Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Árni Stefánssonfæddist á Felli í Breiðdal 10. júlí 1927. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands á Höfn í Hornafirði að morgni páskadags, 23. apríl síðastliðins. Hann var sonur hjónanna Stefáns Þorbergs Guð- mundssonar, bónda á Felli, f. 15.8. 1898, d. 4.6. 1983 og Guð- laugar Helgu Þor- grímsdóttur ljósmóður, f. 4.4. 1886, d. 2.1. 1961. Systkini Árna voru Emil Björnsson, f. 1915, d. 1991, Þórhalla Björnsdóttir, f. 1917, d. 1999, Ragnar Björnsson, f. 1918, d. 1994, Guðmundur Björnsson, f. 1920, d. 1981, Rósa Björnsdóttir, f. 1922, d. 1999, Birna Björnsdóttir, f. 1924, d. 1992, Ólafía Stefánsdóttir, f. 1919, d. 1999 og Sigurbjörg Stef- ánsdóttir, f. 1922, d. 1945. Uppeld- issystir Árna var Helga Ein- arsdóttir, f. 10.10. 1912, d. 13.2. 1999. Árni kvæntist 17.4. 1954 Svövu Sverrisdóttur frá Höfn í Horna- firði, f. 30.1. 1933. Foreldrar henn- ar voru Sverrir Halldórsson, verka- maður á Höfn, f. 18.5. 1880, d. 13.9. 1932 og Sigurbjörg Gísladóttir hús- móðir, f. 21.10. 1894, d. 25.12. 1989. Börn Árna og Svövu eru: 1) Sig- urbjörg, þroskaþjálfi á Höfn, f. 14.12. 1955, dóttir hennar og Ólafs Gunnlaugssonar, f. 28.1. 1956, er Sigríður, f. 16.2. 1991. 2) Árni Stef- án matreiðslumeistari, f. 22.3. 1958, d. 30.8. 2006, kvæntur Krist- ínu Þóru Kristjánsdóttur, f. 10.2. 1959. Börn þeirra eru a) Arna Þór- dís Árnadóttir, f. 26.6. 1982, gift Breiðdal 1951-1959 og byggðu þau Svava nýbýlið Fellsás í Breiðdal á þessum árum. Árni var svo skóla- stjóri Hafnar-skóla á Höfn 1962- 1975. Á árunum 1959-1961 starfaði Árni hjá Kaupfélagi Austur- Skaftfellinga Ásamt svila sínum, Þórhalli Dan Kristjánssyni sem lést 1975, byggði Árni Hótel Höfn og rak það á ár- unum 1966-1996 ásamt eftirlifandi konu Þórhalls, Ólöfu, og konu sinni Svövu. Hann var frumkvöðull í uppbyggingu ferðaþjónustu í Aust- ur-Skaftafellssýslu og í forystusveit í þeirri atvinnugrein um árabil. Árni vann mikið að félagsmálum allt sitt líf. Var m.a. formaður í ungmennafélögunum Hrafnkatli Freysgoða í Breiðdal og Sindra á Höfn, einnig í Ungmennasamband- inu Úlfljóti í Austur-Skaftafells- sýslu og var dyggur stuðnings- maður íþróttastarfs alla tíð. Hann var hreppsnefndarmaður á Höfn, sat einnig þar í skattanefnd, skóla- nefnd, byggingarnefnd, skipulags- nefnd, stjórn heilsugæslustöðvar og kjörstjórn til alþingiskosninga. Árni var á meðal stofnenda Karlakórsins Jökuls og lengi for- maður hans. Hann vann og að stofnun á vikuritinu Eystra-Horni. Sat í frœðsluráði Austurlands, var stjórnarmaður í Kaupfélagi Aust- ur-Skaftfellinga, Jöklaferðum hf. og í Sambandi veitinga- og gisti- húsaeigenda. Hann var formaður í sóknarnefnd Hafnarsóknar í mörg ár, starfaði í Bridsfélagi, Lions- klúbbi og Golfklúbbi Hornafjarðar og tók þátt í leiksýningum á Höfn í mörg ár. Hann helgaði sig síðar fé- lagsstarfi eldri borgara og var í nokkur ár formaður Félags aldr- aðra á Höfn. Árni hlaut m.a. heið- ursmerki KSÍ, SVG, Úlfljóts og Karlakórsins Jökuls. Útför Árna fer fram frá Hafn- arkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Sigurþóri Hjalta Gúst- afssyni, f. 5.5. 