Morgunblaðið - 26.01.2008, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
LEIGUBÍLSTJÓRAR eru margir
hverjir ósáttir við að sjóræningja-
akstur viðgangist í miðborg Reykja-
víkur um helgar. Lögregluyfirvöld
eru gagnrýnd fyrir afskiptaleysi og
segja framkvæmdastjórar BSR og
Hreyfils öryggi borgaranna í hættu.
Ekki er aukning á slíkum málum hjá
lögreglu.
Sjóræningjaakstur er það nefnt
þegar einstaklingur ekur fólki gegn
greiðslu en án tilskilinna réttinda.
Oftast nær er fast verð fyrir akst-
urinn og samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er algengt að rukk-
aðar séu 1.000 krónur fyrir ferð úr
miðborginni og í Vesturbæinn, 2.000
kr. upp í Breiðholt og 3.000 kr. inn í
Hafnarfjörð.
„Vissulega er þetta slæmt, um er
að ræða lögbrot og ef menn sjá þetta
eiga þeir umsvifalaust að kæra til
lögreglu,“ segir Ástgeir Þorsteins-
son, formaður Bifreiðastjórafélags-
ins Frama. Hann segir að þar sem
sjóræningjaaksturinn fari aðallega
fram um helgar og seint að nóttu sé
erfitt að fá lögreglu í málin, þar sem
nóg sé að gera hjá henni.
Ekki peningaspursmál
Guðmundur Börkur Thorarensen,
framkvæmdastjóri BSR, segist hafa
rætt þessi mál við lögreglu og er
honum kunnugt um að slík mál hafi
verið kærð. Hann segir hins vegar
ekki nóg að gert. „Lögreglan virðist
bara vera illa mönnuð um helgar
þannig að hún hefur ekki sinnt þessu
eins og við höfum óskað eftir að hún
geri.“
Spurður hvort hann telji að leigu-
bílstjórar séu að verða af miklum
viðskiptum vegna sjóræningjaakst-
urs segir Guðmundur að slíkt bjóðist
aðallega á háannatíma. „Þannig að
þetta er ekki peningaspursmál.
Þetta er frekar spurning um hvaða
þróun við viljum hafa í þessum mál-
um. Við viljum að fólk fari öruggt
heim til sín.“
Undir það tekur Sæmundur
Kristján Sigurlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Hreyfils, sem segir
ýmsar hættur fylgja því að þiggja
far með ókunnugum, auk þess sem
illmögulegt geti reynst að fá verð-
mæti aftur ef þau tapast í bílunum.
„Það er nú heila málið, þetta er hið
versta mál gagnvart neytendum og
ég held að yfirvöld verði að taka á
þessum málum.“
Hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu fengust þær upplýsingar að
eitt slíkt mál sé til rannsóknar og
ekki að sjá að nein aukning sé á slík-
um málum hjá lögreglu.
Ósáttir við sjóræningjaakstur
Lögregla gagnrýnd fyrir að taka ekki á leyfislausum „leigubílstjórum“
„Viljum að fólk fari öruggt heim til sín,“ segir framkvæmdastjóri BSR
Í HNOTSKURN
»Einstaklingar sem aka fólkigegn greiðslu án tilskilinna
leyfa eru sagðir stunda sjóræn-
ingjaakstur.
»Svo virðist sem framboð áslíkri þjónustu hafi aukist að
undanförnu, en það er helst um
helgar í miðborg Reykjavíkur
við lokun skemmtistaða.
»Boðið er fast verð fyrir akst-ur í ákveðna bæjarhluta og
bæjarfélög, s.s. 3.000 krónur fyr-
ir ferð í Hafnarfjörð.
OPINBER heimsókn forseta sem hófst í Katar í byrjun
vikunnar hefur þegar skilað víðtækum árangri, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu frá embættinu.
Í viðræðum forseta Íslands, Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, og emírsins af Katar, Sheikh Hamad Bin Khalifa
Al Thani, hefur komið fram vilji til að þróa samræður
um hvernig smærri ríki eins og Ísland og Katar gætu í
sameiningu haft áhrif á stefnur og strauma á alþjóða-
vísu. Emírinn hefur lýst áhuga á að koma í heimsókn til
Íslands næsta sumar.
