Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sveinlaug Júl-íusdóttir fædd- ist í Reykjavík 26. júní 1950. Hún lést á Landakotsspítala fimmtudaginn 10. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Þuríður Ingi- björg Gunn- arsdóttir, f. 9. maí 1917, d. 17. októ- ber 1985, og Júlíus Guðmundsson, efnafræðingur, f. 26. september 1922. Bróðir Sveinlaugar er Guðmundur Júlíus, f. 26. októ- ber 1959. Sveinlaug giftist 3. janúar 1976 Gylfa Hinriki Ásgeirssyni, f. á Valshamri á Skógarströnd 6. júlí 1941. Foreldrar hans voru Ásgeir H. Jónsson hrepps- stjóri, f. 25. apríl 1896, d. 21. febr- úar 1985, og Ás- laug Guðmunds- dóttir, f. 21. maí 1901, d. 6. júní 1996. Sveinlaug og Gylfi bjuggu fyrst að Barónsstíg 43 í Reykjavík en 1978 fluttu þau að Vall- argerði 36 í Kópa- vogi. Sveinlaug var oft og lengi á spítölum vegna vanheilsu og síðustu 3 árin dvaldist hún á Landakotsspítala. Sveinlaug verður jarðsungin frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Sveinlaug Júlíusdóttir Mágkona mín, Sveinlaug, kvaddi þessa jarðvist aðfaranótt 10. apríl eftir löng og ströng veikindi í mörg ár. Alltaf var hún samt glöð þegar maður heimsótti hana á spítalann. Hún reyndi oftast að leyna því hvað hún var þjáð – og sama Pollyönnu- hugsunin hjá henni: „Þetta gæti verið verra,“ en sjúkdómurinn sigr- aði hana að lokum. Jákvæðni og hið glaða skapferli hennar hjálpaði henni í baráttunni. Ég minnist okkar fyrstu kynna, fyrir um það bil 35 árum, þegar Gylfi bróðir sagðist koma með vin- konu sína í heimsókn eitt kvöldið. Þegar ég opnaði dyrnar stóð fyrir framan mig falleg, hávaxin og grönn stúlka, með sítt svart hár. Hún heilsaði mér brosandi eins og hún þekkti mig þá þegar. Enda varð það svo að með okkur tókst mjög góð vinátta sem stóð alla tíð síðan. Eftir að þau giftu sig, bjuggu þau á Barónstígnum; var samgangur milli heimilanna tíður. Þegar Gylfi var að vinna kvöld- vaktir fannst henni ekkert mál að skokka yfir Miklatúnið og upp í Grænuhlíð til okkar, og var hún allt- af aufúsugestur með sitt glaða skap. Þá var oftast að unglingarnir á heimilinu settust með henni að taka í spil eða tefla skák. Það fannst þeim svo gaman og tóku af henni loforð að koma sem fyrst aftur, því þau vildu ekki gefast upp fyrr en þau næðu að vinna hana í skákinni. Það varð lengra á milli okkar þeg- ar þau fluttu í Kópavoginn. Árin liðu og það fór að bera á veikindum hennar, hún dvaldi langdvölum á sjúkrahúsum. Lungun gáfu sig og hún varð bundin súrefnisgjöf á hverjum degi. Mikið varð hún glöð að fá loks rafknúna hjólastólinn, því þá varð auðveldara að komast leiðar sinnar. Innilegar þakkir til hjúkrunar- fræðinga og annars starfsfólks á K1, Landakotsspítala, þar sem hún dvaldi síðustu árin, fyrir frábæra umönnun og kærleiksríkt viðmót. Guð geymi þig, elsku Sveina mín, þakka þér allar stundirnar sem við áttum saman. Bróður mínum, föður hennar og öðrum aðstandendum votta ég sam- úð mína. Ása. Sveinlaug Júlíusdóttir ✝ Sverrir Arn-grímsson, fv. kennari, fæddist á Akureyri 30. júní 1918. Hann lést á heimili sínu mið- vikudaginn 9. apríl síðastliðinn. For- eldrar hans voru Guðný Árnadóttir, f. 11. 3. 1875, d. 12.4. 