Morgunblaðið - 09.03.2008, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 09.03.2008, Qupperneq 53
Kirkjustarf Breiðholtskirkja | Prestar Breiðholts- kirkju og Skaftfellingafélagið standa fyrir guðsþjónustu kl. 14. Núverandi og fyrrverandi sóknarprestar frá Vík og Kirkjubæjarklaustri ásamt prest- um Breiðholtskirkju, þeim sr. Gísla Jónassyni og Bryndísi Möllu Elídóttur. Bústaðakirkja | Starf eldri borgara er á miðvikudögum kl. 13-16.30. Spilað, föndrað og handavinna. Hafið sam- band við kirkjuvörð í síma 553-8500 ef bílaþjónustu er óskað. Fríkirkjan Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11. Almenn samkoma kl. 14, Sigrún Einarsdóttir prédikar, lofgjörð, barna- starf og fyrirbænir. Að samkomu lok- inni verður kaffi og samfélag. Einnig er verslun kirkjunnar opin. Hallgrímskirkja | Söngvahátíð kl. 20 með Sindre Eide. Ungir söngvarar og hljóðfæraleikarar flytja sálma frá öll- um heimshornum undir forystu norska söngprestsins Sindre Eide. Tónlistarstjóri Tómas G. Eggertsson. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Engl- ish service at 12.30. Almenn sam- koma kl. 16.30. Ræðumenn Alyn og A.J. Jones frá Toronto. Gospelkór Fíladelfíu leiðir söng. Aldursskipt barnakirkja, öll börn 1–13 ára velkom- in. Kristniboðssambandið | Síðasta samkoma kristniboðsviku er kl. 17 í Kristniboðssalnum á Háaleitisbraut 58-60. Anna Lilja Einarsdóttir sýnir myndir frá Eþíópíu og Helga Magn- úsdóttir syngur einsöng. Ræðu flytur Haraldur Jóhannsson, varaformaður Kristniboðssambandsins. Laugarneskirkja | Harðjaxlar – full- frísk og fötluð börn saman í leik og vináttu kl. 13. Kvöldmessa kl. 20. Óháði söfnuðurinn | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 14 og verður séra Pétur með galdra, já, galdramessa. Eftir messu verður kvenfélagið með Bjarg- arkaffið. Vídalínskirkja Garðasókn | Messa eldri borgara kl. 11. Lilja Hallgríms- dóttir predikar, eldri borgarar aðstoða við lestra. Súpa í umsjá Lionsklúbb- anna eftir messu. Aðalsafn- aðarfundur Garðasóknar í beinu framh. Rúta sækir fólk í Hleinar kl. 10.30 og í Jónshús kl. 10.40, til baka um kl. 12.30-13. Félagsstarf Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikur kl. 20, Caprí tríó leikur fyr- ir dansi. Leikhópurinn Snúður og Snælda sýna í Iðnó Flutningana eftir Bjarna Ingvarsson og inn í sýninguna er fléttað atriðum úr Skugga-Sveini eftir Matthías Jochumsson. Síðasta sýning er í dag kl. 14. Sími 562-9700. Félagsheimilið Gjábakki | Ingibjörg Harðardóttir dósent við læknadeild HÍ flytur fyrirlestur 11. mars kl. 20 um mismundandi fæðufitu. Fræðslu- erindið er á vegum íþróttafélagsins Glóðar. Félagsstarf eldri borgara í Mos- fellsbæ | Leikhúsferð í Þjóðleikhúsið á leikritið Sólarferð, 18. mars kl. 14. Lagt af stað kl. 13.30 frá Hlaðhömrum. Miðasala á skrifstofu félagsstarfsins á Hlaðhömrum kl. 13-16, til 12. mars. Sími 586-8014. Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga er fjölbreytt dagskrá kl. 9-16. 