Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 15 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF D!E D!E ! 0( 2 %+ 3 %   D!E 9 $E *+-, (+ 3 % 2%   >F G -  H * *+ 3 %, 3 %0   1?+8 >4E (*+0 +*(+ 3 %! 3 %   D!E : * D!E ) !*0 * -+ 3%0 2 %     !  " # $ %$&'($)   *#   ; % <  %   4  : 5 6 $  # : 5 6 83 6 10 : 5 6 :    6 6 8 5 C   IJ   : 5 6 , 5  $  6 0       6 !  6 +(@D- +   ;$  7 1"766 6 ? 6 K  6 =  *; #   '2* 6 4 J 6 4  J 4F  4  J (   (L1 8 $  1 : 5 6 1M $  IJ J : 5 6 -/" 6 +5  6 ?   # 6 B  # 6    # >   N  4   N6 $ :  6  5" 6  ? 5  ,%! ! %-  % +% ,% !%+ !%+ ,+% 0%( 0 !% %+ !% 0% % +%- 0+%( !+ % +(% %-- (% % +%( !,% -%( ( %  % +%                                                  B 5    ?     , 5 +  26 A6A &&'6 '6*2A &A6**A62* 6& 62) 6A* *629<62A969&9 2262&A6'& 6*&A6A 2 6<) 6 9)6*'9 <6AA 6** &A6&**6&2 6A< 6)2A 6 A 6AA26<<) &6AA26 '69&69 6' *6<99 62A'6 < 6& )6<996 )A *62&6 ; '6&26*'* )6* A6*< ; & 6<&6 * ; ; )*6A'6 A<6 ; 9.'< ).* .& 2.&* 9.  &).'* &).) 9**. &A.& A .' ).&2 .** ).&9 A .A .' 2.92 A). )**. '**. .<9 )A. &.) ; 2.'* ; ; *A*. . ; 9.)& ).< .&& 2.' 9. * &).2* &).2 92&. &A.) A&.  ).&< .2 ).'& A&.* .'& 2.<& A2.* )9<. '2*. .<< *&. &.9 &&. 2.)& ; ; * *. &. 2. 1"#   A &< 2< 2* & 2 2 '2 A 2 ) )* < < ' & 9 ; ' 2 ; * ; ; ' ; >    6 &<6'6&< &<6'6&< &<6'6&< &<6'6&< &<6'6&< &<6'6&< &<6'6&< &<6'6&< &<6'6&< &<6'6&< &<6'6&< &<6'6&< &<6'6&< &<6'6&< &<6'6&< &<6'6&< &<6'6&< &<6'6&< &<6'6&< &96'6&< &<6'6&< 6'6&< <6&6&< &<6'6&< 26 &6&9 &&6<6&9 &<6'6&< &<6'6&< 96'6&< VERÐI íslensku bankarnir fyrir frekari skakkaföllum af völdum lánakreppunnar gæti alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor’s gripið til þess ráðs að lækka láns- hæfiseinkunn íslenska ríkisins. Þetta kemur fram í viðtali breska blaðsins Daily Telegraph við Eileen Zhang, aðalgreini Íslands hjá S&P. Ekki kemur fram í viðtalinu, sem nálgast má á vefvarpi blaðsins, hvaða skakkaföllum bankarnir hafa orðið fyrir af háum kostnaði við tryggingu á skuldum þeirra á eftirmarkaði en Zhang bendir þó á misvægi í íslenska hagkerfinu. Hún segir S&P munu fylgjast náið með þróun mála en erfitt sé þó að segja til um hversu mikil áhætta sé á hruni bankakerfisins. Zhang árétt- ar jafnframt að leggist íslenska bankakerfið á hliðina muni hnatt- ræn áhrif af því verða lítil. Einkunn Íslands gæti lækkað Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is VÍSITALA neysluverðs í marsmán- uði hækkaði örlítið meira frá fyrra mánuði en greiningardeildir bank- anna gerðu ráð fyrir. Hækkunin var 1,47% en deildirnar gerðu ráð fyrir 1,2–1,4% hækkun milli mánaða. For- stöðumenn greiningardeildanna spá því að verðbólgan muni aukast enn frekar í næsta mánuði en hún muni lækka hratt er komið verður fram á sumarið. Það sé þó háð því að krónan hætti að veikjast. Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Glitnis, segir að það sem standi upp úr varðandi mælinguna á vísitölu neysluverðs nú sé að geng- isáhrifin hafi komið skjótt fram. Út- sölulok séu einnig kröftugur áhrifa- valdur og húsnæðisverð hafi hækkað, sem komi nokkuð á óvart. „Við reiknum með að verðbólgan muni verða enn meiri í næsta mánuði en nú og að 12 mánaða verðbólgan fari þá úr 8,7% nú og upp undir 10%. Það getur varað eitthvað fram á árið, en mun þó ráðast af þróun krónunn- ar. Þetta verðbólguskot mun síðan væntanlega ganga tiltölulega snögg- lega yfir, jafnvel á um sex mánuðum, og eftir það mun verðbólgan lækka og verðbólgumarkmið Seðlabank- ans, 2,5%, nást rétt eftir næsta ár.