Morgunblaðið - 04.01.2008, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2008 33
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa, leik-
fimi, bingó, söngstund við píanóið.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla,
böðun, morgunkaffi/dagblöð, há-
degisverður, handavinna, kaffi.
Námskeið félagsstarfsins hefjast
aftur 7. jan. Ný námskeið í glerlist
verða fyrir og eftir hádegið á miðvi-
kud. Skráning í s. 535-2760. Jóga-
leikfimistímar verða tvisvar í viku á
mánud. og fimmtud. kl. 9-9.45.
Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl.
9.30, hádegisverður kl. 11.40.
Skráning á námskeið stendur yfir,
félagsvist kl. 20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 |
Vefnaður kl. 9, jóga kl. 9.15, ganga
kl. 10, hádegisverður kl. 11.40. Kynn-
ing á starfsemi í Gullsmára jan. -
maí kl. 14. Kaffiveitingar.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnu-
stofa kl. 9-12, postulínsmálning.
Jóga kl. 9-11. Böðun fyrir hádegi,
hádegisverður kl. 11.30. Hársnyrt-
ing.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins
og venjulega. Skráning í ný nám-
skeið á mánudag, hugmyndabank-
inn opinn kl. 9-16. Lumar þú á góðri
hugmynd? Morgunkaffi, hádeg-
isverður og síðdegiskaffi alla virka
daga. Uppl. 568-3132.
Vesturgata 7 | Börn frá leikskól-
anum Skerjagarði syngja og dansa
undir stjórn Berglindar Bjargar
Úlfsdóttur kl. 15. Sigurgeir Björg-
vinsson stjórnar söng og dansi.
Veitingar.
Kirkjustarf
Aðventkirkjan í Reykjavík | Ing-
ólfsstræti 19. Biblíurannsókn 5. jan.
kl. 11, fyrir börn og fullorðna. Sér-
stakur hópur fyrir enskumælandi.
Guðsþjónustan hefst kl. 12.
dagbók
Í dag er föstudagur 4. janúar, 4. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hver annan, eins og ég hef elskað yður. (Jh.. 15, 12.)
Siðfræðistofnun Háskóla Ís-lands stendur í dag fyrirmálþingi undir yfir-skriftinni Ábyrgð foreldra
og fjölskyldu – Hugvekja um stöðu
barna í upphafi nýs árs. Málþingið
hefst kl. 15 og er er haldið í Nor-
ræna húsinu.
Vilhjálmur Árnason prófessor er
einn fyrirlesara: „Málþingið er
hluti af verkefninu Gildismat og
velferð barna í neyslusamfélagi nú-
tímans sem Siðfræðistofnun hefur
staðið að með styrk frá Kristnihá-
tíðarsjóði,“ segir Vilhjálmur. „Er
bæði brýnt og við hæfi að hefja
þetta ár með því að halda stutt
hugvekjuþing um stöðu barna, þar
sem sjónum verður sérstaklega
beint að vegsemd og vanda þess að
vera foreldri í nútímasamfélagi.“
Að sögn Vilhjálms hafa hags-
munir barna verið töluvert til um-
ræðu síðustu misseri, og hyggst
ríkisstjórnin setja málefni þeirra í
forgang á kjörtímabilinu: „Því er
stundum haldið fram að Ísland sé
barnvænt samfélag, en ýmsar
ástæður eru til að efast um rétt-
mæti þeirrar fullyrðingar,“ segir
Vilhjálmur. „Íslendingar vinna
mjög mikið og hafa því ekki mikinn
tíma aflögu til að sinna börnum.