Rætt um áhrif smærri ríkja
ÞRÍR karlmenn á þrítugsaldri hafa
verið úrskurðaðir í vikulangt gæslu-
varðhald fyrir tilraun til að smygla 4,5
kg af amfetamíni og 600 g af kókaíni
með hraðsendingu í nóvember síðast-
liðnum. Aldrei áður hefur verið lagt
hald á jafnmikið magn af svonefndum
hörðum fíkniefnum í einni hraðsend-
ingu, en fyrir nokkrum árum var lagt
hald á um 10 kíló af hassi.
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli
fann efnin í sendingu frá Þýskalandi
15. nóvember sl., skriður komst á
rannsóknina í desember og leiddi loks
til handtöku fimm manna á undan-
förnum dögum. Tveimur þeirra hefur
verið sleppt úr haldi en farið var fram
á varðhald yfir þremur vegna rann-
sóknarhagsmuna.
Lögreglan á Suðurnesjum fer með
rannsókn málsins í samvinnu við
fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu.
Þrír úr-
skurðaðir í
varðhald
Sendu sér mikið
magn af fíkniefnum
KRISTÍN Edwald, hæstaréttar-
lögmaður, mun ekki gegna emb-
ætti formanns barnaverndar-
nefndar Reykjavíkur þrátt fyrir
skipun þess efnis á borgarstjórn-
arfundi á fimmtudag. Misskiln-
ingur leiddi til
skipunar Krist-
ínar sem hafði
ekki veitt sam-
þykki sitt.
„Við skipan í
barnaverndar-
nefnd var þeim
boðum komið til
okkar í borgar-
stjórnarflokki
sjálfstæðis-
manna, að
Kristín myndi taka sæti í nefnd-
inni. Síðar kom í ljós að um mis-
skilning var að ræða og samþykki
hennar lá ekki fyrir,“ segir Krist-
ín Hrefna Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri borgarstjórnar-
flokks sjálfstæðismanna. Kristín
Hrefna segir misskilninginn
meinlegan en hafi engin áhrif á
störf nefndarinnar, enda muni
Kristín sinna skyldum innan
nefndarinnar þar til nýr formað-
ur verður skipaður, á borgar-
stjórnarfundi 5. febrúar nk.
Kristín hefur áður setið í barna-
verndarnefnd.
Halldóra Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Barnaverndar
Reykjavíkur, vildi lítið gera úr
málinu, sagði þennan misskilning
ekki hafa nein áhrif á barna-
verndarnefnd eða dagleg störf
barnaverndar. Hvað varðar aflýs-
ingu fundar nefndarinnar sem
halda átti á þriðjudag segir Hall-
dóra að frestun fundar geti vart
talist háalvarlegt mál.
Formaður án
samþykkis
Kristín
Edwald
„VISSULEGA hefur þorskstofninn
við Ísland verið að veikjast á liðnum
árum og það er mjög alvarleg
staða. Ég tel þó engu að síður að við
stöndum ekki frammi fyrir sama
vanda og Kan-
adamenn. Þorsk-
stofninn þar
bókstaflega
hrundi og það
gengur lítið sem
ekkert að ná
honum upp,
þrátt fyrir nær
algjöra friðun í
fimmtán ár,“
segir Jóhann
Sigurjónsson,
forstjóri Hafrannsóknastofnunar-
innar.
Þetta segir hann í kjölfar þeirrar
staðreyndar að stærsti þorskstofn
veraldar, við Nýfundnaland, hrundi
í kringum 1990 í kjölfar ofveiði og
breytinga á lífríki sjávarins. Veiði-
bann í 15 ár hefur ekki dugað til að
byggja stofninn upp á ný.