1979, dóttir þeirra Áróra Líf, f. 28.3. 2007. b) Svava Dagný, f. 7.4. 1984, unnusti Friðrik Guðmundsson, f. 21.7. 1982. c) Óðinn Birgir, f. 12.4. 1992. 3) Gísli Sverrir menning- arráðgjafi, f. 2.10. 1959, kvæntur Guð- rúnu Baldursdóttur, f. 26.4. 1959. Börn þeirra eru a) Þórey, f. 23.8. 1984, unnusti Vé- steinn Fjölnisson, f. 1.9. 1981, b) Árni, f. 17.10. 1986, c) Helga, f. 20.11. 1989, og d) Sævar, f. 17.8. 1994. 4) Guðlaug kennari, f. 20.10. 1965, gift Hólmgrími Elís Braga- syni, f. 10.10. 1967. Synir þeirra eru tvíburarnir Árni Þorberg og Bragi Halldór, f. 3.6.2003 en sonur Guð- laugar og Pálma Einarssonar, f. 5.11. 1969, er Gísli Jóhann, f. 7.6. 1990. 5) Gauti, matreiðslumaður, f. 6.8. 1973 kvæntur Ragnheiði Rafns- dóttur, f. 26.7. 1970. Börn þeirra eru Rafn Svan, f. 16.1. 1993, Ísar Svan, f. 27.6. 1999, Kári Svan, f. 17.10.2001 og Aðalheiður Sól, f. 24.4.2004. Dóttir Árna og Guðrúnar Emilsdóttur, f. 30.7. 1930, er Hjör- dís félagsmálastjóri, f. 28.12. 1952. Börn Hjördísar og Jóhannesar Kjartanssonar, f. 17.11. 1955, eru a) Þór, f. 22.2. 1975, sambýliskona Dögg Guðnadóttir, f. 10.2. 1976. Sonur þeirra er Bjartur Eldur, f. 9.8. 2004, b) Rúnar, f. 5.8. 1979, og c) Ósk, f. 10.10. 1990. Árni ólst upp í Breiðdal, fór í Hér- aðsskólann á Laugarvatni og Íþróttaskóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal. Hann lauk kennaraprófi árið 1951 og var kennari á Höfn og í Elskulegur faðir minn Árni Stef- ánsson lést snemma á páskadags- morgun. Hann var góður maður og er hans sárt saknað. Ég eins og aðrir ástvinir minnist hans með söknuði, ást og hlýju og bið almættið að blessa minningu hans. Elsku pabbi minn, þú varst stolt- ur af fjölskyldu þinni. Ekki síst afa- börnum þínum og sakna þau þín sárt eins og við öll gerum. Það hefur verið ánægjulegt að heimsækja ykkur mömmu í Fells- hamar, sumarbústaðinn ykkar í Lónssveit, þar sem þið hafið unnið samhent eins og þið alla tíð gerðuð. Ég kveð þig með ást og söknuði og þakka góða samfylgd alla tíð. Þín dóttir Sigurbjörg. Elsku pabbi minn. Það var alltaf erfitt að kveðja þig, röddin brast og þú horfðir á eftir okkur með tárin í augunum. Nú grátum við ein. En þó ég kveðji þig með tárum ætla ég að reyna að ein- beita mér að því að minnast þín ætíð með þakklæti frekar en með sorg í huga. Vera þakklát fyrir allt sem þú gafst mér og allt sem þú varst mér. Þakklát fyrir öll góðu árin okkar saman, í leik og starfi. Þakklát fyrir öll tækifærin sem þú gafst mér til að upplifa og þroskast. Þakklát fyrir það hvað þú stóðst alltaf með mér og fyrirgafst mér umyrðalaust allar mínar misgjörðir. Þakklát fyrir það hvað þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa mér og hvetja mig til dáða og fyrir allt örlætið sem þú sýndir mér. Og þakklát fyrir hvað þú hafðir allt- af mikla trú á mér. Það einkenndi þig ólýsanlegur kraftur og persónulegur styrkur allt til dauða. Þú varst svo eftirtektar- verð manneskja. Dugnaður og atorka einkenndi þig alla tíð. Það var aldrei lognmolla í kringum þig, galsast og sprellað og rökrætt af festu en aldrei í illu, alltaf gaman og mikið hlegið. Þú varst vel upplýstur um málefni líðandi stundar