“ Kemur ekki á óvart Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings segir ekki ólíklegt að verðbólgan verði til- tölulega mikil fram á sumarið en hún muni þá minnka hratt. „Staðan nú er svipuð og í verð- bólguskotunum 2006 og 2001, en þá gekk hún hratt yfir og lækkaði mjög skart. Við sjáum tvennt fara saman nú, annars vegar að krónan byrji að styrkjast og hins vegar að fasteigna- markaðurinn kólni. Þetta tvennt hef- ur mjög mikil áhrif til að halda aftur af verðbólgunni.“ Hann segir að Seðlabankinn hafi miklar áhyggjur af víxlhækkun launa og verðlags, sem myndi leiða til meiri verðbólgu. Líkur þar á séu þó minni en ella því fram undan sé mikil kólnun í efnahagslífinu sem komi í veg fyrir þessa víxlverkun. Ekkert í mælingunni á vísitölu neysluverðs að þessu sinni kemur sérstaklega á óvart, að sögn Eddu Rósar Karlsdóttur, forstöðumanns greiningardeildar Landsbankans. „Við gerum ráð fyrir að verðbólg- an verði áfram mikil og þar er það veiking krónunnar sem skiptir mestu máli,“ segir Edda Rós. „Í næsta mánuði sjáum við fram á mæl- ingu sem verði vel yfir 1% og því reiknum við með að verðbólgan fari þá hátt í 10%. Reyndar reiknum við með að verðbólgan fari á næstu tveimur mánuðum í hæsta gildi sem hún hefur farið í frá því verðbólgu- markmið Seðlabankans var tekið upp fyrir 7 árum. Hins vegar gerum við ráð fyrir að hún minnki er komið verður fram í júní, en það fer allt eft- ir því hvað gerist með krónuna.“ Spá enn meiri verð- bólgu í aprílmánuði Framhaldið er mikið háð því hvað verður um krónuna      -%, %- + ,  !  -. , / *  # *  & *  *  O* '4 * B% ;   +    . , / **01/ #$ #    $ %2   -       !  (  +  , '4 * NÆR helmingur fjármagns í hinum vestræna heimi er nú í eigu kvenna og það fjármagn þarf að virkja. Þetta kom fram í máli Höllu Tóm- asdóttur, stjórnarformanns Auðar Capital, á námsstefnu á Hilton Nor- dica-hótelinu í gær um hvernig ætti að virkja fjármagn kvenna. Uppselt var á námsstefnuna en að henni stóðu Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri, viðskipta- ráðuneytið og iðnaðarráðuneytið. Í erindi sínu hvatti Halla konur til að fara enn frekar fyrir fjár- magni sínu. Sagði hún auð kvenna um alla heim hafa aukist á mun meiri hraða en margir gerðu sér grein fyrir. Vísaði Halla til nýlegrar skýrslu The Economist fyrir Barclays-bankann sem sýndi að konur ættu um 48% af sparnaði í Bretlandi og að árið 2020 yrðu kon- ur orðnar fleiri en karlar í hópi breskra milljarðamæringa. Meðal annarra fyrirlesara var Karin Forseke, fv. forstjóri sænska fjárfestingabankans Carnegie, sem fjallaði um reynslu sína á fjármála- mörkuðum á Norðurlöndunum, í Bretlandi og Bandaríkjunum. Áréttaði hún mikilvægi þess að kon- ur létu meira fyrir sér fara í við- skiptalífinu. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra setti námsstefn- una og viðraði m.a. hugmyndir um kynjakvóta í atvinnulífinu. Sögðust aðrir fyrirlesarar sumir hverjir telja tormerki á þeim hugmyndum. Aukið fjármagn í eigu kvenna Morgunblaðið/Valdís Thor Konur Fyrra pallborð námsstefnunnar, f.v. Karin Forseke, Bjarni Ár- mannsson, Kristín Pétursdóttir og Jón Scheving Thorsteinsson. ÍSLENSKT efnahagslíf er áfram fyrirferðarmikið í umfjöllun er- lendra fjölmiðla eftir að stýrivextir Seðlabankans voru hækkaðir í 15%. Þannig varpaði danska viðskipta- blaðið Børsen fram í fyrirsögn í gær hvort íslensk hlutabréf væru komin í alþjóðlegan skammarkrók. Var bent á að úrvalsvísitalan í íslensku kaup- höllinni hefði lækkað um 55% síðustu sex mánuði og aðeins ein vísitala hefði hækkað meira á sama tíma. þ.e. um 56% í kauphöllinni í Víetnam. Næst koma kauphallirnar í Serbíu með 42% lækkun og vísitalan í Jórd- aníu sem hefur fallið um 40%. Þó er þess getið að enn hafi einhverjir ís- lenskir fjárfestar getað hagnast á hlutabréfunum, þar sem vísitalan hefði fjórfaldast frá árinu 2001. Í breska vefmiðlinum This is mo- ney er