Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
VERÐ á matvælum er núna nánast
það sama og það var áður en virð-
isaukaskattur á matvæli var lækk-
aður í byrjun síðasta árs. Það eru
hins vegar tveir útgjaldafrekustu lið-
ir heimilanna, húsnæðiskostnaður og
ferðir, sem hafa hækkað mest síðast-
liðið ár eða um 14%. Útgjöld vegna
þessara tveggja liða eru um 43,5% af
útgjöldum heimilanna en kostnaður
vegna matar og drykkjarvara nemur
hins vegar 12,5% af útgjöldunum.
Hagstofa Íslands birti í gær tölur
um þróun verðlags. Þær sýna að
verðbólga er að aukast. 12 mánaða
verðbólga er núna 8,7%, sem er
mesta verðbólga í fjögur ár. Mæling
Hagstofunnar var gerð í annarri viku
mars áður en gengi krónunnar
hrundi. Því má draga þá ályktun að
næsta mæling sýni enn hærri tölur.
Verð á fiski, ávöxtum og græn-
meti hækkar mikið
Í upphafi síðasta árs lækkuðu
stjórnvöld virðisaukaskatt á matvæli
og afnámu vörugjöld af allmörgum
vörum. Þessi lækkun kom fyrst fram
í mælingu Hagstofunnar í mars í
fyrra. Þá lækkaði verð á matvöru um
7,4% en nú hefur þessi lækkun öll
gengið til baka. Verð á drykkjar-
vörum er hins vegar enn umtalsvert
lægra en það var fyrir ári.
Verð á korni hefur hækkað veru-
lega á heimsmarkaði og þess gætir
greinilega í tölum Hagstofunnar.
Verð á brauði hefur hækkað um
12,3% á einu ári þrátt fyrir lækkun á
virðisaukaskatti. Pasta hefur hækk-
að um 27,6%, hveiti um 19,1% og
kökur um 13,9%.
Landbúnaðarvörur hafa hækkað
mun minna og raunar lækkuðu þær í
verði í marsmánuði. Kjötverð hefur
hins vegar hækkað um 5,2% á síð-
ustu 12 mánuðum. Þar er fyrst og
fremst um að ræða lambakjöt sem
hefur hækkað um 8,5%, en bæði
kjúklingar og svínakjöt hafa lítið
hækkað í verði þrátt fyrir að fóð-
urverð hafi hækkað mikið að und-
anförnu. Mjólkurvörur og egg hafa
sömuleiðis hækkað lítið eða aðeins
um 2,9%. Það mun hins vegar breyt-
ast mikið í næstu mælingu því verð á
mjólkurafurðum kemur til með að
hækka um 14,6% um næstu mán-
aðamót.
Verð á fiski hefur aftur á móti
hækkað mikið á síðustu 12 mánuðum
eða um 14,8%. Sömuleiðis hafa bæði
ávextir og grænmeti hækkað í verði.
Ávextir hafa hækkað um 15,1% og
grænmeti um 9,6%. Einstakar vörur
hafa hækkað mun meira. Þannig hef-
ur kál hækkað um 27,7%, kartöflur
um 24,5% og appelsínur um 28,4%.
Útgjöld vegna matvöru eru sam-
kvæmt mælingu Hagstofunnar
12,5% af útgjöldum heimilanna, en
þessi liður hefur lækkað hlutfallslega
á undanförnum árum. Á sama tíma
hafa útgjaldaliðir eins og húsnæði,
ferðir og tómstundir hækkað stöð-
ugt. Nú er svo komið að heimilin
verja litlu minna í að greiða fyrir
tómstundir og menningu en matvæli.
Undir tómstundir og menningu
flokkast íþróttaiðkun, bíó, leikhús,
bækur, blöð og pakkaferðir.
Stærstu tveir liðirnir í útgjöldum
heimilanna eru húsnæðiskostnaður
(28%) og ferðir og flutningar (15,5%).
Þetta eru líka þeir liðir sem hafa
hækkað mest á undanförnum 12
mánuðum. Húsnæðiskostnaður hef-
ur hækkað um 14,6% og ferðir og
flutningar um 13,5%. Fasteignaverð
og vextir af íbúðarhúsnæði (reiknuð
húsaleiga) hafa hækkað um 19,4% á
síðustu 12 mánuðum. Hækkun á
þessum liði á mestan þátt í aukningu
verðbólgunnar. Athyglisvert er að
þessi liður heldur áfram að hækka
þrátt fyrir að afar lítil viðskipti séu á
fasteignamarkaði. Verð á fasteignum
virðist því ekki vera að lækka neitt ef
marka má tölur Hagstofunnar.
