Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 21
neytendur MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 21 Bónus Gildir 17.-20. apríl verð nú verð áður mælie. verð Bónus frosnir íspinnar, 24 stk. .... 499 599 21 kr. stk. Bónus brauð, 1 kg ..................... 119 139 119 kr. kg Bónus fetaostur, 250 g .............. 198 239 792 kr. kg Bónus ferskir kjúklingabitar ........ 299 449 299 kr. kg Ali ferskur svínabógur ................. 499 599 499 kr. kg Nautaat ferskt ungnautahakk ...... 798 998 798 kr. kg KS frosin lambasvið ................... 199 399 199 kr. kg KS frosnar lambasirlonsneiðar .... 998 0 998 kr. kg KS frosinn lambabógur ............... 489 699 489 kr. kg KF heimilispylsur ....................... 477 572 477 kr. kg Fjarðarkaup Gildir 17.-19. apríl verð nú verð áður mælie. verð Íslenskar svínalundir úr kjötborði. 1.698 2.198 1.698 kr. kg Móa kjúklingaleggir .................... 479 799 479 kr. kg Móa kjúklingabringur ................. 1.769 2.949 1.769 kr. kg Nautainnralæri .......................... 2.398 2.898 2.398 kr. kg Fjallalambs súpukjöt frosið......... 473 591 473 kr. kg Íslenskt nautahakk 1fl. ............... 998 1.173 998 kr. kg Cheerios 992 g ......................... 489 583 492 kr. kg Ferskur ananas.......................... 179 229 179 kr. kg Appelsínur ................................ 98 139 98 kr. kg Fjallalambs grillsneiðar .............. 1.298 1.698 1.298 kr. kg Hagkaup Gildir 17.-20. apríl verð nú verð áður mælie. verð Kjötb. svínakótelettur ................. 979 1.398 979 kr. kg Kjötb. beikonvafið nautafile ........ 2.183 3.119 2.183 kr. kg Kjötb. íslenskar nautalundir ........ 3.198 4.264 3.198 kr. kg SS Caj P helgarsteik................... 1.574 1.968 1.574 kr. kg Hamborgarar, 4 stk. m/brauði .... 437 729 437 kr. pk. Íslandsgrís kryddl. hnakkasn....... 1.329 1.898 1.329 kr. kg Íslandslamb helgarsteik læri ....... 1.609 2298 1.609 kr. kg Holta læri fersk í magnp. ............ 506 779 506 kr. kg Holta úrb. kjúklingalæri í magnp. 1.267 1.949 1.267 kr. kg Holta vængir ferskir magnp......... 311 479 311 kr. kg Krónan Gildir 17.-20. apríl verð nú verð áður mælie. verð Grísahnakki úrbeinaðar sneiðar... 1.119 1.598 1.119 kr. kg Grísalund fyllt krydduð ............... 1.749 2.498 1.749 kr. kg Móa kjúklingur ferskur, 1/1 ........ 499 899 499 kr. kg Gourmet lambalærisn. hvítl/basil 1.732 2.309 1.732 kr. kg Goða súpukjöt, lítill poki............. 399 558 399 kr. kg Super blómkálsblanda ............... 198 269 198 kr. kg Vínarbrauðslengja með glassúr ... 229 298 229 kr. stk. Egils Mix, 2 l.............................. 129 167 65 kr. ltr Homeblest, 500 g...................... 129 149 258 kr. kg Bómullarskífur, 100 stk. ............. 99 199 99 kr. pk. Nóatún Gildir 17.-20. apríl verð nú verð áður mælie. verð Ungnauta innlæri, danskt ........... 1.998 2.998 1.998 kr. kg Ungnauta rib eye ....................... 2.498 3.798 2.498 kr. kg Nóatúns grísarif BBQ.................. 998 1.398 998 kr. kg Ungnautaborgari ca. 120 g......... 129 199 129 kr. stk. Grísakótelettur léttreyktar ........... 998 1.498 998 kr. kg Steinbítsflök krydd/marineruð .... 899 1.698 899 kr. kg Matfugls maískjúklingabringur .... 