1946, og Arn- grímur Einarsson, bóndi á Torfunesi í Kinn, Ljósavatni í Bárðardal og Gunn- ólfsvík á Langanesi, f. 5. 7. 1863, d. 22. 2. 1936. Sverrir kvæntist Áslaugu Jóels- dóttir, f. í Reykjavík 16.12. 1921. Foreldrar hennar voru hjónin Margrét Ásmundsdóttir, f. 18.8. 1893, d. 14.10. 1963, og Jóel Bær- ingsson, f. 10.6. 1887, d. 26.2. 1961. Börn Áslaugar og Sverris eru: 1) Guðný, f. 6.2. 1944, maki Þór Erling Jónsson, f. 17.1. 1939, d. 16.9. 1986. Börn þeirra eru: a) Hildur, f. 5.4. 1961; b) Inga, f. 30.3. 1964, maki Þorsteinn Sig- tryggsson, f. 29.9. 1964, börn þeirra eru Steinþór Freyr, f. 29.7. 1985, Marta Hlín, f. 19.11. 1995 og Guðný Lind, f. 19.4. 1998; c) Sverrir, f. 16.3. 1965, dóttir hans og Guðbjargar Kristínar Valdi- marsdóttur, f. 7.8. 1964, er Mar- grét Rún, f. 5.4. 1998; d) Jón Kristinn, f. 4.10. 1971; e) Ingi- 2001; c) Kristján, f. 26.8. 1975, maki Halla Dögg Káradóttir, f. 30.7. 1977, börn þeirra eru Egill, f. 19.2. 2000, Agata, f. 19.1. 2004 og Kristján Kári, f. 16.2. 2008; d) Guðrún Ósk, f. 9.3. 1981, maki Ar- inbjörn Marinósson, f. 28.4. 1981, dóttir þeirra er Guðrún Embla, f. 14.11. 2006; og e) Aðalsteinn, f. 24.3. 1986, sonur hans og Töru Óðinsdóttur, f. 27.8. 1987, er Trausti Egill, f. 16.1. 2007. 4) Jóel, f. 14.7. 1950. Sonur hans og Sig- ríðar Aðalbjörnsdóttur, f. 19.11. 1953, er Aðalbjörn, f. 11.6. 1974, maki Ester Birna Hansen, f. 31.5. 1977, börn þeirra eru Lára María, f. 18.11. 2004 og Ásta Sigríður, f. 2.8. 2007. Maki Guðfinna Kolbrún Guðnadóttir, f. 26.11. 1950. Börn þeirra eru: a) Hreiðar, f. 4.7. 1974; b) Áslaug Ýr, f. 2.1. 1977, maki Guðmundur Vignir Þor- steinsson, f. 14.5. 1975, dóttir þeirra er Tinna Ýr, f. 28.1. 2003; c) Hrólfur Mar, f. 18.6. 1986; og d) Jón Haukur, f. 18.6. 1986. 5) Sveinn Áki, f. 23.8. 1955, maki (slitu samvistum) Dóra Íris Gunn- arsdóttir, f. 10.4. 1955. Börn þeirra eru Eva Björk, f. 21.2. 1978, sonur hennar og Sigurðar Bollasonar er Kristinn Þór, f. 14.11. 2000; og Þór, f. 17.5. 1980. 6) Arngrímur, f. 9.2. 1958, maki Steinþóra Guðmundsdóttir, f. 5.8. 1957, dætur þeirra eru Sigríður, f. 1.7. 1978, Soffía, f. 13.4. 1986, og Herdís, f. 11.2. 1993. Útför Sverris fer fram frá Digraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. björg, f. 22.12. 1972, maki Brian Strauss Christensen, f. 21.7. 1974, börn þeirra Nicolas Strauss Christensen, f. 13.12. 1999 og Alexander Strauss Christensen, f. 21.9. 2002; f) Selma, f. 27.6. 1983; og g) Brynjar, f. 11.4. 1986. 2) Mar- grét, f. 27.7. 1945, maki Guðmundur Hafsteinn Frið- geirsson, f. 26.7. 1944. Börn þeirra eru: a) Rakel, f. 2.8. 1967, maki Þrándur Sigurðs- son, f. 21.7. 1968, synir þeirra eru Aron Elís, f. 10.11. 1994, Sölvi, f. 7.9. 1999, og Elmar Logi, f. 4.2.2003; b) Guðmundur Friðgeir, f. 1.11. 1971, maki Inga Björg Ólafsdóttir, f. 17.2. 1969, börn þeirra eru Guðmundur Hafsteinn, f. 10.7. 2000 og Margrét Edda, f. 21.1. 2004; og c) Sverrir, f. 19.2. 1973, maki Ingibjörg Benedikts- dóttir, f. 20.10. 1976, börn þeirra Brynhildur, f. 13.7. 2005, og Mar- teinn Aldar, f. 22.2. 2007. 3) Guð- rún Vigdís, f. 23.10. 1948, maki Trausti Aðalsteinn Egilsson, f. 5.8. 1949. Börn þeirra eru: a) Eg- ill, f. 26.11. 1969, d. 28.2. 1978; Ás- laug, f. 4.9. 1972, maki Víðir Lár- usson, f. 28.11. 