Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þórhildur Gísla-dóttir fæddist á Brekku í Garði 12. september 1925. Hún lést á Sjúkra- húsi Suðurlands á Selfossi að morgni 8. apríl síðastliðins. Hún var dóttir hjónanna Gísla Matthíasar Sigurðs- sonar bónda, f. 3.7. 1895, d. 7.7. 1982, og Ingibjargar Þor- gerðar Guðmunds- dóttur húsfreyju, f. 2.8. 1898, d. 28.9. 1936. Systkini Þórhildar eru: Jóhanna Guðný f. 1920, d. 1923; Þórir Guðmundur f. 1922, d. 1923; Guðmundur Jóhann Sveinn f. 1923; Haraldur Helgi f. 1924, d.1974; Guðmundur Helgi f. 1926, d. 1998; Svava f. 1927; Alla Margrét f.1928; Ingibjörg f. 1930; Reynir f. 1931, d. 2005; Magnús f. 1932; Eyjólfur f. 1934; Ingibjörg Anna f. 1935 og óskírð stúlka f. 28.9. 1936, dáin sama dag. Hinn 12.6. 1952 giftist Þórhild- ur Þorleifi Kjartani Kristmunds- syni, f. 12.6. 1925, d. 4.6. 2000. Foreldrar hans voru Kristmundur Benjamín Þorleifsson, f. 27.12. 1895, d. 16.4. 1950, og Guðný Sig- ríður Kjartansdóttir, f. 29.6. 1902, d.19.4. 1984. Börn Þórhildar og Þorleifs Kjartans eru: 1) Guðný Sigríður, f. 1.11. 1952. Hún er gift Jóhanni Kristjáni Ragnarssyni f. 1948. Börn þeirra eru: Þorleifur Kjartan, f. 1974, sambýliskona Kristín Eva Sveinsdóttir, f. 1974. Dóttir þeirra er Viktoría Líf; Ragnar Kristján, f. 1980; Styrmir, f.1981. Hann er kvæntur Thelmu Rós Tómasdóttur, f. 1984; Jó- hanna f. 1983. 2) Ingibjörg Þor- gerður, f. 23.6. 1954. Dóttir henn- ar og Sigurðar Björgvinssonar, f. 1950, er: Sigríður Inga, f. 1971. Hún er gift Jóni Áka Leifssyni, f. 1966. Börn þeirra eru Hildur Björg, Leifur Már og Haukur Freyr. Börn Ingibjargar og Sól- björns á Toftini, f. 1959, eru Magnús, f. 1988; sonur hans og Helgu Guðrúnar Ásgeirsdóttur er Svanur, f. 1986, og Brynjar Andri, f. 1991. Þórhildur ólst uppi í Miðhúsum í Garði fram yfir fermingu. Eftir móðurmissinn bjó hún með elstu systkinum sínum hjá föður sínum og ömmu. Yngri börnin fóru í fóstur á heimilum í Garðinum. Eftir fermingu var hún í vist m.a. hjá Sigurveigu Halldórsdóttur frænku sinni. Þórhildur veiktist af berklum á unglingsaldri, var vist- maður á Vífilsstöðum, Kristnesi og Reykjalundi. Eftir að hún náði bata vann hún við ýmis störf í Reykjavík – aðallega á sauma- stofum. Stóran hluta ævi sinnar var hún þó frísk en sl. 20 ár tókst hún af hugrekki á við erfiðan lungnasjúkdóm sem var afleiðing af berklunum sem hún fékk sem ung stúlka. Árið 1952 giftist hún Þorleifi Kjartani. Í júní 1955 vígð- ist Þorleifur Kjartan sem sóknar- prestur að Kolfreyjustað í Fá- skrúðsfirði og fluttu þau austur í sama mánuði. Á Kolfreyjustað stóð heimili þeirra í tæp 40 ár. Þar vann Þórhildur merkileg störf. Hún ól upp börnin sín auk 2 fóstursona. Nokkur barna- barnanna dvöldust á Kolfreyju- stað í lengri eða skemmri tíma. Kolfreyjustaður er kirkjustaður og þar var mjög gestkvæmt. Þór- hildur stýrði þessu stóra heimili af stakri snilld. Hún hugsaði afar vel um kirkjuna sína – bauð öllum í kaffi að loknum messum og studdi eiginmann sinn í störfum hans. Þau voru mjög samhent og í þeirra tíð var Kolfreyjustaður