Morgunblaðið - 26.01.2008, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Í AÐDRAGANDA Ólympíu-
leikanna 8. ágúst næstkomandi
standa þjóðir heims frammi fyrir
þeirri áleitnu spurningu hvernig
leikarnir geti stuðlað
að bættri stöðu mann-
réttindamála í Kína.
Stofnskrá Ólympíu-
leikanna kveður á um
að íþróttir skuli styðja
heildræna þróun
manneskjunnar, frið-
armenningu og varð-
veislu manngildisins,
en réttlæting Ólympíu-
nefndarinnar, fyrir
þeirri ákvörðun að út-
hluta kínverska Al-
þýðulýðveldinu sum-
arólympíuleikum
ársins 2008, fólst í þeirri sannfær-
ingu að þannig væri unnt að þrýsta á
um úrbætur í landinu. Úthlutunin
var því þeim skilyrðum bundin að
mannréttindi yrðu loks virt í Kína.
Á síðustu árum hafa sjálfstæð al-
þjóðleg samtök eins og Amnesty
International, Human Rights in
China og Human Rights Watch hins
vegar haldið því fram að staða
mannréttindamála hafi ekki færst til
betri vegar í Kína … heldur versnað.
Undir það tekur fjöldi annarra, svo
sem International Society for Hum-
an Rights, Reporters Without Bor-
ders, Doctors Against Forced Organ
Harvesting, China Aid Association
og Olympic Watch. Sjálfstæð sam-
tök sem rannsaka ofsóknir á hendur
Falun Gong í Kína (CIPFG) hafa
vakið athygli á auknum fjölda mann-
réttindabrota í landinu. Þau benda á
glæpi gegn friði og hinum ólympíska
anda, líffæra-rányrkju í gróðaskyni,
ofsóknir á hendur kristnu fólki, kúg-
un tíbetsku þjóðarinnar, virðing-
arleysi gagnvart tjáningar- og skoð-
anafrelsi, skemmdarverk gagnvart
þeim sem vinna gegn þjóðarmorðum
Súdan í Darfur-héraði og herferð
Junta gegn munkum í Búrma.
Vegna þessa ástands sem kínversk
stjórnvöld hafa skapað áttu sam-
tökin frumkvæði að heimshlaupi
með mannréttindakyndil sem hóf för
sína í hjarta Aþenuborgar að kvöldi
9. ágúst síðastliðins. Í upphafs-
athöfninni komu þátttakendur frá
ólíkum heimshornum en röð atburða
tileinkaðra málstaðnum um gervalla
Evrópu og Ástralíu og Bandaríkin,
hefur verið tilefni borgarstjóra,
þingmanna, afreksfólks í íþróttum
og mannréttindahugsuða til að lýsa
opinberlega áhyggjum
sínum.
Auk þess að eiga að-
ild að alþjóðlegum
mannréttinda-
sáttmálum eru öll
grundvallarréttindi
fólks lögbundin í
stjórnarskrá Alþýðu-
lýðveldisins, þar með
talið tjáningarfrelsi,
frelsi fjölmiðla, fé-
lagasamtaka og trú-
félaga og varðhald án
dómsúrskurðar ólög-
mætt. Lögfræðingar
sem láta reyna á það fyrir dómi þeg-
ar slík lög eru brotin geta hins vegar
búist við harðræði og ofsóknum.
Einn þeirra virtasti, Gao Zhisheng,
sem hlotið hefur útnefningu til frið-
arverðlauna Nóbels, var numinn
brott af heimili sínu 22. september
síðastliðinn. Fyrr á árinu gaf hann
út bókina, A China More Just. My
fight as a rights lawyer in comm-
unist China og ritaði 16 síðna grein-
argerð til Bandaríkjastjórnar, –
ákall til alþjóðasamfélagsins, tveim-
ur dögum fyrir brotthvarf sitt. Í
nafni Mannréttindakyndilsins hafa
ástralskir lögfræðingar kallað á taf-
arlausa lausn Zhishengs og annarra
samviskufanga, ekki síst þeirra sem
brotið hefur verið á í nafni Ólympíu-
leikanna sjálfra. Friðsamleg mót-
mæli úr hópi einnar og hálfrar millj-
ónar íbúa Bejing sem misst hafa
heimili sín vegna byggingar ólymp-
íumannvirkja, án sanngjarnra
skaðabóta, hafa verið brotin á bak
aftur og skipuleggjandi þeirra, Ye
Guozhu, sætt fangelsun og pynt-
ingum um fjögurra ára skeið.
