Morgunblaðið - 26.01.2008, Side 54
... besti vinur sveit-
arinnar á Myspace er
Dalai Lama … 58
»
reykjavíkreykjavík
FJÖLSKYLDA rokkstjörnunnar Magna Ás-
geirssonar var trommaranum Tommy Lee inn-
an handar þegar hann var veðurtepptur á Egils-
stöðum í gær. Þota á leið frá New York með
Tommy Lee og fylgdarlið innanborðs varð að
millilenda á Egilsstöðum og bíða af sér illviðrið
sem gekk yfir Keflavík.
Magni er frá Borgarfirði Eystri og frétti af
hrakningum þessa fyrrum félaga síns úr sjón-
varpsþáttunum Rock Star: Supernova og sendi
flokk manna út á flugvöll til þess að huga að
honum. „Föðurbræður mínir og bróðir minn eru
úti á velli og eru að spjalla við hann. Ef það
skellur á einhver blindbylur þá henda þeir hon-
um bara upp í jeppa og fara á rúntinn með hann.
Heldurðu að útlendingunum finnist þetta ekki
skemmtilegt að lenda svona í vetrarríkinu
hérna á Íslandi? Ég veit ekki hvort það er bara
ég en það kemur alltaf upp í mér einhver púki
þegar það koma útlendingar frá LA og svona
stöðum og það er blindbylur. Það er gaman að
geta bent út um gluggann og sagt „Sjáiði bara
hvað við þurfum að búa við hérna,““ sagði
Magni í samtali við Morgunblaðið í gær. „Hann
er bara í góðu yfirlæti þarna hjá ættingjum
mínum og svo fer hann bráðum upp í vél. Ef það
verður ekki flogið þá skutla þeir honum bara í
bæinn.“
Vilja ekki fljúga í dag
Það fór þó ekki svo að Tommy Lee þyrfti far
hjá fjölskyldu Magna því um hádegisbil komst
þotan frá Egilsstöðum til Keflavíkur. Hrakför-
um Lees var ekki lokið þó að hann væri kominn
á rétt landshorn því illfært var um Reykjanes-
brautina og útlit fyrir að hann kæmist ekki í
tæka tíð til þess að skemmta partígestum á
NASA um kvöldið eins og til stóð. Jón Atli
Helgason stendur að komu Tommy Lee og DJ
Aero til landsins og var feginn þegar þeir kom-
ust í bæinn undir kvöldið í gær. „Þeir eru bara í
geðveiku stuði og vilja ekkert fara strax til
baka. Þeir ætla að stoppa aðeins og fara í Bláa
lónið og djamma með okkur á Organ [í kvöld],“
sagði Jón Atli um miðjan dag í gær.
Allt fór á besta veg fyrir utan að þeytast
þurfti um allan bæ til að redda græjum sem
týndust í flugi á leiðinni til landsins, hlaupið inn í
og út úr eðalvagni, inn í búðir um alla Reykjavík
að skoða græjur, m.a. M-audio hljóðkort og Pio-
neer VDJ1000 spilara.
Tommy trúði því varla að allar græjurnar
sem vantaði væru til á Íslandi, að sögn Jóns
Atla. Þeir DJ Aero voru enn í sándtékki þegar
klukkan var að ganga tíu í gærkvöldi, ætluðu að
því loknu fara á hótel að leggja sig í klukkutíma
og sturta svo í sig orkudrykkjum til að endast
fram á morgun. Báðir vilja fresta heimför í
lengstu lög, búnir að fá nóg af flugferðum, og
munu því halda partí á Organ í kvöld.
Jón Atli segir að Tommy vilji að allir séu í
stuði og dansandi, annars snari hann sér á dans-
gólf og helli í þá áfengi. Í kvöld þeyta skífum á
Organ þeir DJ Lazer, Jack Schidt og Kotelett
frá Berlín. Þeir DJ Aero og Tommy væru líkleg-
ir til þess að taka völdin af plötusnúðunum.
Á hrakhólum um landið
Víkurfréttir/Þorgils
Loksins Tommy Lee á Keflavíkurflugvelli í
gær eftir sólarhringsferðalag.
Söngkeppni
MR var haldin
með pomp og
prakt í Austurbæ
í fyrrakvöld. Fjöl-
mörg atriði háðu
keppni en sá hátt-
ur var hafður á að dómnefnd valdi í
þrjú efstu sætin en salurinn sjálfur
valdi svo eitt atriði til verðlauna. Í
þriðja sæti hafnaði Thelma Björk
sem söng lagið „Daughters“ með
John Mayer, í öðru sæti höfnuðu
þeir Ádni, Siggi og Þríeykið Hregg-
viður en þeir fluttu At the Drive-In-
lagið „Arc Arsenal“ og fyrsta sætið
kom í hlut Tryggva Steins og Krist-
jáns Bjarna sem fluttu gamla Nick
Cave-lagið „Red Right Hand“. Sal-
urinn valdi svo atriðið Detention
Boyz sem fluttu frumsamið lag í
anda Blink 182, Skateboard High
School Girl.