1970, börn þeirra eru Rebekka, f. 11.7. 1994, Kara, f. 20.4. 1998 og Lárus, f. 12.7. Sverrir Arngrímsson, tengdafaðir minn, lést á heimili sínu aðfararnótt miðvikudagsins 9. apríl 2008. Hann fæddist á Akureyri 30. júní 1918 og var því tæplega níræður þegar hann lést. Hann lauk búfræðikandídatsprófi frá landbúnaðarháskólanum í Kaup- mannahöfn árið 1942. Vegna stríðsins kemst hann ekki heim fyrr en með Esjunni sumarið 1945, þá kvæntur maður með eitt barn og annað á leiðinni. Í Kaup- mannahöfn hafði hann stigið mesta gæfuspor lífs síns er hann kvæntist Áslaugu Jóelsdóttur í júlí 1943. Nú höguðu örlögin því þannig að Sverrir fór ekki að vinna við það sem hann hafði menntað sig til. Hann fór að kenna við Gagnfræðaskóla Reyk- víkinga (síðar Gagnfræðaskóla Vest- urbæjar), en þar var þá Knútur bróðir hans skólastjóri. Kennslan varð ævistarf hans, lengst af við Gagnfræðaskóla Vest- urbæjar og síðan við Laugalækjar- skóla. Ég kynntist Sverri fyrst árið 1966 er ég fór að venja komur mínar á heimili hans og Áslaugar að Kópa- vogsbraut 51. Ég hafði þá kynnst Margréti dóttur þeirra. Á þessum árum var Sverrir af full- um krafti í kennslunni og múraði hús í hjáverkum. Hann hafði náð mjög góðum tökum á múrverki enda með meira verksvit en gerist og gengur. Mér fannst Sverrir strax mjög merkilegur maður. Hann var greini- lega víðlesinn, kunni ógrynni af vís- um og skil á ótrúlegustu hlutum. Það var alveg sama um hvað var rætt, alltaf var hann með á nótunum. Eitt af áhugamálum Sverris var garðrækt. Þar nýttist honum námið í landbúnaðarháskólanum. Hann ræktaði fallegan garð við húsið sitt, sem hann byggði að mestu sjálfur. Sverrir og Áslaug voru ein af frum- byggjum Kópavogs. Sverrir var mjög heimakær mað- ur en naut þess að fara í hæfilega stutt ferðalög. Hann fór t.d. aldrei aftur til Danmerkur eftir að hann kom heim frá námi. Hann fór oft vestur á Patreksfjörð og Súganda- fjörð meðan börnin hans bjuggu þar. Hann fór líka oft norður á æsku- stöðvarnar eftir að Jóel og Margrét fluttu þangað. Mér er í fersku minni þegar hann fór með mér, Margréti og sonum okkar í Skor, en þangað hafði hann lengi langað til að koma. Ég efast um að betur klæddur maður hafi sést á þeim slóðum, því það var hátt- ur Sverris að ganga alltaf með háls- bindi hvort sem hann var á ferðalög- um, í garðvinnu eða við kennslu. Hann var líka einstakt snyrtimenni og lagði mikið upp úr því að vera þokkalega til fara. Eftir að Sverrir hætti kennslu rúmlega sextugur leituðu barna- börnin oft til hans með námsbæk- urnar. Oftast var það stærðfræðin sem var að þvælast fyrir þeim. Gekk það stundum svo langt að hann keypti sjálfur bækur svo hann gæti sinnt þeim betur. Frægt var þegar kennarinn sagði við eitt barnabarn hans að það mætti hafa allt með sér í prófið nema afann. Við leiðarlok hrannast auðvitað upp minningar frá liðnum árum. Ég gæti bætt miklu við en læt hér stað- ar numið. Sverrir var afar vandaður maður, traustur og áreiðanlegur. Hann var maður sem allir hans nánustu og aðrir báru mikla virðingu fyrir. Blessuð sé minning Sverris Arn- grímssonar. Guðmundur H. Friðgeirsson Það kemur alltaf vor eftir harðan vetur og uppstytta eftir langa rign- ingartíð. Jafn augljóst fannst mér