Íslenskir blaðamenn sem og ann-
að fjölmiðlafólk sem hyggst miðla
fréttum frá landinu næsta sumar, á á
hættu að þurfa að sætta sig við ólög-
lega skerðingu á frelsi til miðlunar
upplýsinga um það sem raunveru-
lega á sér stað í þessu fjölmenna
landi, en fram hefur komið að ít-
arlegum persónulegum upplýs-
ingum um alla blaðamenn sem
hyggjast fara á leikana er safnað í
gagnagrunn. Sannleikurinn er frels-
andi afl en stjórnvald sem sífellt þarf
að hylma yfir verk sín, lifir í þrúg-
andi ótta við sannleikann, siðmenn-
inguna og vilja þegnanna. Starfi
30.000 netlögregluþjóna sem
,,vernda“ kínverska alþýðu fyrir
upplýstri umræðu um lýðræði,
mannréttindi og trú er raunveruleg-
ur vitnisburður um slíkan ótta.
Við upphaf sumarólympíuleik-
anna, 8. ágúst næstkomandi, mun
Mannréttindakyndillinn hafa heim-
sótt 35 lönd og 150 borgir. Á ferð
sinni um heiminn minnir hann á að
hátíðarandinn sem helgar stærsta
íþróttaviðburð þjóðanna er borinn
uppi af virðingu fyrir lífinu og varð-
veislu þess. Áður en kastljós fjöl-
miðlanna beinist að afrekum íþrótta-
fólks í Bejing næstkomandi sumar
þurfa íþróttasamtök, stjórnvöld,
fjölmiðlafólk og almenningur um all-
an heim að taka afstöðu til þess með
hvaða hætti megi koma í veg fyrir að
ólympíuhugsjónin verði misnotuð
með afgerandi hætti. Hvernig ól-
ympíuhugsjónin kemur þjóð sem
hefur meiri áhuga á að njóta sjálf-
sagðra mannréttinda en að halda
stærstu íþróttaleika sögunnar, til
góða.
Ólympíuleikar og glæpir gegn
mannkyni geta ekki átt samleið.
Metnaðarfull og afdráttarlaus af-
staða núverandi ríkisstjórnar Ís-
lands í utanríkismálum þar sem
mannréttindi, friðarmenning og þró-
unaraðstoð eru grundvallarviðmið
mun án efa halda þeirri staðreynd á
lofti á nýju ári.
Mannréttindakyndill
– Ísland á leik
Þórdís Hauksdóttir fjallar um
stöðu mannréttindamála í Kína » Friðsamleg mótmæliúr hópi 1½ milljónar
íbúa Bejing sem misst
hafa heimili sín vegna
byggingar ólympíu-
mannvirkja, án sann-
gjarnra skaðabóta, hafa
verið brotin á bak aftur.
Þórdís Hauksdóttir
Höfundur er kennari.
ÁRIÐ 2007 var afar
viðburðaríkt í starfi
Vöku, félags lýðræð-
issinnaðra stúdenta,
þó segja megi að skipst
hafi á skin og skúrir.
Það sem stendur þó
ávallt upp úr þegar lit-
ið er yfir farinn veg er
fólkið sem myndar þann hóp sem
Vaka er. Það er ekki síst sá góði fé-
lagsskapur og það öfluga fólk sem er í
starfinu sem dregur fólk inn í félagið.
Við í Vöku trúum því staðfastlega að
samtakamáttur okkar stúdenta sé
mikill og með því að taka höndum
saman getum við áorkað miklu. Það
er þessi framkvæmdagleði, jákvæði
og frumkvæði sem einkennir starfið
hjá okkur í Vöku. Það er því aldrei of
oft sagt hversu mikilvægur þessi hóp-
ur stúdenta, sem leggur mikið á sig í
sjálfboðavinnu, er hagsmunabaráttu
stúdenta í heild sinni.
Starfið í Vöku
Á hverju ári er kosið til Stúd-
entaráðs Háskóla Íslands og býður
Vaka ávallt fram lista af öflugu fólki
sem er reiðbúið að starfa í þágu nem-
enda að því að gera Háskóla Íslands
að betri skóla. Í síðustu kosningunum
náði þriðja framboðið, sem hafði
komið inn oddamanni í nokkur ár,
ekki inn manni og skiptust atkvæðin
því nokkuð jafnt milli Vöku og
Röskvu. Niðurstaðan varð þó, því
miður, að þegar upp var staðið skildu
tuttugu atkvæði fylkingarnar og
Vaka hefur því starfað í minnihluta
allt núverandi starfsár.
