Morgunblaðið - 04.01.2008, Qupperneq 36
Þá er komið að hinum árlega stórviðburði
og Eiríkur Hauksson
frá kl.
23:00
til kl.
03:00
á þrettándagleði Kringlukráarinnar
föstudaginn 4. og laugardaginn 5. janúar
Hálfsköllóttur,
líkamlega vel byggður
en labba stundum
eins og mörgæs … 43
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„HÚFF … ég er ótrúlega feginn að
hafa leyft fíflinu í sjálfum mér að
hlaupa frjálsu í þetta sinnið,“ segir
Bubbi blaðamanni. „Ég er orðinn
gríðarlega spenntur fyrir þessum
tónleikum. En ég viðurkenni fúslega
að mér sortnar fyrir augum. Ég fékk
kvíðakast núna áðan, hnút í magann
og allt, og spurði sjálfan mig hvað ég
væri eiginlega búinn að koma mér út
í!“
Bubbi segir að brúnin léttist hins
vegar töluvert þegar hann fylgist
með Stórsveitinni í ham.
„Ég er að segja þér það … þetta
er algerlega geggjað! Þetta er alger-
lega magnað fyrirbæri þessi sveit.“
Bubbi hefur lagt áherslu á að
hann feti um margt ókunnar slóðir í
lagavali, og þetta verði ekkert „grea-
test hits“-sett.
„Það verður t.d. lag af plötunni
Arfur sem heitir „Ísaðar gellur“.
„Jarðarför Bjössa“ af Allar áttir og
„Laugardagsmorgunn“ af Sögur af
landi. Lög sem fólk þekkir ekkert
endilega sem Bubbalög.“
Hann segir að vissulega hafi sum
lögin hljómað framandi í meðförum
Stórsveitarinnar en svo hafi þetta
skýrst fyrir sér með tímanum. Hann
hafi komist að því hægt og bítandi í
gegnum árin að það er ekkert nýtt
undir sólinni og í hefðinni sé falin
fegurð.
Gestir Bubba verða þeir Raggi
Bjarna og Garðar Thór Cortes.
„Mér hefur alltaf þótt leiðinlegt að
ekki skuli vera til upptökur af þeim
skiptum sem ég og Haukur frændi
sungum saman. Ég er þess vegna
ákaflega stoltur af því að geta sungið
með Ragga Bjarna, en hann er sá
síðasti af þessum stórsöngvurum
okkar sem er enn spriklandi fjör-
ugur. Og nú hef ég passað mig á því
að hafa upptökugræjurnar í gangi!“
(hlær)
Bubbi neitar því ekki að áhugi
sinn á tónlist millistríðsáranna hafi
haft áhrif á þessa ákvörðun, að lóðsa
heila stórsveit inn á svið til sín.
„En það er eitt að hafa áhuga og
hlusta og annað að framkvæma,“
segir hann og hlær hressilega. „Í
gegnum tíðina hef ég prufað allt,
leikið mér með alls kyns stíla og
form og oftast reynt meðvitað að
endurtaka mig ekki. Ég er að sækja
á brattann með þessu verkefni, það
er alveg á hreinu. Menn kunna að
hugsa: „Að sækja á brattann – með
þessa snilldarsveit með sér?“ En
fyrir mig, gamlan pönkara og frysti-
húsagutta, er þetta meira en að
segja það. En ég mun leggja mig all-
an í þetta, það geturðu bókað.“
Sótt á brattann
Morgunblaðið/Kristinn
Stórsöngvari Bubbi tjaldar öllu til
á tónleikunum í kvöld og á morgun.
Eins og Pétur
Gunnarsson á Eyj-
unni.is bendir á er
í uppsiglingu mik-
ið sjónvarpsár þar
sem hver stór-
viðburðurinn á
íþrótta- og menningarsviðinu rekur
annan. Má þar nefna EM í handbolta
sem hefst nú í janúar en eftir slappt
gengi karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu eru miklar vonir bundnar við
Strákana okkar. Evróvisjónkeppn-
ina fer svo fram í Belgrad í lok maí
en áður verður háð æsispennandi
keppni í Sjónvarpssal um það hver
fær að keppa fyrir Íslands hönd. Eft-
ir Evróvisjón hefst EM í knattspyrnu
að þeirri keppni lokinni er röðin
komin að Ólympíuleikunum í Peking
sem hefjast í lok ágúst. Í nóvember
er svo komið að forsetakosning-
unum í Bandaríkjunum en það verða
án efa afar spennandi kosningar,
áhugamönnum um pólitík til mik-
illar skemmtunar.
