Morgunblaðið - 27.03.2008, Síða 48
48 FIMMTUDAGUR 27. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Í dag er Alþjóða leiklistardagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim og í ár, eins og undanfarin
ár, hefur íslenskur leikhúslistamaður verið fenginn til að semja sérstakt ávarp af því tilefni.
Ávarpið er síðan flutt á stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir sýningu og í leikhúsum um allt land,
auk þess sem það er flutt í útvarpi og birt í dagblöðum. Að þessu sinni var það leikarinn og
leikstjórinn Benedikt Erlingsson sem fékk verkefnið og hér á eftir fer lausn hans á því.
Ávarp Alþjóða leiklistardagsins,
27. mars 2008:
(Flytjandinn skal vera alvar-
legur og ávarpa okkur af einurð
og einlægni.)
Kæru leikhúsgestir.
Í dag er alþjóða-leiklistardag-
urinn.
Þá eru haldnar ræður og ávörp.
Þið áhorfendur góðir fáið ekki
að njóta leiksýningarinnar fyrr en
sá sem hér stendur hefur lokið
þessu ávarpi.
(Dok)
Þetta er svona um allan heim í
dag.
Þess vegna er dagurinn kallaður
alþjóða-leiklistardagurinn.
(Dok)
Þessar ræður fjalla yfirleitt um
getu leiklistarinnar til að stuðla að
skilningi og friði þjóða í milli eða
upphaf og tilgang sviðslistarinnar í
sögulegu ljósi og svona ræður hafa
verið haldnar við upphaf leiksýn-
inga á þessum degi síðan 1962 eða
í 46 ár.
(Þögn, nýr tónn.)
Samt er það svo að leiklistinni
sem framin verður hér í kvöld er
enginn greiði gerður með þessu
ávarpi.
(Stutt dok)
Höfundar sýningarinnar: Skáld-
ið, leikstjórinn, leikhópurinn og
samverkamenn þeirra gerðu ekki
ráð fyrir svona ávarpi í upphafi
leiks.
Þessi ræða er ekki partur af
hinu ósýnilega samkomulagi sem
reynt verður að gera við ykkur
eftir andartak.
(Dok)
Leikararnir standa nú að tjalda-
baki um allan heim í kvöld og bíða
þess pirraðir að þessum ræðum
ljúki og leikurinn megi hefjast.
Þetta ávarp er ekki að hjálpa
þeim.
(Dok)
Og svo eru það þið áhorfendur
góðir. Fæst ykkar áttuð von á
þessari truflun. Ávarp vegna al-
þjóða-leiklistardagsins! Eitthvað
sem þið vissuð ekki að væri til!
Kannski setur þetta tal ykkur úr
stuði og þið verðið ekki mönnum
sinnandi í langa stund og náið
engu sambandi við sýninguna.
(Þögn, nýr tónn)
En ef til vill mun leiksýningin,
sem hér fer í gang eftir andartak,
lifa af þetta ávarp.
Ef til vill mun þetta tal eins og
annað tal á hátíðisdögum hverfa
úr huga ykkar undrafljótt.
Kannski mun leiklistin lifa af al-
þjóða-leiklistardaginn og hrista
hann af sér eins og svo margt ann-
að í gegnum tíðina.
Hún er nefnilega eldra fyrir-
brigði en alþjóða-leiklistardag-
urinn, eins og sjálfsagt verður tí-
undað í ávörpum um allan heim í
kvöld.
(Dok)
Sumir halda að hún eigi upphaf
sitt í skuggaleik frummanna við
varðeldana í grárri forneskju.
Aðrir tengja upphafið við fyrstu
trúarathafnir mannsins eða jafnvel
fæðingu tungumálsins.
Samt er það svo, að þegar mað-
ur horfir á flug tveggja hrafna
sem snúa sér á hvolf og fetta sig
og bretta í hermileik háloftanna
og að því er virðist skellihlæja að
leikaraskapnum, þá er ekki laust
við að það læðist að manni sá
grunur að þessi göfuga list tilheyri
ekki okkur einum og upphaf henn-
ar sé dýpra en … við.
Tilheyri kannski alveg eins fisk-
unum í sjónum.
