Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 11 FRÉTTIR BJÖRN Bjarnason dóms- og kirkju- málaráðherra var á fimmtudag við- staddur þegar kjölur var lagður að nýju og fullkomnu varðskipi Land- helgisgæslunnar. Var það gert við hátíðlega athöfn í skipasmíðastöðinni Asmar í Talca- huano í Chile og markaði athöfnin upphafið á eiginlegri smíði skips- ins. Skipið verður afhent fullbúið á haustmánuðum 2009 og mun það valda þáttaskilum í starfsemi Land- helgisgæslu Íslands. Í ferðinni hefur Björn meðal ann- ars átt fund með José Goni Car- rasco, varnamálaráðherra Chile. Jafnframt heimsótti hann höf- uðstöðvar landhelgisgæslu Chile og kynnti sér þar rafrænt eftirlits-, skráningar- og tilkynningakerfi. Athöfnin Björn Bjarnason dómsmálaráðherra flutti ávarp þegar kjölur var lagður að hinu nýja varðskipi Landhelgisgæslunnar í Chile. Smíði á nýju skipi Landhelg- isgæslunnar hefst í Chile „ÞVÍ miður hafa pólitískir sviptivindar síðustu missera í stjórnkerfi borg- arinnar valdið ófyrirséðum töfum í viðræðum Festa og borgaryfirvalda,“ segir í yfirlýsingu fasteignafélagsins Festa, eiganda húsanna við Hverf- isgötu 32 og 34 sem hafa staðið yfirgefin um hríð. Félagið tekur undir áhyggjur af öryggismálum í mannlausum húsum og undirstrikar að af þess hálfu sé eindreginn vilji til að fjarlægja húsin og ganga frá lóðum þar til byggingarframkvæmdir geta hafist. Hins vegar fáist ekki heimild til niður- rifs fyrr en skipulagsráð hefur samþykkt teikningar af því sem byggt verð- ur í staðinn. Mun félagið loka húsunum samkvæmt beiðni slökkviliðsstjóra en segir það ekki útiloka innbrot. „Þess vegna láta Festar í ljós von um að fá sem allra fyrst heimild til að fjarlægja þau hús sem borgaryfirvöld hafa þegar tekið ákvörðun um að verði rifin.“ Pólitík tefur niðurrif FUNDUR flokksstjórnar Samfylk- ingarinnar verður haldinn á morg- un, sunnudag, kl. 12 til 16 í Súlnasal Hótels Sögu. Fundurinn hefst með ávarpi for- mannsins, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Því næst hefst mál- stofa um efnahagsmál með þátt- töku Friðriks Más Baldurssonar, Eddu Rósar Karlsdóttur og Ólafs Darra Andrasonar. Síðan verður rætt um grænt hagkerfi, en Þórunn Sveinbjarnardóttir hefur þar fram- sögu. Loks fara fram almennar stjórnmálaumræður og ráðherrar flokksins sitja fyrir svörum. Flokksstjórn Samfylkingar fundar Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is MIKILL hugur er í forystumönnum Málfundafélagsins Óðins, sem var stofnað fyrir 70 árum. Theodór Ben- der, bakari í Kökubankanum í Garðabæ og formaður félagsins, segir að mikil samkeppni sé um at- hygli fólks en þó að víða hafi dregið úr almennri félagastarfsemi finni hann fyrir stemmningu fyrir starf- semi Óðins enda sé byggt á traust- um grunni. Málfundafélagið Óðinn var stofn- að 29. marz 1938 og halda félags- menn upp á 70 ára afmæli félagsins með veislu í dag. Stofnfélagar voru um 40 og um næstu áramót voru fé- lagarnir um 290 en á undanförnum árum hafa um 300 til 400 manns ver- ið í félaginu. Áhrif í verkalýðshreyfingunni Theodór Bender rifjar upp að Ólafur Thors og Bjarni Benedikts- son hafi verið helstu hvatamenn að stofnuninni. Sjálfstæðismönnum og öðrum hægri sinnuðum mönnum hafi ofboðið ofríki vinstri manna í verkalýðshreyfingunni og fundist þeir einoka umræðuna um of. Þeir hafi stofnað Málfundafélagið Óðin í þeim tilgangi að sameina krafta hægri manna til að fá einhverju ráð- ið í verkalýðshreyfingunni og það hafi tekist. Fyrstu áratugina einbeitti