Morgunblaðið - 09.03.2008, Síða 22
H
öfuðstöðvar fjar-
skipta- og upplýs-
ingatæknifyrirtæk-
isins Skipta í
Ármúlanum láta ekki
mikið yfir sér þegar rennt er upp að
þeim að framanverðu. Þegar komið
er inn úr anddyrinu blasa hins vegar
við manni miklir salir enda teygja
húsakynnin sig alla leið niður á Suð-
urlandsbraut. Múgur og margmenni
er á þönum og í ljós kemur að á sjö-
unda hundrað manns eru þarna við
störf á degi hverjum. Ef til vill má
segja að þessi upplifun af húsnæðinu
endurspegli starfsemina sjálfa enda
leyna Skipti, sem stofnuð voru í
fyrra til að halda utan um starfsemi
Símans og fleiri fyrirtækja, á sér.
Starfsemin er fjölbreyttari og um-
fangsmeiri en maður gerir sér í
fljótu bragði grein fyrir.
„Síminn, sem er aðalfyrirtæki
Skipta, er gjörbreyttur frá því sem
áður var,“ útskýrir Brynjólfur
Bjarnason, forstjóri Skipta, þegar
ég er sestur inn á skrifstofu hjá hon-
um stundarkorni síðar. „Árið 2004
kynntum við niðurstöður umfangs-
mikillar stefnumótunar hjá Síman-
um og breyttum um merki eftir að
hafa lagt mikla vinnu í það að skil-
greina Símann upp á nýtt og stað-
setja hann á markaðnum. „Síminn
auðgar líf“ var niðurstaðan en með
því vorum við að segja að við ætl-
uðum ekki bara að vera fjarskipta-
fyrirtæki í framtíðinni. Síminn er
gamalgróið fyrirtæki, 101 árs síðan í
haust, og lagði á sínum tíma línur
inn á hvert einasta heimili og fyrir-
tæki í landinu. En þarna var tekin
ákvörðun um að sjá ekki bara um að
koma tali inn á heimilin og í fyrir-
tækin heldur bjóða fram þjónustu af
ýmsu öðru tagi.
Árið 2005 varð til Sjónvarp Sím-
ans. Við festum kaup á Skjánum og
fórum meðvitað inn á afþreyingar-
markaðinn. Við greindum líka upp-
lýsingaveitu Símans frá starfsem-
inni og bjuggum til fyrirtækið Já
sem er með símaskrána, 118 og frek-
ari þjónustu á sínum snærum.
Árið 2006 eignuðumst við síðan
tímabundið hlut í Kögun en það hef-
ur verið yfirlýst stefna okkar að
hasla okkur í auknum mæli völl á
sviði upplýsingatækni enda eiga
upplýsinga- og fjarskiptatækni um
margt samleið. Við seldum hlutinn í
Kögun skömmu síðar en höfum
haldið áfram á braut upplýsinga-
tækninnar.“
Fjarlækningar og
fleiri nýjungar
– Tilgangurinn er væntanlega að
þjónusta áfram einstaklinga og fyr-
irtæki?
„Já, það er markmiðið. Þjónusta
við einstaklinga snýst um farsíma,
Netið, sjónvarp og annað þvíumlíkt.
Við höfum líka farið út í ýmis önnur
verkefni sem ekki eru eins augljós,
sem dæmi um slíkt má nefna verk-
efni í samstarfi við Landspítalann
þar sem við erum að vinna að fjar-
lækningum, þ.e. að tengja saman
sérfræðinga á spítölunum og fólk í
heimahúsum. Þetta er mjög spenn-
andi þróunarverkefni og ágætt
dæmi um þjónustuna sem við getum
veitt.
