Morgunblaðið - 09.03.2008, Side 8

Morgunblaðið - 09.03.2008, Side 8
8 SUNNUDAGUR 9. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Sorglegt eins og framhliðin leit reisulega út. VEÐUR Það er til gagns að Ingibjörg Sól-rún Gísladóttir utanrík- isráðherra útskýrði frekar en fram hefur komið ferð ráðuneytisstjórans í utanríkisráðuneytinu til Teheran í samtali við Morgunblaðið í gær.     Ráðherrann upplýsir að megintil-gangur ferðarinnar hafi verið að veita Actavis stuðning vegna fyr- irhugaðrar fram- leiðslu á krabba- meinslyfjum í samstarfi við að- ila í Íran og allt gott um það að segja.     Jafnframt upp-lýsir ráð- herrann að yf- irlýsingar Írana um samstarf um bílaframleiðslu séu út í hött en gefur til kynna að eitt- hvað hafi verið rætt um samstarf á sviði jarðhitamála. Svo að eitthvað hefur verið ofmælt hjá Írönum um virkjanaframkvæmdir.     Þá stendur eftir að ráðuneyt-isstjórinn ræddi augljóslega um framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna við utanrík- isráðherra Írans. Það getur ekki verið neitt bann við því.     Hins vegar er spurning hvort sam-tal um þetta efni við utanrík- isráðherra Írans hefur orðið fram- boði Íslands til framdráttar í augum sumra annarra þjóða.     Það er mikil spenna í samskiptumÍrans og Vesturlanda eins og menn vita og umtalsverðar vanga- veltur á undanförnum misserum, hvort Bandaríkjamenn eða Ísraelar muni gera skyndiárásir á kjarn- orkustöðvar í Íran.     Er hugsanlegt að leit eftir stuðn-ingi Írans við framboð okkar til öryggisráðsins verði til þess að fæla aðra frá stuðningi við okkur? STAKSTEINAR Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Til framdráttar eða …? SIGMUND                            ! " #$    %&'  ( )                        * (! +  ,- . / 0     + -             !     "" # $      "%"&$    12       1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                  :  3'45;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@).? '   !' '  '   '  ' ' '  !' ! !'   ' ! '                     *$BCD  ""                !" #    $% &     % *! $$ B *!   ( )  * " ") "&    + <2  <!  <2  <!  <2  (*  ", $ -"./                 87    $  '   (  % )        #"    2       * +           (      # $% &     % B        $    ,       !"   -  % ) *         # % 01 " "22  " "3&  ", $ "4% '" " '"' Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Atli Rúnar Halldórsson | 8. mars 2008 Eyþór Ingi á beinni braut Dalvíkingurinn Eyþór Ingi fór í gegnum Band- ið hans Bubba á Stöð tvö í kvöld eins og að drekka vatn. Spáin við eldhúsborðið í Álfta- landi er að hann mæti Thelmu í úrslitum. Hún var drulluflott og söng gamla Flowers-slagarann Slappaðu af af mikilli innlifun og ör- yggi. Ég sá Flowers einu sinni á sviði í gamla daga og fannst bandið rífandi gott. Meira: attilla.blog.is Hallur Magnússon | 8. mars 2008 Hlynntir aðild að ESB Málið er nefnilega að þótt vinur minn Bjarni Harðarson hafi komið því inn í kollinn á Íslend- ingum að Framsókn- arflokkurinn sé á móti inngöngu í Evrópusam- bandið, þá er það einfaldlega rangt! Þótt Bjarni Harðarson sé holdgerv- ingur andstöðunnar gegn Evrópusam- bandinu – þá er fjarri því að afstaða hans sé lýsandi fyrir Framsóknarflokk- inn! Bjarni er talsmaður minnihluta framsóknarmanna. Meira: hallurmagg.blog.is Einar Sveinbjörnsson | 7. mars 2008 Ekki hefði verið