og lást ekki á skoðunum þínum. En þú varst alltaf heiðarlegur. Og þú kenndir mér margt. Þín takmarka- lausa virðing fyrir náttúrunni í kringum okkur, umhverfi okkar, landi og þjóð. Og ást þín til mömmu, til okkar krakkanna og síðar fjöl- skyldna okkar, hún var svo einlæg og skilyrðislaus. Þú varst ákaflega kærleiksrík manneskja og var um- hyggja gagnvart samferðarfólki þínu til marks um það. Þú varst mér aldrei reiður, aldrei alvarlega, skammaðir mig aldrei heldur leið- beindir og að því bý ég alla ævi. Ég hefði viljað hafa þig svo mikið lengur hjá mér en ég átti líka yndisleg ár með þér og fyrir það ber mér að þakka. Yndislegi pabbi minn, þú varst fyrirmynd mín. Ég ætla að reyna að vera dugleg, heiðarleg og góð manneskja – eins og þú. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem.) Þín elskandi dóttir, Guðlaug Elskulegur faðir minn, Árni Stef- ánsson, lést að morgni páskadags. Pabbi var „stór“ manneskja og það er því vel við hæfi að hann skyldi kveðja sitt jarðneska líf á einum stærsta degi ársins. Fyrsta minning mín um pabba tengist jólagjöf sem ég fékk frá hon- um þegar ég var lítil stelpa, það var regnkápa sem var allt of stór og ég man að mér fannst mjög skrítið að einhver gæti verið pabbi manns en ekki vitað hvað maður væri stór. Nokkrum árum síðar fór ég á fyrsta Árni Stefánsson ✝ Helga ÞuríðurMarsellíusdóttir fæddist á Ísafirði 24. nóvember 1930. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Ísafirði 20. mars síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Al- berta Albertsdóttir, f. 11. febrúar 1899, d. 24. febrúar 1987 og Marsellíus Sig- urður Guðbrandur Bernharðsson skipasmíðameistari á Ísafirði, f. 16. ágúst 1897, d. 2. febrúar 1977. Systkin Helgu sammæðra, Jónína, f. 1922, Stefanía Áslaug, f. 1923 og Kristján, f. 1924, d. 2001, alsystkin Guðmundur, f. 1927, d. 1994, Kristín, f. 1928, Sigríður Guðný, f. 1929, d. 1930, Kristinn, f. 1932, d. 1932, Högni, f. 1933, Bettý, f. 1935, d. 2005, Þröstur, f. 1937, Sigurður Magni, f. 1940, d. 1994, og Mes- síana, f. 1942. Dóttir Helgu og Jens Péturs- sonar frá Neskaupstað er Áslaug Jóhanna, f. 26. júní 1958, maki Magnús H. Alfreðsson, f. 8. júlí 1956, dætur þeirra Helga Þuríður, f. 14. júlí 1979 og Rakel Guðbjörg, f. 9. maí 1982, maður Rakelar, Davíð Egilsson, dætur þeirra Dag- björt Stjarna, f. 6. nóvember 2004 og Anna Sól, f. 6. október 2005. Helga giftist 23. október 1970 ember 1953, dóttir hans Guri Jea- nett, f. 8. ágúst 1995. Helga ólst upp fyrstu árin og fram að unglingsaldri að Að- alstræti 15 á Ísafirði, Miðkaup- stað, en eftir það bjó hún allan sinn aldur að Austurvegi 7, Hæsta- kaupstað, í húsinu sem foreldrar hennar reistu sér og fjölskyldunni. Ung að árum fór hún að fara í sendiferðir, í innkaup og með nesti fyrir pabba sinn og „karlana“ hans í Neðsta, í skipasmíðastöðina hans. Þrátt fyrir vanheilsu, hélt hún sínu striki. Hennar ævistarf var á heim- ili foreldranna, við heimilisstörf og umönnun. Hún sinnti um tíma ræstingum í Skipasmíðastöðinni. Hún stofnaði ásamt fleirum Sjálfs- bjargarfélag á Ísafirði 1958 og gaf mikið af sér á meðan starfsemi þess var í blóma. Eftir hana