Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ MESSUR Á MORGUN ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Ferming. Kór Ás- kirkju syngur, organisti Magnús Ragnars- son. Sunnudagaskólinn fellur niður að þessu sinni. Sóknarprestur. BESSASTAÐAKIRKJA | Fermingarmessur laugardag 29. mars kl. 10.30 og sunnudag 30. mars kl. 13. Sameiginlegur sunnu- dagaskóli Bessastaða- og Garðasóknar sunnudag kl. 11 í Bessastaðakirkju. Söng- ur og samfélag. BRAUTARHOLTSKIRKJA, Kjalarnesi | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Kristín Þór- unn Tómasdóttir og Rannveig Ásgeirsdóttir sjá um stundina. Gunnar Kristjánsson sóknarprestur. BREIÐHOLTSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11 í umsjá Jóhanns Axels, Nínu Bjargar og Lindu Rósar. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir. Eldri barnakór syngur undir stjórn Gunnhildar Höllu Baldursdóttur. Hressing í safnaðarheimili á eftir. Tómasar- messa kl. 20. Orð Guðs, fyrirbæn, máltíð Drottins, fjölbreytt tónlist. Kaffisopi eftir messu. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Páll Kr. Pálsson segir frá Afríkuferð og sýnir myndir. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Re- nata Ivan, kór Bústaðakirkju syngur, prest- ur sr. Pálmi Matthíasson. Aðalsafnaðar- fundur Bústaðasóknar eftir messu. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Magnús Björn Björnson, organisti Kjart- an Sigurjónsson, kór Digraneskirkju, A-hóp- ur. Sunnudagaskóli á sama tíma í kapellu á neðri hæð. Léttar veitingar í safnaðarsal eftir messu. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, sr. Anna Sig- ríður Pálsdóttir prédikar, Dómkórinn syng- ur, organisti er Marteinn Friðriksson. Barnastarf á kirkjuloftinu meðan á messu stendur. FELLA- OG Hólakirkja | Sunnudagaskóli kl. 11. Mikill söngur, umsjón hefur Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni. Fermingarguðsþjón- usta kl. 14. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson, kór kirkjunnar syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guð- nýjar Einarsdóttur, kantors kirkjunnar. Með- hjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Þriðjudag- inn 1. apríl verður kyrrðarstund kl. 12. Kirkjustarf eldri borgara er kl. 13-16. Ágúst Ísfeld sýnir myndir úr starfinu. FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl. 11. Stund fyrir alla fjölskylduna. Æðru- leysismessa kl. 20. Fríkirkjubandið leiðir tónlist og söng. Kaffi í safnaðarheimilinu að lokinni guðsþjónustu. FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11. Kennsla, söngur, leikir o.fl. Almenn samkoma kl. 14. Helga R. Ármannsdóttir prédikar, lofgjörð, barnastarf og fyrirbænir. Að samkomu lokinni verður kaffi og sam- félag. Einnig verður verslun kirkjunnar, Brunnurinn, opin. FRÍKIRKJAN, Reykjavík | Fermingarmessa kl. 14. Fermd verða sex ungmenni: Eggert Davíð Jóhannsson, Sunna Rós Jóhanns- dóttir, Alexander Máni Ragnarsson, Halldór Ingi Herbertsson, Ragnar Auðun Árnason og Guðbjörg Sylvía Hjörleifsdóttir. Hjörtur Magni Jóhannsson þjónar fyrir altari og pre- dikar, tónlistina annast tónlistarstjórarnir Anna Sigríður Helgadóttir og Carl Möller. FÆREYSKA sjómannaheimilið | Samkoma kl. 17 á Örkinni, Brautarholti 29. Söngur, predikun og Jóan Karl Högnesen frá Klaks- vik kemur í heimsókn. Kaffi og spjall eftir samkomu. GRAFARVOGSKIRKJA | Ferming kl. 10.30 og 13.30. Sr. Vigfús Þór Árnason, sr. Bjarni Þór Bjarnason og sr. Lena Rós Matthías- dóttir. Sunnudagaskóli kl. 11. Prestur Lena Rós Matthíasdóttir, umsjón Hjörtur og Rúna, undirleikari Stefán