Morgunblaðið - 04.01.2008, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 11
FRÉTTIR
TVÖ umferðarslys urðu með stuttu
millibili í umdæmi lögreglunnar á
Blönduósi í mikilli hálku í fyrra-
kvöld. Ekki urðu alvarleg meiðsl á
fólki, en mikið eignatjón.
Um klukkan hálfsjö var bifreið
ekið út af til móts við bæinn Tjarn-
arkot á Hrútafjarðarhálsi. Kona
sem var í bílnum var flutt með
sjúkrabíl til Hvammstanga. Þegar
lögreglumenn voru að ljúka störf-
um á vettvangi um klukkan níu
barst tilkynning um annað óhapp, í
Hrútafirðinum nærri Gilsstöðum.
Þar hafði flutningabifreið með
tengivagn oltið og jeppi sem ók á
eftir hafnað á bílnum. Einn var í
flutningabílnum og tveir menn í
jeppanum en engin alvarleg meiðsl
urðu á þeim. Að sögn lögreglu eru
bílarnir hins vegar mikið skemmdir
og því um mikið eignatjón að ræða.
Þegar verið var að ljúka störfum
í Hrútafirðinum ók framhjá bifreið
sem lögreglu þótti ástæða til að
kanna. Þegar bifreiðin var stöðvuð
kom í ljós að ökumaður var undir
áhrifum fíkniefna og fundust ein-
hverjir tugir gramma af maríjúana,
hassi og amfetamíni á farþega bíls-
ins.
Morgunblaðið/Júlíus
Tvö bílslys í
mikilli hálku
SAMKVÆMT
ársskýrslu
Slökkviliðs Vest-
mannaeyja var
liðið kallað út 18
sinnum árið
2007. Í tólf til-
fellum var liðið
kallað út vegna
bruna í íbúðar-
húsi og í þrígang vegna bruna í iðn-
aðarhúsum. Þá var slökkviliðið
einnig kallað út vegna elds í bílum,
gámum og allskonar rusli, eins og
segir í skýrslunni og kemur fram á
eyjafrettir.is. Þá sér slökkviliðið
um eldvarnaeftirlit og voru skoðuð
17 fyrirtæki og stofnanir og einnig
gefnar út um 20 umsagnir fyrir
gisti- og veitingastaði.
18 brunaútköll
í Eyjum í fyrra
UM klukkan þrjú í fyrrinótt fékk
lögreglan í Vestmannaeyjum til-
kynningu um að fólksbíl hefði verið
ekið fram af brautarenda á flug-
vellinum í Vestmannaeyjum. Fram
kemur á vefnum eyjafrettir.is að
svo virðist sem bílnum hafi verið
ekið eftir brautinni, líklega á mik-
illi ferð, og að ökumanninum hafi
ekki tekist að stöðva hann í tæka
tíð. Því tók hann flugið út af braut-
inni sem er í 15 til 20 metra hæð.
Ökumaður slapp lítið meiddur og
má teljast stálheppinn.
Flugferð í Eyjum
Skoðaðu Lynx 2008 árgerðina hjá okkur um helgina
Stórsýning
Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is • Póstsendum um allt land
Opið laugardag 10–16 og sunnudag 12–16
www.ellingsen.is
Rave 550 919.000 kr.
Adventure V-800 1.150.000 kr. Yeti V 800 1.510.000 kr.
X-trim 800 Power TEK 1.520.000 kr. Rave 800 Power TEK 1.530.000 kr.
X-trim 550 995.000 kr. X-trim 600 SDI 1.350.000 kr.
Við kynnum 2008 árgerðina af Lynx-vélsleðunum, laugardag
og sunnudag, í verslun okkar að Fiskislóð 1.
Lynx átti mikilli velgengni að fagna í snjókrosskeppnum síðasta
vetrar og hlaut m.a. Íslandsmeistaratitil í Pro-flokki og 2. sæti
í Sportflokki. Lynx-sleðarnir eru enn og aftur söluhæstir í Evrópu
og eiga Heims-, Evrópu-, Norðurlanda-, Svíþjóðar- og Finnlands-
meistara í snjókrossi.
Yeti 600 SDI 1.470.000 kr.
Lynx er slyngur eins og refur, fljótur eins og fálki, sterkur eins og björn.
TB
W
A\
R
EY
KJ
AV
ÍK
\
SÍ
A
\ 9
O
71
56
5
DAGUR B. Eggertsson borgarstjóri
afhenti hinn 28. desember sl. Rögnu
Ingólfsdóttur badmintonkonu styrk
úr minningarsjóði Gunnars Thorodd-
sen, fyrrverandi borgarstjóra og for-
sætisráðherra. Sjóðinn stofnuðu
hjónin Benta og Valgarð Briem 29.
desember 1985, þegar liðin voru 75
ár frá fæðingu Gunnars.
Þetta er í tuttugasta og annað sinn
sem veitt er úr sjóðnum og hafa
styrkþegar bæði verið félagasamtök
og einstaklingar. Þetta er í þriðja
sinn frá árinu 1986 sem íþróttafólk
verður fyrir valinu en Kristín Rós
Hákonardóttir fékk styrkinn árið
2000 og Íþróttasamband fatlaðra árið
1992. Ragna er 24 ára gömul badmin-
tonkona úr TBR, Íslandsmeistari í
einliðaleik og tvíliðaleik og hefur hún
náð mjög góðum árangri á alþjóð-
legum mótum á síðasta ári.
Ragna varð í þriðja sæti í kjöri
Samtaka íþróttafréttamanna á
íþróttamanni ársins 2007 og er það
besti árangur sem badmintonmaður
hefur náð í kjörinu frá upphafi.
Ragna stefnir á Ólympíuleikana í
Peking á þessu ári en hún er í 53. sæti
á heimslistanum í einliðaleik kvenna
og í 19. sæti yfir sterkustu badmin-
tonkonur Evrópu.
Styrkurinn afhentur Frá vinstri Valgarð Briem, Benta Jónsdóttir Briem, Ragna Ingólfsdóttir, badminton-
kona, sem hlaut styrkinn, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og eiginkona hans, Arna Einarsdóttir.
Hlaut styrk úr minningar-
sjóði Gunnars Thoroddsen
Ljósmynd/Eggert Þór Jónsson