Sjónvarpsárið mikla
framundan
Vesturport og LR
leita að ungum leik-
urum á aldrinum 8-
12 ára til að taka
þátt í leikverkinu
Tillsammans sem
sýnt verður í Borg-
arleikhúsinu í lok
febrúar í leikstjórn Gísla Arnar
Garðarssonar. Áheyrnarprufurnar
fara fram í Borgarleikhúsinu
mánudaginn 7. janúar frá kl. 17.
Áhugasömum er bent á að sækja
umsóknargögn í móttöku Borg-
arleikhússins um helgina frá 12 á
laugardag og sunnudag og frá 10 á
mánudag. Nánari upplýsingar í s.
568-5500 og á www.vesturport-
.com.
Áheyrnarprufa
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞAÐ eru rúm sex ár síðan við byrjuðum og við
höfum alltaf unnið þessa þætti tveir, Stein-
grímur Jón Þórðarson og ég,“ segir Jón Ársæll
Þórðarson, umsjónarmaður Sjálfstæðs fólks
sem hefur göngu sína að nýju á Stöð 2 kl. 19.05
á sunnudagskvöldið. Eins og áður fær Jón Ár-
sæll einn viðmælanda í hvern þátt og spyr hann
spjörunum úr. „Fyrstu þættirnir bera þess
merki að ég hef dvalið í Kaliforníu, og ég not-
aði tækifærið og leitaði uppi athyglisverða
landa sem búa þar vestra,“ segir Jón Ársæll.
„Við byrjum á þætti um einstakan lækni sem er
í raun og veru á meðal stjarnanna þar vestra.
Hann heitir Kristján Tómas Ragnarsson og er
læknir við Sinai-sjúkrahúsið fræga í New York.
Hann vinnur við að reisa menn upp úr rúminu,
en hann er ef til vill frægastur þar vestra fyrir
að reisa eina vinsælustu ruðningshetju þeirra
Bandaríkjamanna á fætur, eftir að hann lam-
aðist við harkalegan árekstur við andstæðing
sinn á vellinum,“ segir Jón Ársæll, en umrædd-
ur kappi heitir Dennis Byrd og lék með New
York Jets á sínum tíma.
Í fyrsta þættinum ræðir Jón Ársæll einnig
við eiginkonu Kristjáns, en hún heitir Hrafn-
hildur Ágústsdóttir og er glerlistakona. „Þau
gengu í gegnum þann dimma dal að missa
tengdason sinn í árásinni á Tvíburaturnana.
Hann var við vinnu í turninum sem seinni árás-
in var gerð á, og það eina sem fannst af honum
var giftingarhringur, þannig fengu þau full-
vissu um að hann hefði orðið á meðal fórn-
arlambanna,“ segir Jón Ársæll, en þau hjónin
lýsa þessari hörmulegu lífsreynslu í fyrsta
þættinum.
Allir hafa sögu að segja
Jón Ársæll bjó í borginni Oakland í Kali-
forníu í um sex mánuði, og þar kynntist hann
þremur Íslendingum sem allir verða gestir í
fyrstu þáttunum.
„Fyrst og fremst ætlum við Steingrímur hins
vegar að stunda rannsóknir hér heima. Við er-
um að fara að hitta fyrsta gest okkar á heima-
slóð, en það er enginn annar en Gylfi Ægisson
sem hefur samið lögin sem við aldrei gleymum,
lögin sem fá hjörtun til að slá hraðar,“ segir
Jón Ársæll. „Þar að auki erum við líka byrjaðir
á þætti um einn þekktasta Íslending samtím-
ans, Ólaf Elíasson. Við hittum hann í MOMA
safninu í San Francisco þar sem hann er með
yfirlitssýningu á verkum sínum.“
Eins og áður segir er þetta sjöunda starfsár
Sjálfstæðs fólks, en þátturinn hefur sex sinnum
verið tilnefndur til Eddunnar og hlotið verð-
launin í þrígang.
„Þættirnir eru komnir á annað hundraðið og
viðmælendurnir eru jafnmargir,“ segir Jón Ár-
sæll og bætir því við að hann sé langt frá því að
verða uppiskroppa með viðmælendur.
„Því hver maður hefur nefnilega sögu að
segja,“ útskýrir hann að lokum.
Komiði sæl og blessuð
Það kennir ýmissa grasa í Sjálfstæðu fólki sem hefst á Stöð 2 á sunnudagskvöld
Sjálfstætt fólk Kristján Tómas Ragnarsson, Hrafnhildur Ágústsdóttir og Jón Ársæll Þórðarson.