liggur mikið af hannyrðum, bæði útsaum- ur og hekl. Þótt ótrúlegt þyki þá kunni hún ekki að prjóna og hafði ekki áhuga á að læra það. Heklu- nálin lék í höndum hennar og vafð- ist ekki fyrir henni að gera hin ýmsu listaverk. Eftir að kviknaði í Ísafjarðarkirkju 1987 var hún fengin til að hekla utan um kirkju- dúka. Hún lét ekki þar við sitja, þegar upp var staðið fylltu kirkju- dúkarnir sennilega tvo tugi, í kap- elluna sem var í Menntaskólanum, kapelluna í Sjúkrahúsinu á Ísa- firði, kapelluna í Hnífsdal og Ísa- fjarðarkirkju, en þar er stærsti dúkurinn sem prýðir altarið, út- saumaður og sérhannaður, við hönnun hans naut hún aðstoðar Þórðar mannsins síns. Útför Helgu verður gerð frá Ísa- fjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Þórði Péturssyni húsasmíðameistara á Ísafirði, f. 25. júlí 1925, foreldrar hans voru Sigríður Guð- mundsdóttir og Pét- ur Pálsson Hafn- ardal. Sonur Helgu og Þórðar er Finnur Guðni, f. 12. sept- ember 1972, kona hans er Aðalheiður María Þráinsdóttir, f. 8. nóvember 1973, börn þeirra eru Aldís Rós, f. 6. september 1996, Auðun Ingi, f. 8. júlí 1999 Hrólfsbörn og Baldur Már Finnsson, f. 16. sept- ember 1999. Synir Þórðar frá fyrra hjónabandi eru: 1) Hilmar Friðrik, f. 22. sept. 1946, kvæntur Guðmundu Brynjólfsdóttur, f. 27. apríl 1948, synir þeirra eru: a) Þórður Guðjón, f. 31. janúar 1967, maki Aðalheiður Ásgeirsdóttir, f. 13. júlí 1966, börn þeirra eru Hilm- ar Þórðarson, f. 16. október 1995 og Gísli Rúnar Víðisson, f. 27. sept- ember 1983, og b) Brynjólfur, f. 24. mars 1974. 2) Pétur Sigurður, f. 2. desember 1949, maki Kristín Gunnlaugsdóttir, f. 25. maí 1952, börn: a) Guðríður, f. 16. maí 1974, maki Sigurður Smárason, f. 23. febrúar 1969, börn Pétur Smári, f. 7. júlí 1998 og Ívar Þór, f. 23. mars 2002, og b) Gunnlaugur, f. 25. ágúst 1978. 3) Níels Jón, f. 7. des- Móðir mín var einstök kona. Hún var mjög hláturmild og glaðleg. Hún var með djúpa spékoppa sem voru hennar sérkenni, auk brúnu augn- anna. Þegar ég var lítil fannst mér mamma mín svo falleg, litrík, með dökka húð og hár. Þrátt fyrir að hún hafi átt við vanheilsu að glíma mest- an hluta ævinnar, þá kvartaði hún ekki. Hún var vön að vera með verki og ýmis óþægindi. Vinstri fóturinn á henni var mun styttri og þurfti að setja upphækkun undir skóna henn- ar. Á unglingsárunum leitaði hún sér lækninga í Reykjavík, var m.a. í æf- ingum hjá Jóni Þorsteinssyni á Lindargötunni og fór í aðgerðir á Landspítalanum. Þegar hún var á átjánda ári dvaldi hún lengi þar syðra. Þegar móðir mín var að alast upp var ekki lögð áhersla á að fólk með fötlun fetaði menntaveginn. Hún gekk tvo vetur til prests varð- andi fermingarundirbúning og fermdist með þeim sem voru ári yngri en hún. Þetta gerði það að verkum að hún mundi aldrei hverjir voru jafngamlir henni eða hverjir voru fermingarsystkin. Mér fannst alltaf að þetta hafi angrað hana. Í bernskuminningu minni sátu þær mamma og amma hvor í sínum stólnum í stofunni við iðju sína. Það liggja mörg stykkin eftir þær mæðg- ur, mest útsaumur og hekl. Mamma var ötul baráttukona innan Sjálfs- bjargar á sjötta áratugnum. Um tíma stýrði mamma