Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
PÓLÝFÓNFÉLAGIÐ efnir til
hátíðarsamkomu á Grand Hót-
el klukkan hálf sjö í kvöld í til-
efni þess að um þessar mundir
eru liðin fimmtíu ár frá því að
Pólýfónkórinn kom fyrst fram
undir því nafni.
Ætlunin er að rifja upp
gamlar minningar, hlýða á
fyrrverandi kórfélaga syngja
einsöng og saman í stærri hóp-
um, auk þess sem boðið verður
upp á raddaðan fjöldasöng í pólýfónískum anda.
Sérstakur heiðursgestur á samkomunni verður
Ingólfur Guðbrandsson, stofnandi kórsins og
söngstjóri frá upphafi.
Tónlist
Pólýfónkórinn
fimmtugur
Ingólfur
Guðbrandsson
KAMMERKÓR
Hafnarfjarðar heldur
tónleika í Reykholts-
kirkju á morgun kl.
16. Þar verða flutt
kirkjuleg kórverk frá
Íslandi og Skandin-
avíu. Kammerkór
Hafnarfjarðar er sjálfstæður kór skipaður ungu
fólki. Kórinn var stofnaður í byrjun ársins 1997.
Kórinn hefur ávallt leitast við að hafa efnisskrá
sína sem fjölbreyttasta og hefur flutt veraldlega
og kirkjulega kórtónlist allt frá miðöldum fram til
nútímans auk annarrar tónlistar, til dæmis djass
og þjóðlagatónlistar. Stofnandi og stjórnandi
kórsins er Helgi Bragason.
Tónlist
Hafnfirðingar í
Reykholtskirkju
Kammerkór Hafnarfjarðar
TÓNLISTARHÓPURINN
Camerarctica og Marta Hall-
dórsdóttir sópransöngkona
halda tónleika á morgun í Hall-
grímskirkju undir yfirskrift-
inni „Sálmar og tónaljóð.“
Þar verður frumflutt nýtt
verk eftir Þorkel Sigurbjörns-
son sem ber nafnið Allir verði
eitt. Auk þess verða fluttir
Sálmar á atómöld, tónverk sem
Elín Gunnlaugsdóttir samdi við ljóð Matthíasar
Johannessen og tónleikunum lýkur síðan með
Kvintett fyrir klarinettu og strengi A dúr op. 146
eftir Max Reger.
Tónleikarnir hefjast klukkan 17.
Tónlist
Sálmar og tónaljóð
í Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja
KJÚKLINGALUND „fajitas“ að
hætti Google-manna, mexíkósk ma-
íssúpa og súkkulaðiís. Þetta er ekki
heitið á nýrri matreiðslubók, heldur
nýrri myndröð Spessa (Sigurþórs
Hallbjörnssonar) ljósmyndara, bók
og samnefndri sýningu sem opnar
klukkan 14.00 í dag í galleríi Orku-
veitunnar, Galleríi 100º.
Þetta er stór myndröð, myndir af
bökkum sem sýna leifarnar af há-
degisverði starfsmanna OR í einu
hádeginu fyrir skömmu. Heitið er
sótt í matseðilinn þennan dag. Í bók-
inni, sem er hönnuð af listamann-
inum og Ámunda Sigurðssyni, eru
textar eftir Sjón og Jón Proppé.
„Hérna í bókinni eru 186 myndir,“
segir Spessi, blaðar í óbundnum örk-
um og kveikir sér í kúbönskum
vindli. Í vinnustofu hans er Harley
Davidson mótorhjól á miðju gólfi.
„Myndirnar birtast hér í mismun-
andi stærðum og formum, eins og
áhöldin og leifarnar á bökkunum,“
segir hann. Bætir við að á sýning-
unni séu 19 myndanna, þar af nokkr-
ar mjög stórar.
- Þú vinnur alltaf í seríum. Bens-
ínstöðvar, sjómenn, húsaraðir …
„Ætli ég vilji ekki segja sögu. Ein
og ein mynd sem á ekki í samtali við
aðrar myndir, það hefur ekki heillað.
Ég hugsa líka í sýningum og verk-
efnum. Kannski finnst mér ein stök
mynd ekki segja nógu mikið. Í Loca-
tion-verkinu kom titillinn fyrst. Mér
finnst það mikilvægt, ef ég veit hvað
myndirnar eiga að segja vinn ég inn
í titilinn, konseptið. Ég reyndi þá að
skilgreina hvað þessir staðir, „loca-
tions“, væru. Myndefnið þarf að
ganga upp í hugmyndina.“
- Fyrir nokkru sýndirðu í Galleríi
101 röð mynda af verkamönnum í
mötuneyti við Kárahnjúka. Nú ferðu
aftur í mötuneyti og myndar leifar.
