Morgunblaðið - 04.01.2008, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 29
✝ Ásta MargrétHartmanns-
dóttir fæddist í
Ólafsfirði 23. apríl
1933. Hún lést á
Landspítalanum í
Reykjavík hinn 24.
desember síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Hart-
mann Pálsson,
sundkennari og síð-
ar síldarmats-
maður, f. á Ill-
ugastöðum 5.1.
1908, d. 5.7. 1983,
og María Anna Magnúsdóttir hús-
móðir, f. í Ólafsfirði 17.11. 1909,
d. 5.4. 1999. Ásta var þriðja elst
átta systkina. Systkini hennar eru
Kristín María, f. 3.12. 1929, maki
Guðbrandur Sæmundsson, látinn,
Halldóra Maggý, f. 4.3. 1931,
maki Gunnlaugur Sigursveinsson,
látinn, Guðrún Elín, f. 10.12. 1935,
1969, maki Guðrún Hlöðvers-
dóttir, f. 24.8. 1964, þau eiga tvö
börn, Hjörvar Hans, f. 27.5. 1991,
og Lilju, f. 25.5. 1999; b) Hörð, f.
3.10. 1974, barnsmæður hans eru
Fanný Sigurþórsdóttir og Mimmy
Vágsheyg, börn hans eru Harpa
Hrund, f. 16.4. 1996, og Bjartur
Hartmann, f. 28.8. 2006; og c) Há-
kon, f. 29.3. 1977, maki Sig-
urbjörg Jóhannesdóttir, f. 14.6.
1974, sonur þeirra er Sigþór, f.
1.5. 2002. 2) Hartmann, f. 8.8.
1954. 3) Örn, f. 5.1. 1956. 4) Ásdís,
f. 13.2. 1959, giftist Pétri Pálssyni
15.7. 1989, þau eiga tvo syni, Pál
Orra, f. 12.4. 1987, og Pétur Örn,
f. 12.3. 1989.
Ásta ólst upp í Ólafsfirði með
fjölskyldu sinni. Eftir að hún hafði
stundað nám í Ólafsfirði fluttist
hún suður og fór að vinna við
þjónustustörf, lengst af hjá
Heyrnarhjálp. Um svipað leyti fór
hún í Handíða- og myndlistaskól-
ann. Hún bjó með manni sínum og
börnum í Reykjavík. Þau hjónin
fluttu á Strikið 8 í Garðabæ fyrir
um ári síðan.
Útför Ástu fer fram frá Garða-
kirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.
maki Ásgeir H. Jóns-
son, Adda Sigurlína,
f. 13.3. 1937, maki
Halldór Ólafsson,
Erna Sigurbjörg, f.
6.7. 1939, maki Ant-
on Elvar Þórjónsson,
Ásdís, f. 9.1. 1945, og
Haukur, f. 5.5. 1946,
d. 16.5. 1946.
Hinn 13. ágúst
1952 gengu í hjóna-
band Ásta og Bragi
Jónsson flugvélstjóri,
f. í Reykjavík 9.10.
1925. Foreldrar hans
voru Jón Grímsson, lengst af sjó-
maður, f. í Keflavík 12.7. 1892, d.
5.8. 1977, og Lilja Guðríður
Brandsdóttir, f. í Króki í Hraun-
gerðishr. 22.7. 1889, d. 25.6. 1959.
Börn Ástu og Braga eru: 1)
Lilja, f. 24.2. 1952, maki Sigþór
Hákonarson, f. 23.12. 1951. Þau
eiga þrjá syni: a) Braga, f. 30.3.
Smávinir fagrir, foldarskart,
fífill í haga, rauð og blá
brekkusóley, við mættum margt
muna hvort öðru að segja frá.
Faðir og vinur alls, sem er,
annastu þennan græna reit.
Blessaðu, faðir, blómin hér,
blessaðu þau í hverri sveit.
Vesalings sóley, sérðu mig?
Sofðu nú vært og byrgðu þig.
Hægur er dúr á daggarnótt.
Dreymi þig ljósið, sofðu rótt!
(Jónas Hallgrímsson)
Okkar dýpsta samúð til fjöl-
skyldunnar allrar og annarra ást-
vina.
Páll Orri og Pétur Örn.
Ásta systir mín var ein af sjö
dætrum foreldra okkar, sú þriðja í
röðinni og fyrsta sem fellur frá.
Hún var stórbrotin kona, gaman-
söm en ekki skaplaus. Lagði aldrei
illt til nokkurs manns. Hún lét
margt gott af sér leiða. Ung hleypti
hún heimdraganum, fór til Reykja-
víkur til að vinna eins og tíðkaðist í
þá daga. Á sínum yngri árum fór
hún í Handíða- og myndlistaskóla,
var listræn og skapaði marga fal-
lega hluti og bar heimilið þess
glöggt merki.
