Morgunblaðið - 09.03.2008, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. MARS 2008 43
Mjög gott 180,4 fm einbýlishús á
einni hæð með 36,4 fm bílskúr á
þessum friðsæla stað í Garðabæ.
Komið er inn í forstofu með
gestasnyrtingu. Þaðan er gengið
inn í hol. Það er rúmgott með
herbergjagangi á vinstri hönd og
sjónvarpsholi inn af þar sem er
útgengi út á verönd og garð. Úr
holinu er einnig gengið inn í stóra
stofu og eldhús. Á herbergjagangi
eru þrjú stefnh., baðh., þvottah.
og geymsla.
LINDARFLÖT 7 MILLI 14:00 OG 14:45
Um er að ræða mjög gott 237 fm
raðhús á tveimur hæðum með
u.þ.b. 22 fm bílskúr í rótgrónu
hverfivið litla botnlangagötu þar
sem eingöngu eru fjögur
húsnúmer. Það skiptist í dag í 7
svefnherbergi, stóra stofu með
opnu eldhúsi og baðherbergi á
báðum hæðum. Lóð hússins er
falleg með grónum garði sunnan
við húsið en hita í stéttum að
framan.Mjög barnvænt hverfi þar
sem stutt er í skóla, leikskóla og
alla þjónustu. Auðvelt er að hafa 2
íbúðir í húsinu.
LITLIHJALLI 5 MILLI 14:00 OG 14:45
49,9
Halldór Ingi Andrésson
halldor@husakaup.is
s. 617 1802
Falleg, björt og rúmgóð 3ja
herbergja, 115 fm, íbúð með
stórum suðursvölum og stæði í
bílageymslu í Hafnarfirði. Húsið er
allt nýlega viðgert og málað auk
þess sem sameign er mjög
snyrtileg og vel umgengin.Stæði í
bílageymslu fylgir húsinu. Á
íbúðinni hvíla 3 lán frá
Íbúðalánasjóði sem eru
yfirtakanleg. Standa þau í rétt
tæpum 12 milljónum.
HVAMMABRAUT 4 MILLI 14:00 OG 14:45
23,9
Jón Gretar Jónsson
jon@husakaup.is
s. 617 1800
Sérlega góð, björt og vel skipulögð
6 herbergja 181 fm íbúð á tveimur
hæðum í fallegu húsi í Setberginu.
Húsið er fallegt með vel hirtri lóð.
Sameignin er snyrtileg með
þvottahúsi og sameiginlegu
þvottahúsi í kjallara. Rólegt og
barnvænt hverfi. Stutt í skóla,
leikskóla, íþróttir og alla þjónustu.
Um er að ræða tvær íbúðir sem
voru sameinaðar í eina strax í
upphafi. Með einföldum hætti má
skipta íbúðinni aftur í tvær eignir
enda tveir inngangar.
DOFRABERG 11 MILLI 15:00 OG 15:45
39,9
104 fm íbúð sem er vel skipulögð
með stórri stofu og eldhúsi í
sameiginl. rými, herbergi eru einnig
góð. Allar innré. eru úr eik og þá
eru flísar og eikarparket á gólfi.
Stórglæsileg 128 fm íbúð á efstu
hæð með gluggum á þrjár hliðar
og frábæru útsýni við Strand-
veginn. Hvert smáatriði í þessari
íbúð er útfært af natni og útsjónar-
semi. Allt tréverk í íbúð er sér
smíðað úr hnotu og gegnheil hnota
á gólfum.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir
báðum íbúðum.
STRANDVEGUR 23 MILLI KLUKKAN 15:00 OG 15:45 (2 ÍBÚÐIR)
Albert Lúðvígsson
albert@husakaup.is
s. 617 1818
OPIN HÚS Í DAG
Björgvin Pétursson
bjorgvin@husakaup.is
s. 617 1811
Björgvin Pétursson
bjorgvin@husakaup.is
s. 617 1811
Glæsileg 101,8 fm íbúð í fallegu, fjögurra íbúða, lúxus fjölbýli. Eigninni fylg-
ir stæði í læstri bílgeymslu. Eikarparket á gólfum utan baðherbergis sem er
flísalagt. Tvö rúmgóð svefnherbergi, annað með fataskápum og útgengt á
suðursvalir. Þvottahús innan íbúðar. V. 41,5 millj.
Steinunn á bjöllu. Uppl. í síma 695-5520. 7785
Laugavegi 170, 2. hæð
Opið virka daga kl. 8-17
Sími 552 1400 • Fax 552 1405
www.fold.is • fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401
Lindargata 31
Opið hús í dag á milli kl. 14-15
m
bl
.9
81
35
2
Í GREIN minni „Hvers vegna
finnum við bragð af
matnum?“ (Mbl.
