Morgunblaðið - 04.01.2008, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
PILTURINN sem
fannst látinn í Elliðavogi
á miðvikudagskvöld hét
Jakob Hrafn Höskulds-
son, til heimilis að
Bröndukvísl 14, Reykja-
vík. Hann var fæddur 1.
desember 1988. Foreldr-
ar hans eru Höskuldur
Höskuldsson og Aðal-
heiður Ríkarðsdóttir.
Tilkynnt var um hvarf
Jakobs síðdegis á þriðjudag en þá hafði
hann ekki sést síðan snemma á nýársmorg-
un, skammt frá skemmtistaðnum Broadway
í Ármúla. Umfangsmikil leit fór í gang en
talið var að Jakob ætlaði að ganga heim til
sín frá Broadway.
Málið er enn í rannsókn og mun réttar-
krufning fara fram af hálfu lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan telur ekki
útilokað að Jakob hafi farið gangandi niður
að Elliðavogi og drukknað þar.
Aðstandendur hans vilja koma á fram-
færi miklu þakklæti til lögreglu og björg-
unarsveita og allra þeirra sem tóku þátt í
leitinni.
Rannsókn
lögreglu
fram haldið
Jakob Hrafn
Höskuldsson
Aðstandendur þakka
leitarmönnum
Í FORSÆTISRÁÐUNEYTINU hefur
ekki verið tekin afstaða til þess hvort samd-
ar verða tillögur að lögum um fjármál og
upplýsingaskyldu frambjóðenda í embætti
forseta Íslands.
Þegar lög um fjármál stjórnmálasamtaka
sem bjóða fram til Alþingis og sveitastjórna
og frambjóðenda í persónukjöri voru sam-
þykkt skömmu fyrir jól 2006 var ákveðið að
taka út úr frumvarpinu ákvæði um forseta-
frambjóðendur. Allsherjarnefnd Alþingis
beindi því þess í stað til forsætisráðherra að
semja nýjar tillögur að reglum um forseta-
frambjóðendur.
Gréta Ingþórsdóttir, aðstoðarmaður for-
sætisráðherra, sagði að frumvarpið hefði á
sínum tíma verið lagt fram af formönnum
allra flokka. Forsætisráðherra hefði rætt
það sem snýr að forsetaframbjóðendum við
hina formennina en ekki hefði myndast
grundvöllur til að leggja fram tillögur að
reglum þá og því væru ekki uppi áform um
að gera það í bráð. Hún útilokaði þó ekki að
tillögur gætu litið dagsins ljós á vorþingi og
í sjálfu sér gætu slík lög tekið gildi fyrir
kosningar, þ.e. ef kosið verður milli fram-
bjóðenda.
Vinna ekki
að reglusmíð
♦♦♦
ÞAÐ verður ekkert lát á rigningunni og úr-
komunni sem staðið hefur yfir með litlum
hléum frá því snemma síðastliðið haust eftir
óvenjulangan og mikinn þurrkakafla í fyrra-
sumar um allt land. Samkvæmt veðurspánni
verður áfram úrkoma og hiti yfir frostmarki á
landinu um helgina. Í næstu viku kólnar svo í
veðri og gengur á með éljum ef spár ganga
eftir.
Morgunblaðið/Frikki
Ekkert hlé á úrkomunni um helgina
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
„UM hálfáttaleytið í fyrrakvöld
kom 13 ára dóttir mín heim. Hún
sýndi mér Bónus-stuttermabol og
sagðist hafa verið að vinna í Bónus
síðan klukkan tvö um daginn,“ seg-
ir Auður Brynja Proppé.
Dóttir hennar hafði nokkru áður,
í leyfisleysi foreldranna, spurst fyr-
ir um það í Bónus hvort hún gæti
fengið vinnu í jólafríinu. Hinn 2.
janúar sl. var hringt úr földu núm-
eri heim til Auðar og spurt nafn-
laust eftir þeirri 13 ára og hún boð-
uð til vinnu. Stúlkunni þótti
spennandi að vinna sér inn peninga
og vildi koma foreldrum sínum á
óvart.