Við reiðum okkur því æ meir á
stofnanir samfélagsins til að sinna
uppeldi og menntun barnanna okk-
ar. Á sama tíma virðist sem upp-
eldisstéttir búi við þröng starfsskil-
yrði og að störf þeirra sem vinna
með börnum séu gróflega van-
metin.“
Þegar rætt er um aðbúnað barna
á Íslandi segir Vilhjálmur mik-
ilvægt að horfa ekki aðeins til fé-
lagslegra þátta: „Einnig verður að
skoða hugsunarhátt, gildismat og
ábyrgðarkennd foreldra. Á mál-
þinginu beinum við sjónum einkum
að foreldraábyrgðinni, og skoðum
hana frá þremur hliðum: hug-
myndir um uppeldi til frelsis, rann-
sóknir á forsendum til að rækja
foreldraábyrgð, og hvernig vinna
megi að því að framfylgja ákvæð-
um Barnasáttmála SÞ hérlendis.“
Auk Vilhjálms flytja erindi Bald-
ur Kristjánsson dósent við KHÍ og
Bragi Guðbrandsson forstjóri
Barnaverndarstofu. Að erindum
loknum verða stuttar pallborðs-
umræður með þátttöku Margrétar
Maríu Sigurðardóttur umboðs-
manns barna, Sigrúnar Aðalbjarn-
ardóttur prófessors við HÍ og sr.
Sigurðar Pálssonar fyrrv. sókn-
arprests.
Samfélag | Málþing um stöðu barna í dag kl. 15 í Norræna húsinu
Vilhjálmur
Árnason fæddist
í Neskaupstað
1953. Hann lauk
stúdentsprófi frá
ML 1973, BA-
prófi og
kennslurétt-
indum í heim-
speki og bók-
menntum frá HÍ 1978, og doktors-
prófi í heimspeki frá
Purdue-háskóla í Indiana 1982.
Vilhjálmur hefur kennt við HÍ
1983, prófessor frá 1996. Hann
hefur verið stjórnarformaður sið-
fræðistofnunar frá 1997. Vil-
hjálmur er kvæntur Önnu Jónu
Briem kennara og eiga þau sam-
tals fjögur uppkomin börn.
Ábyrgð foreldra og fjölskyldu
Dans
Iðnó | Tangófélagið fagnar nýju ári með mi-
longu kl. 21-1 og kynnir tangóár. Boðið er
upp á happdrætti o.fl. DJ Laura sér um
tónlistina. Aðgangseyrir 1.000 kr.
TVEIR gangandi menn með poka mæta þeim þriðja á hjóli fyrir framan
vegg sem umkringir Lama-musterið í Beijing í Kína í gær.
Rauður veggur í Kína
Á göngu við musterisvegg
Reuters
Atvinnuauglýsingar
Yfirvélstjóri!
óskast á ísfisktogara.
Stærð aðalvélar er 1691 kw.
Upplýsingar í síma 862 0069.
Regla - Metnaður - Sköpun
Íslenska og danska á
unglingastigi
Rimaskóla vantar nú þegar tvo kennara til að
kenna íslensku og dönsku á unglingastigi.
Rimaskóli er einn af stærstu skólum Reykja-
víkur með öflugt starfslið og kröftugan starfs-
anda. Í hverjum árgangi skólans eru þrjár
bekkjardeildir. Önnur staðan er umsjónar-
kennarastaða. Umsjónarkennari er tengiliður
við sérgreinakennara og foreldra. Góð starfs-
aðstaða, mikið samstarf og samfelld stunda-
skrá.
Laun kennara hækkuðu um 3% þann
1. janúar 2008 og hækka að nýju um 3%
þann 1. mars nk.
Upplýsingar veitir Helgi Árnason skólastjóri í
síma 411 7720 / 664 8320 eða netfang
helgi@rimaskoli.is
www.rimaskoli.is
Málarar
Óska eftir að ráða vana málara til framtíðar-
starfa.
Upplýsingar gefur Alfons í síma 663 5003, eða
senda umsókn á netfang alfons@simnet.is
ALHLIÐAMÁLUN EHF .
FRÉTTIR
Ísak Örn og Gunnlaugur efstir
á jólamótinu í Firðinum
Ísak Örn Sigurðsson og Gunn-
laugur Karlsson unnu jólamót Brids-
félags Hafnafjarðar en hörkukeppni
var um efstu sætin.
