Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 85. TBL. 96. ÁRG. LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is ÓSKASTUNDIN ÞÆR VITA HVAÐ ÞÆR VILJA OG FENGU AÐ TÍNA ÞAÐ TIL SEM VANTAÐI Í FATASKÁPINN >> 22 FRÉTTASKÝRING Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is VONAST er til að viðræðum við Evrópu- sambandið (ESB) um gagnkvæmar tolla- lækkanir á landbúnaðarvörum ljúki síðar á þessu ári, að sögn Ólafs Friðrikssonar, skrifstofustjóra í sjávarútvegs- og landbún- aðarráðuneytinu. Einnig er knúið á um til- hliðrun fyrir útflutning á íslenskum land- búnaðarvörum. Viðræðurnar snúast aðallega um lækkun gjalda á tveimur flokkum. Annars vegar mikið unnum landbúnaðarvörum, sam- kvæmt bókun þrjú við EES-samninginn. Þar á meðal eru súpur, sælgæti, pasta og til- búnar pitsur. Þær bera nú magntolla, 3-120 kr/kg. Í viðræðunum fara Íslendingar fram á fullkomna gagnkvæmni varðandi gjöld á vörur í þessum flokki. Íslendingar hafa ekki haft gagnkvæman markaðsaðgang til ESB varðandi „bókunar þrjú“-vörur en ESB hef- ur fengið lækkaða tolla á þeim til Íslands. Hins vegar eru minna unnar landbúnað- arvörur sem nú bera bæði verðtolla og magntolla. Snemma árs 2007 tók gildi samningur á grundvelli 19. gr. EES-samn- ingsins. Voru tollar á minna unnum land- búnaðarvörum almennt lækkaðir hér á landi um 40% auk þess var samið um ákveðna tollkvóta. Nú er í athugun enn frekari lækkun tolla á þessar vörur hér og er farið fram á samsvarandi lækkun hjá ESB gagnvart slíkum vörum héðan. Þá náð- ist fram afnám tolla á íslenska tómata, gúrkur, papriku o.fl. til ESB. Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að tollar á landbúnaðarvörum verði ekki lækkaðir ein- hliða. Því er sóst eftir auknum markaðs- aðgangi í viðskiptalöndunum á móti tolla- lækkunum hér. Einnig er sótt á um aukinn kvóta til ESB fyrir vörur á borð við smjör, skyr og ýmsar kjötvörur. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, sagði ljóst að innflutn- ingur á landbúnaðarvörum mundi aukast. Því væri nauðsynlegt fyrir íslenska bændur að hafa aðgang að öðrum mörkuðum til að selja sínar vörur. „Þetta eru kannski hin réttu vinnubrögð, ef á að opna landið meira, að við fáum sambærilegan aðgang fyrir okkar vörur,“ sagði Haraldur. Hann nefndi t.d. að miðað við verð á lambakjöti í dag gæti útflutningur verið góður kostur. Gagn- kvæmar lækkanir Rætt við ESB um tolla á landbúnaðarvörum Morgunblaðið/Árni Sæberg Tollalækkun Flatbökur eru meðal þeirra matvæla sem rætt er um að lækka tolla á. Skilaboðaskjóðan >> 49 Komdu í leikhús Leikhúsin í landinu Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is SÚ ATLAGA sem þessa dagana er gerð að íslenskum bönkum og íslenska ríkinu lyktar óþægilega af því að óprúttnir miðlarar hafi ákveðið að gera úrslitatilraun til að brjóta niður íslenska fjármálakerfið, að mati Davíðs Oddssonar, formanns bankastjórnar Seðla- bankans, en hann ávarpaði ársfund bankans í gær. „Þeim mun ekki takast það. En til álita hlýtur að koma að gera alþjóðlega opinbera rannsókn á slíku til- ræði við heilbrigð fjármálakerfi,“ sagði Davíð og vís- aði einnig til þess að síðustu mánuði hefði borið á vafa- samri hegðun á alþjóðlegum mörkuðum. Í ávarpi sínu lagði Davíð áherslu á mikilvægi þess að halda verðbólgu í skefjum. „Verðbólga verður stór- legur skaðvaldur ef hún eykst enn og ekki tekst á nokkrum misserum að hemja hana með hefðbundnum úrræðum Seðlabankans.