Gríðarleg aukning hefur sömuleið-
is orðið á eldsneytiskostnaði. Verð á
bensíni hefur hækkað um 28,6% og
verð á dísil um 33,9%.
Verð á þjónustu hækkar um-
fram verðlag
Tölur Hagstofunnar sýna enn-
fremur að verð á ýmissi þjónustu
hækkar talsvert umfram almennar
verðlagshækkanir. Sem dæmi má
nefna að hjólbarðaverkstæði hafa
hækkað verð á sinni þjónustu um
9,2% á einu ári, kostnaður við við-
gerð og viðhald á bifreiðum jókst um
9,1%, verð á bifreiðaskoðun hækkaði
um 16%, viðgerð á tækjum hefur
hækkað í verði um 11,1%, verð á
klippingu hækkaði um 10,3% og
kostnaður við hreinsun og viðgerð á
fötum hefur aukist um 24,7%.
Einnig eru dæmi um hækkun á op-
inberri þjónustu. Sorphreins-
unargjöld sem sveitarfélögin ákveða
hafa hækkað um 23,2% á einu ári og
verð á heilbrigðisþjónustu hefur
hækkað um 8,8%, en þar er bæði um
að ræða hækkun á komugjöldum á
heilsugæslustöðva og eins hafa tann-
læknar hækkað verð umtalsvert.
Verð á strætisvagnaþjónustu og leik-
skólaplássum hefur hins vegar lækk-
að á síðustu 12 mánuðum.
Verð á bílum er byrjað að
hækka
Eins og áður segir eru áhrif lækk-
unar á gengi krónunnar ekki komin
fram nema að mjög litlu leyti. Gengi
krónunnar hefur þó sigið síðustu
mánuðina. Gengið var t.d. um 8%
lægra í byrjun mars sl. en í byrjun
mars árið 2007. Gengisbreyting-
arnar eru farnar að koma fram í
verði á bifreiðum sem hefur hækkað
um 6,2% frá áramótum. Raftæki hafa
einnig hækkað í verði síðustu mán-
uði. Verð á bæði raftækjum og bílum
breyttist sáralítið á síðasta ári.
Kostnaður við húsnæði og ferðir
hefur aukist um 14% á einu ári
Í HNOTSKURN
»Verðbólgan mælist núna8,7% sem er mesta verðbólga
í fjögur ár. Í ársbyrjun 2002 fór
verðbólgan í 9,4%.
»Ýmislegt bendir til að í næstumælingu Hagstofunnar fari
verðbólgan upp fyrir þetta met,
en ef það gerist þarf að fara aft-
ur til ársins 1990 til að finna
hærri tölur.
»Verðbólgan hækkar verð-tryggð lán heimilanna, bæði
afborganir og höfuðstól.
Tæplega helmingur af
útgjöldum heimilanna
er kostnaður við hús-
næði og ferðir en út-
gjöld vegna þessara
liða hafa aukist mikið á
síðustu 12 mánuðum.
*
#
)++,
)++-
--
!
"
#
!
$
#
"%
& $
' (
)
"#
* +
#
& ,"#
& -
"#
. /
&' +
"#
. /
&) 0
"#
. /
&* 1
"#
. /
' 1
) !"%.
* +"#
*& +"# # "
2 3
2 455 66 / 73
2& $
2' 85 22 9 :
.
# 6 9 $
;.
6 "
9& ,7
9< ,
#
< + . =
.
6 & >"
#
.-/
,)/
01/
00/
')2/
).,/
'0)/
'20/
1)/
3-/
'0/
-1/
20/
'3-/
)0/
4)2/
'12/
'1'/
)-3/
''0/
'3)/
',1/
0./
,./
),,/
)31/
,'/
2)/
& ,
& ' ,
%
&& :.
&
&& ?%
' 1#
' ) . 7 #
'& +%
) = .
) : =
)& @ =
)) +5
)* @
* =# . =
6 *' @
2
2 0
#
2& "%
2&& ?
9 1
9 ,
5 #
"
9 ' @"%
9& @
#
"
9&& $ A*
9&&) > 9&' B
9'& +
9'&& 0
32/
40)/
2+/
)-/
)1/
1'/
)3,/
''./
'3./
'+0/
'02/
)2)/
20/
2'/
,,/
32/
4+1/
--/
0./
'21/
-3/
0-/
'02/
),+/
220/
,0/
4)1+/
1,/
9'' 1
"#
9''& 1
"#
=
9') 1
7 "%
< (%
< (%
< ' +
"%
A ?%
A +"% #5. 6.
