Morgunblaðið - 26.01.2008, Side 25
Útgangspunktur
Armanis að þessu
sinni var þó ekki
eldfjallið Etna
heldur súrrealismi.
Í anda Ægis Perlumóðu litrófið eins og það lagði sig tók sig vel út í
hátískukvöldkjólunum á sýningarpöllum Chanel.
Hraunglóð Kannski Etna sé inn-
blásturinn að þessum Armani kjól?
Blómleg Lífrænt blómmynstur hjá
Armani á vel við hátískuna.
Gígur Blöðrulaga pils Giorgio
Armanis fengu skemmtilegt nafn.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 25
ein anna ekki þeirri
umferð, sem um er að
ræða á góðum dögum
um helgar.
Auðvitað er ljóst, að
þarna er um að ræða
fjárfestingu, sem nýtist
ekki nema að takmörk-
uðu leyti. Það er eðli
fjárfestinga í skíða-
svæðum og lítið við því
að gera. Á móti kemur
að á skíðasvæðunum
hefur verið byggð upp
aðstaða fyrir fólk til
þess að njóta útivistar
og stunda heilbrigt líf.
Þess vegna er ekki
tilefni til að draga sam-
an seglin, þótt illa hafi árað fyrir
skíðamennskuna síðustu árin. Þvert
á móti er full ástæða til að halda
áfram að byggja þessa aðstöðu upp
og halda báðum skíðasvæðum höf-
uðborgarsvæðisbúa opnum yfir vet-
urinn og stuðla þannig að því að fólk
njóti þeirrar góðu útivistar, sem
skíðaíþróttinni fylgir.
En það er ekki hægt að bjóða fólki
upp á sams konar ástand og var í
Bláfjöllum um síðustu helgi. Skipu-
leggjendur og stjórnendur þessara
svæða verða að horfast í augu við
þörfina fyrir fjölgun bílastæða. Ella
leggja bílstjórar meðfram vegakönt-
unum með þeim afleiðingum að bíl-
arnir renna út af köntunum, festast í
snjó og auka enn á umferðaröng-
þveitið, sem þó er nóg fyrir.
Vonandi tekur hinn nýi borg-
arstjóri Reykvíkinga, Ólafur F.
Magnússon, þetta vandamál föstum
tökum því að ekki verður sagt að
forverar hans hinir síðustu hafi gert
það.
Annars hefur Víkverji trú á því að
Ólafur F. Magnússon verði góður
borgarstjóri. Það er oft, þegar
mönnum er illa tekið í byrjun eins og
Ólafur hefur orðið að þola af fyrr-
verandi samherjum sínum, að þeir
hinir sömu koma skemmtilega á
óvart.
Það skyldi þó aldrei vera, að Ólaf-
ur eigi eftir að slá þeim öllum við?
Það verður eftir honum tekið.
Um síðustu helgivar mikið um-
ferðaröngþveiti á leið-
inni upp í Bláfjöll. Bíl-
um var lagt við
vegarkanta út um allt
og umferðin hreyfðist
hægt og stundum ekki
neitt.
Það er ljóst að að-
staða til að leggja bíl-
um í Bláfjöllum er allt-
of takmörkuð, allavega
um þær helgar yfir
veturinn, þegar að-
sóknin er mest. Og
þótt einhverjum þyki
kannski mikið í lagt er
ekki annarra kosta völ
en að fjölga bílastæðum þar veru-
lega eða loka einfaldlega Blá-
fjallasvæðinu, þegar öll stæði eru
full. Það er ekki ástæða til að fólk
fari upp í Bláfjöll, ef nánast ómögu-
legt er að komast þangað.
Í þessu sambandi er ástæða til að
spyrja, hvers vegna skíðasvæðið við
Skálafell er ekki opnað. Bláfjöllin
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Fararstjóri
Friðrik G. Friðriksson
Á þessum árstíma er besta veðrið í Evrópu á þessum stað. Kaldir austanvindar ná ekki yfir á
Atlandshafsströndina.
Hótelið að þessu sinni er á Spáni og heitir Riu Atlantico (http://www.riu.com/en/hotel-riu-
atlantico-isla-canela-huelva.html) við Isla Canela og er rétt við Ayamonte í Andalúsíu.
Hótelið er 4 stjörnu lúxus hótel við ströndina, bæði morgunverður og sérlega glæsilegt og
fjölbreytilegt kvöldverðarhlaðborð eru innifalin. Tvær útisundlaugar og ein upphituð
innisundlaug, gufubað o.fl.. Uppákomur og skemmtun standa til boða flest kvöld á hótelinu.
Á kvöldin er leikin tónlist svo taka má sporið.
Skoðunarferðir eru einnig innifaldar.
Friðrik fararstjóri segir vandlega frá þeim tíma þegar Portúgal var ríkasta land heims og
síðan hnignun þess, rekur sögu landafundanna miklu með aðkomu skóla Hinriks sæfara ,
hápunkta þrælasölu Evrópuþjóða, ríkidæmi borgarinnar Sevilla um leið og hann heimsækir og
sýnir staði sem tengjast þessum sögum. Fyrir utan fróðleik verður ýmislegt gert sér til
gamans eins og að sigla upp eftir landamæraá Spánar og Portúgals með viðkomu í smáþorpi
þar sem verður grillað og dansað. Eins verður þekktur túristabær heimsóttur og svo siglt
með klettóttri ströndinni. Frítími verður einnig nógur.
Flogið er beint til Faro í Suður-Portúgal með leiguflugi þannig að heildarverð ferðarinnar er
mjög hagstætt.
Verð: kr 119.500 í tvíbýli og 22.000 auka fyrir einbýli.
Innifalið Flug, flugvallaskattar, allur akstur, skoðunarferðir, gisting með morgunverðarhlaðborði, kvöldverðir og
íslensk fararstjórn.
Ekki innifalið Forfallatrygging og inngangseyrir
Nánari ferðalýsingu er hægt að fá á heimasíðu Úrvals Útsýnar (www.uu.is) undir Evrópurútum
eða hjá þeim Þórunni eða Silju Rún, sími 585 4000, en þær taka einnig við pöntunum.
Evropurutur 2008
Spánn og Portúgal
21. apríl - 3. maí 2008
★ ★