Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 14
Havana. AFP. | Kúbversk stjórnvöld hafa nú til umræðu tillögu sem fel- ur í sér breytingar á ströngum ferðatakmörkunum þegnanna sem þurfa að greiða himinhátt verð fyr- ir leyfi til að ferðast til og frá Kúbu. Þúsundir Kúbverja sem hafa reynt að flýja til Bandaríkjanna í gegnum árin hafa týnt lífi á leið- inni, en þeir sem þangað koma hafa sjálfkrafa fengið dvalarleyfi. Gjaldið sem Kúbustjórn hefur krafið þegna sína fyrir ferðaleyfi nemur hundruð Bandaríkjadölum, í landi þar sem mánaðarlaun flestra eru undir 20 dölum og hefur því verið lýst sem ígildi ferðabanns. Felur tillagan einnig í sér aukið svigrúm fyrir Kúbverja sem búa er- lendis til að fjárfesta á Kúbu. Fyrr- um diplómatinn Pedro Riera Escal- ante á frumkvæðið að tillögunni og er hann bjartsýnn um jákvæð við- brögð stjórnar Raul Castro. Reuters Neyð Flestir Kúbverjar lifa í sárri fátækt og búa við lítið ferðafrelsi. Fái aukið ferðafrelsi NÝJAR rannsóknir sýna, að það hafi í besta falli engin áhrif að taka inn vít- amín og í versta falli, að þau geti stuðlað að ótímabærum dauða. Þá er heldur ekkert, sem bendir til, að svo- kölluð andoxunarefni hafi einhver áhrif á ævilíkur manna. Rannsóknin var unnin hjá hinni virtu Cochrane Collaboration- stofnun, sem fæst við að meta árang- ur í heilsugæslu- og heilbrigð- ismálum, og í henni er meðal annars vitnað í vísindamenn við Kaup- mannahafnarháskóla, sem segja, að A- og E-vítamín geti haft óæskileg áhrif á ónæmiskerfið. Raunar virðist sem þau auki líkur á ótímabærum dauða. Rannsóknin náði til 233.000 manna, heilbrigðra og sjúklinga, sem allir tóku inn vítamín. Niðurstaðan var, að A-vítamín í pilluformi yki dán- arlíkur um 16%, beta-carotene um 7% og E-vítamín um 4%. C-vítamín virtist engin áhrif hafa, hvorki til né frá. Breska heilbrigðisráðuneytið hef- ur raunar varað fólk við því að taka mikið af vítamínum í pilluformi. Rétta leiðin sé að borða fjölbreyttan og hollan mat. Framleiðsla og sala á tilbúnum vít- amínum er mikill iðnaður, sem veltir um 185 milljörðum ísl. kr. árlega. Breskir talsmenn hans fullyrða, að margt fólk geti ekki unnið allt það vít- amín, sem það þarfnist, úr fæðunni. Eru vítamín varasöm? DANSKA lögreglan leitar nú ákaft manna sem numu fimm ára gamlan dreng á brott þar sem hann var með móður sinni fyrir utan leikskóla í Virum, norð- ur af Kaup- mannahöfn, um hálffimm- leytið í gær að dönskum tíma. Móðirin var skelfingu lostin og brotnaði sam- an eftir atvik- ið. Eiginmað- ur hennar var ekki viðstaddur, en á reiki er hvort mennirnir hafi verið tveir eða þrír. Mennirnir óku frá leikskólanum og auglýsir lögreglan eftir svörtum skutbíl með bílnúmeri sem inniheldur tölustafina 32787. Lögreglan kom umsvifalaust boðum um mannránið til eftirlitsmanna hafna og brúar- mannvirkja, ásamt því sem skutbíls- ins var leitað úr lofti í þyrlu. Oliver litli er af kínversku bergi brotinn, 130 sm hár og var klæddur í grágrænan jakka. Fjölskylda hans er sögð eiga nokkra veitingastaði. Mennirnir þrír voru grímuklæddir þegar þeir veittust að konunni þar sem hún var á leið í silfurgráa Merce- des Benz bifreið. Talið er að tveir hafi haldið konunni og svo gefið olnboga- skot svo blæddi úr andliti hennar. Foreldrarnir slegnir óhug Danskir fjölmiðlar hermdu að móðir drengsins hefði ekki borið kennsl á mennina, en að sögn lög- regluþjónsins Steens Sørensens var ekkert vitað um tilefni ránsins í gær. Foreldrar við leikskólann Skov- bakken í Virum áttu erfitt með að trúa atburðarásinni og voru slegnir yfir því að slíkur atburður gæti gerst um hábjartan dag. Lögreglan fékk tilkynningu um að sést hefði til bíls með sama númer í Lyngby og leitaði úr lofti án árangurs. Myndin sem hér fylgir var birt í öllum dönsku miðl- unum í gær. Lýsa eftir svörtum skutbíl Oliver litli  !  '  !( )                                                    ! "   #$#%&%' (  )   )     *+   & *  ,  "" . )   / )  0 *  "  &    +   /1 )   0     )2  )2  "      . -   ( )3  ' *  "       * '       )2        "                 )?'@ABC42DEAF@ !"  # $%&#' ()% !  ##* +  !! ,-#  # #* !.-/*0#- ##* $ 1# #*! 4 * * 5  )        )       * ' )   !"  " #$"   % &  ' ($ )    *   6 &7'  (  8) ' ( 9  2   )    *(    2(   % KÍNVERSK yfirvöld hafa staðið í ýmsu til að Ólympíuleikarnir í sumar megi verða sem glæsilegastir. Reynt hefur verið að tugta íbúa Beijing til með skipulögðu átaki sem á að vinna gegn ósiðum eins og þeim að troðast í röðum eða að spýta á götur. Betl- arar hafa einnig verið fjarlægðir af stærstu götum borgarinnar. Bygg- ingaframkvæmdir verða stöðvaðar í tæka tíð til að létta á mengun og silf- urjoði skotið upp í himininn til að tryggja að hann verði heiðskír. Sá álitshnekkir, sem Kínverjar hafa beðið vegna framferðis þeirra í Tíbet, hefur þó sett svo stórt strik í reikninginn að sögn AFP-fréttastof- unnar, að yfirvöld leita nú að erlendu almannatengslafyrirtæki til að að- stoða við að hressa upp á ímyndina. Ólympíuleikarnir undir- búnir af miklu kappi 14 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti og Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fylgjast með þegar Benedikt XVI. páfi kyssir hönd demókratans Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, fyrir framan Hvíta húsið í Washington í gær. Mikil eftirvænting ríkti í huga margra kaþólikka eft- ir því að fá að bera leiðtoga kaþólsku kirkjunnar aug- um þar sem hann hugðist koma fram á stórum íþrótta- leikvangi í borginni í dag en á morgun heldur hann heimsókn sinni áfram með viðkomu í New York. Áætlað er að um sjötíu milljónir kaþólikka séu bú- settar í Bandaríkjunum, eða hátt í fjórðungur íbúa- fjöldans. Heimsóknin hefur því þá pólitísku hlið að hún getur styrkt tengsl forsetaframbjóðenda repúblikana og demókrata við afar mikilvægan kosningahóp, ásamt því að höfða til trúaðra kjósenda almennt. Þúsundir manna hafa notað tækifærið og vakið at- hygli á kynferðislegri misnotkun kaþólskra presta í gegnum tíðina og þótti Benedikt XVI. taka óvenju- sterkt til orða í fordæmingu sinni á slíkum brotum. Reuters Eftirvænting vegna komu páfa „ÞEGAR ég fer yfir verkefni sem nemendur hafa skrifað eigin hendi liggur við að ég fái yfir höfuðið,“ segir Niels Egelund, prófessor í uppeldisfræðum við Danmarks Pædaogiske Universitet. Egelund og aðrir danskir uppeld- isfræðingar segja að tölvan og sms- skilaboðin séu á góðri leið með að gera ungt fólk óskrifandi. „Það er varla hægt að lesa párið frá þeim. Ég er ekki að segja að skriftarkunnáttan sé að deyja út en hún er á útleið sem persónuleg tjáning,“ segir Egelund og Mette Teglers í félagi danskra móð- urmálskennara og Elisabeth Arn- bak, sem stundað hefur rannsóknir á lestrarerfiðleikum, eru sammála. Arnbak segir að þegar dregið sé til stafs eigi hreyfing handarinnar sinn þátt í að festa í minninu hljóð- gildi stafsins. Nú skorti á þessa tengingu og það geri þeim, sem eiga í örðugleikum, til dæmis vegna lesblindu, enn erfiðara fyrir en ella. Tölvan og sms-skilaboðin eru að útrýma skriftarkunnáttu Morgunblaðið/Golli Skrift Mun það brátt heyra til gamla tímanum að hafa fallega hönd? RÚSSNESKA síðdegisblaðið MK fullyrðir, að Vladímír Pútín, fráfarandi forseti Rússlands, hafi skilið við konu sína, Ljúdmílu, og sé nú kominn með fimleikastjörnuna Alínu Kabajevu upp á arminn. Pútín er 56 ára en Kabajeva, sem er fræg fyrir sína „liðamótalausu leikni“, er aðeins 24 ára. Var hún kjörin á þing í síðustu kosningum. Sagt er, að þau Pútín og Kabajeva hafi kynnst fyrst á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000 en þá vann hún til bronsverðlauna. Hún hreppti síðan gullið á leikunum í Aþenu. Segir í blaðinu, að þau ætli að láta gefa sig sam- an í Pétursborg á sumri komanda eða skömmu eftir að Pútín lætur formlega af embætti sem forseti landsins. Fréttin í MK sætir allnokkrum tíðindum því að það hefur hingað til ekki verið liðið, að rússneskir fjölmiðlar geri einkalíf æðstu valdamanna að um- fjöllunarefni. Í MK var raunar tekið svo til orða, að Pútín hefði tekið Nicol- as Sarkozy, forseta Frakklands, sér til fyrirmyndar. Vladímír Pútín sagður í tygj- um við unga fimleikastjörnu Fimleikastjarnan Alína Kabajeva BRESK rannsókn hefur leitt í ljós að sérhönnuð tæki og efni, sem eiga að draga úr ryki og jafnframt úr áhrifum rykmaura á asmasjúklinga, hafa afar lítil áhrif. Maur- arnir smáu lifa m.a. í ryki sem sest í teppi, rúm og bangsa, en skv. rannsóknum duga dýnuhlífar, sérhönn- uð hreinsiefni, sérstaklega öflugar ryksugur eða loftsíur skammt til að leysa vandann, segir á vef BBC. Að sögn vísindamannanna er ástæðan sú að magn asmavalda á flestum heimilum er svo mikið að meðferðir sem þessar ná ekki að vinna bug á áhrifunum. Talsmaður Asthma UK samtakanna í Bretlandi segir niðurstöður rannsóknanna ekki koma á óvart. Samtökin mæli einfaldlega með því að rúmföt asmasjúklinga séu þvegin við háan hita og bangsar verði fjarlægðir úr rúmum til að minnka áhrif ryksins. Rykmaurarnir eru of margir Ryk Ekki þörf á sérhæfðri ryksugu. STUTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.