byggður upp af miklum metnaði. Þórhildur sat í hreppsnefnd í Fáskrúðsfjarðarhreppi, var í stjórn Æðarræktarfélags Íslands og tók þátt í ýmsum öðrum fé- lagsstörfum. Árið 1994 lét Þorleifur Kjartan af prestsskap; fluttu þau þá heim- ili sitt til Hveragerðis. Eftir lát Þorleifs bjó Þórhildur ein á heim- ili sínu með góðri aðstoð barna sinna og barnabarna til dauða- dags. Þórhildur var fagurkeri og hámenntuð þó hún væri ekki lang- skólagengin. Hún hélt andlegri reisn fram í andlátið. Þórhildur verður jarðsungin frá Garðakirkju á Álftanesi í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Bjarki Fannar; Þór- hildur Helga f. 1990. 3) Drengur, f. 8.3. 1957, d. 9.3. 1957. 4.) Kristmundur Benja- mín, f. 15.3. 1962. Hann er kvæntur Mi- roslöwu Helgu Þor- leifsson, f. 1964. Dóttir Kristmundar og Guðrúnar Fríðar Heiðarsdóttur f. 1963 er Kristrún, f. 1986. Sambýlis- maður hennar er Kristinn Þórisson. Börn Kristmundar og Miroslöwu eru: Sylvía Barbara, f. 1980. Sam- býlismaður hennar er Mark Brumm. Dóttir þeirra er Roxan Alda. Þorleifur Kjartan, f. 1991. Anna Þórhildur, f. 1993. 5) Stein- vör Valgerður, f. 24.9. 1963. Hún er gift Kristjóni Jónssyni, f. 1966. Dætur þeirra eru: Kristín Jóna f. 2004 og Þórhildur f. 2007. 6) Þór- hildur Helga, f.14.9. 1965. Hún er gift Boga Theodor Ellertssyni, f. 1968. Sonur hennar og Kristgeirs Friðgeirssonar, f. 1963, er Kjart- an Þór, f. 1985. Sambýliskona hans er Veronika Eberl, f. 1979. Sonur þeirra er Patrekur Jóhann. Börn Þórhildar Helgu og Boga eru Lúkas Björn, f. 1997, Kolf- reyja Sól, f. 2000. Fóstursynir Þórhildar og Þorleifs Kjartans eru 1) Jón Helgi Ásmundsson, f. 4.1. 1953. Kona hans er Ásthildur Guðmundsdóttir, f. 1953. Dætur þeirra eru Júlíana Torfhildur, f. 1970. Hún er gift Guðna Sverr- issyni f. 1966. Synir þeirra eru Daníel Aron, Sverrir Frans og Anton Örn. Þórhildur, f. 1975. Hennar maður er Hlynur Jó- hannsson, f.1971. Börn þeirra eru Ámundi Georg, Sunneva Rós og Kató Hrafn. Stefanía Kristjana, f. 1977. Sonur hennar og Sveins Þ. Albertssonar f.1974 er Jón Helgi. Hrafnhildur, f. 1981. Dóttir henn- ar og Arngríms Vilhjálmssonar, f. 1979, er Ásthildur Erla. 2.) Hjört- ur Kristmundsson, f. 27.7. 1960. Synir hans og Ástu Auðbjargar Ægisdóttur, f. 1965, eru Kjartan Mamma okkar var af þeirri kyn- slóð er lifði tímana tvenna. Hún fæddist í torfbæ, fluttist á barnsaldri í Miðhús þar sem hún eyddi æskunni í stórum systkinahóp. Gaman var að heyra mömmu segja frá æskuárun- um, börnin hjálpuðu til við búskap- inn, skautuðu á Síkinu, renndu sér á hólunum og áttu margar ánægju- stundir. Alltaf gaman, sagði mamma. Það var mikill missir fyrir stóru fjöl- skylduna þegar mamma var 11 ára og móðir þeirra lést af barnsförum. Móðurmissirinn hafði mjög mikil áhrif á mömmu og hún saknaði henn- ar alla tíð. Yngstu börnin fóru í fóstur en þau eldri bjuggu hjá afa þar til hann veiktist af berklum en þá leystist heimilið upp. Mamma veiktist síðar sjálf af berklum og eyddi megninu af ungdómsárum sínum á Vífilsstöðum. Án efa var sérstakt andrúmsloft