„Ég borðaði einu sinni í mötuneyti
Orkuveitunnar. Maturinn var mjög
góður og eftir matinn fóru bakkarnir
á færiband og hurfu inn um gat. Ég
fór bakvið, sá hvað varð um bakkana
og þá kviknaði hugmyndin. Mér
fannst verkið vera tengt Orkuveit-
unni og í endann varð úr að ég
myndaði bakkana í matstofunni
þeirra. Þetta átti að verða bók en svo
buðu þeir mér að sýna þetta líka.
Það á vel við, enda verkið unnið í
samvinnu við starfsfólk OR.“
- Bókin, er hún besta formið til að
sýna myndraðir eins og þessar?
„Mér finnst bókin vera formatið
fyrir mín verk. Bók er eiginlega mik-
ilvægara en sýning. Í bókum má
stjórna flæðinu og myndirnar eru
allar aðgengilegar. Þetta er eins og
að raða saman orðum eða tónum.
Þegar við vorum að brjóta þessa
bók um, reyndum við að finna ein-
hverja reglu um flæðið. Þá datt mér
í hug að hlusta á mexíkóska tónlist
og við hönnuðum bókina í þeim
anda. Stundum eru rólegir kaflar,
svo kemur einhver lúður inn og þá
fer eitthvað að gerast.“
Spessi sýnir myndir af matarafgöngum
Stök mynd segir
ekki nógu mikið
„Bakkarnir eru myndaðir eins og portrett,“ segir Spessi um myndröðina
með matarleifunum sem hann sýnir í Galleríi 100º og gefur út á bók, með
186 myndum. „Má ekki segja að þetta sé expressjónísk túlkun á kyrralífi,
sem búið er að klessa út og er orðið abstrakt? Þetta kallast á við kyrralíf.“
Morgunblaðið/Einar Falur
Portrett af matarleifum
„GLATAÐA helgin“ – The week-
end, það er nafnið sem John Len-
non gaf því tímabili í lífi sínu sem
hann deildi með May Pang. Þetta
voru 18 mánuðir frá sumri 1973
fram yfir áramót 1975. Ef til vill
átti John Lennon sjálfur mestan
þátt í því að koma þeirri sögu á
kreik að hann hefði þjáðst af dep-
urð og þunglyndi og ekki fundið
fyrir neinni sköpunargleði.
Slíkar sögusagnir hafa tæplega
getað glatt May Pang sem bjó með
bítlinum þennan tíma og hefur allt
aðra sögu að segja. Í bókinni Lo-
ving John, sem kom út árið 1983,
lýsti hún lífi þeirra á allt annan
veg, eða sem hamingjusömu og
frjóu. Til marks um sköpunarkraft
bítilsins á þessum tíma, kláraði
Lennon tvær plötur á tímabilinu,
Mind Games og Walls and Bridges,
vann að plötum með vinum sínum
Harry Nilsson og Ringo Starr, og
að upptökum með David Bowie og
Mick Jagger.
Nú er May Pang búin að gefa út
aðra bók – ljósmyndabók, með
myndum úr lífi þeirra Lennons, og
þykja þær styðja það sem hún
sagði í fyrri bók sinni, að líf þeirra
saman hefði verið hamingjuríkt.
Bókina kallar May Pang In-
stamatic Karma – það er orða-
leikur með nafn eins kunnasta
lags Lennons, Instant Karma. Bók-
in er 140 síður, og myndirnar eru
allar úr daglegu lífi parsins.
„Þetta eru einstakar myndir og
persónulegar og afar hjartnæm-
ar,“ sagði Cynthia Lennon, fyrsta
eiginkona bítilsins við útkomu
bókarinnar, en Cynthia var gest-
gjafi í útgáfuteitinni að beiðni May
Pang. Þær kynntust á þessum
tíma og urðu vinkonur upp frá
því. May Pang festi mörg sögu-
fræg augnablik á filmu, meðal
annars þegar Bítlarnir skrifuðu
undir pappíra um formleg slit
samstarfs síns.