30. Sund og leikfimiæfingar í Breiðholts- laug á mánud. og miðvikud. kl. 9.50. Þriðjud. 18. mars er leikhúsferð í Þjóð- leikhúsið á Sólarferð, sýning hefst kl. 14 (breyttur tími), skráning hafin á staðnum og í s. 575-7720. Hæðargarður 31 | Tölvukennsla, Ís- landssöguspjall, myndlist, bókmenntir, framsögn og framkoma, Bör Börson, söngur, páfagaukar, hláturhópur, Skapandi skrif, postulín, Þegar amma var ung, hugmyndabanki, Müllersæf- ingar, nýstárleg hönnun ferming- arkorta, Vorferð á vit skálda o.fl. S. 568-3132. Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthús- inu á mánu- og miðvikud. kl. 9.30, hringdansar í Kópavogsskóla á þriðjud. kl. 14.20, ringó í Smáranum á miðvikud. kl. 12 og í Snælandsskóla á laugard. kl. 9.30. Línudans í Húnabúð, Skeifunni á miðvikud. kl. 17. Uppl. í síma 564-1490. Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun er ganga frá Egilshöll kl. 10. Kvenfélag Kópavogs | Aðalfundur verður 12. mars kl. 20 í sal félagsins í Hamraborg 10, 2. hæð. Vesturgata 7 | Þriðjudaginn 18. mars verður farið í Þjóðleikhúsið að sjá leik- ritið Sólarferð kl. 14. Lagt af stað frá Vesturgötu 7, kl. 13.15. Uppl. og skrán- ing í síma 535-2740. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. MARS 2008 53 dagbók Í dag er sunnudagur 9. mars, 69. dagur ársins 2008 Orð dagsins: En hann frelsar hinn bágstadda með bágindum hans og opnar eyru þeirra með þrengingunni. (Jb. 36, 15.) Rannsóknasetur í barna- ogfjölskylduvernd við HáskólaÍslands efnir til málstofunæstkomandi þriðjudag. Hjördís Árnadóttir mun flytja erindið „Forvarnir í Reykjanesbæ: Tími til að lifa og njóta“ í stofu 101 í Odda frá kl. 12 til 13. „Í erindinu fer ég í gegnum víðtækt forvarnastarf í Reykjanesbæ, og fjalla um þá framtíðarsýn sem bæjarfélagið hefur mótað í forvarnamálum,“ segir Hjördís, en hún er félagsmálastjóri bæjarins. Reykjanesbær réði til starfa fyrir hálfu öðru ári sérstakan verkefnastjóra í forvörnum: „Eitt af hans fyrstu verk- efnum var að kortleggja það mikla for- varnastarf sem unnið er í bæjarfélag- inu af sveitarfélaginu sjálfu og stofnunum þess, samstarfsaðilum, s.s. heilbrigðisstofnun, kirkjunni og ýms- um félagasamtökum,“ útskýrir Hjör- dís. „Með því vildum við fá skýrari mynd af starfinu, ekki síst til að sjá hvar skórinn kreppir. Þeirri vinnu lauk með viðamikilli skýrslu sem við höfum nú til hliðsjónar við mótun nýrrar for- varnastefnu með skýrari forgangs- röðun og skilvirkni. Betri yfirsýn og bætt skipulag forvarnastarfs í bæj- arfélaginu gefur svo kost á markvissari árangursmælingum.“ Hjördís nefnir að Reykjanesbær hafi síðustu ár hleypt af stokkunum ýmsum nýstárlegum forvarnaverkefnum sem reynst hafi vel: „Allir foreldrar tveggja ára barna í bæjarfélaginu fá boð frá bænum um að sækja ókeypis námskeið sem veitir þeim stuðning í uppeldinu. Einnig aðstoðar fulltrúi frá bæjarfélag- inu fjölskyldur í erfiðri aðstöðu við að innleiða á heimilinu þau ráð sem kennd eru á því námskeiði,“ segir Hjördís. „Nú undirbúum við verkefni í samstarfi við kirkjuna, fyrir börn foreldra sem hafa skilið. Erlendar rannsóknir sýna að þessi börn þurfa oft að vinna úr sín- um málum, jafnvel mörgum árum eftir skilnað, en skv. sömu rannsóknum er það einkum um 12 ára aldurinn að erf- iðleikar þessu tengdir geta komið upp á yfirborðið.