„Þegar hún mætir í Bónus er hún
látin fylla út eyðublað með almenn-
um upplýsingum. Hún var aldrei
spurð hvort hún hefði leyfi foreldra
og heldur ekki gefnar upplýsingar
um laun eða réttindi. Hún veit ekki
hvað maðurinn heitir sem tók á
móti henni eða hvort hann var yf-
irmaður. Því næst fékk hún hálf-
tíma sýnikennslu á kassa og byrjaði
að því loknu að vinna,“ segir Auður.
Dóttir hennar hafði séð aðra 13
ára stúlku sem var að byrja sama
dag og var einnig sett á kassa í
versluninni. „Ég tel það hlutverk
Bónuss sem fyrirtækis að fara eftir
lögum og brjóta þau ekki á þrettán
ára krökkum sem vita ekki betur,“
segir Auður.
Brot á reglum
Í reglugerð um vinnu barna og
unglinga 426/1999 eru ungmenni
undir 15 ára aldri skilgreind sem
börn, þau megi taka að sér „létt
störf í sérverslunum og stórmörk-
uðum […] undanskilin er vinna við
greiðslukassa“. Það er því brot á
reglum að láta börn yngri en 15 ára
í afgreiðslustörf á kassa.
„Þetta er ekki til fyrirmyndar og
við getum gert mun betur líkt og
margir aðrir,“ segir Svanur Val-
geirsson, starfsmannastjóri Bón-
uss. Inntur eftir því að 13 ára börn
séu sett á kassa í versluninni segir
hann það mistök. „Ég tek það ekki í
mál að börn séu 13 ára á kassa, það
á ekki að vera þannig,“ segir Svan-
ur.
Hann segir að reynt sé að stýra
því að börn yngri en 15 ára séu ekki
í þessum störfum, en það geti kom-
ið fyrir. „Þetta ýtir á okkur að hafa
betra samráð við foreldra í öllum
tilvikum og við munum framvegis
fara fram á skriflega heimild for-
eldra þeirra barna sem við ráðum
hér til vinnu,“ segir Svanur.
Hyggjast taka á málunum
„Ungmenni eru of ung sett í að
afgreiða á kassa, eru ein við af-
greiðslu í verslunum á kvöldin og
jafnvel að selja tóbak,“ segir Gylfi
Már Guðjónsson, umdæmisstjóri
Vinnueftirlits ríkisins.
Hann segir að Vinnueftirlitið hafi
fundað með starfsmannastjórum
stórmarkaðanna „og þeim er öllum
fullljóst hvernig þessi mál eiga að
vera, það er því enginn að brjóta
lögin óvart. Það þyrfti að skerpa á
viðurlögum varðandi slík brot og
við erum nú að útfæra hvernig við
getum komið að málinu með
ákveðnari hætti. Við erum ósátt við
hvernig ástandið er nú“.
13 ára á kassa í Bónus
án vitundar foreldranna
Of mörg tilfelli koma upp þar sem brotnar eru reglur varðandi vinnu barna
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
„ÞETTA er staða sem við sáum því
miður fyrir, þótt við gætum ekki vit-
að hvaða fyrirtæki kynnu að verða
verr úti en önnur. Þetta er mynd-
arlegt en ungt fyrirtæki, og sú
ákvörðun að rifa seglin um sinn er
skiljanleg, miðað við aðstæður,“ seg-
ir Arnar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva, sem
ekki er hissa á uppsögnum 32 starfs-
manna Krækis á Dalvík, sem til-
kynnt var um í fyrradag.
Uppsagnir samræmast spánni
„Þegar kvótaniðurskurðurinn var
tilkynntur og kom til framkvæmda í
september á síðasta ári, þá reikn-
uðum við með að á næstum 6-12
mánuðum myndi þetta birtast í
fækkun fyrirtækja, sem myndu
hætta starfsemi m.a. vegna hækk-
andi hráefnisverðs og eins vegna
hráefnisskorts,“ segir Arnar.