Glaður og
skapandi
May Pang gefur út
myndabók frá árunum
með John Lennon
Leikur John Lennon og Harry Nils-
son bregða á leik.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÉG skulda Þorsteini þetta. Hann
hefur haft svo mikla þýðingu fyrir
mig frá upphafi, sem manneskja, ljóð-
skáld og ekki síst
prósaskáld,“ segir
Hjalti Rögnvalds-
son leikari, sem
ætlar að halda
upp á 70 ára af-
mæli skáldsins frá
Hamri með sér-
stökum hætti. Á
fjórum mánu-
dagskvöldum, frá
og með því næsta,
ætlar hann að lesa
allar ljóðabækur Þorsteins í heyr-
anda hljóði í Iðnó við Tjörnina. „Þor-
steinn er án vafa eitthvert merkileg-
asta ljóðskáld Íslendinga bæði fyrr
og síðar. Það er engin spurning.
Hann á heiðurinn af því að hér er
ennþá töluð nokk-
urn veginn skilj-
anleg íslensk tunga,
og í öllum hávað-
anum veitir ekki af
að vekja athygli á
ljóðskáldum,“ segir
Hjalti.
En það er fleira
sem fagnað er en
afmæli Þorsteins
frá Hamri. Hann á
líka skáldafmæli,
því um þessar
mundir eru 50 ár
frá því að fyrsta
ljóðabók hans, Í
svörtum kufli, kom
út. Á mánudaginn
hefst dagskráin
með lestri hennar
kl. 17. Kl. 19 hefst lestur næstu ljóða-
bókar, Tannfé handa nýjum heimi,
sem kom út 1960. Kl. 21 les Hjalti Lif-
andi manna land, frá 1962, Langnætti
á Kaldadal verður
lesið frá kl. 23, og
kl. eitt eftir mið-
nætti hefst lestur
ljóðabókarinnar
Jórvíkur, frá 1967.
Og þannig heldur
dagskráin áfram
með sama sniði að
viku liðinni. Þegar
Hjalti er spurður
hvað hafi fyrst
fangað hug hans í
ljóðum Þorsteins
segir hann að það
sé ljóðrænan í boð-
skap hans. „Hann
kann að vefja fal-
legan og djúpan
boðskap í mikla
ljóðrænu. Það er
þörf fyrir þennan boðskap, nema við
viljum láta Seðlabankann um hann.
Nei, Þorsteinn er betri en Seðlabank-
inn og mun lifa lengur.“
Hjalti Rögnvaldsson leikari les allar ljóðabækur Þorsteins
frá Hamri í Iðnó í tilefni af tvöföldu afmæli skáldsins
Hjalti
Rögnvaldsson
Skáld Þorsteinn frá Hamri
Þorsteinn betri en SeðlabankinnMAXÍMÚS Músíkús er kúnstugmús, sem auðvitað elskar músík –
eins og aðrar skemmtilegar
mýs. Maxímús Músíkús mun
eiga mjög annríkt um
helgina, því bæði kemur hann
út á bók og fer í heimsókn á
tónleika Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands í Há-
skólabíói. Sagan um hann
heitir Maxímús Músíkmús
heimsækir hljómsveitina
og segir útgefandinn í
fréttatilkynningu að sagan
sé fjörug og segi frá lítilli
mús sem villist inn í
tónlistarhús. Þar er
heil sinfóníuhljóm-
sveit að hefja æfingu
og músin Maxi þvælist fyrir
fótum hljóðfæraleikaranna góða
stund á meðan þeir stilla hljóðfærin
sín og gera sig klára. Um leið lærir
hann hvað hljóðfærin heita og
hvers konar hljóð þau gefa frá sér.
Maxi fylgist með æfingunni sem
verður sannkallað ævintýri og gefst
að lokum tækifæri til að hlusta á
tónleika innan um prúðbúna tón-
leikagesti. Söguna skrifar Hall-
fríður Ólafsdóttir, leiðandi flautu-
leikari við Sinfóníuhljómsveit
Íslands, og myndirnar teiknar
starfsbróðir hennar í
hljómsveitinni, Þór-
arinn Már Bald-
ursson víóluleikari.
Bókinni fylgir
geisladiskur þar sem
Valur Freyr Einarsson
leikari les söguna og Sin-
fóníuhljómsveit Íslands leik-
ur tónverkin sem við
sögu koma.
Á tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitarinnar
í Háskólabíói kl. 14 í dag
verður tónleikagestum boðið að
kynnast Maxímús Músíkús og tón-
listinni sem hann elskar. Það sem
meira er, það verður hægt að
syngja lagið um Maxímús Músíkús,
eftir Hallfríði Ólafsdóttur, sem
margir krakkar eru búnir að læra á
leikskólunum sínum. Hljómsveit-
arstjóri er Rumon Gamba.
Maxímús Músíkús
Tónelska músin heimsækir Sinfó í dag