Morgunblaðið - 04.01.2008, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.01.2008, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 23 und- a nægja þótt hvaða g byrj- gos og ví hvern- ldstöð- en hann úast má kin innan st s öðvarnar a og svo er auðvitað fylgst með Upptypp- ingum, þar sem kvikuhreyfingar eru djúpt í jarðskorpunni. Kvikan færist hægt í átt til yfirborðs en óvíst er hvort hún nær þangað. Flest eldgos á Íslandi eru mein- laus eða meinlítil, þótt auðvitað verði að hafa í huga að gos geta valdið umtalsverðu tjóni. Nærtæk dæmi um það eru gosin á Heima- ey 1973, Gjálpargosið 1996 og Kröfluumbrotin 1975-1984. Svona er lífið í eldvirku landi og við erum eiginlega komin í það horf með þessi mál að við getum fylgst vel með, sem er alveg nauðsynlegt til að halda uppi nú- tímaþjóðfélagi í svona virku landi,“ segir Páll Einarsson. Upptyppingum Morgunblaðið/RAX ð hún gjósi innan tíðar. Hekla þegar tla er að undirbúa sig Morgunblaðið/Jónas Erlendsson ælum var komið fyrir í Kötlu fyrir nokkrum ð eldstöðin er í einhverjum undirbúningi. Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is Lunningin er fundin eftir 35ár, það er ekki seinnavænna,“ sagði Halldór B.Nellett, framkvæmda- stjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæsl- unnar, þegar hann sá myndir af járnflikkjum sem komu í botnvörpu togarans Arnars HU 1 skömmu fyr- ir jólin. Allt bendir til þess að stykk- in séu borðstokkur sem rifnaði af varðskipinu Ægi þegar togarinn Aldershot GY 612 sigldi á það að morgni 18. október 1972. Þá geisaði þorskastríð við Breta vegna út- færslu íslensku landhelginnar í 50 sjómílur. Undarlegur afli Togarinn Arnar HU 1 var við tog- veiðar á um 70 faðma dýpi á svo- nefndum Kjölsnesbanka á Þistil- fjarðargrunni 20. desember síðastliðinn. Þegar trollið var híft um þrjúleytið síðdegis sáu skipverjar að mikið járnstykki var í trollinu. Árni Ólafur Sigurðsson, skipstjóri á Arnari HU 1, sagði að sér hefði þótt skrítið að fá þennan feng því hann hefði ekki fest trollið í flaki né heldur vissi hann af skipsflaki á þessum slóðum. „Við gátum ekki híft trollið inn fyrr en við vorum búnir að ná járna- draslinu úr og það tók okkur þó nokkurn tíma. Trollið var náttúrlega allt í druslum. Við urðum að brenna stykkið í sundur til að koma því í geymslu hjá okkur. Nú þekkist ekki að svona sé hent aftur í sjóinn heldur komið með allt í land,“ sagði Árni. Þegar Arnar HU kom til Skaga- strandar að kvöldi 22. desember voru járnstykkin sett í land. Árni kvaðst oft hafa veitt á þessum slóð- um án þess að vita til þess að þar væri skipsflak. Eins talaði hann við aðra skipstjóra um hvort þeir könn- uðust við nokkurt flak á þessum slóðum, sem þeir ekki gerðu. Hann sendi Rannsóknarnefnd sjóslysa til- kynningu um fenginn og lét Vakt- stöð siglinga og Landhelgisgæsluna einnig vita. Lunningin hreinsaðist af Þegar Halldór Nellett sá myndir af járnstykkjunum rifjaðist upp fyr- ir honum atvik úr þorskastríðinu vegna 50 mílna útfærslunnar í októ- ber 1972. „Ég var uppvaskari og messagutti hjá Guðmundi Kjærne- sted skipherra um borð í varðskip- inu Ægi,“ sagði Halldór. „Ég var ný- byrjaður til sjós og mátulega sjóveikur. Við vorum að reyna klipp- ingu á Þistilfjarðargrunninu eða þar nálægt þegar breski togarinn Ald- ershot keyrði á stjórnborðssíðuna hjá okkur og hreinsaði alla lunn- inguna af.