föndri og leið- beindi á námskeiðum, m.a. á Austur- landi. Afi var með umboð fyrir Gunnar Ásgeirsson hf, sem seldi m.a. Hus- quarna-saumavélar. Mamma fór suður á námskeið svo hún gæti tekið að sér viðgerðir á þeim og kennslu. Hún gætti mikið systkina sinna og systkinabarna, m.a. dætra Áslaugar, systur sinnar, sem bjó um tíma í Neskaupstað. Þar kynntist hún föð- ur mínum, Jens Gunnari Péturssyni, en þau bjuggu aldrei saman. Hún gantaðist oft með það að hún hefði átt mig fyrir sig, en yngri bróður minn fyrir pabba hans. Ég var aldrei látin finna fyrir því að vera getin utan hjónabands. Við mæðgurnar áttum gott atlæti á heimili ömmu og afa. Við vorum meira eins og vinkonur, mjög nánar og ræddum alla hluti hvor við aðra. Mamma sá um að halda heimilinu hreinu, auk þess sem hún var með ömmu í þvottum og við eldhúsverk- in. Þegar ég var lítil, bakaði hún einu sinni í viku og þurfti að læsa kök- urnar inni svo bræður hennar klár- uðu ekki strax birgðirnar! Þegar ég var tólf ára giftist mamma eftirlif- andi manni sínum Þórði Péturssyni húsasmíðameistara frá Hafnardal í Ísafjarðardjúpi. Þau bjuggu allan sinn búskap í húsinu sem afi og amma reistu yfir sig og fjölskylduna að Austurvegi 7 á Ísafirði. Þórður átti áður synina Hilmar, Pétur og Níels sem kom síðar einnig inn á heimilið til okkar. 1987 eftir að amma dó, flutti ég og fjölskylda mín á Austurveginn og vorum við ná- grannar allar götur síðan. Það var mjög gott fyrir dæturnar að eiga ömmu og afa „uppi“, mamma var alltaf boðin og búin að aðstoða okk- ur. Þegar dætur okkar voru litlar passaði mamma þær og Finnur bróðir sótti þær á leikskólann. Hann var meira eins og bróðir þeirra, enda lítið eldri en þær. Þórður afi var líka afinn sem þær þekktu mest og best. Áslaug Jóhanna Jensdóttir. Það er laugardagurinn 7. janúar 1978. Ég var að koma í fyrsta sinn til Ísafjarðar, eftir að hafa kynnst stúlku sem bauð mér í heimsókn. Þar hitti ég fyrir í fyrsta sinn tengdamóður mína til 30 ára. Það er mér í fersku minni, þar sem hún stóð inni í eldhúsi að elda hádegismatinn, klædd í stuttermabol og stretsbux- ur, s.s. í vinnugallanum. Þannig var hún Helga Þuríður, ekkert með sýndarmennsku heldur kom hún til dyranna eins og hún var klædd. Helga byrjaði snemma að hjálpa til á sínu æskuheimili sem var fjöl- mennt og þar var einnig mikill gestagangur. Þá þurfti að þvo þvotta, strauja skyrtur og taka til hendinni eins og við bakstur. Hún var einnig mikil handverks- og hann- yrðakona. Helga heklaði mikið um dagana, það liggur eftir hana mikið magn af dúkum og alls konar dúllur sem hún gaf vinum og ættingjum. Hjá henni Helgu voru þau kjörorð að sælla er að gefa en þiggja! Ung að árum lærði hún að vinna úr horni og beinum, hluti eins og skeiðar, hnífa, nælur og fleira – seinna kenndi hún þessi handbrögð. Hún var líka með kennslu á Hus- qvarna-saumavélar en Þórður mað- ur hennar gerði við þessar sauma- vélar enda voru þau hjónin með umboð fyrir þessar vélar. Hún Helga var alla tíð heimavinn- andi húsmóðir, fyrst sem hjálpar- hella foreldra sinna, síðar á sínu eig- Helga Þuríður Marsellíusdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.