a.
hvað það er í jarðyrkjunni sem gefur
af sér aukin næringarefni og dregur
úr óhollustu sem aftur gæti hjálpað
bændum við að bæta ræktunarskil-
yrði sín,“ sagði prófessor Carlo Lei-
fert í samtali við vefmiðil BBC, en
lokaniðurstöður rannsóknarinnar
verða birtar að ári liðnu.
Lífræna
framleiðslan
hollari
Frelsarinn
eftir Kristján Ingimarsson
eftir Áslaugu Jónsdóttur
Söngleikur eftir Hugleik Dagsson og Flís
Dönsk/íslensk gestasýning á
Stóra sviðinu 22. nóv.
Myndræn og líkamlega krefjandi
sýning sem ögrar ófáum lögmálum,
skráðum og óskráðum
Leikin barnasýning með
brúðum og söngvum.
Fjörug og stórskemmtileg
sýning í Kúlunni.
Þjóðleikhúsið
Á öllum sviðum lífsins
Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00
mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00.
Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Gott kvöld
LEG
Yfir 12.000 áhorfendur.
Frábær skemmtun fyrir
ungmenni á öllum aldri!
Allra síðustu sýningar.
Skilaboða-skjóðan
Sprellfjörug og litrík sýning.
Uppselt fram að jólum.
Ævintýrasöngleikur fyrir alla fjölskylduna eftir
Þorvald Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson
Tö
sk
ur
&
ve
sk
i
Laugavegi 7 • 101 Reykjavík • Sími 561 6262 • www.kisan.is
Opið MÁN - FIM 10:30 - 18:00 FÖS 10:30 - 19:30 LAU 10:30 - 18:00
Sonia Rykiel, Jamin Puech, Jerome Dreyfus, Orla Kiely …
C O N C E P T S T O R E
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur