Morgunblaðið - 26.01.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 9
FRÉTTIR
STJÓRN og samninganefnd Póst-
mannafélags Íslands hefur ákveðið
að vísa kjaradeilu félagsins við Ís-
landspóst hf. til ríkissáttasemjara.
Ákvörðunin var tilkynnt samn-
inganefnd Íslandspósts á fundi í
gær.
Fimm fundir hafa verið haldnir
milli aðila undanfarna þrjá mánuði
og var það mat samninganefndar
Póstmannafélagsins, að ef samn-
ingar ættu að nást væri þörf á að-
komu ríkissáttasemjara í málinu.
Aðkomu
ríkissátta-
semjara þörf
VERKALÝÐSFÉLAG Akraness tel-
ur að HB Grandi hafi brotið lög um
hópuppsagnir þegar tilkynnt var í
vikunni, að öllum starfsmönnum
HB Granda á Akranesi yrði sagt
upp um mánaðamótin. Hefur félag-
ið ákveðið að stefna HB Granda fyr-
ir dómstóla vegna þessa. HB-
Grandi áformar miklar breytingar í
rekstri fyrirtækisins á Akranesi til
að bregðast við skerðingu afla-
marks þorsks. Verður öllum starfs-
mönnum landvinnslu HB Granda á
Akranesi sagt upp störfum og síðan
verða endurráðnir 20 starfsmenn.
Kærir upp-
sagnirnar
FRAMKVÆMDIR við háskólabyggingu í Öskjuhlíð eru
í fullum gangi og er komið að þeim áfanga að hefja
uppsteypu húsakostsins. Unnin hefur verið mikil jarð-
vinna á svæðinu á vegum Ístaks sem mun síðan klára
uppsteypuna. Gert er ráð fyrir að fyrsti hluti bygging-
arinnar verði tekin í notkun haustið 2009 og sá síðari
ári seinna. Ístak mun stýra framkvæmdinni í heild en
boðnir verða út margir þættir.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Uppsteypa að byrja við nýjan háskóla
Útsala
iðunn
tískuverslun
Laugavegi 51, s. 561 1680
Kringlunni, s. 588 1680
nú 50%
afsláttur
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
50-70% afsláttur
af öllum vörum
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið virka daga 10.00-18.00
Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00 og Eddufell 10.00-14.00
Algjört verðhrun
1.000 - 1.900 - 2.900 - 3.900
Laugavegi 63 • S: 551 4422
VETRAR-
YFIRHAFNIR
STÓRÚTSALA
40-70%
LAGERSALA
50-80% AFSLÁTTUR
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
www. ferdamalastofa. is
Lækjargata 3 | 101 Reykjavík | Sími 535 5500 | Fax 535 5501 I Netfang: upplysingar@icetourist.is
Strandgata 29 | 600 Akureyri | Sími 464 9990 | Fax 464 9991 I Netfang: upplysingar@icetourist.is
Þetta er viðamikið rit en bókin er í raun prentuð útgáfa af gagna-
grunni Ferðamálastofu sem geymir upplýsingar um vel á annað þú-
sund ferðaþjónustuaðila um allt land. Einnig er að finna í bókinni
ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir ferðafólk.
BÓKIN SKIPTIST Í 7 KAFLA:
Almennar upplýsingar, Á döfinni, Samgöngur, Gisting, Afþreying,
Menning & listir og Veitingastaðir.
Handbókin er gefin út á íslensku og ensku og er mikilvægt upp-
flettirit fyrir alla þá sem starfa að skipulagningu og upplýsingagjöf
í ferðaþjónustu. Bókin er seld í áskrift og kostar 6.000 kr. Afsláttur
er veittur ef fleiri en eitt eintak er keypt. Bókina má panta á www.
ferdamalastofa.is.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Ferðamálastofu
á Akureyri í síma 464-9990 eða með því að senda
póst á netfangið: upplysingar@icetourist.is.
Handbók Ferðamálastofu
fyrir árið 2008 er komin út
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
lagði í gær fyrir ríkisstjórn tillögu um
að tilnefna handritasafn Árna Magn-
ússonar í Reykjavík og Kaupmanna-
höfn á lista UNESCO „Memory of
the World International Register“ í
samstarfi við dönsk stjórnvöld. Tillag-
an var samþykkt og verður Stofnun
Árna Magnússonar í íslenskum fræð-
um falið að vinna verkefnið af Íslands
hálfu.
Árið 1992 hleypti UNESCO af
stokkunum verkefninu „Memory of
the World“. Tilgangur þess er að
vekja athygli á mikilvægi þess að
varðveita andlegan menningararf
veraldar. Verkefnið hefur að mark-
miði að greiða fyrir því að allri viðeig-
andi tækni verði beitt til þess að
tryggja varðveislu á skjalfestum
menningararfi veraldar, greiða fyrir
hindrunarlausu aðgengi allra að hon-
um og kynna verkefnið og afurðir
þess fyrir sem flestum. Í tengslum við
verkefnið var búinn til listi yfir skjala-
söfn og bókasöfn, „Memory of the
World Register“, og geta þjóðir
heims tilnefnt skjöl og rit á hann.
Verkefnið er ekki hluti af samning-
unum um verndun menningar- og
náttúruminja heims (1972) og vernd-
un menningarerfða (fræða og hefða
sem ekki hafa verið skjalfest en borist
frá einni kynslóð til annarrar í munn-
legri geymd) (2003).
Handritasafn Árna Magnússonar
geymir fjölda handrita frá miðöldum
og síðari öldum. Meirihlutinn er ís-
lensk handrit en einnig eru þar norsk,
dönsk og sænsk handrit auk handrita
úr öðrum áttum. Safnið skiptist í tvo
nærri jafnstóra hluta, sem varðveittir
eru á Íslandi og í Danmörku og er í
heild nálægt 3000 safnnúmer með
safnmarkið AM. Konungsbók Eddu-
kvæða og Flateyjarbók eru ekki hluti
af handritasafni Árna Magnússonar
og gætu þau á síðara stigi orðið sér-
stök íslensk tilnefning.
Handritasafn Árna Magnússonar
má nú kalla mikilvægasta menningar-
legan tengilið Íslands og Danmerkur.
Skipting safnsins með samkomulagi
þjóðanna og náin samvinna um varð-
veislu þess og rannsóknir tengdar því
er í sjálfu sér menningarlegt og
stjórnmálalegt fordæmi sem ástæða
er til að halda á lofti. Mestu skiptir þó
hið einstæða gildi handritanna sjálfra.
Nú er þess kostur að tvö lönd geri
saman tillögu um að sameiginleg
menningarverðmæti verði tekin upp í
„UNESCO Memory of the World
Register“. Virðist því liggja beint við
að Ísland og Danmörk tilnefni Hand-
ritasafn Árna Magnússonar í heild
sinni, eins og Árni Magnússon skilaði
því til seinni kynslóða, með þeim við-
aukasöfnum sem síðan hafa bæst því.
Handritasafnið á listann
um Minni heimsins
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111