Mál- fundafélagið Óðinn sér fyrst og fremst að verkalýðsmálum og ýms- um framfaramálum í sambandi við kjör launafólks. Theodór segir að eftir að dregið hafi úr áhrifum stjórnmálaflokka í verkalýðshreyf- ingunni hafi kröftunum verið beint að innra starfi í Sjálfstæðisflokknum í sambandi við kosningar, landsfundi og málefnavinnu. Stofnendur félags- ins hafi lagt áherslu á að efla fólk í félagsstarfi og gefa því tækifæri til þess að þjálfast í ræðumennsku. Reglulega hafi verið haldnir mál- fundir þar sem menn hafi komið skoðunum sínum á framfæri og að undanförnu hafi verið blásið nýju lífi í þennan hluta starfseminnar. Theo- dór segir að Óðinn hafi enn mjög mikinn áhuga á kjarabaráttu og vel- ferð hins almenna launamanns, en sé samt meira landsmálafélag nú en áð- ur. Byggingar og lán Fyrsti formaður Óðins var Sig- urður Halldórsson en með honum í stjórn voru Magnús Ólafsson, Sig- urður Guðbrandsson, Hans Guð- mundsson, Ingi Hannesson og Axel Guðmundsson. Theodór segir að félagið hafi kom- ið að mörgum málum í gegnum tíð- ina. „Sennilega stendur einna helst upp úr að Óðinsmenn beittu sér mjög fyrir byggingu fjölbýlishúsa í Breiðholti á sínum tíma og því að koma á svokölluðum smáíbúðalánum til að leysa húsnæðisvanda í Reykja- vík,“ segir Theodór og minnist sér- staklega framgöngu Meyvants Sig- urðssonar í því sambandi. Hann bætir við að ekki megi gleyma því að það hafi verið mikið afrek að komast til áhrifa í verkalýðshreyfingunni og koma þar áherslum Sjálfstæð- isflokksins og sjálfstæðistefnunni í góðan farveg. Theodór segir að starfsemi Óðins hafi verið einna blómlegust fyrstu 30 til 40 árin eða á því tímabili þegar pólitíkin hafi ráðið ríkjum í verka- lýðsmálunum. Á sama tíma hafi fé- lagsmenn gefið út blaðið Vilja, þar sem þeir hafi komið hugðarefnum sínum á framfæri og hafi fyrstu blöðin verið handskrifuð. Síðan hafi félagið ekki verið eins áberandi í op- inberu sviðsljósi en starfað mikið innan Sjálfstæðisflokksins og gera megi því skóna að þannig verði starfsemin í næstu framtíð. Unnið sé að því að koma upp vef félagsins á netinu og hugmyndin sé að standa reglulega fyrir opnum fundum eins og gert hafi verið með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, mennta- málaráðherra, í janúar. „Næsta stóra verkefni okkar er samt að ná hreinum meirihluta í Reykjavíkurborg en opnu fundirnir eru liður í því að efla þetta hefð- bundna félagsstarf í Sjálfstæð- isflokknum í Reykjavík. Við viljum líka kenna fólki ræðumennsku og slíkt eins og lagt var upp með í byrj- un,“ segir Theodór Bender. Byggt á traustum grunni Morgunblaðið/Ómar Ferðalög Félagsmenn hafa oft farið saman í ferðir til að stilla strengina og efla liðsandann. Málfundafélagið Óðinn var stofnað fyrir 70 árum Formaðurinn Theodór Bender er formaður Málfundafélagsins Óðins, sem stendur á merkum tímamótum. G C I G R O U P A L M A N N A T E N G S L *Brimborg og Citroën áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverð háð gengi. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.citroen.is Fullkomnari fullkomnun Sjáðu Citroën Berlingo í dag Dæmi um staðalbúnað í Citroën: · Meiri burðargeta: 800 kg · Hliðarhurðir beggja vegna með lokunarvörn · 180 gráðu opnun á afturhurðum · Topplúga fyrir lengri hluti · Hiti í sætum · Rafdrifnar rúður · Geislaspilari með útvarpi og fjarstýringu við stýri · Fjarstýrð samlæsing · Fellanlegt framsæti farþega með borði og geymsluhólfi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.