Eftir að hún greindist með þann
illvíga sjúkdóm MND, sem hún tók
með aðdáunarverðu æðruleysi, fór
hún aftur að mála og þá aðallega
andlitsmyndir. Þegar hún hætti að
geta talað tjáði hún sig með skrift-
inni. Það voru „spurningar og
svör“. Ófáar voru stílabækurnar
sem hún fyllti út.
Fyrir um ári síðan fluttu þau
hjónin ásamt Erni syni þeirra frá
Reykjavík í Garðabæ. Ég hlakk-
aði til að flytja í sömu byggingu og
þau og geta átt enn fleiri stundir
með henni.
Ég vil sérstaklega þakka Erni
syni þeirra fyrir umhyggjuna sem
hann sýndi móður sinni í hennar
veikindum og fjölskyldunni allri.
Megi sá sem öllu ræður styrkja
fjölskylduna.
Aldrei skaltu að leiðum lesti
leita í fari annars manns,
aðeins grafa ennþá dýpra
eftir bestu kostum hans.
Geymdu ekki gjafir þínar
góðum vini – í dánarkrans.
(H.G.)
Kristín M. Hartmanns-
dóttir (Stína systir).
Ásta M.
Hartmannsdóttir
✝ Georg Ámunda-son útvarps-
virkjameistari
fæddist á Mjóanesi í
Þingvallasveit 11.
febrúar 1917. Hann
lést á gjörgæslu-
deild Landspítala í
Fossvogi 20. desem-
ber síðastliðinn, eft-
ir skamma sjúkra-
húslegu. Foreldrar
hans voru Ámundi
Kristjánsson, f. 2.
febrúar 1886, d. 25.
ágúst 1950, og
Fanney Pétursdóttir Ottesen, f. 21.
maí 1884, d. 14. júlí 1980. Systkini
Georgs eru Jakobína, f. 1909, d.
1994, Þóra, f. 1910, d. 1911, Pétur
Ottesen, f. 1911, d. 1999, Þórarinn
Kristján, f. 1913, d. 1935, og Gréta
María, f. 12. júní 1926, sem lifir
systkini sín.
Eiginkona Georgs síðan 1. júlí
ur börn. d) Kristján Unnar, sam-
býliskona Soffía Marín Magn-
úsdóttir. 3) Birgir, f. 11. sept 1953,
kvæntur Maríu Hreinsdóttur, f. 12.
janúar 1958. Sonur þeirra er Birg-
ir Már. Dóttir Birgis er Ásta Hólm,
sambýlismaður hennar er Árni
Birgisson, þau eiga þrjú börn. Son-
ur Maríu er Sigurjón Vigfús Ei-
ríksson, kvæntur Kristínu Þóru
Jóhannesdóttur, þau eiga eitt
barn.
Georg lærði útvarpsvirkjun hjá
Ottó B. Arnar 1937 og var einn af
stofnfélögum Félags útvarpsvirkja
í Reykjavík. Hann stofnaði eigið
fyrirtæki 1945, Georg Ámundason
og co., sem hann rak til ársins
1989. Georg var ávallt framarlega
í rafeindatækni og fylgdist vel með
öllum tækninýjungum. Hann var
m.a. fyrstur til að flytja inn sjón-
vörp á Íslandi. Árið 1967 setti fyr-
irtæki Georgs upp öll umferðarljós
á Reykjavíkursvæðinu, þegar
hægri umferð gekk í gildi.
Útför Georgs fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.
1944, trúlofuð síðan
1938, er Sveinbjörg
Vilhjálmsdóttir, f. 26.
ágúst 1922. Börn
þeirra eru: 1) Vil-
hjálmur, f. 24. mars
1946, kvæntur
Ágústu Sigríði Jó-
hannesdóttur, f. 20.
maí 1949, synir
þeirra eru Andrés,
sambýliskona Heið-
rún Jóna Ingólfs-
dóttir, þau eiga tvö
börn, og Georg,
kvæntur Thelmu
Gunnarsdóttur. 2) Kristján, f. 4.
júní 1949, kvæntur Jóhönnu Guð-
rúnu Gunnarsdóttur, f. 26. ágúst
1949. Börn þeirra eru a) Gunnar
Heimir, kvæntur Selmu Gísladótt-
ur, þau eiga þrjú börn, b) Marín,
gift Magnúsi Þóri Gunnarssyni,
þau eiga þrjú börn, c) Íris Björg,
gift Þóri Bergssyni, þau eiga fjög-
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Þú varst minn afi og líka minn
faðir, þú varst svo góður og þú varst
svo klár, þess vegna er þessi sökn-
uður svo sár. Afi mun ávallt vernda
okkur, vináttu og hlýju mun hann
okkur senda. Takk fyrir að vera
þessi maður, sem þú varst, takk fyr-
ir að vera ávallt til staðar.
Þú kenndir mér svo margt, ég
óska þess að þannig væri þetta enn.
Einhvern daginn verður það á ný,
en kannski ekki í dag, en við munum
hittast á ný
Ásta.
