Morgunblaðið - 26.01.2008, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 57
GESTIR í spurningaleiknum Orð
skulu standa í dag eru Guðlaugur
Arason rithöfundur og Snæbjörn
Ragnarsson tónlistarmaður. Á milli
þess sem þeir velta fyrir sér m.a.
„tuðrutjaldur“ og „púkka undir/upp
á“ botna þeir fyrripart um hina „ný-
fundnu“ Mónu Lísu:
Mónu Lísu lítum við
loksins réttum augum.
Um nýliðna helgi var fyrripartur-
inn um ný vinnubrögð á alþingi:
Upphefst núna aftur mas,
þó öllu styttra en forðum.
Í þættinum botnaði Hlín Agnars-
dóttir:
Engar romsur, ekkert þras,
allir fækka orðum.
Guðmundur Þórhallsson:
Tæmt er þeirra tímaglas
af teygjanlegum orðum.
Davíð Þór Jónsson:
Enda sálrænt sinnepsgas
að sitja undir svona hroðalega
mörgum orðum.
Hreinn Sigmarsson vísaði í þing-
veislur og bjó til nýyrði:
Klingja glaðir kátt í glas,
kljást með orðakorðum.
Úr hópi hlustenda sendi Ólafur
Auðunsson m.a. þennan:
Eins og þarma eiturgas,
okkur burtu forðum.
Sigurður Einarsson í Reykjavík
lék sér með bragarhátt:
Og Óla Magg nú myrkt er fas,
er miðlar taka upp sitt þras
og byrja viðtölin á bandvitlausum
orðum.
Sveinn Ingvason m.a.:
Íhald fór í andaglas
og Ólaf dró að borðum.
Auðunn Bragi Sveinsson m.a.:
Verður áfram þjark og þras,
þó að fækki orðum.
Hörður Högnason m.a.:
Út með hjörl og argaþras,
allt er nú úr skorðum.
Kristinn Hraunfjörð:
Aftur sama þref og þras
þó með færri orðum.
Reinhold Richter:
Þrálátt árans argaþras
yfir tómum borðum.
Magnús Halldórsson á Hvolsvelli
m.a.:
Vinstri grænna verður þras
varla bundið skorðum.
Ari Gústavsson:
Þetta sama fimbul fjas
í færri en stærri orðum.
Ingólfur Víðir Ingólfsson:
Því Ögurmundar argaþras
allt er nú í skorðum.
Jónas Frímannsson:
Svo ýfingar og argaþras
ekki gangi úr skorðum.
Hallberg Hallmundsson:
Óbreytt ríkja þó mun þras
og þrávallt fara úr skorðum.
Pálmi R. Pétursson:
Nú bíta vinstri grænir gras
og gæta að sínum orðum.
Orð skulu standa
Sálrænt
sinnepsgas
Hlustendur geta sent sína botna á
netfangið ord@ruv.is eða bréfleið-
is til Orð skulu standa, Ríkisút-
varpinu, Efstaleiti 1, 150 Reykjavík.
Svipmikil Bros Monu Lisu hefur
lengi verið tilefni til vangaveltna.
Sigrún Pálmadóttir
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Tómas Tómasson
Kurt Kopecky
Jamie Hayes
Elroy Ashmore
Filippía Elísdóttir
Björn Bergsteinn Guðmundsson
LA TRAVIATA
verdi
2008
SÁ ORÐRÓMUR verður sífellt há-
værari að Angelina Jolie eigi von á
tvíburum. Í tímaritinu America’s
Star er haft eftir heimilidamanni að
hjónakornin Jolie og Brad Pitt séu í
skýjunum yfir fregnunum en hafi þó
ekki gefið upp á bátinn að ættleiða
fleiri börn. Fyrir eiga þau Jolie og
Pitt dótturina Shiloh sem fæddist í
maí árið 2006 og fósturbörnin Mad-
dox (sex ára), Pax (fjögurra ára) og
Zahara (þriggja ára). Fregnir af því
að Jolie væri með barni komust á
kreik fyrr í mánuðinum þegar Jolie
afþakkaði áfengan drykk á verð-
launahátíð gagnrýnenda í Banda-
ríkjunum. Á svipuðum tíma var hún
einnig sögð skipuleggja leiklistar-
verkefni sín með tilliti til frekari
barneigna. Talsmaður Jolie hefur
enn ekki viljað staðfesta fregnirnar
um að leikkonan eigi von á sér.
Reuters
Stjörnupar Jolie og Pitt á Verðlaunahátíð gagnrýnenda í byrjun janúar.
Þar afþakkaði hún áfengan drykk og þá var ekki aftur snúið.
Angelina sögð
ganga með tvíbura