Morgunblaðið - 09.03.2008, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 09.03.2008, Qupperneq 44
Um er að ræða tvær fasteignir, Breiðahvamm og Árhvamm sem standa á 15.000 fm lóð á einstökum stað í um 30 mín. fjarlægð frá Reykjavík. Húsin standa í skógi vaxinni fjallshlíð á bökkum Varmár og eru í útjaðri byggðar Hveragerðis, innst í botnlanga og lóðin og umhverfi hennar er einstök náttúruperla. Mjög stór lóð sem býður upp í mikla möguleika. Breiðahvammur er byggður árið 1952 og stendur í nokkurra metra fjarlægð frá árbakkanum. Húsið er um 255 fm á tveimur hæðum og því fylgir 102 fm bílskúr og geymsluhúsnæði. Lítil sundlaug stendur á árbakkanum. Nýrra húsið Árhvammur er byggt á árunum 2003-2006 á glæsilegan og vandaðan hátt. Húsið er 195 fm. Mikil lofthæð er í húsinu (að hluta til um 4 metrar) sem gerir húsið sérstaklega bjart og skemmtilegt. Einstakt útsýni frá húsinu. Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hallgeirsson fasteignasali, sími 824-9093. Skeifan - fjárfestingarkostur Náttúruperla í nágrenni Hveragerðis ÁRBORG - LAND VIÐ SELFOSS 44 ha land við núverandi íbúðabyggð á Selfossi. Landið liggur að Björk, sem er í eigu Árborgar og er framtíðar byggingarland Selfoss. Þetta land er í land- búnaðarnotkun og er hægt að sækja um lögbýlisrétt eða skipuleggja hluta eða allt til íbúðabyggðar. Land sem eykur verðgildi sitt. Allar nánari upplýsingar gefur Andri Sig., sölustjóri DP FASTEIGNA í síma 561 7765 eða andri@dp.is. ATH. Grunnskóli og leikskóli innan um 1 km fjarlægðar. Flugvöllur er í um 1,5 km fjarlægð. Allar frekari uppl. um eignirnar veitir Heiðar Friðjónsson Lögg.fast í s:693-3356 Til Leigu / Sölu Suðurlandsbraut Höfum til leigu eða sölu 106fm bil á ann- ari hæð. Parket á gólfum, opið eldhús, gott útsýni yfir lLaugardalinn. Norðurhella Til sölu eða leigu nýtt atvinnuhúsnæði við Norðurhellu í Hafnarfirði, 817fm þar af 314fm á millilofti. Um er að ræða forsteypt eininga- hús sem verður tilbúið í apríl/ maí 2008. Hús- næðinu er skilað fullbúnu, með malbikuðu bílaplani. Lofthæð neðri hæðar er um 3,6 m. Stórar innkeyrsluhurðir á báðum hliðum. Krókháls Höfum til leigu 300 fm glæsilegt bil við Krókháls, Bilið skiptist í lager með inn- keyrsluhurð, úr því er opið inn í sal með steinteppi á gólfi. Tvær stórar skrifstofur með gler skilveggjum og eldhús með inn- réttingu. Lóðir: Tvær 10.000fm lóðir í Helluhverfi í Hafnarfirði. Faxafen Höfum til leigu eða sölu 468 fm vöru- geymslu í kjallara miðsvæðis í Faxafeni. Innkeyrsluhurð er inn í bilið, sem annars er einn geymur með súlum. Laxalind, Kópavogi 190,6fm parhús á tveimur hæðum. Verð 69,8 milj. Skipti á minni eign uppl.veitir Heiðar í s:693-3356 Laugarásvegur, Reykjavík 160,2fm hæð á glæsilegum stað. Verð 46,5 milj. Skipti á minni eign, uppl veitir Ellert í s:893-4477 Friggjarbrunnur Reykjavík, 200fm fokhelt parhús á tveimur hæðum,tilbúið að utan Verð 36,5 milj, möguleg skipti á minni eign, uppl veitir Heiðar í s:693-3356 Lækjarbraut Kjós, 347,2 fm þar af 55,2 fm hesthús. Húsið stendur á 2,3 hekt. eignarlandi. Ásett verð 72 milj. Öll skipti skoðuð. Uppl. veitir Ellert í s:893-4477. Baughús Reykjavík, 180fm parhús á tveimur hæðum á góðum útsýnisstað. Verð 51 milj, skipti á ódýrari eign. Uppl. veitir Ingólfur í s:896-5222. Búðavað Reykjavík, 188 fm parhús á tveimur hæðum, tilbúið að utan og fokhelt að innan. Skipti möguleg, uppl. Veitir Heiðar í s:693-3356 Þingvað Reykjavík, 207,8 fm raðhús á tveimur hæðum, þar af 28fm bílskúr, skilast tilbúið að utan, og tilbúið til innréttinga að innan, skipti á ódýrari eign, uppl. veitir Heiðar í s:693-3356. Ásholt Reykjavík, 155,8 fm raðhús á tveimur hæðum, þar af 26,8 fm stæði í bílageymslu.Verð 37,5 milj, skipti möguleg á ódýrari eign. Uppl. Veitir Ellert í s:893-4477. Vesturfold Reykjavík, 241fm einbýlishús á glæsilegum stað í Grafarholti. Verð 64,9 milj. Skipti á minni eign, uppl. Veitir Ellert í s:893-4477. Freyjustígur Ásgarði, 150fm glæsihús, tilbúið að utan og tilbúið til innréttinga að innan. Verð 31,9 milj. Öll skipti skoðuð uppl. Veitir Heiðar í s:693-3356. Músaslóð Arnarstapa, 100fm hús á góðum stað á Stapanum. Verð 29 milj, öll skipti skoðuð, uppl. Veitir Bárður í s:896-5221 Nánari uppl. Er að finna á valholl.is Vantar þig fasteign – Villtu skipta? Eftirtaldar eignir eru mögulegar í makaskiptum. 