Við fylgjum afa okkar og langafa,
Georg Ámundasyni, til hinstu hvílu.
Það er undarleg tómleikatilfinning
sem hefur umlukið mig síðustu daga
og sorg í hjarta yfir því að vegferð
okkar saman sé lokið.
Viskan sem fylgir þeim sem geng-
ið hefur ævina til enda er ómetan-
leg. Ég hef verið þess aðnjótandi að
sitja í spjalli með afa um lífið og til-
veruna. Hann minnti mig sífellt á
það sem skiptir máli í lífinu og var-
aði mig við lífsgæðakapphlaupinu,
sem við ungar fjölskyldur stöndum í,
í dag. Hann naut þess að fá börn,
barnabörn og barnabarnabörn í
heimsókn og það var alltaf jafn nota-
legt að koma til ykkar ömmu í kaffi-
sopa.
Ég bið fyrir því að amma fái leið-
sögn og styrk til að takast á við
brottfall þitt, eftir farsælt og náið
hjónaband í næstum 70 ár. Þið hafið
verið okkur afkomendunum góð fyr-
irmynd, á allan mögulegan hátt. Þið
hafið tekist á við lífið með miklum
styrk og jafnaðargeði og þið hafið
alltaf verið til staðar. Fyrir það verð
ég ævinlega þakklát.
Ég vil sérstaklega þakka starfs-
fólki gjörgæsludeildar Landspítal-
ans í Fossvogi fyrir alúðlega fram-
komu í garð okkar aðstandenda og
fyrir að hafa hugsað sérlega vel um
afa okkar í gegnum stutt en erfið
veikindi.
Guð blessi afa minn, Georg
Ámundason, og megi ljósið ávallt
fylgja honum.
Íris Björg.
Georg Ámundason
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
vináttu og samúð við fráfall okkar elskulega sonar,
föður, afa og bróður,
ÁRNA GUÐMUNDSSONAR.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbjörg B. Árnadóttir,
Örvar Árdal Árnason,
Örn Árnason,
Aðalsteinn Örn Örvarsson,
Kjartan Veturliði Örvarsson,
Guðmundur Guðmundsson,
Pétur Guðmundsson,
Jónína Sesselja Guðmundsdóttir,
Ólafur Már Guðmundsson,
Einar Valur Guðmundsson og
Bergþóra Guðmundsdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐNÝ EINARSDÓTTIR,
Grandavegi 47,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum á jóladag.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 4. janúar kl. 13.00.
Einar Ingi Halldórsson, Ásta Bára Jónsdóttir,
Ingibjörg H. Halldórsdóttir, Snorri Zóphóníasson,
Guðný Katrín Einarsdóttir, Reynir Gylfason,
Þorvaldur Einarsson, Ólöf Elsa Björnsdóttir,
Halldóra Snorradóttir, Oddur Snorrason,
Sólrún Ásta Reynisdóttir, Dagur Reynisson.
✝
Bróðir okkar,
SIGURÐUR FRÍMANNSSON,
Grettisgötu 52,
Reykjavík,
lést fimmtudaginn 27. desember á Akureyri.
Útförin verður gerð frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
8. janúar kl. 13.30.
Jarðsett verður í Bægisárkirkjugarði.
Að ósk hans eru þau sem vilja minnast hans beðin
að láta langveik börn njóta þess, t.d. með því að
styðja Hetjurnar á Akureyri.
Kristján Frímannsson,
Gunnar Frímannsson,
Helga Frímannsdóttir,
Steinar Frímannsson.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN ÓLAFÍA SIGURGEIRSDÓTTIR,
Súlunesi 22,
Garðabæ,
sem lést föstudaginn 21. desember, verður
jarðsungin í dag, föstudag 4. janúar, frá
Kópavogskirkju kl. 11.00.
Sigurbjörg Þorvarðardóttir, Sólmundur Þ. Maríusson,
Sigurgeir Friðriksson, Kristín Anna Þorsteinsdóttir,
Ásta Friðriksdóttir, Sturla Geirsson,
Ólafur Þór Gunnarsson, Elínborg Bárðardóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og
vinsemd við andlát og útför
STEFÁNS BENEDIKTS BENEDIKTSSONAR
frá Húsavík,
Sjávargrund 4a,
Garðabæ,
Hlýjar kveðjur og þakkir til starfsfólks L1 Landakoti
og Dagvistunarhjúkrunarheimilisins Holtsbúðar
fyrir einstaka umönnun og umhyggju við okkur öll.
Sigurbjörg Sigvaldadóttir,
Hanna Stefánsdóttir, Jón Guðlaugsson,
Sigrún Stefánsdóttir, Sigþór Sigurjónsson,
Bylgja Stefánsdóttir,
Stefán S. Stefánsson, Guðfinna Baldvinsdóttir,
Guðný Stefánsdóttir, Agnar Agnarsson,
afabörn og langafabörn.