Á fyrirtækjasviðinu erum við með
mjög mörg verkefni í gangi. Við
bjóðum fyrirtækjum að hýsa sím-
stöðvar þeirra og póstkerfi auk þess
sem við bjóðum ráðgjöf við til dæmis
uppsetningu og rekstur á netkerfum
fyrirtækja. Í sjávarútvegi höfum við
sem dæmi þróað tækni sem gerir
okkur kleift að vera í sambandi við
skip á sjó, þannig að útgerðin getur
fengið að vita hver afli dagsins er
jafnóðum, auk þess sem skipverjar
geta setið við tölvuna og haft sam-
band við fjölskyldur sínar gegnum
Netið o.s.frv. Þetta eru allt dæmi um
það sem við köllum virðisaukandi
þjónustu.“
– Er þetta í takt við þróunina er-
lendis?
„Já, þetta er ekki séríslenskt fyr-
irbæri. Gömlu símafyrirtækin í Evr-
ópu hafa öll verið að fara í þessa átt.
Það hefur orðið meiri samþætting
milli upplýsingatækninnar og fjar-
skiptatækninnar en það er misjafnt
hvort þau hafa verið að fara inn í af-
þreyingariðnaðinn líka.“
– Hafa nýir eigendur Símans
hvatt til þessarar þróunar?
„Þeir hafa gert það. Ekki bara
innanlands heldur líka erlendis.
Staða fyrirtækisins er sterk á inn-
lendum markaði. Okkur hefur tekist
að halda okkar hlut ágætlega þrátt
fyrir aukna samkeppni en vegna
smæðar markaðarins liggja vaxt-
armöguleikarnir fyrst og fremst á
erlendri grundu. Við erum sann-
færðir um að við getum náð þar í við-
bótarvöxt. Við byrjuðum á því að
fylgja eftir okkar ágætu viðskipta-
vinum sem eru í útrás og fórum að
þjóna þeim með því að koma á fjar-
skiptasamningum og öðru þvíum-
líku. Annað stigið var að kaupa lítil
fyrirtæki erlendis, einkum á Norð-
urlöndunum og í Bretlandi, þar sem
flest íslensk útrásarfyrirtæki eru, til
að komast inn á netin í viðkomandi
landi með það fyrir augum að bæta
samningsstöðu okkar. Með kaupum
á þessum fyrirtækjum tryggðum við
okkur marga góða viðskiptavini.
Einnig höfum við farið út á þá braut
að þjóna íslenskum fyrirtækjum á
starfsstöðum þeirra út um allan
heim með því að gera samninga við
fyrirtæki af ýmsu tagi. Það er
spennandi að vinna með íslensku út-
rásarfyrirtækjunum og spennandi
fyrir okkar starfsfólk að takast á við
þessi nýju verkefni erlendis. Það
eykur fjölbreytnina í verkefnunum.“
20% af tekjum koma
erlendis frá
– Þannig að þessi vegferð er rétt
að hefjast?
„Já, það er mikill hugur í okkur.
Við ætlum okkur að vaxa. Við höfum
verið að bæta í bæði á upplýsinga-
tækni- og fjarskiptasviðinu erlendis
og munum halda því áfram á kom-
andi misserum. Í dag er svo komið
að ríflega 20% af tekjum okkar
koma frá starfsemi fyrirtækisins er-
lendis. Og við ætlum okkur að auka
það hlutfall.“
– Hvað setjið þið markið hátt í
þeim efnum?
„Við höfum ekki sett fram tölusett
markmið hvað það varðar en þetta
hlutfall mun aukast umtalsvert í
samræmi við áherslur okkar um
vöxt utan Íslands. Ég undirstrika
samt að Ísland er og verður kjarn-
inn í starfseminni. Það er ekki nokk-
ur vafi.“
– Hvaða svæða horfið þið fyrst og
fremst til?