Í dómnefnd sátu þau Andrea
Gylfadóttir söngkona, Árni Matt-
híasson tónlistarskríbent og Erpur
Eyvindarson, rappari og sjónvarps-
stjarna.
Fjölbreytt söngkeppni
MR í Austurbæ
Af Erpi Eyvindarsyni er það
annars að frétta að hann mun um
þessar mundir vera að vinna að
sinni fyrstu sólóplötu. Að plötunni
koma bæði þekktir og óþekktir tón-
listarmenn og svo getur farið að
platan verði tilbúin til útgáfu með
haustinu. Erpur mun þessa dagana
stjórna upptökum í miklum róleg-
heitum en það er munaður sem fáir
íslenskir tónlistarmenn veita sér.
Erpur hefur komið fram undir ýms-
um nöfnum í gegnum tíðina, meðal
annars sem Johnny Naz og Ebbi
sjónvarpsstjóri. Líklegt má þó telja
að Blaz Roca verði nafnið sem Erp-
ur notar á sólóplötunni – þá og þeg-
ar sólóplatan kemur út.
Erpur með sólóplötu
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÞAÐ ER ekki á hverjum degi sem
Íslendingur gefur út bók í Japan.
Nýlega kom þó út þar í landi bók
eftir Örvar Þóreyjarson Smárason
sem er líklega þekktastur fyrir að
vera einn meðlima hljómsveitanna
múm og Skakkamanage.
Bókin nefnist The Fruits Turn
The Youth og fjallar um ungt fólk
og það að vera ungur.
„Bókin er skreytt teikningum og
ljóðum eftir mig. Ljóðin eru á
tveimur tungumálum, á ensku, í
minni þýðingu, og á japönsku,“ seg-
ir Örvar sem er nýkominn heim úr
sameiginlegri tónleikaferð múm og
Skakkamanage um Japan.
„Ég sá bókina í fyrsta skipti þeg-
ar ég gekk inn í HMV-plötubúð í
Nagoya á tónleikaferðalaginu, þar
blasti hún við mér á áberandi stað.
Síðan var haldið útgáfupartí í Jap-
an í bland við eina tónleika Skak-
kamanage um miðja vikuna.“
Áður sent frá sér tvær bækur
Spurður út í aðdraganda þess-
arar útgáfu segir Örvar hann nokk-
uð langan og flókinn en ákveður að
reyna að útskýra hann í stuttu máli.
„Fyrir nokkru vann ég teikn-
ingar og myndir á kjóla, töskur og
boli fyrir fatafyrirtæki í Japan. Í
kjölfarið á þeirri vinnu hélt ég sýn-
ingu með myndunum sem ég vann á
fötin og þar sem allar myndirnar
voru þá í Japan fékk ég hugmynd-
ina að þessari bók ásamt útgáfufyr-
irtækinu Afterhour.“
Örvar segir bókina að hluta til
skreytta með sömu myndum og
fatafyrirtækið notaði en hann hafi
líka unnið nokkuð af nýju efni sér-
staklega fyrir hana. Ljóðin sem
fylgja myndunum eru þýðingar á
ljóðum sem Örvar hefur áður gefið
út hér á landi. Frá Örvari hafa áður
komið út tvær bækur gefnar út af
Nýhil, ljóðabókin Gamall þrjótur,
nýir tímar og skáldsagan Úfin,
strokin, einnig hafa birst ljóð eftir
hann í blöðum og tímaritum.
„Ég veit ekki til þess að hægt
verði að nálgast bókina á Íslandi,
enda er hún bara gefin út í Japan.
Mig langar samt að koma nokkrum
eintökum í bókabúðina Útúrdúr en
ég veit ekki hvenær það verður.“
Lítur vel út
Örvar segir að sér finnist nokkuð
merkilegt að það skuli eitthvað
vera komið út eftir hann sem hann
skilur ekki bofs í sjálfur. „Ég átta
mig ekki alveg á því hvernig þessar
þýðingar yfir á japönsku eru, ég
hef fengið fólk til að útskýra þær
fyrir mér en veit lítið. Fyrir mér lít-
ur japanskan út eins og myndir,
hún er mikið fyrir augað og passar
vel við teikningar.“
Í næsta mánuði verða myndir
Örvars í The Fruits Turn The Yo-
uth settar upp á sýningu í Kýótó.
Örvar vinnur nú að framhalds-
sögunni „Kempur í knattspyrnu“
fyrir tímaritið Rafskinnu en annað
eintak af því lítur brátt dagsins ljós.
„Það er líka gaman að segja frá
því að ég er að vinna að annarri
framhaldssögu sem ég hyggst gefa
út í sumar, en sú ber titilinn „Svía-
drykkjan“.“
Skilur
ekki bofs
Bók með teikningum og ljóðum eftir Örv-
ar Þóreyjarson Smárason gefin út í Japan
Árvakur/G.Rúnar
Áhugavert Örvar með The Fruits Turn The Youth á milli handanna.
Tungumál Í bókinni eru ljóð eftir Örvar á japönsku og ensku.