“ Halldór skoðaði myndir af járn- flikkinu sem kom um borð í Arnar HU og sýndist honum stykkið vel geta verið lunningin af Ægi. Öll smíðin sú sama og klussið [gat fyrir landfestar] eins og það var á gömlu lunningunni á Ægi. Klussið er sér- stakt og hafði t.d. áhöfn Arnars aldr- ei áður séð þannig kluss. Jón Páll Ásgeirsson, stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni, fann í fór- um sínum mynd af skipverjum á Ægi sem tekin var 1975, löngu fyrir kvóta. Þar sést borðstokkurinn bak- borðsmegin eins og hann var á þess- um árum. Skyldleikinn með stykk- inu sem kom upp í trollinu hjá Arnari leynir sér ekki. Mikil átök á miðunum Guðmundur skipherra Kjærne- sted lýsti árekstri Ægis við togar- ann Aldershot í síðara bindi endur- minninga sinna sem Sveinn Sæmundsson skráði og kom út 1985. Hann lýsir því hvernig skipstjórinn á Aldershot sinnti ekki ítrekuðum viðvörunum og brást hinn versti við. Þá var ákveðið að klippa trollið aftan úr togaranum. Til að komast að Ald- ershot þurfti Ægir að sigla aftur fyr- ir skut togarans Ross Revenge sem lónaði stutt frá. Þegar Ægir nálg- aðist togarann setti hann á fulla ferð aftur á og reyndi að bakka á Ægi. Þegar það tókst ekki setti Ross Re- venge á fulla ferð og nálgaðist Ægi óðfluga bakborðsmegin frá. „Mér kom eitt augnablik til hugar að sveigja Ægi hart í stjórnborða – taka skarpa beygju til hægri, hætta við klippinguna og fara fram með Aldershot,“ segir Guðmundur í end- urminningum sínum. „Ég beitti vél- unum aftur á bak til þess að minnka ferðina. Í sömu svifum beygði Ald- ershot á stjórnborða og hætta var á stórárekstri. Ég sá í svip að hér þýddi ekki að hika, við yrðum að fara fyrir aftan togarann úr því sem kom- ið var. Halda upphaflegri áætlun um klippingu, þrátt fyrir hættuna frá Ross Revenge, sem var kominn ískyggilega nálægt. Stýrið var sett hart í bakborða, báðar vélarnar á fulla ferð áfram og Ægir með sín 8.600 hestöfl tók vel við sér. Við vor- um komnir aftur fyrir togarann Ald- ershot þegar hann setti á fulla ferð aftur á. Mér leist satt að segja ekki á blikuna – Aldershot nálgaðist okkur óðfluga stjórnborðsmegin en á bak- borða sá ég Ross Revenge kom[a] á fullri ferð og stefna á Ægi. Ég sá nú að Aldershot mundi keyra á okkur, setti stýrið miðskips til þess að ná meiri ferð á Ægi og minnka þar með hættu á skemmdum í árekstrinum sem var nú fyrirsjáanlegur. Skutur togarans var aðeins nokkra metra frá síðu Ægis. Ég gaf skipun um að setja stýri hart í stjórnborða og tók aftur á með stjórnborðsskrúfunni. Ægir snerist nánast á punktinum. Í stað þess að hér hefði orðið um bein- an árekstur að ræða strukust skipin saman í nokkrar sekúndur. Um leið og Ægir snerist, setti ég báðar vélar á fulla ferð áfram. Við sluppum við Ross Revenge sem stefndi á okkur og var kominn mjög nálægt. Á sama augnabliki fundum við hnykkinn þegar klippurnar tóku í og klipptu.“ Leki kom að Aldershot Guðmundur kveðst hafa verið þess fullviss að tekist hefði að klippa á báða togvíra Aldershot, eins og kom í ljós. Olli þetta miklu uppi- standi meðal togaramanna og skip- stjóri Aldershot tilkynnti að skip hans væri lekt og hann yrði að fara til Bretlands. Guðmundur segir að nokkrar skemmdir hafi orðið á Ægi við áreksturinn. „Þyrluþilfarið bognaði niður á kafla og nokkrar uppistöður brotnuðu. En Ægir er sterkbyggt skip og enginn leki kom að því. Þilfarsbrúnin skar eins metra langa rifu á skut togarans um leið og hann straukst aftur með. Það var lekinn sem skipstjórinn talaði um.“ Morgunblaðið birti mynd af Ægi á baksíðu 21. október 1972 sem tekin var á Eskifirði daginn áður. Þar sjást greinilega skemmdirnar sem urðu á stjórnborðssíðu varðskipsins við áreksturinn við Aldershot. Vant- ar lunninguna á löngum kafla. Hún virðist nú vera fundin. Lunningin af Ægi fundin eftir 35 ár Stálflikki sem kom í vörpu Arnars HU rétt fyrir jól er líklega borðstokkur sem rifnaði af varðskipinu Ægi í þorskastríðinu 1972                                      Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Klussið Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri á Arnari bendir á klussið sem er með sama sniði og það var á Ægi. Ljósmynd/Jón Páll Ásgeirsson Fyrir daga kvótakerfisins Árið 1975 var Ægir heill og óskaddaður. Baksíða Morgunblaðsins Skemmdirnar á Ægi sjást vel á myndinni sem birtist 21. október 1972. Borðstokkurinn að mestu horfinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.