sem barni að afi yrði alltaf til. Svo kemst maður að því á fullorðinsárum að lífsins gangur á við um manns nánustu og líka afa. Í mínum huga var Sverrir afi allt- af eins. Afi að undirbúa vorkomuna í garðinum, alls ekki of snemma og því síður of seint. Laufið varð að vera á réttum stað á réttum tíma; allt reiknað út með áralanga reynslu í garðrækt að baki. Hann lét snemmbúna vorsólina ekki blekkja sig eins og ég hef gert, enda dafnaði gróðurinn alla tíð í kringum hann og ömmu á Kópavogsbrautinni. Afi var fræðimaður sem las sér til um allt sem hann vildi og þurfti að vita. Á unglingsárum mínum fannst mér mjög skrýtið að einhver keypti sér stærðfræðibækur sjálfviljugur til að glugga í en það gerði afi þegar hann bjó sig undir að taka okkur barnabörnin í aukatíma í stærð- fræði. Hann tók þessa aukatíma skipulega fyrir, enda með margra ára kennslureynslu að baki, og ekki var um annað að ræða en að taka vel eftir. Við erum ófá sem getum þakk- að honum greinargóðar lýsingar og útskýringar sem án efa hafa hjálpað okkur í náminu. Afi átti virðingu okkar barna- barnanna vísa, við fengum þau skila- boð frá foreldrum okkar að ganga hljóðlega um þegar hann legði sig eftir matinn og að henda tyggjóinu áður en við kæmum í heimsókn. Aldrei man ég þó eftir að afi sjálfur bannaði okkur eitt eða neitt en hann gaf okkur skýr skilaboð um að um- gangast gróðurinn með varfærni. Mér fannst garðurinn hjá ömmu og afa alveg óendanlega stór og fullur af felustöðum og spennandi hlutum. Í dag er eins og garðurinn hafi minnkað en minningarnar um stökk- in ofan af kartöflugeymslunni vekja enn upp spennu. Í hönd fer sá tími ársins sem var tíminn hans afa. Á sumrin byrjaði hann daginn snemma og skipulagði garðvinnuna eins og hverja aðra vinnu. Öll garðverkin vann hann sjálfur og alla tíð í skyrtu með axla- bönd og bindi. Þannig mun ég minn- ast hans, um leið og ég leyfi laufinu í mínum garði að liggja í beðunum að- eins lengra fram á vorið. Rakel. Ástkær afi okkar er dáinn. Hans verður sárt saknað. Á Kópavogs- brautina til ömmu og afa var alltaf gott að koma og vel tekið á móti manni. Afi var svo vel lesinn og það var alltaf hægt að leita til hans ef maður þurfti á hjálp að halda. Afi hjálpaði okkur systkinunum í gegn- um grunnskólann og síðar mennta- skólann. Þar sat maður inni í her- berginu hans eftir skóla og lærði um heim stærðfræðinnar, um íslenska tungu og síðast en ekki síst um danska tungu. Enda hafði hann búið í Danmörku í mörg ár. Við eigum honum mikið að þakka. Við eigum eftir að sakna þín óskaplega mikið, elsku afi. Þú átt eftir að fylgja okkur í hjartanu alla ævi. Minning þín er ljós í lífi okkar. Hvíl í friði. Þín barnabörn, Hildur, Inga, Sverrir, Jón Kristinn, Ingibjörg, Selma og Brynjar. Elsku afi. Það er stutt á milli himins og jarð- ar, og eitt er víst að hugurinn dvelur hjá þér í dag. Ég ætla að kveðja þig með söknuði og nokkrum tárum, því þú kvaddir sáttur lífið. Eins og þú sagðir sjálfur; „ég er búinn að lifa í hamingjusöm 90 ár“. Maður er lán- samur maður ef maður getur kvatt lífið þannig og mér finnst ég lánsöm að hafa fengið að kveðja þig vel þeg- ar ég var á landinu í febrúar. Við vissum eflaust bæði að þetta yrðu okkar síðustu