2.399 2.999 2.399 kr. kg Myllu vínar/kanilkaka, 360 g ...... 224 298 622 kr. kg Sprite Zero, 2 l .......................... 129 189 65 kr. ltr Lambi Satin hvítur, 6 stk............. 399 635 399 kr. pk. Þín Verslun Gildir 17.-23. apríl verð nú verð áður mælie. verð Svali 3x250 ml, allar teg. ........... 115 139 154 kr. ltr Nóa bananasprengjur, 150 g ...... 115 169 767 kr. kg Freyju djúpur, 180 g................... 198 298 1.100 kr. kg Merrild Sens. cappuccino, 175 g 319 415 1.823 kr. kg Hatting Filone spelt, 250 g ......... 239 315 956 kr. kg Hatting Panino Noce, 360 g........ 365 459 1.014 kr. kg Caj P hvítl. grillolía, 250 ml......... 198 259 792 kr. ltr Tilda egg/fried basmati, 250 g ... 319 398 1.276 kr. kg Tilda sun/tomat basmati, 250 g . 319 398 1.276 kr. kg Dalfour appel.marmel., 284 g..... 279 389 983 kr. kg helgartilboðin Nautakjöt og brauðmeti Ég mæli með að fólk fariekki af stað með það aðbera viðarvörn á tréverkfyrr en í maí, þegar loft- hitinn er að jafnaði ekki lægri en fimm til sex gráður yfir daginn, því það er hætta á að það sé raki í timbr- inu eftir veturinn. Viðurinn þarf að vera orðinn vel þurr áður en hafist er handa,“ segir Þorsteinn Viðar Sigurðsson, formaður Málarameist- arafélagsins. „Eins þarf að vera gott veður framundan þegar fólk fer í það að viðarverja. Ef fólk þvær til dæmis viðinn fyrst, þarf að vera góður þurrkur í tvo til þrjá daga eftir það, svo hann sé orðinn þurr áður en bor- ið er á. En það er auðvitað allt í lagi að þvo viðinn í rigningu.“ Rigning og sól vinna á viðnum Þorsteinn segir að misjafnt sé hversu oft þurfi að viðarverja, sumir geri það annað hvert ár, en aðrir þriðja hvert ár. „Það fer eftir vind- áttinni hversu mikið mæðir á viðnum á hverri hlið. Rigningaráttirnar, austan- og sunnanáttin, eru dugleg- ar að vinna á viðnum, í það minnsta hér á höfuðborgarsvæðinu. Og þó að sólin sé góður vinur okkar er hún svolítið slæm fyrir timbrið því geisl- ar hennar brjóta niður viðarvörn- ina.“ Ef pallar eru mjög stórir og við- argrindverk margir fermetrar, get- ur verið mikil vinna að viðarverja öll herlegheitin. „Það getur lagt hvern mann í bælið að ætla að pensla slíkt, enda fær fólk oft fagmenn í verkið. Þá er viðurinn oft sprautaður en ekki penslaður, sem tekur styttri tíma.“ Áður en viðarvarið er, þarf að byrja á því að losa allan gráma úr viðnum og slípa yfir. „Sumir hafa farið út í það að háþrýstiþvo viðinn með léttum þvotti og ekki miklum þrýstingi, en aðrir nota sandpappír og pússa þetta upp á gamla mát- ann.“ Sérstaka pallaolíu á pallana Þorsteinn segir að eftir upp- hreinsun þurfi að bera grunnfúavörn á alla bera fleti viðarins þar sem öll málning hefur farið af. „Síðan eru yfirleitt farnar tvær umferðir yfir með hina eiginlegu viðarvörn. Þrennskonar efni eru í boði til að viðarverja. Annars vegar eru það gömlu góðu olíuefnin sem ég mæli persónulega með, vegna þess að þau smjúga vel inn í viðinn og endast vel. Síðan eru það vatnsefnin sem vilja sitja vel á viðnum því þau mynda nokkuð góða filmu, sem hefur þann galla að vilja flagna af, nema fólk annist þetta mjög vel. Í þriðja lagi eru það efni sem eru blanda af vatni og olíu, sem er nokkuð sniðugt, því þá smýgur olían inn í viðinn en vatnsefnið sest utan á viðinn og ver hann.