44 SUNNUDAGUR 9. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞAÐ má Árni Johnsen að eiga að hann þorir og lætur ekki flokk sinn stöðva sig ef mikið liggur við. Hann hefur það fram yfir flesta þingmenn sína að hann er á ferð- inni og heyrir byggð- anna bænir. Við framsókn- armenn lögðum mikla vinnu í að greina afleið- ingar þess á sjávar- byggðirnar að skera niður þorskveiðiheim- ildirnar. Við gerðum okkur grein fyrir því að mikill niðurskurður var óhjákvæmilegur. Við studdum okkur þó við ICES, Norður- Atlantshafsfisk- veiðiráðið, sem ráðlagði að heildar- aflamark þorsk fyrir almanaksárið 2008 skyldi vera 152 þúsund tonn en sú ráðgjöf byggir á þeirri veiðireglu sem innleidd var árið 1995. Við vor- um og erum þeirrar skoðunar að Hafrannsóknastofnun hafi með til- lögum sínum gengið lengra en hyggilegt væri af mörgum ástæðum. Þetta mátum við framsóknarmenn heppilegra en 130 þúsund tonna ákvörðun ríkisstjórnarinnar sem við töldum vera rothögg á stöðu margra sjávarútvegsfyrirtækja og sjávar- þorpa um allt land. LÍÚ lagði svo til 160-165 þúsund tonna þorskkvóta og rökstuddi það með efnahagslegum og vísindalegum sjónarmiðum. Ein rök gegn svo hörðum niður- skurði sem raunin varð voru þau að erfitt yrði að ná meðafla. Önnur rök voru þau að brottkast á fiski myndi aukast á ný og þriðju rökin sem vógu þungt voru þau að það væri alveg eins hægt að byggja upp sterkan stofn og veiða 150 þús- und tonn á ári eins og 130 þúsund tonn. Það eru fleiri í sjónum sem ganga á þorskstofninn en veiðimennirnir. Við fullunnum síðan tillögur um markvissar mótvægisaðgerðir og lögðum þær fram. Sannleikurinn er sá að mótvægisaðgerðir rík- isstjórnarinnar voru og eru móðgun við fólkið sem vinnur í sjávar- útvegi. Að taka á einu bretti 20 milljarða út úr atvinnuveg- inum og tala síðan eins og flýting á vegaframkvæmdum eða það að mála hús og flytja fáein störf til leysi þennan vanda er óskiljanlegt. Ekki síst í ljósi þess að stjórnarflokkarnir eiga tugi þingmanna, vel hæft fólk um allt land, og mjög reynda ráð- herra, þar af tvo sjávarútvegs- ráðherra, núverandi og fyrrverandi. Þetta fólk á að vita betur. Nei, það er svo Árni Johnsen sem tekur á sig rögg og talar við 27 sveit- arstjóra og/eða bæjarstjóra og kemst að sömu niðurstöðu og við framsóknarmenn um að niður- skurður þorsksins og háðulegar mótvægisaðgerðir séu rothögg. Við framsóknarmenn sögðum strax að þetta myndi þýða það að nokkur hundruð sjómenn myndu ganga í land og skip verða seld burtu. Fyr- irtækjum mun í kjölfarið fækka og veiðiheimildir færast á færri hendur. Fiskverkafólk mun tapa vinnu sinni og sveitarfélög missa af miklum tekjum. Það var dapur dagur í haust þegar ríkisstjórnin kynnti mótvægis- aðgerðirnar hinn 12. september, að sjávarútvegsráðherra fjarverandi. Það hefur alltaf verið mér umhugs- unarefni hvar hann var þann dag. Ætli hann hafi skammast sín? Viðbrögð fjármálaráðherra voru þó enn daprari eftir að samþing- maður hans hafði lesið Sjálfstæð- isflokknum pistil sinn og kallað mót- vægisaðgerðirnar smáskammta- lækningar. Líklega er svo til of mikils ætlast að kalla eftir ábyrgum ræðum frá Samfylkingunni um þessi mál. Það sýndi alla vega málflutn- ingur þeirra og viðbrögð við ræðu þessa samstarfsmanns þeirra í stjórnarsamstarfi að þeir kunna ekki að skammast sín. Árni Johnsen rass- skellir ríkisstjórnina Guðni Ágústsson skrifar um niðurskurð þorskveiðiheimilda » ...mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar voru og eru móðgun við fólkið sem vinnur í sjáv- arútvegi. Guðni Ágústsson Höfundur er formaður Framsókn- arflokksins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.