því velt upp hvort ástæða sé fyrir breska sparifjáreigendur að hafa áhyggjur af stöðu íslensku bankanna. Bent er á að bankarnir séu komnir með stóra sneið af sparn- aði breskra neytenda, eða yfir fimm milljarða punda. Þar segir ennfrem- ur að ef Seðlabanka Íslands takist að endurvekja traust fjárfesta á ís- lensku efnahagslífi þá sé engin hætta á ferðum. Ísland áfram í sviðsljósinu ytra ● LÍKT og með skuldabréf Kaup- þings hefur matsfyrirtækið Moody’s einnig gefið sérvörðum skuldabréf- um Glitnis hæstu lánshæf- iseinkunn, eða Aaa. Um er að ræða tvær útgáfur, annars vegar upp á 16 milljarða króna sem koma til greiðslu árið 2050 og hins vegar 40 milljarða króna sem eru á gjalddaga árið 2051. Skuldabréfin eru útgefin beint af Glitni og lúta veðheimildum sem felast í safni íslenskra húsnæð- islána. Moody’s gaf Glitni einnig hæstu einkunn ● SEÐLABANKINN stóð fyrir útboði á ríkisbréfum á fimmtudag, flokknum RIKB 08 1212. Alls bárust 25 gild til- boð að upphæð 9,95 milljarðar króna en tilboðum var tekið fyrir 7,15 milljarða að nafnvirði á 15,11% meðalávöxtunarkröfu. Hugðist bank- inn taka við tilboðum upp á 10 millj- arða króna. Útgáfan var viðbót við áður birta útboðsáætlun Seðlabank- ans og hluti af viðbrögðum stjórn- valda ætluðum til að létta á markaði með vaxtaskiptasamninga. Ávöxtun ríkisbréfa hefur hækkað töluvert eftir síðustu stýrivaxtahækkun. Tilboðum tekið í sjö milljarða ríkisbréf ● GENGI doll- arans féll um 2,4% gagnvart evrunni í síðustu viku og er það mesta vikulækk- un í meira en tvö ár, að því er segir í frá á vef Bloomberg. Er dollarinn mjög nærri sínu sögulega lægsta gengi gagnvart evru. Hins vegar segir í greininni að íslenska krónan hafi verið sá miðill sem féll mest gagnvart dollaranum í gær og að miðað við skuldatrygg- ingarálag á skuldabréf viðskipta- bankanna séu nú 49% líkur á að þeir geti ekki staðið við skuldbind- ingar sínar. Bandaríski dollarinn í frjálsu falli ● HLUTABRÉF lækkuðu í verði í Kauphöll Íslands í gær, en Úrvals- vísitalan lækkaði um 1,93% og er 4.928 stig. Bréf Atlantic Petroleum hækkuðu um 3,18%, 365 um 1,55% og Century Aluminium um 1,18%. Bréf Icelandic Group lækkuðu um 10,64%. Krónan veiktist um 2,76% gær og er gengisvísitalan nú 157,75 stig en var 153,40 við opnun mark- aða í gær. Umtalsverð velta var á millibankamarkaði og hún nam 59,3 milljörðum kr. Gengi Bandaríkjadals er nú 77,97 krónur og evru 122,85 krónur. Lækkanir á mörkuðum SÍÐASTA ár var Síldarvinnslunni á Neskaupstað hagstætt þegar á heildina er litið, mjölverð hélst hátt framan af ári og markaðir fyrir frystar afurðir voru sterkir. Hagn- aður af rekstri ársins nam ríflega tveimur milljörðum króna, en fyrir skatta nam hagnaðurinn 2,5 millj- örðum króna. Rekstrartekjur sam- stæðunnar námu um níu milljörðum króna og heildareignir í árslok námu 19,6 milljörðum. Nettóskuldir námu 5,7 milljörðum, eigið fé var 6,3 millj- arðar og eiginfjárhlutfallið 32%. Í til- kynningu frá SVN segir um rekstr- arhorfur að heimsmarkaðsverð á lýsi sé nú hagstætt og vísbendingar séu um hækkandi mjölverð. Hagnaður hjá SVN GENGI Icelandic hefur hríðlækkað á undanförnum dögum í kauphöllinni og var við lok viðskipta í gær 2,10 krónur á hlut. Í upphafi marsmánað- ar var gengið 5,15 krónur á hlut og hefur það því meira en helmingast. VBS fjárfestingarbanki hefur und- anfarna tvo daga verið skráður selj- andi 8,5 milljóna hluta, um 0,3% hlut- ar í félaginu, en ekki fengust svör frá bankanum hvort um væri að ræða eigin viðskipti eða viðskipti fyrir hönd viðskiptavinar. VBS átti um síðustu mánaðamót 0,9% hlut í Icelandic. Icelandic lækkar hratt ♦♦♦ ÞETTA HELST …
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.