28.2. 08) þóttist ég
færa rök að því að
merkingarmunur
væri á orðasambönd-
unum bragð er að
e-u og finna bragð
af e-u. Enn fremur
tel ég að forsetning-
arnar að og af
myndi merkingar-
andstæður með kerf-
isbundnum hætti,
þ.e. að (‘hvar’) : af
(‘hvaðan’), t.d.:
(1) Mér er ánægja
að því að … – ég hef ánægju
af því að …
(2) Mikið/lítið gagn er að e-u –
hafa mikið/lítið gagn af e-u
(3) Skaði/skömm er að e-u –
hljóta skaða/skömm af e-u
(4) Vondur keimur er að e-u – e-ð
ber keim af e-u
(5) Gott bragð er að matnum –
finna bragð af matnum
Þá benti ég á að í dæmum með
að væru notaðar sagnir sem vísa
til kyrrstöðu, einkum sögnin
vera, en í dæmum með af væru
notaðar sagnir sem vísa til hreyf-
ingar, t.d. sagnirnar hljóta og fá,
enn fremur hafa og finna í yf-
irfærðri merkingu. Með vísun til
þessa tel ég mikilvægt að fjalla
ekki aðeins um no. bragð og þær
forsetningar sem með því eru
notaðar heldur einnig um sagn-
irnar og heildarsamhengið, þ.e.
bragð er að e-u (‘hvar’) og finna
bragð af e-u (‘hvaðan’).
Mér hefur vísast ekki tekist
sem skyldi að gera grein fyrir
sjónarmiðum mínum því að nú
hefur Baldur ritað aðra grein
(Mbl. 5.3.08) þar sem hann
kveðst hafa margt við skýringar
mínar að athuga. Það sem okkur
Baldur greinir á um virðist mér
einkum vera það að hann telur að
sögnin finna (í yfirfærðri merk-
ingu ‘nema, greina, skynja’)
breyti engu um forsetninganotk-
un, enginn munur sé á bragð er
að e-u og finna bragð af e-u, í
báðum tilvikum skuli nota að. Í
grein sinni bætir hann einni rök-
semd við það sem hann hefur áð-
ur sagt: „Ef það er bragð að
matnum, þá finnum við bragð
(vera) að matnum. Ef það er lykt
af e-u, þá finnum við lykt (vera)
af e-u. Ef það er fýla frá e-u þá
finnum við fýlu frá e-u o.s.frv.“
Þetta geta ekki talist gild rök. Í
dæmum Baldurs fela forsetning-
arliðirnir með af og
frá í sér hreyfimerk-
ingu; lykt af e-u og
fýla frá e-u vísa sem
sé til þess að lykt eða
fýla berist af eða frá
e-u. Þetta skýrir
hvers vegna unnt er
að nota umrædda for-
setningarliði með
sögninni vera.
Baldur bendir rétti-
lega á að þegar notuð
er sögnin finnast búi
sögnin vera ávallt
undir, t.d. Foreldr-
unum finnst gaman að
börnunum. Um þetta er enginn
ágreiningur en það gagnast ekki
sem röksemd fyrir því að sama
máli gegni um sögnina finna.
Um ágreining okkar Baldurs er
ekki margt að segja, kannski er
skynsamlegast að vísa til forns
orðskviðar: Það er sem reynist.
Fjölmörg traust dæmi sýna svo
að ekki verður um villst að sagn-
orð getur skorið úr um þann
skilning sem lagður er í forsetn-
ingarlið, t.d. getum við sagt hvort
sem er láta e-ð (koma) í ljós eða
láta e-ð (vera) í ljósi. Enn fremur
getur túlkun eða skilningur for-
setningarliða breyst, t.d. eru næg
dæmi um bæði Fangs er von að
frekum úlfi og Fangs er von af
frekum úlfi. Ég tel að merking-
armunur sé á forsetningarlið-
unum í bragð er að e-u (‘hvar’)
og finna bragð af e-u (‘hvaðan’)
og að hliðstæðar merkingar-
andstæður hafi verið virkar allt
frá fornu máli. Þrátt fyrir frómar
óskir Baldurs get ég alls ekki
fundið bragð að matnum.
Enn um bragð
að matnum
Jón G. Friðjónsson svarar grein
Baldurs Jónssonar
Jón G.
Friðjónsson
Höfundur prófessor í íslensku máli
við HÍ.
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið