Morgunblaðið - 27.03.2008, Page 1
STOFNAÐ 1913 83. TBL. 96. ÁRG. FIMMTUDAGUR 27. MARS 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
HVOLPAGLEÐI
PARÍS, DIMMA OG LÍSA HJÁLPAST AÐ VIÐ
UPPELDI AFKVÆMANNA SAUTJÁN >>20
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
NÁTTÚRUMINJASAFN Ís-
lands er tekið til starfa og vinnur dr.
Helgi Torfason safnstjóri nú að
stefnumótun þess, að sögn Þorgerð-
ar Katrínar Gunnarsdóttur mennta-
málaráðherra. Safnið heyrir undir
menntamálaráðherra líkt og hin höf-
uðsöfn þjóðarinnar, Listasafn Ís-
lands og Þjóðminjasafnið.
Samkvæmt lögum um Náttúru-
minjasafn Íslands, sem tóku gildi 30.
mars 2007, á það að vera „höfuðsafn
á sviði náttúrufræða“ og „varpa ljósi
á náttúru Íslands, náttúrusögu
landsins, nýtingu náttúruauðlinda og
náttúruvernd, auk þess að varpa
ljósi á samspil manns og náttúru og á
náttúru landsins í alþjóðlegu sam-
hengi“. Safnið mun m.a. taka við
þeim náttúrumunum Náttúrufræði-
stofnunar sem þykja fyrst og fremst
hafa sýningargildi. Náttúrufræði-
stofnun er og vísindalegur og fræði-
legur bakhjarl safnsins.
Þorgerður Katrín sagði ekki ljóst
hvenær safnið yrði opnað. Undir-
búningur sé tímafrekur. Mikil þróun
hafi orðið í uppsetningu náttúru-
minjasafna frá því farið var að ræða
um slíkt safn hér. Víða sé beitt nýj-
ustu tækni og slíkt safn þurfi að vera
aðgengilegt og aðlaðandi fyrir al-
menning, ekki síst nemendur.
Sveitarfélög, m.a. Reykjavík og
Garðabær, hafa lýst áhuga á að nátt-
úruminjasafnið rísi hjá þeim en
Náttúrufræðistofnun Íslands mun
flytjast í Urriðaholt í Garðabæ.
Erling Ásgeirsson, formaður bæj-
arráðs Garðabæjar, sagði Garðbæ-
inga hafa lýst eindregnum áhuga á
að fá Náttúruminjasafnið til sín.
Málið hefði m.a. verið rætt við fyrr-
verandi umhverfisráðherra og nú-
verandi menntamálaráðherra. Hann
taldi eðlilegt framhald af komu Nátt-
úrufræðistofnunar í Urriðaholt að fá
Náttúruminjasafn þar í nágrennið.
Erling sagði að þar væri bæði nóg
landrými og góð aðstaða.
Morgunblaðið/ÞÖK
Bið Geirfuglinn er kominn í geymslu
og bíður Náttúruminjasafns.
Höfuð-
safn nátt-
úrufræða
Sveitarfélög vilja
Náttúruminjasafnið
Baðstofan >> 45
Allir í leikhús
Leikhúsin í landinu
ostur.isí nýjum og hentugri umbúðum
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8-
00
80
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
JÓN Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri
Samtaka iðnaðarins, segir að illframkvæmanlegt
sé að afnema eingöngu stimpilgjald fólks sem
kaupi sína fyrstu íbúð og hið eina rétta sé að af-
nema gjaldið að fullu.
Í fjármálaráðuneytinu er verið að vinna frum-
varp um breytingu á stimpilgjaldi og er gert ráð
fyrir að það verði lagt fram á Alþingi í næstu viku.
Jón Steindór segir að breytingar eigi eftir að valda
ótrúlegum flækjum. „Hvenær ert þú með fyrstu
íbúð og hvenær ekki? Hvernig á að fara með par
sem er að taka saman, annað hefur átt íbúð en hitt
ekki?“
Erlend myntlán í stað verðtryggðra lána
Verðtryggð íbúðalán bankanna drógust saman
um 3,3 milljarða í febrúar. Skýringin virðist að
einhverju leyti vera sú að fólk hafi greitt upp verð-
tryggð fasteignalán og tekið lán í erlendum gjald-
miðli í staðinn, en slík lán jukust um 4 milljarða í
mánuðinum.
Samkvæmt tölum Seðlabanka Íslands um útlán
viðskiptabankanna veittu þeir nánast engin fast-
eignalán í febrúar. Höfuðstóll þessara lána nam
528 milljörðum í lok janúar og 528,6 milljörðum í
lok febrúar. Verðtryggð íbúðalán bankanna námu
467,7 milljörðum og lækkuðu um 3,3 milljarða í
febrúar, en fasteignalán bankanna í erlendri mynt
námu 60,9 milljörðum og hækkuðu um 4 milljarða.