á Vífilsstöðum á þessum árum. Hvíti dauðinn alltumlykjandi en sjúkling- arnir margir hverjir á besta aldri. Mamma sagði okkur sögur frá Vífils- staðaárunum, sögur af skemmtiferð- um út í hraun og kjarr, lautartúrum og róðri á vatninu. Mamma fékk lækningu þess tíma, höggningu, á Kristnesi. Fljótlega eftir endurhæf- ingu frá Reykjalundi kynntist hún pabba og hófu þau búskap. Árið 1955 urðu kaflaskipti í lífi mömmu þegar pabbi hlaut brauð fyrir austan. Kolfreyjustað. Þar eyddu þau ævi sinni, voru samhent í starfi og barnahópurinn stækkaði. Það var gott að alast upp á Kol- freyjustað; Hraunagerði, Sparar- fjall, Halaklettur, Perlufjara, Prestagjögur, Staðarhöfn og Andey. Mamma og pabbi sinntu æðarvarp- inu í Andey vel og þar áttum við ógleymanleg sumur. Mamma líkti því við sinfóníu að hlusta á náttúruna í Andey vakna í dögun og hafði mikið yndi af dvölinni þar. Hún var stolt af því að vera æðarbóndi og fullvinna vöruna því hún saumaði dýrindis- dúnsængur. Aldrei er mér kalt undir þessum mjúka dúni sem prestfrúin á Kolfreyjustað vigtaði mér í sæng eitt haust fyrir löngu. Nei aldrei er mér kalt og draumar mínir eldskyggð næturfiðrildi yfir Vattarnesskriðum þó veturinn teikni rósir á glugga. Ég heyri í svefni bjölluhljóm utan úr eyju finn blágresisilm úr vaknandi móa. Þó gamli presturinn sé horfinn af brauðinu og vigtin safni ryði þá lifir hlýjan og alúðin. (Birgir Svan Símonarson.) Mamma var mikil húsmóðir og vann störf sín af vandvirkni, hún var alltaf að enda heimilið stórt og gest- kvæmt. Þrátt fyrir miklar annir gaf hún sér nægan tíma fyrir okkur börnin. Öll eigum við skemmtilegar og góðar minningar um samvistir með henni enda barngóð með en- demum. Þegar starfsævi pabba og mömmu lauk fluttu þau í Hvera- gerði. Þar áttu þau góð ár saman og var alltaf gott að koma þangað. Pabbi lést árið 2000 og var söknuður mömmu mikill enda voru þau sér- staklega samrýmd og ástfangin hjón. Mamma bjó áfram í húsinu þeirra og fékk frábæra umönnun hjá góðum nágrönnum og Hvera- gerðisbæ og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Hennar ósk var að fá að kveðja á meðan hún héldi enn sitt heimili og fékk hún þá ósk sína upp- fyllta. Elsku mamma, góða ferð og hafðu þökk fyrir allt og allt, Þórhildur Helga, Steinvör, Kristmundur og Hjörtur. Mamma mín hún Dídí Gísla sofn- aði inn í sumarið hinn 8. apríl sl. Hún var dökkhærð og brúneygð – fædd suður með sjó. Hún var auga- steinn foreldra sinna, hjálpsöm og ábyrg lítil stúlka. Vinkonurnar í Garðinum; Inga á Sólbakka, Þóra í Króki og fleiri stelpur fóru á skauta á Síkinu, skruppu á hestbak, léku sér glaðar og hraustar. Sorgin barði að dyrum. Amma Imba dó frá hópnum sínum. Mamma mín var harmi slegin 11 ára telpa. Svo komu fleiri högg. Berklarnir eða hvíti dauðinn. Heimilið leystist upp. Mamma fór á Vífilsstaði, þar vildu allir lifa en sumum auðnaðist það ekki. Baráttu- þrek mömmu fleytti henni langt. Hún fór á Kristnes og var höggvin eins og sagt var, upp á von og óvon. Höggningin bjargaði lífi hennar. Hún fór á Reykjalund í endurhæf- ingu