Morgunblaðið - 04.01.2008, Qupperneq 20
Mér fannst baunirnar svolítil fyrirstaða þegarég var að byrja að elda grænmetisfæði ogvar frekar föst í því að hugsa matinn út frápróteinríkum aðalrétti sem kæmi í staðinn
fyrir fiskinn og kjötið og borinn væri fram með ýmsum
hliðarréttum,“ segir Valentína Björnsdóttir sem rekur
fyrirtækið Móður náttúru ásamt manni sínum Karli Ei-
ríkssyni.
„Með því að breyta hins vegar um hugsunarhátt og
velta því þess í stað fyrir mér hvar ég fengi bestu pró-
teinin, eða bestu kolvetnin, var ég komin með miklu
betri leiðarvísi og matseldin varð mun auðveldari.“ Hún
bætir við að þekki maður fæðuflokkana vel og hvaðan
næringarefnin komi sé lítið mál að setja saman góða
máltíð.
Hvorki Valentína né Karl eru grænmetisætur, en þau
gera engu að síður mikið af því að elda grænmetisrétti.
„Við höfum bæði mikinn áhuga á eldamennsku og finnst
sérstaklega gaman að elda grænmeti,“ segir Valentína
og kveður Karl vera snilling í matreiðslu grænmetis-
rétta. Fiskur er þó líka mikið á boðstólum hjá fjölskyld-
unni og raunar, að hennar sögn, allur léttari matur sem
fer vel í maga.
Indversk matargerð í uppáhaldi
Hjá Valentínu er mataráhuginn samtvinnaður áhug-
anum á hollustu og heilbrigði. „Ég er lærður svæða-
nuddari og hef alltaf haft áhuga á heildrænum lækn-
ingum. Ég hef líka trú á því að hollur matur geti haft
forvarnargildi og að með því að borða skynsamlega og
lifa svolítið skynsamlegu lífi geti maður farið betur með
heilsuna,“ segir Valentína sem er dugleg að hugsa upp
nýjar uppskriftir sem margar hverjar má finna á vef
Móður náttúru.
Tilraunamennskan setur líka oft svip sinn á matseld
þeirra hjóna.
„Við reynum að gera hlutina frá hjartanu og oft koma
tímabil þar sem eitthvert eitt hráefni er áberandi,“ segir
Valentína og nefnir sem dæmi að þau hafi gengið í gegn-
um tímabil þar sem núðlur, pönnukökur og súpur voru
mikið á borðum. Og núna eftir jólin er það ferskmetið
sem hefur forgang, enda kærkomin tilbreyting frá þung-
um veisluréttum.
Indversk matargerð er líka búin að vera lengi í uppá-
haldi hjá þeim og þau gera meðal annars mikið af því að
fara á indverska veitingastaði í heimsóknum sínum til
London. „Þar er að finna marga frábæra indverska veit-
ingastaði sem sumir hverjir eru í Michelin-klassa,“ seg-
ir hún.
Indverska eldhúsið setur líka á vissan hátt svip sinn á
uppskriftirnar sem Valentína býður lesendum Morg-
unblaðsins upp á, enda eiga skemmtilega kryddaðir
réttir vel við á dimmum vetrarkvöldum. „Það þarf alls
ekki að vera erfitt að elda grænmetisrétti og þeir fara
vel í maga,“ segir Valentína. „Baunirnar hafa svo líka
þann kost að þær geta verið góð búbót. Þetta er ekki
dýr fæða og því er virkilega góð hugmynd að sjóða
stærri skammt en maður ætlar að nota og frysta því
þeim má auðveldlega bæta frosnum út í pottrétti eftir
þörfum.“
„Trúi því að hollur
matur hafi forvarnargildi“
Matgæðingarnir Þau Karl Eiríksson og Valentína Björnsdóttir hafa gaman af að elda grænmetisrétti.