“ Heimasíða Rannsóknaseturs í barna- og fjölskylduvernd er á slóðinni www.rbf.is og má þar finna nánari upp- lýsingar um viðburði á vegum þess. Fundurinn á þriðjudag er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. Samfélag | Fyrirlestur um forvarnastarf í Reykjanesbæ á þriðjudag Skilvirkni í forvarnastarfi  Hjördís Árna- dóttir fæddist í Reykjavík 1952 en ólst upp í Keflavík. Hún lauk dipló- magráðu í op- inberri stjórnsýslu og stjórnun frá Endurmennt- unarstofnun HÍ. Hjördís hefur starfað við stjórnun hjá sveitarfélögum og stofnunum á vegum hins opinbera í um þrjá áratugi. Hún er nú félagsmálastjóri í Reykjanesbæ. Hjördís á þrjú börn og eitt barnabarn. Kvikmyndir MÍR-salurinn | Kvikmyndin Boris Godúnov verður sýnd kl. 15. Þetta er sýning Bolshoj- leikhússins í Moskvu á óperu Mússorgskís og er myndin tekin á sviði leikhússins 1987. Allir fremstu listamenn Bolshoj á þessum tíma taka þátt í sýningunni. Ensk- ur texti. Aðgangur ókeypis. Fyrirlestrar og fundir Styrkur | Samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra verða með fræðslu- fund í húsi Krabbameinsfélagsins í Skóg- arhlíð 8 í Reykjavík 11. mars kl. 20. Sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur fjallar um karl- menn og krabbamein. Kaffiveitingar. Tónlist Dómkirkjan | Kennaratónleikar Suzuki- tónlistarskólans í Reykjavík verða haldnir kl. 15. Frumflutt verður verkið Sjóræn- ingjapolki fyrir fjórhent píanó eftir Hildi- gunni Rúnarsdóttur. Hallgrímskirkja | Kvöldmessa með sveiflu. Ungt söngfólk og Kristinn Smári Kristinss. gítar, Áskell Harðars. bassi, Gylfi Sigurðss. slagverk, Tómas Guðni Eggertss. píanó og Sindre Eide frá Noregi, trompet. Sr. Birgir Ásgeirsson. Áhugafólk um lifandi kirkju- söng er hvatt til að koma og kynnast nýj- um söngvum og sömbutakti. Kristskirkja Landakoti | Vox feminae heldur tónleika í Kristskirkju 12. mars kl. 20.30. Tónleikarnir bera yfirskriftina Sta- bat Mater, en þar flytur kórinn kirkjuleg verk auk verksins Stabat Mater eftir John A. Speight, sem hann stjórnar sjálfur. List- rænn stjórnandi tónleikanna er Margrét J. Pálmadóttir. Miðaverð er 2.500 kr. við inn- ganginn, 2.000 kr. í forsölu kórfélaga. Langholtskirkja | Sálmaspuni kl. 20. Gunnar Gunnarsson og Sigurður Flosason spinna á Noakorgel Langholtskirkju og saxófón. Salurinn, Kópavogi | Helga Rós Indr- iðadóttir og Guðrún Dalía Salómonsdóttir halda síðdegistónleika til heiðurs tónskáld- inu Jórunni Viðar. Jórunn verður 90 ára á þessu ári. Tónleikarnir eru á morgun, 9. mars, og hefjast kl. 16. Miðasala og nánari upplýsingar á www.salurinn.is. Fréttir og tilkynningar Tungumálamiðstöð HÍ | Alþjóðlega þýsku- prófið TestDaF verður