og náði sér ótrúlega vel. Og aftur blasti lífið við. Hún kynntist Kjartani sem hét líka Þorleifur. Það varð beggja gæfa. Þau rugluðu saman reytum sínum, eignuðust tvær dætur og settust að á prestssetrinu Kolfreyjustað, falleg- asta stað í heimi. Þar undu þau glöð við sitt og lífið var þeim gott. Mamma gekk í smiðju til Guðnýjar tengdamóður sinnar með heimilis- hald. Heimilið var stórt, margir áttu þar höfði sínu að halla og margir komu við. Því hafði mamma í mörg horn að líta. Samt gerði hún alltaf frekar lítið úr sínum hlut. Hún var mjög fjölhæf og taldi ekkert eftir sér. Hún sinnti börnum og búfénaði. Yndislegast fannst henni æðarvarpið þar sem aldrei þurfti að deyða dýr. Börnunum fjölgaði, alls urðu þau Þórhildur Gísladóttir ✝ Yndislegi pabbi minn, sonur okkar, bróðir, mágur og barnabarn, SIGURJÓN DAÐI ÓSKARSSON, Kambaseli 85, Reykjavík, sem lést af slysförum þriðjudaginn 8. apríl, verður jarðsunginn frá Seljakirkju föstudaginn 18. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á sjóð til styrktar litlu dóttur hans, Viktoríu Vonar, reikningsnúmer 0528-04-250338, kt. 181005-2460. Viktoría Von Sigurjónsdóttir, Óskar Eyberg Aðalsteinsson, Margrét Árdís Sigvaldadóttir, Þórða Berg Óskarsdóttir, Gunnar Örn Arnarson, Ásta Kristín Óskarsdóttir, Jóna Katrín Guðnadóttir, Sigvaldi Ármannsson, Þórða Berg Óskarsdóttir, Birkir Baldursson. ✝ Þökkum innilega auðsýnda samúð, hlýhug og virðingu við andlát og útför, VALDIMARS ÓLAFSSONAR yfirflugumferðarstjóra, Lundahólum 3, Guð blessi ykkur öll. Helga Árnadóttir, Alexander Einar Valdimarsson, Ragnheiður Valdimarsdóttir, Páll Arnór Pálsson, Þórunn Erlu- Valdimarsdóttir, Eggert Þór Bernharðsson, Lilja Valdimarsdóttir, Trausti Valdimarsson, Herdís Guðjónsdóttir, Vala Sigurlaug Valdimarsdóttir, Kristófer Svavarsson, Ásdís Valdimarsdóttir, Michael Stirling, Árni Björn Valdimarsson, Ólafur Kr. Valdimarsson, Guðrún Ósk Hjaltadóttir, Vífill Valdimarsson, Sindri Valdimarsson, Lára Guðrún Magnúsdóttir, Kristín Þ. Valdimarsdóttir, Veigur Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Bróðir okkar, ÞORMÓÐUR JÓNSSON fv. tryggingafulltrúi, lést að Hvammi, heimili aldraðra á Húsavík, þriðjudaginn 15. apríl. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju miðvikudaginn 23. apríl kl. 14.00. Guðný Jónsdóttir, Ingimundur Jónsson og Þórólfur Jónsson. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN SIGURÐUR GUÐMUNDSSON, Drápuhlíð 45, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 8. apríl, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 18. apríl kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Landssamtökin Þroskahjálp. Ólafur Gísli Jónsson, Þórhalla Eggertsdóttir, Guðrún Vigdís Jónsdóttir, Gunnar Thors, Auðunn Örn Jónsson, Karen Guðmundsdóttir, Guðríður Kristín Jónsdóttir og barnabörn. ✝ Eiginmaður minn, SÉRA KRISTINN HÓSEASON fv. prófastur, Ofanleiti 17, Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 8. apríl. Útförin hefur farið fram. Anna Þorsteinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.