# 6 A * B 7
" 6 A' ' 0"
#
# A) %
%
A)& !
7
A* $#.
#
A* & $%
=
6 A*& >
#
A2 (
A2& (
=
!
%
& 4
# "%
& +
.
#
& 7
.
6
&' 1C
"%
&' 0%
&'& >
&) ?
&* 1"77
"%
%6
6
6
&* ' +
5"#. /
-2/
')1/
-+/
1'/
0./
12/
',/
43-/
'''/
4'2-/
,1/
.1/
../
).2/
1./
'2+/
52-/
'0/
.2/
1,/
.0/
03/
4')/
4''/
4',/
.'/
,-/
'3+/
6 !
#
)0
31
!"# $%
&
'
("#
%
&') # **)*
21 +")
,
)
)- -.
/'
01'
'
+.
" )
LANDSÁÆTLUN vegna heimsfaraldurs
inflúensu var undirrituð í gær en áætlanagerð-
in hefur staðið yfir síðan vorið 2006 þegar
stýrihópur ríkislögreglustjóra og sóttvarna-
læknis var skipaður. Til að fagna áfanganum,
sem ríkislögreglustjóri sagði í erindi sínu all-
mikil tímamót fyrir almenning í landinu, voru
saman komnir í Skógarhlíð margir þeirra sem
lagt hafa hönd á plóg en alls hafa á annað
hundrað manns – víðs vegar úr atvinnulífinu –
tekið þátt í gerð áætlunarinnar.
Viðbúnaðaráætlunin nær yfir alla þætti sam-
félagsins og beinist m.a. að því að halda uppi
mikilvægum samfélagsstoðum, s.s. löggæslu,
fjarskiptum, orku- og vatnsdreifingu, sorp-
hirðu og starfsemi fjölmiðla auk þess að skipu-
leggja birgðir matvæla og annarra nauðsynja.
Meðal helstu markmiða áætlunarinnar er að
hindra að faraldur berist til landsins, draga úr
útbreiðslunni ef hann berst hingað, lágmarka
smithættu og líkna sjúkum. Verður slíkt m.a.
gert með einangrun sýktra og sóttkví fyrir þá
sem mögulega hafa smitast.
En þrátt fyrir að áætlun vegna heimsfarald-
urs hafi nú verið undirrituð er ekki þar með
sagt að verkefninu sé lokið. Raunar aðeins
fyrsta áfanga. Í stöðuskýrslu stýrihóps frá því í
janúar eru nokkur verkefni nefnd. Þar á meðal
að kynna þurfi landsáætlunina fyrir þeim að-
ilum sem hafa hlutverk í áætluninni, s.s. heil-
brigðisstarfsfólki, lögreglumönnum og björg-
unarsveitum. Því samhliða þarf að útbúa
fræðsluefni fyrir almenning og gerð gátlista
vegna fyrirtækja sem sinna mikilvægri starf-
semi í farsóttum.
Í erindi Haralds Briem sóttvarnalæknis kom
fram að verkefnið væri þess eðlis að því lyki
raunar aldrei. Hann sagði ljóst að heimsfar-
aldur inflúensu mundi ganga yfir, hvort sem
það yrði fuglaflensustofninn, H5N1, eða annar
stofn. Það er einfaldlega kominn tími á far-
aldur, sagði Haraldur, en óvenjulega langt er
síðan síðasti heimsfaraldur reið yfir – næstum
fjörutíu ár.
Síðastliðin 400 ár hefur heimsfaraldur inflú-
ensu farið um heiminn þrisvar til fjórum sinn-
um á hverri öld, og á síðustu öld gengu þrír
heimsfaraldrar inflúensu yfir.
Allmikil tímamót fyrir almenning
Ríkislögreglustjóri og sóttvarnarlæknir undirrituðu landsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu
Beinist að því að halda uppi mikilvægum samfélagsstoðum, s.s. löggæslu og vatns- og orkudreifingu
Morgunblaðið/Júlíus
Sterkt samband Haraldur Jóhannessen ríkislögreglustjóri og Haraldur Briem sóttvarn-
arlæknir undirrituðu landsáætlunina. Þeir lofuðu báðir samvinnu embætta sinna.