samverustundir, ég met þær mikils. Þér lá mikið á hjarta að segja mér frá hvernig þú og amma kynntust í Danmörku. Þú sýndir mér á eldgömlu korti af Kaupmannahöfn hvar þið áttuð heima, hvert þið fluttuð og hvaða leið þú hefðir farið í skólann og því fylgdi greinargóð lýsing á hvernig andrúmsloftið var í Kaupmannahöfn á þessum tíma. Þú sagðir mér líka hvað þú hafir verið heppinn að kynn- ast fallegustu stúlkunni í allri Dan- mörku, henni Áslaugu ömmu, við vit- um sem til þekkja að þar varstu heppinn. Þetta var ómetanleg stund sem ég mun geyma í hjartanu og aldrei að vita nema ég fari einn dag- inn á ykkar slóðir í Köben, enda ekki langt fyrir mig að fara. Elsku afi minn, ég á endalaust af minningum sem ég gæti skrifað þér hér en ég var búin að skrifa til þín mína minningargrein. Þú tekur hana núna með þér í það ferðalag sem bíð- ur þín. Ég ætla að halda mínu ferða- lagi áfram hérna í lífinu með í far- teskinu þína sögu og allt það sem þú kenndir mér. Ég ætla að fá að kveðja þig með sömu orðum og síðast þegar við hittumst. Við sjáumst afi. Þín, Sigríður Arngrímsdóttir (Silla). Lánsemi er mér efst í huga er ég kveð nú látinn vin sem ég stalst til að kalla afa. Ég var svo lánsamur að kynnast Sverri fyrir 25 árum þegar ég tók saman við og stofnaði fjöl- skyldu með Ingu Þórsdóttur afa- barni hans. Ég man það skýrt hversu hlýlegar móttökurnar hjá þeim Sverri og konu hans Áslaugu voru og hversu fljótt maður fann að maður væri alltaf innilega velkom- inn á heimili þeirra á Kópavogs- brautinni. Þessa yndislegu tilfinn- ingu sem ég hafði ekki fundið síðan í barnæsku þegar ég leitaði í fang ömmu minnar og afa í Æsufellinu forðum. Manni fannst svona eins og maður hefði fundið aftur staðinn þar sem tíminn stóð nánast kyrr, staðinn sem væri slitinn úr samhengi við ys og þys lífsins fyrir utan, stað þar sem maður gat raunverulega sest niður og manni fannst að ef að maður sæti kyrr og héldi niðri í sér andanum þá myndi jörðin bara bíða róleg á með- an. Manni leið alltaf svo vel þegar maður fór frá Kópavogsbrautinni. Það leið heldur ekki á löngu þar til maður var farinn að líta á þau sem sína eigin afa og ömmu í stað þeirra sem maður hafði misst. Ég óska þess að ég verði svo lánsamur að fá þess notið að afkomendur mínir fái að upplifa samskonar einstaka tilfinn- ingu og ég hef orðið aðnjótandi í faðmi afa og ömmu. Áslaugu, börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum votta ég inni- lega samúð mína og vona að mér fyr- irgefist lánið á afa. Heiðruð sé minning þín Sverrir „afi minn“ og takk fyrir allt. Þorsteinn V. Sigtryggsson. Elskulegi langafi okkar er dáinn. Við viljum senda okkar hinstu kveðju með eftirfarandi ljóði. Ég þarf að kveðja, þarf að kveðja þig nú. Ég þarf að kveðja, elsku afi minn nú. Ég þarf að kveðja, góða ferð, elsku vinur. Ég syng þér lítið kvæði hér, ég syng svo sorgin hlífi mér og söknuður víki fyrir trú, von og ást, að í faðmi guðsríkis við á ný munum sjást. Í okkur öllum sem sitjum nú hér, í okkur öllum sem gengum með þér, í okkur öllum þú lifir nú áfram. (Þorsteinn V. Sigtryggsson.) Kveðja. Þín langafabörn, Steinþór Freyr, Marta Hlín og Guðný Lind. Sverrir Arngrímsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.