(Þögn, nýr tónn)
Þetta var heimspekilegi kafli
þessa ávarps. Hér fenguð þið það
sem til var ætlast, nokkur orð um
upphaf og eðli leiklistarinnar.
Ég vona að þessi orð muni stuðla
að skilningi og friði þjóða í milli.
(Dok)
Kæru áhorfendur. Nú mun þetta
tal taka enda og sá sem hér stend-
ur mun þagna svo átökin á sviðinu
geti hafist.
Þeirra vegna erum við jú hér.
Þessu ávarpi er lokið.
Takk fyrir.
(Ræðumaður hneigir sig og
dregur sig í hlé án þess að brosa.)
Af einurð og einlægni
Morgunblaðið/Eyþór
Einleikur Ávarpi Benedikts Erlingssonar fylgja nákvæmar leiðbeiningar.
Leiðbeiningar:
Dok =1-1,5 sek.
Þögn = 2-3 sek.
Ef flytjandinn er lítt undirbúinn og
því bundinn við blaðið ætti hann
einungis að líta upp og á horfa á
áhorfendur í dokum og þögnum.
Nýr tónn = frjáls og fer eftir
innsæi og smekk flytjanda hvort
og hvernig.
KATE Hudson
og Owen Wilson
eru hætt að fara í
felur með ást-
arsamband sitt,
en þau byrjuðu
aftur saman á
dögunum eftir að
hafa slitið sam-
vistum um nokk-
urt skeið í fyrra-
sumar.
Þau hafa hingað til neitað því að
vera saman á ný, en nú virðist felu-
leikurinn vera á enda. Heimilda-
maður bandaríska tímaritsins OK!
sá til þeirra á stefnumóti á Flórída
um páskana. Þau leiddust inn í kvik-
myndahús og þegar myndinni lauk
fóru þau heim til Wilson.
Aftur byrjuð
með Wilson
Kate Hudson
Í BRÉFUM sem Ian Fleming, höf-
undur bókanna um James Bond,
skrifaði kemur í ljós að hann átti í
nánu sambandi við vélritunarstúlku
að nafni Jean Frampton. Þar með er
talið að fyrirmyndin að ungfrú
Moneypenny sé fundin en eins og
aðdáendur bókanna og kvik-
myndanna um njósnara hennar há-
tignar vita, daðrar hann mikið við
hana í flestum sögunum.
Frampton var ráðin til þess að
vélrita handritin að bókum Flemings
og brátt fór hann að biðja hana um
ráð og gagnrýni við skrifin. Ekki er
vitað til þess að þau hafi nokkurn
tímann hist en tónninn í orðsending-
unum sem þeim fóru á milli þykir
mjög innilegur.
Bréfin verða boðin upp í næsta
mánuði í tilefni af aldarafmæli rit-
höfundarins.
Moneypenny
fundin
007 Lois Maxwell og Sean Connery
í hlutverkum Moneypenny og Bond.
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRISÝND Í KRINGLUNNI
Frábær gamansöm þroskasaga
með Ryan Gosling í aðalhlutverki
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
HORTON kl. 6 LEYFÐ
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 10:30 B.i.16 ára
P.S. I LOVE YOU kl. 8 LEYFÐ
THERE WILL BE BLOOD kl. 10:30 B.i.16 ára
UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 5:50 LEYFÐ
STEP UP 2 kl. 8 B.i.7 ára
FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
eeee
OK!
eeee
NEWSDAY
eeee
EMPIRE
eeee
- G.H.J
POPPLAND
styrkir Geðhjálp
HANNA MONTANA kl. 8 3D LEYFÐ 3D DIGITAL
10,000 BC kl. 10:15D B.i.12 ára DIGITAL
SPIDERWICK CHRONICLES kl 5:40 - 8 B.i. 7 ára
JUNO kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
HANNA MONTANA kl. 6 3D LEYFÐ 3D DIGITAL
LARS AND THE REAL GIRL kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 LEYFÐ
10,000 BC kl. 6 - 8D - 10:30D B.i. 12 ára DIGITAL
10,000 BC kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára LÚXUS VIP
THE BUCKET LIST kl. 8:20 - 10:30 B.i. 7 ára
THE BUCKET LIST kl. 5:50 B.i. 7 ára LÚXUS VIP
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
- H.J., MBL
eeee