Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16. Sími 575 7700 • gerduberg@reykjavik.is Stefnumót við safnara III Hljómfagurt stefnumót við tónlistarmenn og hljóðfærasafnara! Sýningarstjórn: Anik Todd og Una Stígsdóttir Sjö landa sýn María Loftsdóttir, alþýðulistakona, sýnir vatnslita- stemmningar frá Argentínu, Bólivíu, Brasilíu, Íslandi, Japan, Perú og Skotlandi. Hið breiða holt Ljósmyndasýning þar sem unglingar eiga stefnumót við afa sína eða ömmur! Sýningarstjóri: Berglind Jóna Hlynsdóttir. Styrktaraðili: Beco Vissir þú... ...að í Gerðubergi er frábær aðstaða fyrir ráðstefnur, námskeið, fundi og veislur? Salir og fundarherbergi fyrir 8 - 120 manns. Sjá nánari upplýsingar: www.gerduberg.is, s. 575 7700. GERÐUBERG www.gerduberg.is Í Stóra planinu eru persónurnar sauðheimskar, geggjaðar eða hvort tveggja, nýja myndin hans Ólafs Jó- hannessonar fjallar um vel þekktar andhetjur: aula sem rembast við að vera eitthvað annað og meira en þeir eru, klárir og kaldir karlar. Bil- unin hefst þegar Davíð litli missir Badda bróður sinn í bílslysi, mamm- an fer á límingunum en Davíð tekur að æfa austurlenskar sjálfsvarnar- íþróttir. Árin líða, Davíð er orðinn óbrúk- legur handrukkari í ámóta vonlausu smákrimmagengi Magnúsar (Ingv- ar E.), ásamt Snata (Benedikt Erl- ingsson) og Wolf (Stefan Schaefer). Davíð, sem er aumastur aumra, smáður og niðurlægður, telur sig komast í feitt er hann fær leigt hjá Haraldi (Eggert Þorleifsson), dul- arfullum náunga sem gefur sig út fyrir að vera annað og meira en grunnskólakennari og snýst fram- vindan talsvert um vafasama per- sónu hans. Er hann gamli stór- krimminn sem hvarf til Mexíkó? Auðvitað er Haraldur andleg og líkamleg veimiltíta eins og aðrir í stórfurðulegri gamanmynd sem veltist stefnulaus áfram. Borin uppi af nett leiknum karakterum fullum sýndarmennsku á ytra borðinu í framvindu þar sem kylfa ræður kasti hvað gerist næst og er hlaðin af furðulegum uppákomum sem eru Kylfa ræður kasti Michael Imperioli og Pétur Jóhann „Gallinn við Stóra planið er sá að margræddur hringlandi verður einsleitur þegar líða tekur á myndina, sem slær varla feilpúst fram að hléi.“ KVIKMYNDIR Sambíóin um allt land Leikstjóri: Ólafur Jóhannesson. Handrit: Ólafur Jóhannesson, Stefan Schaefer og Þorvaldur Þorsteinsson. Framleiðendur: Helgi Sverrisson, Ólafur Jóhannesson. Framkvæmdastjóri: Kristín Andrea Þórð- ardóttir. Kvikmyndataka: Rune Kipper- vik. Klipping: Guðni Páll Sæmundsson, Ólafur Jóhannesson. Tónlist: Pavel E. Smid. Hljóð: Gunnar Árnason. Leikmynd: Linda Stefánsdóttir. Aðalleikendur: Pétur Jóhann Sigfússon, Eggert Þorleifsson, Ingvar E. Sigurðsson, Benedikt Erlings- son, Ilmur Kristjánsdóttir, Stefan Schae- fer, Michael Imperioli. Poppoli Kvik- myndafélag ásamt Kvikmyndamiðstöð Íslands í samvinnu við Sambíóin og Kukl. 87 mín. Ísland 2008. Stóra planið  AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.