Höfuðstóll erlends láns sem fólk tók í febrúar
hækkaði mikið í mars vegna gengisfalls krónunn-
ar og greiðslubyrðin hækkaði. Hafa ber í huga að
vextir af nýju verðtryggðu húsnæðisláni eru
komnir upp fyrir 7%. 12 mánaða verðbólga fer lík-
lega upp fyrir 8% þegar Hagstofan birtir tölur sín-
ar á morgun. Vextir og verðbætur af láninu eru því
um 15%. Vextir af erlendu óverðtryggðu láni eru
innan við 4% og höfuðstóll verðtryggðs innlends
láns hækkar hratt þegar verðbólgan er komin í
8%.
Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fast-
eignasala, segir að lítið aðgengi að lánsfé sé helsta
ástæða lítillar hreyfingar á fasteignamarkaðnum
undanfarnar vikur og í mörgum tilvikum geri
bankarnir fólki erfitt fyrir. | 11 og Viðskipti
Vill að stimpilgjaldið
verði afnumið að fullu
Í HNOTSKURN
» Úrvalsvísitala kauphallarinnar hækkaðiannan daginn í röð og endaði í 5.022,33
stigum. Er það í fyrsta sinn í réttan mánuð
sem vísitalan er yfir 5.000 stigum.
» Mikið munaði um 6,05% hækkun á bréfumKaupþings, en auk þess hækkuðu bréf Hf.
Eimskipafélagsins um 3,75% og bréf Marels
um 3,14%.
»Gengi krónunnar hækkaði sömuleiðis ígær, eða um 0,66%. Gengisvísitalan var
150,65 stig við lokun markaða og var gengi
Bandaríkjadals 74,40 krónur, evru 117,20
krónur og pundsins 148,90 krónur.
„ÆTLI ég verði ekki að fresta ferm-
ingunni um viku,“ segir Bjarki Þór
Friðleifsson, 14 ára Hafnfirðingur, en
hann varð fyrir vélsleða í Bláfjöllum á
páskadag. Bjarki Þór liggur á Land-
spítalanum en hann er allur að hress-
ast eftir slysið.
Bjarki man aðeins eftir að hafa farið
upp brekkuna með skíðalyftunni og
ætlað að renna sér niður Kóngsgil á
nýja snjóbrettinu sínu en næst rankað
við sér á spítalanum. Starfsmaður
skíðasvæðisins hafði neyðst til að kasta
sér af vélsleðanum ofar í brekkunni
eftir að hafa ekið ofan í dæld, og rann
sleðinn stjórnlaust niður í gilið þar sem
hann lenti aftan á Bjarka svo hann
hlaut högg á höfuð, marðist á lunga og
brotnaði bæði á fæti og viðbeini. Fór
mun betur en á horfðist, og líður
Bjarka ágætlega í dag þó hann sé enn
nokkuð vankaður. Honum liggur líka á
að komast aftur á fætur, því til stóð að
ferma hann í lok mánaðarins, en býst
við að fresta fermingunni um viku.
Bjarki er mikill íþróttamaður og
spilar fótbolta af kappi með fjórða
flokki Hauka. Hann vonast til að geta
haldið áfram æfingum af fullu kappi
eftir að hann losnar úr gifsi eftir um 10
vikur. Um það leyti fer fótboltaliðið
hans í keppnisferð til Spánar. Bjarki
ætlar ekki að missa af ferðinni þótt
hann láti sér nægja í þetta skiptið að
hvetja félaga sína áfram frá hliðarlín-
unni.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Á batavegi Bjarki liggur á sjúkrahúsi og er óðum að jafna sig eftir slysið. Vegna viðbeinsbrotsins getur hann ekki
notað hækjur og verður því að fara á milli staða í hjólastól þangað til beinin ná fyrri styrk.
Allur að braggast
VERÐLAGSNEFND búvara sam-
þykkti hækkun á verði til framleið-
enda og á mjólkurvörum á fundi sín-
um í gær. „Ég hefði þegið svolítið í
viðbót,“ sagði Þórólfur Sveinsson,
formaður Landssambands kúa-
bænda, að loknum fundinum í gær-
kvöld en sagðist að öðru leyti vera
bundinn þagnarskyldu þar til í dag.
Miklar hækkanir hafa orðið á að-
föngum mjólkurframleiðenda, sér-
staklega kjarnfóðri og áburði. Kúa-
bændur hafa óskað eftir að nefndin
taki tillit til þessara breytinga og
hækki verð til bænda. Birna Þor-
steinsdóttir, fulltrúi Landssamtaka
kúabænda á nýafstöðnu Búnaðar-
þingi, sagði þá mikla hækkun á
mjólk nauðsynlega, en þó líklega
undir tíu krónum á lítrann.
Fundurinn stóð frá morgni til
kvölds í gær og komust nefndar-
menn að sameiginlegri niðurstöðu
nema hvað einn sat hjá.
Mjólkin
hækkar