Birkisson. Borgarholtsskóli | Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón Gunnar og Dagný, Undirleikari Guð- laugur Viktorsson. GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10, bænastund 10.15. Barnastarf kl. 11 í umsjá Lellu, Lilju o.fl. Messa kl. 11. Alt- arisganga, samskot í Líknarsjóð. Messu- hópur. Molasopi eftir messu. Fermingar- messa kl. 13.30. Félagar úr kirkjukór leiða söng í báðum athöfnum, organisti Árni Ar- inbjarnarson. Prestar sr. Ólafur Jóhanns- son og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. GRUND dvalar- og hjúkrunarh. | Guðsþjón- usta kl. 14. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir messar, organisti Sólborg Valdimarsdóttir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fermingar- messur kl. 10.30 og 14. Prestar sr. Gunn- þór Þ. Ingason og sr. Þórhallur Heimisson. Kantor Guðmundur Sigurðsson, Kór: Bar- börukórinn í Hafnarfirði. Sunnudagaskóli í Hvaleyrarskóla kl. 11. HALLGRÍMSKIRKJA | Fermingarmessa kl. 11. Barnastarf á sama tíma. Sr. Birgir Ás- geirsson, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson og Magnea Sverrisdóttir djákni þjóna í mess- unni. Fermingarstúlkan María Ingibjörg McGinley leikur á fiðlu og Mótettukór Hall- grímskirkju syngur, organisti Hörður Ás- kelsson. Barnastarf á sama tíma. HÁTEIGSKIRKJA | Fermingarmessa kl. 10.30, prestarnir. Organisti Douglas A Brotchie. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Erla Guðrún og Páll Ágúst. HJALLAKIRKJA | Fermingarmessur kr. 10.30 og 13.30. Prestar kirkjunnar þjóna. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng, organisti Jón Ólafur Sig- urðsson. Sunnudagaskóli í neðri safnaðar- sal kl. 13. Bæna- og kyrrðarstund á þriðju- dag kl. 18. Nánar á www.hjallakirkja.is. HJÁLPRÆÐISHERINN, Akureyri | Sunnu- dagsskóli kl. 11. Samkoma kl. 17. Valdís Anna Jónsdóttir talar. HJÁLPRÆÐISHERINN, Reykjavík | Sam- koma kl. 20 í umsjá Anne Marie Reinholdt- sen. Gídeonfélagar kynna starf félagsins og fórn verður tekin til Gídeonfélagsins. Heimilasamband fyrir konur mánudag kl. 15. Kvöldvaka fimmtudag 4. apríl kl. 20 með happdrætti og veitingum. Opið hús kl. 16-17.30 þriðjudaga til laugardaga. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Almenn samkoma kl. 16.30. Afmælissamkoma í umsjá U.N.G.-starfsins. Aldursskipt barna- kirkja á meðan á samkomu stendur, börn á aldrinum 1-13 ára. ÍSLENSKA KIRKJAN í Svíþjóð | Guðsþjón- usta í V-Frölundakirkju í Gautaborg kl. 14. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Orgel- leik annast Tuula Jóhannesson, Ingibjörg Guðlaugsdóttir leikur á básúnu, altaris- ganga. Barnasögustund með Birnu. Kirkju- kaffi. Sr. Ágúst Einarsson. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN | Barnastarf kl. 11. Fræðsla fyrir fullorðna. Ólafur Knútsson kennir „Heilbrigðan metnað“. Samkoma kl. 20 með lofgjörð og fyrirbæn- um. Vilborg R. Schram predikar. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og laugardag kl. 18. Kapúsínaklaustrið á Kollaleiru, Reyðarf. | Messa kl. 11. Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30. Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8. Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14. Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30 og á ensku kl. 18. Virka daga er messa kl. 18. Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga er messa á latínu kl. 8.10. Laugardaga er barnamessa kl. 14 að trúfræðslu lokinni. Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka daga kl. 18.30. Ísafjörður | Messa kl. 11. Flateyri | Messa 2. og 3. sunnudag í mán- uði kl. 16. Suðureyri | Messa 1. og 4. sunnudag í mánuði kl. 16. Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laugardaga er messa á ensku kl. 18.30. Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16, miðvikudaga kl. 20. KEFLAVÍKURKIRKJA | Fermingarmessa kl. 11. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Hákonar Leifssonar, prestur er sr. Sigfús Baldvin Ingvason. KFUM og KFUK | Vitnisburðarvaka verður kl. 20. KIRKJA Sjöunda dags aðventista | Sam- eiginleg samkoma v/heimsóknar Raafat Kamal í Loftsalnum, Hólshrauni 3, Hfj. Samkoman hefst kl. 11. Máltíð að sam- komunni lokinni. Raafat verður einnig með fyrirlestur sem hefst kl. 14. Ath.: vegna þessa fellur samkomuhald niður í Reykja- vík, Reykjanesbæ og á Selfossi. Samfélagið á Akureyri mun hittast í Sunnu- hlíð, í sal KFUM/K kl. 10.30. Biblíurann- sókn og hugleiðing, Ómar Torfason. Þá verður Biblíurannsókn í Vestmannaeyj- um sem hefst kl. 10.30 í Kirkjunni að Brekastíg. KÓPAVOGSKIRKJA | Ferming kl. 11 með altarisgöngu. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn organista kirkjunnar Lenku Má- téovú, prestur sr. Auður Inga Einarsdóttir. Sunnudagaskóli í Kópavogskirkju kl. 12.30 undir stjórn Sigríðar Stefánsdóttur. Þorkell og Örn Ýmir sjá um undirleik og brúðuleik- rit. LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta á Hringbraut kl. 10.30 á 3ju hæð. Prestur Gunnar Rúnar Matthíasson og organisti er Helgi Braga- son. LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Ferming. Barnastarfið verður í safn- aðarheimilinu allan tímann undir stjórn Rutar og Steinunnar. Prestar sr. Jón Helgi Þórarinsson og sr. Petrína Mjöll Jóhannes- dóttir. Kór Langholtskirkju syngur, organisti Jón Stefánsson. LAUGARNESKIRKJA | Fermingarmessa kl. 11. Sunnudagaskólinn verður á sama tíma í leikfimisal Laugarnesskóla. Klæðnaður barnanna taki mið af því að farið verður í hlaupaleiki. Guðsþjónusta kl. 13, í salnum að Hátúni 10, 9. hæð. Guðrún K. Þórsdóttir djákni þjónar ásamt sóknarpresti, organ- ista og hópi sjálfboðaliða. Harðjaxlar halda fund kl. 13 (7. bekkur). Aðalfundur safn- aðarins verður haldinn sunnudaginn 6. apr- íl kl. 12.30. LÁGAFELLSKIRKJA | Fermingarguðsþjón- ustur kl. 10.30 og 13.30. Prestarnir. LINDASÓKN í Kópavogi | Fermingar í Hjallakirkju kl. 10.30 og 13.30, laugardag- inn 29. mars. Fjölskylduguðsþjónusta í Salaskóla kl. 11. Í guðsþjónustunni sýnir Helga Steffensen brúðuleikritið Vinátta. Prestur er Guðmundur Karl Brynjarsson. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju leiða safnaðar- söng, organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Börnin byrja í messunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Sögur, söngur og brúður. Umsjón Sigurvin, Björk og Ari. Kaffi, súpa og brauð á Torginu eftir messu. Fermingarmessa kl. 13.30. Fé- lagar úr kór Neskirkju leiða safnaðarsöng, organisti Steingrímur Þórhallsson, prestar sr. Örn Bárður Jónsson og sr. Sigurður Árni Þórðarson. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri | Sunnudaga- skóli kl. 11. Umsjón hafa Brynja Vigdís Þor- steinsdóttir, Dagmar Kunakova og Jenný Þórkatla Magnúsdóttir. SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17. „Nú er uppskerutími“. Ræðumaður er Her- mann Bjarnason. Lofgjörð og fyrirbæn. Barnastarf. SAUÐÁRKRÓKSKIRJA | Fermingarmessa kl. 11. Prestur Sigríður Gunnarsdóttir, org- anisti Rögnvaldur Valbergsson, kór Sauð- árkrókskirkju leiðir söng. SELFOSSKIRKJA | Fermingarmessa kl. 11. Sr. Gunnar Björnsson. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Söngur, saga og mynd. Fermingarguðs- þjónusta kl. 14. Sr. Bolli Pétur Bollason prédikar, kirkjukórinn leiðir almennan söng, organisti Jón Bjarnason. SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr Kammerkór kirkjunnar leiða tónlistarflutning undir stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar organista. Sunnu- dagaskólinn er á sama tíma og æskulýðs- félagið kl. 20. Prestur er Sigurður Grétar Helgason. VEGURINN, kirkja fyrir þig | Samkoma kl. 11. Kennsla fyrir alla aldurshópa, Jón Sig- urjónsson kennir. Létt máltíð að samkomu lokinni. Bænastund kl. 18.30. Samkoma kl. 19, Högni Valsson predikar. Lofgjörð og fyrirbæn. Samfélag í kaffisal á eftir. www.vegurinn.is VÍDALÍNSKIRKJA | Fermingarmessur laug- ardaginn 29. mars kl. 13 og kl. 15 og sunnudag 30. mars kl. 10.30. Sunnudaga- skólinn fer í heimsókn í Bessastaðakirkju. Þar verður sameiginlegur sunnudagaskóli Bessastaða- og Garðasóknar. Farið í rútu frá Vídalínskirkju kl. 10.45 og til baka að lokinni athöfn. Söngur, gleði og samfélag. VÍÐISTAÐAKIRKJA Hafnarfirði | Ferming- arguðsþjónusta kl. 10.30. Kór Víðistaða- sóknar syngur undir stjórn Aðalheiðar Þor- steinsdóttur. Einsöngur Sigurður Skag- fjörð, trompet Eiríkur Örn Pálsson. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Sunnudagaskólinn kl. 11. Umsjón hafa Hanna Vilhjálmsdóttir, Ástríður Helga Sigurðardóttir og María Rut Baldursdóttir. Morgunblaðið/Arnaldur Kópavogskirkja. (Jóh. 20) Orð dagsins: Jesús kom að luktum dyrum. EFTIR að Skáksamband Íslands stóð fyrir dagskrá tileinkaðri minn- ingu Bobbys Fischers á dögunum spannst nokkur umræða um þau um- mæli Borísar Spasskís að tölvutækn- in hefði eyðilagt skákina. Tölvur geta og hafa tekið yfir fjölmörg svið þar sem sköpun mannsins var áður talin hafa náð hæstum hæðum. Garrí Kasparov tapaði fyrir Dimmblárri ár- ið 1997 og þá var sagt að síðasta vígið hefði fallið. Síðan hafa fjölmörg slík einvígi farið fram. Kasparov gerði jafntefli, 3:3, við Deep Junior árið 2003 og Kramnik gerði jafntefli, 4:4, við Deep Fritz árið 2002. Lengra hef- ur maðurinn ekki komist í keppni við bestu forritin. Því er nú spáð að árið 2050 verði tölvan búin að „tæma“ skákina. Það sem blasir við er að tölv- unni hefur tekist að sanna að óhugs- andi er að einhver maður geti nokk- urn tíma náð fullkomnun í skáklistinni. Dimmblá gat metið/ sundurgreint 200 milljón stöður á sekúndu þegar hún tefldi við Kasp- arov. Á ýmsum tímum verið nefndir til sögunnar skákmenn sem talið var að hefðu náð fullkomnun í skáklist- inni: Capablanca, Fischer og Kasp- arov svo dæmi séu tekin. Tölvan hef- ur sannað að um slíkt var aldrei að ræða. Fullkomnun er ekki skilyrði Fullkomlega tefld skák er sjaldan skemmtileg. Bestu og skemmtileg- ustu skákir sem tefldar hafa verið eru gallaðar. Dramatískasta viðureign allra heimsmeistaraeinvígja var 13. skák Spasskís og Fischers 1972. Mis- tök keppenda, sem voru ófá, gerðu þessa skák einmitt svo stórfenglega: Heimsmeistaraeinvígi 1972 13. einvígvígisskák: Sjá stöðumynd 1 Spasskí – Fischer Skákin hafði farið í bið eftir 41 leik og æsispennandi baráttu. Fischer mun hafa „legið yfir biðskákinni“ langt fram á morgun. Við upphaf þeirrar vinnu rak hann séra Lomb- ardy tímabundið því klerkurinn var með kvef. Það sem gerðist eftir að skákin hófst að nýju föstudaginn 10. ágúst tók fram öllum væntingum manna. Staðan á myndinni var auð- vitað alveg stórfurðuleg. Svartur er manni undir og hrókurinn í þokkabót lokaður inni á g8. Frelsingjarnir fimm tryggja hins vegar einhvers konar ógnarjafnvægi. Í þeirri ákvörðun sem Fischer tók fólst hugs- un sem er skemmtilega fjarstæðu- kennd 