„Okkur er hollt að horfa til þess
sem gerðist í Kanada á sínum tíma
og þeirrar staðreyndar að þorsk-
stofninn þar nær sér ekki á strik á
ný. Miklar rannsóknir þar í landi
beinast að því að skilja betur or-
sakasamhengið. Í ljósi þess að
þorskstofninn við Ísland hefur ver-
ið að veikjast, lögðum við til veru-
legan niðurskurð á veiðiheimildum
til að forðast sambærilegt slys. Við
teljum að þannig nái stofninn einn-
ig að vaxa á ný, það er að líkur
verði á aukinni nýliðun. Aðstæður
hér eru auðvitað nokkuð ólíkar því
sem er við Kanada. Þar eru sveiflur
í lífríkinu sennilega enn meiri og
náttúruleg afföll síðustu árin mun
meiri en við teljum að séu hér við
eðlilegar aðstæður. | 8
Getum náð
þorskstofn-
inum upp
Jóhann
Sigurjónsson
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt tvo Litháa í fimm ára
fangelsi fyrir nauðgun í miðbæ
Reykjavíkur í nóvember sl. Ákærðu,
Arunas Bartkus og Rolandas Jan-
cevicius, eru um þrítugt og voru
einnig dæmdir til að greiða konunni
sem varð fyrir árás þeirra 2 milljónir
króna í miskabætur. Samkvæmt frá-
sögn konunnar hentu eða ýttu menn-
irnir henni á bakið ofan á vélarhlíf
fólksbíls nálægt Laugavegi, drógu
gallabuxur hennar niður, flettu upp
bol hennar og peysu, klipu og kreistu
líkama hennar og nauðguðu henni.
Konan var með ýmsa áverka sem
læknar töldu að samrýmdist frásögn
hennar.
Annar maðurinn sagði að konan
hefði samþykkt að hafa kynmök við
þá en hinn sagðist hafa verið mjög
ölvaður og myndi ekkert eftir kvöld-
inu.
Konan talin stöðug í framburði
sínum að mati dómsins
Í niðurstöðu dómsins segir m.a.,
að konan hafi verið stöðug í vitnis-
burði sínum um atvik. Hún hafi ein-
att borið á sama veg, hjá lögreglu og
fyrir dómi, um óvænta árás Arunas
Bartkus, hvernig hann hafi hrint
henni á vélarhlíf bílsins og löðrungað
hana. Þá er vísað til þeirrar niður-
stöðu sálfræðinga, að konan beri
ótvíræð og sterk einkenni áfalla-
streituröskunar.
Mennirnir hafa báðir hlotið þunga
dóma í heimalandi sínu, annar fyrir
fjárkúgun og þjófnað og hinn fyrir
rán. Segir dómurinn að við ákvörðun
refsingar verði að horfa til þess hve
hrottalegur verknaður mannanna
var, bæði í ljósi kringumstæðna og
þeirra svívirðilegu og niðurlægjandi
aðferða, sem þeir beittu gagnvart
konunni og þess gríðarlega sálar-
tjóns, sem þeir ollu henni samkvæmt
áreiðanlegu vætti sálfræðings.
Hefðu þeir sýnt fullkomið skeyting-
arleysi um líðan hennar, kynfrelsi og
æru, þegar þeir veittust að henni í
bílskýlinu, notfærðu sér og hlógu að
bjargarleysi hennar, auðsýndu ein-
beittan ásetning til að koma fram
vilja sínum og skirrðust einskis,
þrátt fyrir beiðni hennar um mis-
kunn.
Í dómi segir þá að annar maðurinn
hafi með auvirðilegum hætti vænt
konuna um falska kæru, sem rót eigi
að rekja til fjárgræðgi og vonbrigða
með samfund við mennina í um-
ræddu rými, um miðja nótt í þriggja
stiga hita, og að auki gefið í skyn að
hún hafi hlotið áverka á kynfærum
við samræði með óskyldum aðila, í
kjölfar samskipta við Litháana.
Að gættum öllum þessum atriðum
var það ekki aðeins álit dómsins að
mennirnir hefðu unnið til þungrar
refsingar og ættu sér engar máls-
bætur heldur einnig, að þyngja bæri
refsingu þeirra sérstaklega í ljósi
samverknaðar.
Málið dæmdu héraðsdómararnir
Jónas Jóhannsson, Sigríður Ingv-
arsdóttir og Símon Sigvaldason.
Verjendur voru Guðmundur Ragn-
arsson hdl. og Björgvin Jónsson hrl.
Hlutu 5 ára dóm fyrir hrotta-
lega nauðgun í miðbænum
Nýttu sér bjargarleysi konunnar og beittu báðir svívirðilegum aðferðum