hægt að lenda á Hólmsheiði Þessa dagana hefur veðráttan verið með þeim einkennum að ef flugvöllur hefði verið kominn á Hólmsheiði hefði hann meira og minna verið lokaður vegna veðurs síðustu þrjá til fjóra dagana. Fyrirhugað flugvallarstæði er í um 130 metra hæð yfir sjávarmáli og áhrif þeirrar hæðar miðað við Reykjavíkurflugvöll koma fram af full- um þunga á dögum þegar hitinn er rétt ofan frostmarks í Reykjavík. Ein- mitt þannig hefur veðráttan verið að undanförnu. Í gærmorgun gengu til að mynda skil yfir með slyddu í Reykjavík og +2°C á sama tíma var hitinn lægri á Hólmsheiði eða 0°C og þar snjókoma með mun verra skyggni svo ekki sé talað um bremsu- skilyrðin. Meira: esv.blog.is Andrea Ólafsdóttir | 8. mars 2008 Lögbrot án afleiðinga „Mýtan um að jafnrétti sé náð kemur í veg fyrir frekari framfarir,“ segir Ingunn Yssen, formaður miðstöðvar jafnrétt- ismála í Noregi. Ég er henni sammála og tel að við þurfum að varast að falla í þá gryfju að trúa þeirri mýtu. Tölurnar sýna okkur svart á hvítu að jafnrétti hefur ekki verið náð, þótt við stöndum mörgum öðrum framar. Þrátt fyrir mikla sigra síðustu aldar og miklar framfarir á sviði jafnrétt- ismála, sem þakka má ötulum kven- réttindakonum á árum áður, er enn langt í land að fullkomnara jafnrétt- issamfélagi. Vissulega er Ísland fram- arlega á þessu sviði miðað við mörg önnur lönd – en maður á aldrei að miða sig við þá sem standa sig illa, heldur þá sem standa sig allra best og eigin væntingar. Ég ætla því hvorki að hafa fleiri orð um þann árangur sem náðst hefur né hvort ekki þurfi einnig að berjast fyrir réttindum kvenna í öðrum löndum. Ég ætla að beina augum að því hvers vegna ekki hefur náðst meiri árangur á vinnu- markaðinum en raun ber vitni á síð- ustu áratugum á Íslandi. Á fyrstu kvennaráðstefnu Samein- uðu þjóðanna, árið 1975, voru sam- þykkt tilmæli um að þörf væri á laga- setningu varðandi jafnréttismál víða um heim. Hér á landi hafa síðan verið sett lög um jafnrétti karla og kvenna. Lagasetning ein og sér tryggir þó ekki að þeim sé framfylgt. Enn er langt í land varðandi stöðu kvenna á vinnu- markaði. Konur njóta ekki jafnréttis hvað varðar laun, hlutfall í stjórnum eða sem stjórnendur, hvorki í einka- geiranum né hjá hinu opinbera. Fyrir sumum virðist einkageirinn eiga að njóta einhvers konar friðhelgi fyrir lög- um í landinu að þessu leyti og eru margir tregir við að fylgja þeim eftir. Meira: andreaolafs.blog.is BLOG.IS Kattasýning Höllin er opin frá kl.10 - 17.30 báða dagana Nánari uppl. á www.kynjakettir.is M ar gr ét G ís la dó tt ir , A lio sh a Ro m er o Eyvor Andersson Danmörk Kristina Rautio Finland Lone Lund Svíþjóð Sýningin verður haldin 8. og 9. mars 2008 í Reiðhöll Gusts, Álalind, Kópavogi Dómarar eru: Baldur Kristjánsson | 7. mars 2008 Burt með tóbak úr matvöruverslunum Það er í raun kjánalegt og út í hött að selja tób- ak í matvöruverslunum. Í því felast röng skila- boð. Epli, appelsínur, mjólk … tóbak …? Það er líka kjánalegt að selja tóbak á bensínstöðvum – þar sem má alls ekki kveikja eld og ekki reykja undir stýri. Tóbak á að selja í sérstökum verslunum. Helst sem óvíðast. Tóbak er alveg sérstakt, hættulegt, uppáþrengjandi, vanabind- andi eitur og það á ekki að vera hægt að fá það hvar sem er. Meira: baldurkr.blog.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.