64. … h1(D)!? Forritið Shredder telur að eftir 64. … f4 standi til vinnings sé leikið. Nálgun Fischers var önnur; hann fórnaði peði til þess að ryðja kóng- inum braut. Það kom flatt upp á menn þá og tölvuforrit í dag. Fram- hald skákarinnar verður ekki skýrt frekar, Spasskí missti af jafntefli með 69. Hd1+ og Fischer knúði fram sigur með nokkrum hnitmiðum leikj- um: 65. Hxh1 Kd5 66. Kb2 f4 67. Hd1+ Ke4 68. Hc1 Kd3 69. Hd1+?? Ke2 70. Hc1 f3 71. Bc5 Hxg7 72. Hxc4 Hd7 73. He4+ Kf1 74. Bd4 f2 – og Spasskí gafst upp. „Toiletgate“ Viðskipti tveggja af fremstu skák- mönnum heims, Vladimírs Kramniks og Veselins Topalovs, sýna í hnot- skurn þá breytingu sem orðið hefur á undirbúningi skákmanna og einnig þeirri tortryggni sem getur skapast á skákmótum. „Toiletgate“ var hneykslið kallað sem varðaði heims- meistaraeinvígi þeirra í Elista í Kalmykíu haustið 2006. Kramnik dvaldi þá langdvölum á salerninu á milli leikja og kominn þaðan hristi hann fram úr erminni langbesta leik- inn í stöðunni, að sögn Topalov. Tæknilega eru möguleikar á ósýni- legum fjarskiptabúnaði fyrir hendi. En ástandið skapaði óþolandi tor- tryggni fyrir mikilvægan viðburð: Wijk aan Zee 2008: Topalov – Kramnik 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6 5. Bg5 h6 6. Bh4 dxc4 7. e4 g5 8. Bg3 b5 9. Be2 Bb7 10. 0–0 Rbd7 11. Re5 Bg7 Sjá stöðumynd 2 12. Rxf7!? Topalov hafði beðið með þennan leik í tvö ár og hann var byggður á sálfræðilegu innsæi, útreikningum fjölmargra forrita sem áttu í miklum erfiðleikum með mat á þeim stöðum sem komu upp í framhaldinu. Langt fram eftir skákinni þurfti Topalov að- eins að muna niðurstöður forritanna en hann reyndi að hraða taflmennsku sinni sem mest svo Kramnik kæmist ekki á salernið! 12. … Kxf7 13. e5 Rd5 14. Re4 Ke7 15. Rd6 Db6 16. Bg4 af8 17. Dc2 Dxd4 18. Dxg6 Dxg4 19. dxg7 Kd8 20. Rxb7+ Kc8 21. a4 b4 22. hac1 c3 23. bxc3 b3 24. c4 Hfg8 25. Rd6+ Kc7 26. Df7 Hf8 27. cxd5 Hxf7 28. Hxc6+ Kb8 29. Rxf7 He8 30. Rd6 Hh8 31. Hc4 De2 32. dxe6 Rb6 33. Hb4 Ka8 34. e7 Rd5 35. Hxb3 Rxe7 36. Hfb1 Rd5 37. h3 h5 38. Rf7 Hc8 39. e6 a6 40. Rxg5 h4 41. Bd6 Hg8 42. H3b2 Dd3 43. e7 Rf6 44. Be5 Rd7 45. Re6 – og Kramnik gafst upp. Á Amber-mótinu sem lauk á fimmtudaginn vann ermski stór- meistarinn Lev Aronjan yfirburða- sigur. Hann hlaut 13½ v. af 20 mögu- legum. Í 2.-5. sæti voru Magnús Carlsen, Veselin Topalov, Vladimir Kramnik og Peter Leko með 12 vinninga. Sennilega verður þessa móts minnst vegna drottningarfórnar sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og fær mann til að brosa í kampinn og rifja upp kynni sín af Tal og fleiri góðum mönnum. Ivantsjúk veit að það er enn heilmikið pláss fyrir nýjar hugmyndir; Tal var vanur að fórna riddara eða biskupi á e6 en Ivantsjúk lét drottninguna vaða fyrir tvö peð: Amber-mótið 2008 Vasilí Ivantsjúk – Sergei Karjakin Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bc4 e6 7. Bb3 b5 8. Bg5 Be7 9. Df3 Dc7 10. e5 Bb7 11. exd6 Bxd6 12. De3 Bc5 13. 0–0 Rc6 Sjá stöðumynd 3 14. Dxe6+ fxe6 15. Rxe6 De5 16. Rxg7+ Kf8 17. Re6+ Kf7 18. Hhe1 Dxe1 19. Rxc5+ Kg6 20. Hxe1 Kxg5 21. Rxb7 Rd4 22. Rd6 Hhf8 23. f3 b4 24. Rce4+ Rxe4 25. Hxe4 Rxb3+ 26. axb3 a5 27. Hg4+ Kf6 28. Re4+ Ke5 29. Hh4 a4 30. bxa4 Hxa4 31. Rc5 Ha1+ 32. Kd2 Hg8 33. g3 Hf1 34. Ke2 Hb1 35. Hxb4 Kd5 36. Re4 Kc6 37. h4 Hh1 38. Hc4 Kb6 39. b4 Hd8 40. Hc5 Ha8 41. c3 Ha2 42. Ke3 He1+ 43. Kf4 Hf1 44. Hh5 Ha8 45. Hh6+ Kb5 46. Rd6+ Ka4 47. Hxh7 Kb3 48. Hc7 Hd8 49. Rf5 – og Karjakin gafst upp. Tölvur og tortryggni Stöðumynd 1 Stöðumynd 2 Stöðumynd 3 SKÁK Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.