Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 52
52 LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Vinur minn rakst einu sinni áhljómsveitina The BadSeeds eins og hún lagði sig í neðanjarðarlestarkerfi Parísar. Hann setti hljóðan við þá upplifun, enda hafði hann aldrei fyrirhitt jafn mikið af svölum mönnum á einum og sama staðnum. Þannig skynjar maður Nick Cave. Hann er ósnertanlegur í svalheit- unum og þegar sveit hans er með í för minna þeir helst á eitthvað gengi úr spagettívestra.    Eftir að Cave setti tappann end-anlega í flöskuna hefur ferill hans blómstrað sem aldrei fyrr. Bestu plöturnar á ferlinum hafa komið út hin síðustu ár og sú nýj- asta Dig!!! Lazarus Dig!!! er ein blóðrauð rósin enn í hnappagatið. Cave er búinn að koma mörgum listamanninum í vanda með þessum árangri. Honum er nefnilega að takast að sanna að það er hægt að búa til stórkostleg listaverk, uppfull af sársauka, svita og brjálæði með því að mæta allsgáður á skrifstofu og vinna frá 9 til 5. Ekki mikil róm- antík í því. Eða hvað? Útkoman er a.m.k. slík að aðrir miðaldra lista- menn (U2, R.E.M. o.fl.) sem virðast a.m.k. hafa þörf til að sanna sig ættu að fara að taka niður punkta.    Nýja platan er allt, allt öðruvísien síðasta verk, plötutvennan stórfenglega Abattoir Blues/The Lyre of Orpheus (2004). Þær plötur voru stórar og mikilúðlegar, dramatískar og flúraðar með strengjum, kórum og slíku. Dig!!! Lazarus Dig!!! er hins vegar hrá, skítug og skruggusvöl rokkplata sem trukkar áfram, af nokkurs kon- ar harðneskju eiginlega. Þetta er „töff“ plata, það er ekkert pláss fyr- ir ballöður a la Boatmans Call hér.    Grinderman-verkefnið frá því ífyrra (þar sem Cave og hluti Bad Seeds rúlluðu upp samnefndri bílskúrsrokkplötu) hefur haft mikil áhrif á Cave og losað þægilega um hann. Þetta sýnir sig best í því hversu mikill húmor liggur yfir plötunni, eitthvað sem er nýlunda. Cave er hálfpartinn að gera grín að sjálfum sér, a.m.k. að ímyndinni sem margir hafa af honum (sjá t.a.m. myndbandið við titillagið) og þetta gefur plötunni mikinn styrk. Þetta listilega sjálfsháð gerir Cave nefnilega enn svalari en hann var áður. Hann svífur hér um leð- urblökuvængjum þöndum með allt sitt á kristaltæru – algerlega ósnertanlegur. Magnað helvíti al- veg … Meistarinn AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen »Dig!!! Lazarus Dig!!!er hins vegar hrá, skítug og skruggusvöl rokkplata sem trukkar áfram, af nokkurs konar harðneskju eiginlega. Edrú og aldrei betri Eftir að Cave setti tappann endanlega í flöskuna hefur ferill hans blómstrað sem aldrei fyrr. arnart@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.