Það er þó ekki siður Vökufólks að
leggja árar í bát þegar á móti blæs og
hefur Vaka sem félag styrkst og eflst
þó að hendur okkar séu að vissu leyti
bundnar í minnihluta í Stúdentaráði.
Síðasta ár hefur því verið heillaríkt í
starfi félagsins þar sem margt hefur
verið í gangi og fjöldi fólks hefur
gengið til liðs við félagið sem vill
leggja sitt af mörkum til þess að
kraftar Vöku fái notið sín sem skyldi í
Stúdentaráði.
Meðal þess sem hefur verið að ger-
ast í starfi Vöku í vetur má nefna
málþing sem félagið stóð fyrir um
málefni Háskóla Íslands undir yf-
irskriftinni ,,Virkjum Háskólann“ þar
sem fulltrúar stjórnmálaflokkana
komu og ræddu málefni skólans við
nemendur. Einnig var útgáfa félags-
ins mjög öflug en gefið var út veglegt
Haustblað, sérstakur nýnemabækl-
ingur og ný heimasíða opnuð. Félagið
stóð einnig fyrir fjölmörgum
skemmtilegum atburðum á árinu á
borð við haustpartí og jólapartí.
Einnig voru haldnir málefnadagar og
farið í málefnaferðir. Í október sendi
Vaka svo frá sér skýrslu um starf-
semi stúdentaráðs þar sem var að
finna úttekt á því sem miður hafði
farið í starfi ráðsins það sem af var
starfsárinu og tillögur Vöku að úrbót-
um.
Háskóli á heimsmælikvarða
og kraftur stúdenta
Hjá Háskóla Íslands eru merki-
legir tímar framundan. Skólinn hefur
sett sér metnaðarfullt markmið um
að komast í hóp 100 bestu háskóla í
heimi, róttækar breytingar á stjórn-
skipulagi skólans liggja fyrir þar sem
skólanum verður skipt upp í fimm
fræðasvið og hinn 1. júní á þessu ári
munu svo Háskóli Íslands og Kenn-
araháskóli Íslands sameinast. Einnig
voru þrjár nýbyggingar vígðar 1. des-
ember á síðasta ári, Háskólatorg,
Tröð og Gimli, en þessar byggingar
munu bæta alla aðstöðu, bæði nem-
enda og starfsfólks skólans, til muna.
Allar þessar breytingar eru mik-
ilvægur þáttur í því að tryggja að
skólinn verði í hópi þeirra bestu.
Þáttur okkar nemenda í þessum
markmiðum skólans er veigamikill og
miklu skiptir hverjir það eru sem
leiða hagsmunabaráttu stúdenta. Við
í Vöku teljum okkar aðferðir best til
þess fallnar til að ná árangri fyrir
stúdenta. Stúdentaráð á að vera Há-
skóla Íslands og stjórnvöldum öflugt
aðhald en það gerist einungis þegar
ráðið er óháð og hlutlaust gagnvart
utanaðkomandi stjórnmálaöflum.
Trúverðugleiki ráðsins er ómet-
anlegur í þessu sambandi og viljum
við í Vöku endurheimta þennan trú-
verðugleika, fáum við til þess umboð.
Öflugt stúdentaráð fyrir stúd-
enta
Við í Vöku erum bjartsýn fyrir
komandi kosningar til stúdentaráðs
og háskólaráðs. Mikill hugur er í fólki
eins og eðlilegt er eftir að hafa setið í
minnihluta í heilt ár og ætlum við
okkur auðvitað ekkert nema sigur. Í
kjölfarið hyggjumst við leiða hags-
munabaráttu stúdenta og koma okk-
ar helstu baráttumálum í gegn með
árangursríkum aðferðum en við vilj-
um sjá öflugt stúdentaráð sem vinnur
af heilum hug í þágu nemenda Há-
skóla Íslands.
Áræði, frumkvæði
og kraftmikið fólk
Helga Lára Haarde
og Jan Hermann
Erlingsson skrifa
um Vöku, félags
lýðræðissinnaðra
stúdenta
Helga Lára
Haarde
» Stúdentaráð á aðvera Háskóla Ís-
lands og stjórnvöldum
öflugt aðhald og því þarf
ráðið að vera óháð og
hlutlaust gagnvart ut-
anaðkomandi stjórn-
málaöflum
Helga er formaður Vöku og Jan er
varaformaður Vöku.