„Við spáðum því að í fiskvinnslu
einni gæti þetta leitt til fækkunar
starfsfólks um 500-600 manns á einu
ári, þ.e. um 10-12%. Þetta hefur
smám saman verið að koma fram og
þær ástæður fyrir uppsögnum sem
forsvarsmenn Krækis á Dalvík
nefna passa heilmikið inn í þessa
mynd,“ segir hann, en ástæður upp-
sagnanna eru meðal annars hátt
gengi krónunnar, lágt gengi Banda-
ríkjadals, hátt hráefnisverð og hrá-
efnisskortur. Arnar segir hráefn-
isverð hafa hækkað svo mikið að
þegar magnið minnki, til dæmis þeg-
ar kvóti er skorinn niður, dugi fram-
legðin ekki til þess að reka fyr-
irtækin. „Það er viðbúið að þetta
muni eiga við á fleiri stöðum á næstu
vikum og mánuðum og er nú þegar
farið að koma fram í lokun fyr-
irtækja.“ Allt þetta á líka við um
fiskiskipin, að mati Arnars. Þar mun
samdrátturinn birtast þannig að
veiðiheimildir skipa verði í auknum
mæli sameinaðar.
Gengissveiflan kemur mjög
illa við fiskvinnslufyrirtækin
„Ofan í allt saman hefur gengi
krónunnar verið sterkt og mjög
sveiflukennt líka. Krónan er einfald-
lega sterkari en mörg fyrirtæki ráða
við. Núna er hún í ákveðinni mið-
stöðu miðað við hvernig hún hefur
verið að sveiflast. Hún hefur verið
veikari á síðasta ári, en líka verið
sterkari. Þessar miklu sveiflur í
krónunni hafa komið afar illa við fyr-
irtækin,“ segir Arnar að lokum.
„Viðbúið að fleiri segi upp fólki“
Uppsagnirnar á Dalvík koma formanni Samtaka fiskvinnslustöðva ekki á óvart
Í HNOTSKURN
»Erlendir ríkisborgarar eruum 25% af heildarstarfs-
mannafjölda í fiskvinnslu hér á
landi, eða um 1000-1200 manns.
»Yfir 4000 manns vinna fulltstarf í fiskvinnslu hérlendis,
en Samtök fiskvinnslustöðva
hafa spáð 500-600 uppsögnum í
tengslum við niðurskurð þorsk-
kvóta.
»Hjá Kræki, sem sagði upp 32,var nær helmingur starfs-
fólks útlendingar.
TVEIR umsækjendur, sem ekki
fengu stöðu héraðsdómara við Hér-
aðsdóm Norðurlands eystra, hafa
óskað eftir rökstuðningi fyrir
ákvörðuninni. Árni M. Mathiesen,
fjármálaráðherra, var settur dóms-
málaráðherra í þessu máli og mun
hann veita rökstuðninginn eigi síðar
en 10. janúar þegar frestur til þess
rennur út, samkvæmt upplýsingum
úr ráðuneytinu. Frestur til að óska
eftir rökstuðningi rennur út í dag.
Þorsteinn Davíðsson, deildarstjóri
hjá lögreglustjóra höfuðborgar-
svæðisins og fyrrum aðstoðarmaður
dómsmálaráherra, var skipaður.
Nefnd sem fjallaði um hæfni um-
sækjendanna mat alla umsækjendur
hæfa en þrír voru mjög vel hæfir:
Guðmundur Kristjánsson hrl., Hall-
dór Björnsson, aðstoðarmaður
hæstaréttardómara og Pétur Dam
Leifsson. Þorsteinn og Ragnheiður
Jónsdóttir, löglærður fulltrúi sýslu-
mannsins á Húsavík, voru metin
hæf.
Tilbúinn
10. janúar