Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Ný sending Kjólar - jakkar - silkidragtir buxur - peysur - bolir Málfundafélagið Óðinn í Reykjavík verður 70 ára í ár og af því tilefni verður afmælishátíð í Valhöll laugardaginn 29. mars milli kl. 17 og 19. Óðinn 70 ára Léttar veitingar á boðstólum. Allt sjálfstæðisfólk velkomið! Geir H. Haarde, forsætisráðherra, heldur hátíðarræðu og Illugi Gunnarsson, alþingismaður, verður veislustjóri. Nýja línan frá Fuchs-Schmitt Laugavegi 63 • S: 551 4422 Skoðið sýnishornin á www.laxdal.is Tækifæri í gamla Vesturbænum Útsýni Ljósvallagata 8 – 101 Reykjavík 3 herbergi – 71,2 fm Opið hús laug. 29. mars kl. 15-16 eða pantið skoðun Verð: 23.500.000 AG fasteignafélag – Upplýsingar í síma 847 6389 Sjá myndir: www.habil.is Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862 Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 M bl . 97 73 87 Vorkápur str. 42-56 Opið laugard. Bæjarlind 10.00-16.00 og Eddufell 10.00-14.00AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Eins og fyrr segir lagði lögreglu- stjóraembættið rekstraráætlunina fram hinn 11. febrúar sl. Samkvæmt starfsreglum verða stofnanir hins op- inbera sem vilja auknar fjárheimildir að gera tillögur þar að lútandi í febr- úar árið á undan, í þessu tilfelli í febr- úar 2007. Að sögn Eyjólfs er ástæðan fyrir því að óskin um viðbótarfjármagn barst svo seint einkum sú að miklir hnökrar voru á því þegar embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli var fært frá utanríkisráðuneytinu til dómsmálaráðuneytisins og sameinað lögreglunni í Keflavík. Önnur lög- reglulið hefðu unnið að sameining- unni allt árið 2006 en sýslumanns- embættið ekki verið kallað að starfinu fyrr en í árslok 2006. Þetta hefði sett alla undirbúningsvinnu fyrir fjárlög 2008 í uppnám og embættið í raun ekki haft forsendur til að skila ósk um viðbótarfjármagn fyrr en nú. Hann bætti við að embættið hefði nú þegar skilað inn ósk um aukafjárheimildir fyrir árið 2009 en þar er óskað eftir 287 milljóna króna hærri fjárveitingu. Eyjólfur sagði að m.a. vegna erf- iðleika við gerð rekstraráætlunar hefði dómsmálaráðuneytið skipað nefnd sem var m.a. ætlað að gera út- tekt á rekstri og fjármálaumsýslu lögreglustjórans á Suðurnesjum og aðstoða við gerð rekstraráætlunar. Áætlunin hefði verið unnin í fullu samstarfi við nefndina sem hefði fyrir sitt leyti fallist á að afhending utan- ríkisráðuneytisins á sýslumannsemb- ættinu og móttaka dómsmálaráðu- neytisins hefði verið illa útfærð. Umrædd nefnd var skipuð fulltrúa frá fjármálaráðuneytinu og Ríkisend- urskoðun auk annars sérfræðings. Samkvæmt upplýsingum frá dóms- málaráðuneytinu skilaði nefndin ekki formlegri skýrslu. Búnir að hagræða í botn Eyjólfur sagði að embættið gæti ekki hagrætt meira í rekstri, það væri komið yfir þau vatnaskil. Sú sárs- aukafulla hagræðing sem ætti sér stað hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu væri fyrir löngu yfirstaðin á Suðurnesjum. Þá sagðist hann óttast að samvinna lögreglu og tollgæslu myndi minnka ef embættinu væri skipt og tveir stjórnendur settir yfir það í stað eins. Það yrði þá væntan- lega rekið á aðskildum fjárlagaliðum sem gæti skapað margvíslegan vanda. Hann nefndi sem dæmi að í dag ynnu lögfræðingar embættisins bæði að saksókn sakamála og að tolla- málum „á sama deginum og við sama skrifborðið. Ég skipti þeim mönnum ekki upp svo létt,“ sagði hann. Eyjólf- ur sagði að fjárþörf embættisins yrði áfram til staðar, hvað sem liði skipt- ingunni. Hann kvaðst verulega ósátt- ur. „Ég kalla bara eftir því sem starfsmaður þessa embættis, sem þegn í þessu landi og sem sjálfstæð- ismaður í áratugi að Sjálfstæðisflokk- urinn standi við það sem hann lofaði á landsfundi á síðasta ári, að auka stuðning við löggæsluna í landinu eft- ir sameiningu lögregluembættanna. Sameining lögregluliðanna í landinu verður ekki giftusamleg fyrr en þessi aukni stuðningur kemur til.“ BÖÐVAR Jónsson, aðstoðarmaður Árna M. Mathiesen fjármálaráð- herra, segir að það verði einfald- lega að koma í ljós hvort breyting á tollgæslu á Suðurnesjum leiði til minni útgjalda fyrir ríkissjóð. „Ég get ekkert sagt um það á þessu stigi hvort þetta verði til þess að spara fjármuni,“ sagði Böðvar. Aðspurður sagðist hann ekki eiga von á því að stofnað yrði sérstakt embætti tollstjóra á Keflavík- urflugvelli, það væri raunar afar hæpið. Í athugun væri að sameina tollgæsluna á Keflavíkurflugvelli og tollstjórann í Reykjavík. Fyrir rúmlega ári var skipulagi tollamála umbylt með breytingu á lögum og tollumdæmum m.a. fækk- að úr 26 í 8. Yrði umdæmið á Kefla- víkurflugvelli fært undir tollstjór- ann, yrði aftur að breyta lögunum, að sögn Böðvars. Ráðuneytið væri að vinna í málinu og niðurstaðan yrði væntanlega kynnt í næstu viku. Auk þess að vera aðstoðarmaður fjármálaráðherra er Böðvar forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Hann segir að verði embættin sam- einuð felist í því heilmikil tækifæri fyrir tollgæsluna á Suðurnesjum. „Ef þetta verður stærra umdæmi get ég ekki séð annað en að það séu heilmikil tækifæri til að flytja verk- efni frá Reykjavík og á Suðurnes,“ sagði hann. Starfsmenn sem hafa sinnt ör- yggisgæslu á Keflavíkurflugvelli vegna flugverndar, s.s. vopnaleit og skimun á farangri, færast frá lög- reglustjóranum á Suðurnesjum yfir til samgönguráðuneytisins. Um 80 manns vinna við öryggisgæsluna. Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðu- neytisstjóri samgönguráðuneyt- isins, sagði ráðuneytið ágætlega í stakk búið til að taka við þessu verkefni. Hún sagðist ekki hafa upplýsingar um hversu miklir fjár- munir færðust yfir til ráðuneytisins vegna þessa. Verið væri að fara yfir málið í ráðuneytinu. Hún sagðist ekkert geta sagt um hvort ætlunin væri að spara fjármuni með þessum hætti. „Eðli málsins samkvæmt get ég engu svarað um það heldur. Við tökum við þessari starfsemi ná- kvæmlega eins og hún er, hún fær- ist bara yfir til Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli þannig að það verður engin breyting núna.“ Sameining við tollstjórann í Reykjavík í athugun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.