Morgunblaðið - 29.03.2008, Side 46

Morgunblaðið - 29.03.2008, Side 46
46 LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ROP! GRETTIR! ÞAÐ ERU BARA MYLSNUR HÉRNA EN SKRÍTIÐ EN SKRÍTIÐ... „SPARKARINN“ SNÝR AFTUR! Í GÆRKVÖLDI SKILDI ÉG BOLTANN MINN EFTIR HINUM MEGIN VIÐ GIRÐINGUNA... KÓLIBRÍFUGLINN, KALVIN, FLÝGUR UM Á ÓGNARHRAÐA ÞRÁTT FYRIR ÞAÐ HVAÐ HANN ER LÍTILL EYÐIR HANN ÓTRÚLEGU MAGNI AF ORKU Í AÐ BLAKA VÆNGJUNUM Á ÞESSUM MIKLA HRAÐA TIL ÞESS AÐ FÁ ÞESSA ORKU DREKKUR FUGLINN HÁLFA ÞYNGD SÍNA AF SYKURVATNI Á DAG ...HELST LÍKA MEÐ KOFFÍNI HEYRÐU! ERTU AÐ FÁ ÞÉR MEIRA GOS?!? HVAÐ ER ÞETTA? KARTÖFLU- SÚPA AF HVERJU ER BARA EIN, ÓSKRÆLD KARTAFLA Í SÚPUNNI? ÉG VAR AÐ DRÍFA MIG! ÞESSAR FLÆR ERU AÐ GERA MIG BRJÁLAÐANN GRÍMUR, ERTU AÐ FÁ ÞÉR AÐ BORÐA Í MIÐJUM TÍMA? VILTU EKKI DEILA ÞVÍ MEÐ BEKKNUM? ALLT Í LAGI ÞÚ HLÝTUR AÐ VERA ÁNÆGÐ MEÐ ÞAÐ HVAÐ FRAMBJÓÐAND- INN SEM ÞÚ STYÐUR STENDUR SIG VEL JÁ, HANN HEFUR STAÐIÐ SIG MJÖG VEL Í KOSNINGA- BARÁTTUNNI MIKIÐ ER ÞETTA SÆTT. HANN ER FAÐMANDI SMÁBÖRN OG HVOLPA Á ÖLLUM MYNDUM ÞAÐ ER ERFIÐARA AÐ LÁTA SÉR LÍKA VEL VIÐ ANDSTÆÐING HANS JÁ, ÞAÐ EINA SEM MAÐUR SÉR HANN FAÐMA Á MYNDUM ER NÝJA SKATTALAGA- FRUMVARPIÐ HANN ER ÞÓ EKKI AÐ SLÁ RYKI Í AUGUN Á FÓLKI ÞÚ ERT MARÍA LOPEZ. ÉG HEF SÉÐ ÞÁTTINN ÞINN OG HVER ERT ÞÚ? ÉG ER RITSTJÓRI „DAILY BUGLE“ Í NEW YORK NÚNA VILL HÚN VIÐTAL HVERNIG FINNST ÞÉR AÐ BERJAST VIÐ GLÆPAMENN Í L.A.? dagbók|velvakandi Gullhringur GULLHRINGUR fannst fyrir utan Leifsstöð 26. mars. Upplýsingar er hægt að nálgast í síma 862 0664. Tommi er týndur Tommi hvarf úr gæslu í Árbænum í Reykjavík. Hann er grár og hvítur högni, með merkta hálsól og eyrnamerktur 06G178. Hans er sárt saknað. Ef einhver hefur séð hann er viðkomandi beðinn um að hringja í síma 867 6790 Tumi er týndur Tumi býr í Hamravík í Graf- arvogi og sást síð- ast heima 18. mars. Hann er þriggja ára grár fress með hvíta stjörnu á enninu. Hann er stór og afar blíður. Tumi er bæði eyrnamerktur og með ör- gjörva. Hann er afar gjarn á að stökkva upp í bíla og kíkja í heim- sóknir til fólks, hann gæti t.d. hafa lokast inni í geymslu, bílskúr eða íbúð einhverra ferðalanga yfir páskana. Hans er afar sárt saknað og vonast systkinin á heimilinu til að fá hann Tuma heim. Ef einhver hefur orðið hans var er sá beðinn að hringja í Berglindi í síma 844 4931. Kristín Mjólkurverðið Nú hefur mjólkin verið hækkuð í 100 krónur á hvern lítra, þ.e. útsöluverð út úr búð. Ríkissjóður greiðir tugi milljarða í beingreiðslur til kúa- bænda árlega og ef þær eru teknar með í reikninginn kostar hver lítri neytendur talsvert meira en hundrað krónur. Gaman væri að einhver tal- naglöggur maður deildi mannfjöld- anum á Íslandi upp í þessar bein- greiðslur. Þá kæmi í ljós hver beinn kostnaður hvers íbúa er við þessa at- vinnugrein. Neytandi Myndavélar leitað Annan í páskum glataðist myndavél, líklega á planinu hjá Hálend- ismiðstöð Hrauneyjar eða við af- leggjarann að Búrfellsvirkjun. Þetta er myndavél af gerðinni Olympus U300, silfurlituð með hálsól og úlnlið- sól. Ef einhver hefur fundið hana er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við Hildi í síma 898 3246. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is ÞAÐ er til þæginda, öryggis og skrauts þegar ýmis mannvirki og umhverfi þeirra er lýst upp. Græni sparkvöllurinn er flottur svona flóðlýstur í myrkrinu og gefur lífinu vissulega lit. Flóðlýstur fótbolti Fyrir sjötíu árum gekk Axel Andrésson formaður Víkings nið- ur Vesturgötu og sá fagurlimaðan dreng á götunni. Hann tók drenginn tali og þetta var Bjössi, sem þar með var skráður í Vík- ing. Björn varð góður leikmaður í yngri flokkum félagsins og aðeins 15 ára spilaði hann í meistaraflokki með góðum árangri. Handbolta spilaði Björn með Víkingi og muna margir hans þrumuskot. Björn gerðist síðan dómari í hand- bolta, við góðan orðstír og dæmdi mikið bæði hér heima og erlendis. Björn lauk Verslunarskóla á met- tíma og hóf verslun í Norðurmýri og þar var mikið verslað enda laginn verslunarmaður við borðið. Þarna var oft gaman að vera, Björn kátur og ekki lengi að henda þessum and- skotum frá ríkinu út sem þóttust eiga að athuga vogir og löggilda þær, svo að ekki sé nú talað um þessa G-menn sem voru að leita að söluskatti, svoleiðis menn fengu ekki að- gang. Nú fór Björn að stunda lífið á Sögu og var hann einn af betri dansherrum og oft jafnað við Kristján Gullteit. Þegar árin færðust yfir Björn hóf hann golfspil á Nesinu og lengi logar í göml- um íþróttaglæðum og auðvitað varð Björn strax liðtækur. Hann hafði sérstakan stíl og má enn sjá þessa sveiflu hjá lærisveinum hans. Á nes- inu er kuldi og trekkur og þess vegna flutti Björn sig til Thailands og spilar þar í sex mánuði á ári. Þeir sem hitta Björn þarna syðra, þeim er borgið. Hann getur vísað manni á rétta klæðskera, tannlækna og bara nefndu það. Nuddið er í sjöttu götu eða bara heimsent. Farðu nú að koma þér heim Björn, svo við sem hættir erum að hugsa um nudd fáum okkar kæfu og rúllupylsu. Vinir úr Vesturbæ. Björn Kristjánsson AFMÆLI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.