Grænmeti og baunir í kókoskarrísósu Skemmtilega krydd-
aður grænmetisréttur sem á vel við í kuldanum.
Grænmetistortilla Baunir geta verið sannkallaður herra-
mannsmatur og eru þess utan góð búbót.
Þegar nýtt ár gengur í garð erum
við mörg hver uppfull af góðum
ásetningi um að hreyfa okkur nú
meira og borða hollari mat. Valent-
ína Björnsdóttir gaf Önnu Sigríði
Einarsdóttur nokkrar góðar upp-
skriftir til að byrja árið með.
Gulrótasúpa með engifer Litsterk súpa sem er full af vítam-
ínum sem veitir ekki af á þessum árstíma.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
matur
20 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Gulrótasúpa með engifer
og kóríanderrjóma
1,5 l vatn
500 g gulrætur í bitum
200 g blómkál í bitum
1 tsk. ferskt engifer, smátt skorið
50 g sellerí, sneitt
100 g sætar kartöflur, afhýddar og
skornar í bita
25 g grænmetiskraftur
1 tsk. smjör
smá sítrónusafi
salt og pipar
Setjið vatnið í pott og allt grænmetið út í.
Sjóðið í 20 mínútur, bætið út í grænmet-
iskraftinum og maukið súpuna með töfra-
sprota eða í matvinnsluvél. Bætið út í
smjöri og sítrónusafa. Saltið og piprið eftir
smekk.
Kóríanderrjómi
rjómi
ferskt kóríander
Setjið rjóma og ferskt kóríander saman í
matvinnsluvél og þeytið saman þar til
blandan þykknar.
Borið fram með súpunni.
Grænmetistortillur
5 stk. 10" tortillur
Fylling
olía til steikingar
1 rauðlaukur, sneiddur
3 hvítlauksrif
2 dl puy-linsur, soðnar (eða
t.d. kjúklingabaunir)
1 paprika í bitum
100 g brokkólí í bitum
1 tómatur, skorinn í bita
3 dl Sólskinssósa frá Móður náttúru
smá salt
svartur pipar
½ bolli koríander
100 g rifinn ostur
Steikið lauk, hvítlauk og papriku á pönnu
látið brúnast aðeins. Bætið linsum, brokk-
ólíi, tómötum og sólskinssósu saman við og
hrærið öllu vel saman. Saltið og piprið eftir
smekk. Látið fyllinguna kólna aðeins og
bætið rifnum osti saman við.
Fyllingin er sett á um 5 pönnukökur,
þær brotnar saman í hliðunum og þeim
rúllað upp. Bakað við 170°C í um 15 mín-
útur.
Grænmeti og baunir
í kókoskarrísósu
olía
2 laukar, saxaðir
1 msk. engifer, fínt skorið
2 hvítlauksrif, söxuð
2 tómatar í bitum
½ tsk. kóríanderfræ
½ tsk. cummin-fræ
2 msk. Karrý deluxe frá Pottagöldrum
negull á hnífsoddi
chili eftir smekk
½ tsk. svartur pipar
1 dós kókosmjólk
1 dl mangó-smoothie
1 tsk. grænmetiskraftur
smá sítrónusafi
1 paprika í bitum
300 g blómkál í bitum
200 g soðnar kjúklingabaunir
1 msk. smjör
½ bolli ferskt kóríander
salt eftir smekk
Steikið lauk, engifer og hvítlauk í potti,
bætið út í tómötum og hrærið öllu kryddinu
saman við. Setjið kókosmjólk, mangó-
smoothie og grænmetiskraft út í og látið
suðuna koma upp. Bætið restinni út í pott-
inn og látið grænmetið mýkjast í um 5-10
mínútur.
Borið fram með hýðishrísgrjónum.
annaei@mbl.is
Valentína verður með eins dags mat-
reiðslunámskeið nú í janúar og febrúar og
er áhugasömum bent á að setja sig í sam-
band við hana í síma 862 8296.