„Við lítum svo á að Norður-
Evrópa sé það svæði sem við viljum
helst vinna á. Það helgast af því að
neysluvenjur eru ámóta og hér á
landi. Við teljum okkur eiga fullt er-
indi inn á þessa markaði þar sem við
búum yfir mjög mikilli þekkingu
sem er byggð upp á íslenska mark-
aðnum. Íslendingar eru nýjunga-
gjarnir að eðlisfari og fyrir vikið
móttækilegir fyrir nýjum hug-
myndum og tækni og það gefur okk-
ur forskot á ýmsa aðra. Við Íslend-
ingar erum með öðrum orðum
komnir lengra en margir nágrannar
okkar í þessum efnum.“
– Er tækniþekkingin í þessu fyrir-
tæki með því besta sem gerist á
byggðu bóli?
„Ég myndi tvímælalaust segja
það. Við Íslendingar höfum það líka
fram yfir ýmsa aðra að við erum yf-
irleitt snöggir til. Það eru til dæmis
ekki mörg lönd sem hafa sett upp
þriðju kynslóð farsíma á átta mán-
uðum. Það má örugglega bæta því
við hið merka heimsmetasafn þjóð-
arinnar,“ segir Brynjólfur og hlær.
„Annars lýsir þetta þjóðinni ágæt-
lega. Við erum vön að taka hlutina
með áhlaupi og teljum ekki eftir
okkur að vinna 24 klukkutíma á sól-
arhring til að ná settu marki.“
Harðnandi samkeppni
– Þú vékst að samkeppninni hér
heima áðan. Hún mun að líkindum
fara harðnandi með hverju árinu?
„Það má fastlega gera ráð fyrir
því. Okkar aðalkeppinautur hefur
verið Vodafone og við berum mikla
virðingu fyrir því fyrirtæki. Við tök-
umst á við þá á mjög mörgum svið-
um. Á fjarskiptasviðinu er Hive
komið til skjalanna en sem kunnugt
er var Vodafone að kaupa það fyr-
irtæki. Síðan kom Nova inn á mark-
aðinn í lok síðasta árs. Þá liggur fyr-
ir að úthlutað hefur verið
gsm-leyfum til tveggja svissneskra
fyrirtækja sem við eigum von á að
komi hér inn á markaðinn áður en
langt um líður. Það segir okkur hvað
þetta er orðið opið. Við búum hér við
alþjóðlegt umhverfi. Þannig á það
líka að vera. Við erum að hasla okk-
ur völl erlendis og það er bara eðli-
leg þróun að erlend fyrirtæki vilji
koma hingað.“
– Þetta hljóta að vera góðar fréttir
fyrir neytendur?
„Svo sannarlega. Aukin sam-
keppni er alltaf almenningi til hags-
bóta. Markaðurinn hér er líka
spennandi að því leyti að hann er
mjög fjölbreyttur. Við megum samt
ekki gleyma því að hér búa aðeins
um þrjú hundruð þúsund manns og
það mun að líkindum draga úr áhuga
erlendra fjarskipta- og upplýsinga-
tæknifyrirtækja á því að láta hér til
sín taka.“
– Þessi auknu umsvif Símans og
tengdra fyrirtækja hljóta að hafa
kallað á endurskipulagningu starf-
seminnar?
„Þau gerðu það og þess vegna fór-
um við á síðasta ári út í það að stofna
móðurfélag, Skipti, sem heldur utan
um alla starfsemina. Við höfum skil-
greint starfsemina nákvæmlega og
öll kaup Skipta eru fyrir vikið mjög
markviss. Við erum að kaupa fyr-
irtæki sem passa inn í það sem við
köllum virðiskeðju.“
Bjóða 30% hlutafjár til sölu
– Nú liggur fyrir að útboð Skipta
hefst á morgun, mánudag, og stend-
ur til 13. mars. Bréfin fara svo á
markað 19. þessa mánaðar. Með
þessu er fyrirtækið að efna sam-
komulag sem gert var við einkavæð-
ingarnefnd á sínum tíma.