Lokastaða efstu para:
Gunnlaugur - Ísak Örn 60,3%
Rúnar Einarss. - Skúli Skúlason 59,4%
Gunnl. Sævarss. - Runólfur Jónss. 57,9%
Júlíus Sigurjss. - Sveinn R. Eiríkss. 57,9%
Alda Guðnad. - Guðrún Jóhannesd. 57,2%
Ómar Olgeirsson og Kristján
Blöndal unnu Jólamót
BR og Spron
Ómar Olgeirsson formaður BR og
spilafélagi hans, Kristján Blöndal
sigruðu með nokkrum yfirburðum í
jólamóti BR og Spron sem jafnframt
er minningarmót um Hörð Þórðar-
son.. Í öðru sæti urðu mæðgurnar úr
Hafnafirði Dröfn Guðmundsdóttir
og Hrund Einarsdóttir og í þriðja
sæti voru stórspilarar að austan,
Ágúst Ólason og Guðmundur
Snorrason.
Kristján - Ómar 62,5%
Dröfn - Hrund 57,3%
Ágúst - Guðmundur 57,2%
Hermann Friðrikss. - Jón Ingþórss. 54,8%
Björn Theodórss. - Jón St. Gunnl. 54,5%
Páll Valdimarss. - Sverrir Kristinss. 54,5
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
LIÐIN eru nú 10 ár frá því að Pósti
og síma var skipt upp í tvö fyrirtæki,
Íslandspóst hf. annars vegar og
Landssímann hf. hins vegar.
Þann 2. janúar 1998 tók Íslands-
póstur hf. formlega til starfa eftir
skiptingu Pósts og síma í tvö fyr-
irtæki. Fyrirtækið hefur tekið mjög
miklum breytingum á þessum 10 ár-
um, mikil framþróun hefur átt sér
stað í starfsemi og starfsumhverfi
þess og eru enn frekari breytingar
framundan, sem bjóða upp á fjölmörg
ný tækifæri, segir í fréttatilkynningu.
Starfsemi Íslandspósts er dreifð
víðs vegar um land og eru starfs-
stöðvar margar, en um 1.300 manns
starfa nú hjá fyrirtækinu við ýmis
störf, m.a. í Póstmiðstöð, á skrifstofu,
pósthúsum og dreifingarstöðvum, við
útkeyrslu og dreifingu.
Á árinu 2007 var nýtt húsnæði tek-
ið í notkun fyrir dreifingarstöð í
Reykjavík, tvær póstafgreiðslur voru
endurnýjaðar á höfuðborgarsvæðinu
og þrjú ný pósthús voru tekin í notk-
un á landsbyggðinni, á Reyðarfirði,
Húsavík og í Stykkishólmi, en það
eru fyrstu pósthúsin sem Íslands-
póstur hefur staðið fyrir byggingu á.
Áfangi Nýtt pósthús á Húsavík var tekið í notkun á árinu 2007.
Íslandspóstur fagnar
10 ára afmæli
GUÐJÓN Bergmann verður með
opið hús á Grand hótel Reykjavík
þriðjudaginn 8. janúar milli kl. 18 og
22 þar sem hann mun kynna vordag-
skrá sína fyrir árið 2008 og leitast
við að svara spurningum áhuga-
samra ásamt starfsfólki sínu.
Í fréttatilkynningu segir að þenn-
an dag muni Guðjón bjóða 30% af-
slátt af öllum námskeiðum fyrir þá
sem skrá sig og ganga frá greiðslu.
Að auki muni Guðjón halda kynning-
arfyrirlestur um námskeið milli kl.
20 og 21 á Grand hótel Reykjavík.
Líkt og síðastliðin tvö ár verður
helgarnámskeiðið „Þú ert það sem
þú hugsar“ kjölfestan í dagskrá
Guðjóns.
Nánari upplýsingar um nám-
skeiðin og aðra starfsemi Guðjóns
Bergmann má finna á vefsíðunni
www.gbergmann.is.
Opið hús með Guðjóni Bergmann