Jan Hermann
Erlingsson
LANGÞRÁÐUM áfanga er náð,
loksins er almennt farið að setja upp
varmaskipta í nýtt húsnæði með því
markmiði að lækka hitastig á heitu
neysluvatni. Í apríl 2007 hleypti
Orkuveita Reykjavíkur í samstarfi
við Sjóvá – forvarnarhús, Landspít-
ala – Háskólasjúkrahús og bygg-
ingafulltrúann í Reykjavík af stokk-
unum átakinu „Stillum hitann
hóflega“. Markmiðið með átakinu
var að fækka brunaslysum af völd-
um heits neysluvatns og höfða til al-
mennings og fagaðila um hitastýr-
ingu á heitu neysluvatni.
Íslendingar eiga trúlega heims-
met í fjölda brunaslysa á íbúa af
völdum heits neysluvatns. Eftir
fimm ár frá upphafi átaksins er ætl-
unin að meta árangurinn en við upp-
haf átaksins var staðan þessi:
Fjórtán sinnum fleiri fullorðnir
brenna sig á Íslandi en í samanburð-
arlöndum
Tvöfalt fleiri karlar brenna sig
en konur
Helmingur brunaslysa verður í
baðherbergjum
Brunaslys verða alvarlegri hér-
lendis en í samanburðarlöndunum
Góður árangur
Átakið frá því í vor hefur skilað
frábærum árangri hvað nýtt hús-
næði varðar. Mest af því húsnæði
sem nú er verið að taka í notkun hef-
ur varmaskiptabúnað
til lækkunar á hitastigi
neysluvatns. Fyrir þá
sem hafa unnið að
framgangi þessara
mála er hér um stóran
sigur að ræða.
Þótt vissulega beri
að fagna merkum
áfanga í þessum mál-
um er rétt að minna á
að víðast hvar í eldra
húsnæði hefur ekkert
verið gert. Lausnir á
viðfangsefninu hafa
raunar lítt verið á boð-
stólum. Nú hafa lagnaefnissalar hins
vegar svarað kalli og þróað lausnir
sem henta íslenskum aðstæðum.
Átakið sem hófst í vor var marg-
þætt, þar sem bæði var höfðað til al-
mennings og fagaðila. Fræðslu var
komið til almennings á tvennan hátt,
annars vegar bæklingur sem var
borinn inn á heimili á veitusvæði
OR, og hins vegar opnun heimasíð-
unnar www.stillumhitann.is. Þar má
finna ýmsan fróðleik um forvarnir
gegn brunum af völdum heits vatns
sem og nytsamlegar upplýsingar
fyrir fagfólk. Sjóvá – forvarnarhús
hefur fengið vefinn afhentan, en
hann fellur vel að því góða starfi sem
þar er unnið.
Höfðað var til fagmanna á tvenn-
an hátt, annars vegar með ráðstefnu
síðastliðið vor og svo námskeiði í lok
nóvember. Á námskeiðinu var af-
rakstur samvinnu Orkuveitunnar við
Ísleif Jónsson, Tengi og Danfoss
sýndur, þar sem lagnasalar höfðu
þróað lausn sem hentar í eldra hús-
næði. Námskeiðsgögn hafa verið af-
hent Iðunni – fræðslusetri sem mun
halda utan um það í framtíðinni og
er það komið inn á fræðsludagskrá
þeirra fyrir vorið 2008.
Embætti byggingafulltrúa með
Magnús Sædal Svavarsson í far-
arbroddi hefur tekið vel á í þessu
átaki og er afrakstur samstarfsins
meðal annars skýrara verklag um
skil á teikningum og úttektir á
lagnakerfum.
Grunnurinn kominn
Í dag er komið að ákveðnum
kaflaskilum í þessu verkefni þar sem
samstarfsaðilar okkar hafa tekið þau
verkefni sem Orkuveita Reykjavíkur
ýtti úr vör í vor upp á sína arma og
munu halda starfinu ótrauð áfram
hver á sínu sviði. Þetta er stórt skref
að okkar mati því málefnið er mjög
brýnt og ber að þakka samstarfs-
aðilum góðar móttökur við verkefn-
inu.
Njótum heita vatnsins áhyggju-
laus og stillum hitann hóflega!
Stillum hitann hóflega
Jakob Sigurður Friðriksson og
Ásdís Gísladóttir skrifa um
varmaskipta í nýju húsnæði
»Markmiðið meðátakinu var að
fækka brunaslysum af
völdum heits neyslu-
vatns og höfða til al-
mennings og fagaðila
um hitastýringu á heitu
neysluvatni.
Jakob Sigurður
Friðriksson
Jakob er framkvæmdastjóri hjá
Orkuveitu Reykjavíkur og Ásdís er
verkefnastjóri átaksins.
Ásdís
Gísladóttir