„Það er rétt. Við einkavæðingu
Landsímans gerðu þeir sem keyptu
98% hlut ríkisins samkomulag við
einkavæðingarnefnd um að skrá fé-
lagið í kauphöll og bjóða fram 30% af
hlutafénu. Það kemur annars vegar
fram í þessu samkomulagi að þetta
eigi að gerast fyrir árslok 2007 og
hins vegar að Kaupþing, sem er
tæplega 30% hluthafi í Skiptum í
dag, muni bjóða fram sína hluti og
Exista það sem upp á vantar, verði
eftirspurn mikil. Þannig að við erum
ekki að auka hlutafé, heldur bjóða til
sölu 30%. Þetta ferli er í gangi þessa
dagana og ég var í Lúxemborg að
kynna fyrirtækið í vikunni og hef
fundað með fjölmörgum aðilum hér
heima. Þessir kynningarfundir
halda áfram í næstu viku.“
– Finniði fyrir miklum áhuga?
„Það er allavega vel mætt á fund-
ina,“ segir Brynjólfur og hlær.
„Skipti er öflugt félag í traustum
rekstri. Nú er það fjárfesta að meta
félagið og taka sína ákvörðun.“
– Fram hefur komið að skráning
Skipta í kauphöll dróst vegna tilboðs
félagsins í slóvenska símafélagið
Telekom Slovenije sem hafnað var á
dögunum.
„Við vorum búnir að leggja tölu-
verða vinnu í skráninguna síðastliðið
sumar og fram á haust og höfðum
engin áform um annað en standa við
sett tímamörk. Við réðum hins vegar
ekki við þá töf sem varð á Telekom
Slovenije-málinu. Upphaflega átti að
leggja fram tilboð í september og
klára málið fyrir áramótin en þetta
dróst hjá þeim ytra. Við lögðum
fram óskuldbindandi tilboð í október
og því ferli átti að ljúka í byrjun des-
ember en þá tók ríkisstjórn Slóveníu
ákvörðun um að bindandi tilboð yrðu
ekki lögð fram fyrr en í byrjun jan-
úar. Í þessu ljósi fórum við fram á
frest til að skrá Skipti í kauphöll og
var hann veittur til loka fyrsta árs-
fjórðungs 2008. Það var eðlileg nið-
urstaða í ljósi aðstæðna enda var
kauphöllin þeirrar skoðunar að með-
Við ætlum okkur að vaxa
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Forstjórinn „Við teljum okkur eiga fullt erindi inn á þessa markaði þar sem við búum yfir mjög mikilli þekkingu
sem er byggð upp á íslenska markaðnum. Íslendingar eru nýjungagjarnir að eðlisfari og fyrir vikið móttækilegir
fyrir nýjum hugmyndum og tækni og það gefur okkur forskot á ýmsa aðra.“
„Skilaboðin eru skýr.
Þetta er breyttur Sími.
Við höfum fært út kvíarn-
ar og bjóðum nú upp á
fjölbreytta þjónustu fyrir
einstaklinga og fyrirtæki.
Við höfum skilgreint okk-
ur með markvissum
hætti sem hefur skilað
sér í auknum tekjum og
miklum möguleikum til
framtíðar,“ segir Brynj-
ólfur Bjarnason, forstjóri
Skipta, sem skráð verða í
kauphöll 19. mars næst-
komandi. Í samtali við
Orra Pál Ormarsson
ræðir Brynjólfur m.a. um
breytta tíma á fjar-
skiptamarkaði, vaxtar-
möguleika á erlendri
grundu, Telekom Slove-
nije og lýsir afstöðu sinni
til þess að fara með
Skipti á markað við nú-
verandi skilyrði í efna-
hagslífinu.
» Það eru til dæmis ekki mörg lönd sem hafa sett
upp þriðju kynslóð farsíma á átta mánuðum.
Það má örugglega bæta því við hið merka heims-
metasafn þjóðarinnar.
daglegtlíf
|sunnudagur|9. 3. 2008| mbl.is