haldið í Tungumála- miðstöð Háskóla Íslands 22. apríl nk. Próf- ið er ætlað þeim sem stefna á háskólanám í Þýskalandi. Skráning fer fram í Tungu- málamiðst., Nýja Garði, til 25. mars. Próf- gjald er 14.500 kr. Nánari uppl. í s. 525- 4593, ems@hi.is. Fríkirkjan Kefas. FRÉTTIR LISTMUNAUPPBOÐ verður haldið sunnudagskvöldið 9. mars, kl. 19 á Hótel Sögu, Súlnasal Á uppboðinu verður að venju gott úrval verka, meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna. Boðin verða upp um það bil 110 listaverk. Öll verkin eru sýnd í Galleríi Fold við Rauðarárstíg föstudag 10–18, laugardag 11–17 og sunnudag 12–17. Hægt er að skoða uppboðsskrána með myndum á vefslóðinni myndlist.is. Rau›arárstíg 14, sími 5510400 · www.myndlist.is Jóhannes S. Kjarval SÍÐDEGISMÁLÞING verður haldið í Háskóla Íslands á mið- vikudag undir yfirskriftinni: Fjölbreytni, tækifæri fyrir ís- lensk fyrirtæki, stofnanir og starfsfólk – reynsla kanadískra fyrirtækja; fjárhagslegur ávinn- ingur, nýsköpunarhæfni, árang- ursrík vinnubrögð. Málþingið fer fram milli klukkan 15.15 og 17, en kanadíska sendiráðið á Ís- landi í samstarfi við félags- og tryggingamálaráðuneytið, Há- skóla Íslands – Stofnun stjórn- sýslufræða, Samtök atvinnulífs- ins, Alþýðusamband Íslands og Alþjóðahúsið býður til mál- þingsins. Þykir Kanada standa fram- arlega á þessu sviði og er m.a. með sérstakt ráðuneyti um fjöl- breytni og fjölmenningu. Enn- fremur verða stutt ávörp um reynsluna hérlendis. Málþingið fer að mestu fram á ensku og verður á Háskólatorgi, neðri hæð, stofu 104. Aðgangur er ókeypis. Nauðsynlegt er þó að skrá þátttöku á hlekknum; www.stjornsyslustofnun.hi.is/ Aðalfyrirlesarar verða tvær kanadískar konur, þær Yasmin Meralli, aðstoðarforstöðumaður hjá elsta og stærsta banka Kan- ada, Bank of Montreal, Diver- sity and Workplace Equity Unit, og Cindy Chan, forstjóri Info Spec Systems Inc., hugbún- aðarfyrirtækis sem hún stofnaði og náð hefur mjög góðum ár- angri bæði í Kanada, Bandaríkj- unum og Asíu. Í tilkynningu vegna málþingsins segir að báð- ar séu mjög vel þekktar fyrir störf sín í Kanada, séu afburða- fyrirlesarar og hafi Cindy hlotið margháttaðar viðurkenningar fyrir störf sín. Ávörp flytja sendiherra Kan- ada á Íslandi, Anna Blauveldt, Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðu- neytisstjóri, Svali Björgvinsson, Kaupþingi banka, Tatiana K. Dimitrova leikskólastjóri, Ólaf- ur Ólafsson, AstraZeneca og lokaorð flytur Hannes G. Sig- urðsson, Samtökum atvinnulífs- ins. Hægt er að sjá dagskrána og efni fyrirlestra á: www.stjornmalogstjornsysla.is Málþinginu stýrir Tatjana Lat- inovic, stjórnandi í þróunardeild Össurar hf., en markmið þess er að greina hvernig fjölbreytni starfsfólks, getur verið ávinn- ingur fyrirtækja. Fjölbreytni sem er sýnileg eða ósýnileg og getur verið vegna kyns, aldurs, forsögu, kynþáttar, fötlunar, persónu og vinnulags. Málþing um fjölbreytni og fjölmenningu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.