“ Sagði Davíð að afar þýðing- armikið væri að þeir sem mestu réðu um þróun fjár- mála- og efnahagslífs í landinu toguðu allir í sömu átt á móti vexti verðbólgu og létu skammtímahagsmuni og sjónarmið víkja í þeim átökum. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði í máli sínu að senn yrði tímabært að gera fræðilega úttekt á pen- ingamálastjórn Íslands, m.a. til að svara þeirri spurn- ingu hvort Seðlabankinn hefði við núverandi aðstæð- ur öll þau tæki í vopnabúri sínu sem hugsanleg væru til að sinna hlutverki sínu, að halda verðbólgu innan fyrirfram ákveðinna marka. „Til slíks verks þarf, þegar þar að kemur, að fá hæf- ustu sérfræðinga, erlenda og innlenda, líkt og gert hefur verið annars staðar. Í þessu felst ekki gagnrýni á peningamálastefnu Seðlabankans, heldur viðleitni til að gera honum betur kleift að rækja skyldur sínar.“ Geir ítrekaði í ávarpi sínu að íslenskt bankakerfi og íslensk efnahagsmál stæðu traustum fótum þótt á móti blési um þessar mundir. Hins vegar benti allt til þess að lokið væri að sinni mikilli uppsveiflu í íslensku efnahagslífi. | 14 Til álita kemur að gera rannsókn á atlögunni HAGSTOFAN birti í gær tölur um þróun verðlags og þrátt fyrir að mælingin hafi verið gerð í annarri viku marsmánaðar – áður en gengi krónunnar hrundi – sýna þær mestu tólf mánaða verðbólgu í fjögur ár, eða 8,7%. Verð á mat- vælum er nánast það sama og það var áður en virðisaukaskattur var lækkaður á matvæli í byrjun mars á sl. ári og tveir útgjaldafrekustu liðir heimilanna, húsnæðiskostn- aður og ferðir, hafa hækkað um 14% síðastliðið ár. Það eru þeir liðir sem mest hafa hækkað. Verð á brauði, fiski, ávöxtum og grænmeti hefur hækkað mikið á einu ári. Þannig hefur verð á brauði hækkað um 12,3%, pasta um 27,6% og hveiti um 19,1%. Mjólkurvörur og egg hafa lítillega hækkað, um 2,9%, en koma til með að hækka umtalsvert um næstu mánaðamót. Fiskur hefur hækkað um 14,8%, ávextir um 15,1% og grænmeti um 9,6%. Af einstökum vörum má nefna, að kál hefur hækkað um 27,7% og kartöflur um 24,5%. Krónan veiktist um 2,76% Krónan veiktist um 2,76% í gær. Gengisvísitalan er nú 157,75 stig en var 153,40 við opnun banka í gærmorgun. Hlutabréf lækkuðu flest í verði í Kauphöll Íslands, úr- valsvísitalan lækkaði um 1,9% og stóð við lok markaða í 4.931 stig- um. Bréf Icelandic Group lækkuðu um 10,64% og FL Group um 6,16%. Þá tilkynnti olíufélagið N1 um hækkun eldsneytisverðs og fylgdu Skeljungur og Olís í kjölfarið. Hækkunin nam þremur krónum á lítra. | 6 Verðlækkun gekk til baka KRAKKARNIR í 4. bekk Borgaskóla í Grafarvogi tóku í gær þátt í Vináttuhlaupinu, friðarhlaupi sem fer fram árlega víða um lönd. Sýndu þau málefninu mikinn áhuga og höfðu augljóslega mikla ánægju af. Morgunblaðið/RAX Hlaupið í þágu friðar TVEIR starfsmenn sláturhúss KVH á Hvammstanga sluppu ótrúlega vel þegar 2,4 tonna stæða af kjöti féll yfir þá á sl. miðviku- dag. Mennirnir voru töluvert lemstraðir og annar fór úr axlarlið auk þess að fá skurð á ennið. Vinnueftirlitið rannsakar slysið. Að sögn Magnúsar Freys Jónssonar, fram- kvæmdastjóra sláturhússins, er um að ræða fjögurra hæða stæðu, þar sem hver svo- nefndur tröllakassi er um metri á hæð og vegur um 600 kg. „Þeir voru að færa svona stæður til þegar neðsti kassinn raunverulega sprakk. Þeir náðu að hlaupa undan en hluti af stæðunni lenti þó á þeim.“ Mennirnir voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar en eru ekki mikið slasaðir. Fengu yfir sig 2,4 tonna stæðu af kjöti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.