“ Á pallana sem gengið er á er borin sérstök pallaolía sem smýgur mjög vel inn í viðinn. „Það er ekki gott að bera efni á palla sem myndar filmu því það liggur svo mikið vatn á pöll- unum og því er mikil hætta á flögnun mjög fljótt. Það getur komið fólki í koll að vera of duglegt að bera á pall- ana. Ég mæli frekar með því að bera sjaldnar á þá, en fylgjast vel með ástandinu, heldur en að vera að bera á hverju ári og fá mikla filmu sem flagnar.“ Verja skal trjágróður ef viðar- vörn er sprautað yfir flötinn Fyrir þá sem vilja hugsa um um- hverfið, segir Þorsteinn að öll þessi viðarverjandi efni séu eitthvað mengandi. „Vatnsefnin eru þó aug- ljóslega minnst mengandi. Ef við- arvörn er sprautað á viðinn, er mik- ilvægt að verja trjágróður og annað sem er í nágrenni við það sem sprautað er á. Olíuefnin eru ekki mjög væn fyrir lifandi trjágróður,“ segir Þorsteinn og bætir við að það geti borgað sig að fá fagmenn í verk- ið, því þá getur fólk verið öruggt um að þetta sé rétt gert auk þess sem árs ábyrgð sé þá á verkinu. khk@mbl.is Að verja viðinn fyrir veðrum Morgunblaðið/Eyþór Vorverkin Að ýmsu ber að huga þegar kemur að viðarvörn og skiptir miklu að grunnvinnan sé góð og veður þurrt. Ýmislegt í boði Þrennskonar efni eru í boði til að viðarverja: Olíuefni, vatnsefni og þau sem eru blanda af olíuefnum og vatnsefnum. Nú þegar vorið lætur loksins á sér kræla fer fólk að dytta að í görðum sínum. Kristín Heiða Kristinsdóttir fékk að vita ýmislegt um viðhald á pöllum, grindverkum, garðhúsgögnum og öðru sem gert er úr timbri og kemur misjafnt undan vetri. Það er ekki gott að bera efni á palla sem myndar filmu, því það liggur svo mikið vatn á pöllunum og því er mikil hætta á flögnun mjög fljótt. Haustferð til Glasgow ÍT ferðir bjóða upp á skemmtiferð til Glasgow 9.-11. september í haust. Gist verður á hóteli í miðborg Glas- gow þaðan sem sækja má ýmiss konar dægrastyttingu, s.s. golf og verslun, heimsækja Edinborg eða viskíbrugghús svo eitthvað sé nefnt. Á slóðum Sama og hreindýra 5.-12. september mun Trex- Hópferðamiðstöðin efna til ferðar til Lapplands og Norður-Noregs. Gist verður í Helsinki, Ivalo og Hammer- fest og m.a. farið í skoðunarferð um helstu merkisstaði Helsinki, siglt á Inarivatninu, farið til Nordkap, bæj- arins Alta og ekið um slóðir Sama og hreindýra í hjarta Lapplands. Far- arstjóri er Kristján M. Baldursson. Í Marokkó og á Kanaríeyjum Fjallgöngur á framandi slóðum er þema síðustu ferðakynningu Ís- lenskra Fjallaleiðsögumanna í vetur sem verður í kvöld klukkan 20. Sem fyrr verður kynningin í höfuðstöðvum fyrirtækisins að Vagnhöfða 7. Sagt verður frá göngu á Toubkal í Marokkó og á hæsta fjall Spánar, El Teide á Tenerife. TREX-Hópferðamiðstöð, Hest- hálsi 10, sími: 587 6000, www.trex.is Netfang: info@trex.is ÍT ferðir, Íþróttamiðstöðinni Laug- ardal, sími: 588 9900, www.itfer- dir.is. Netfang: hopar@itferdir.is vítt og breitt EKKI eru það allsendis ný tíðindi að kaffidrykkja sé talin draga úr líkum á elliglöpum en nú gæti verið að nið- urstöður bandarískrar rannsóknar geti skýrt hvernig á því stendur. Frá þessu er greint á vefmiðli BBC en fyrrnefnd rannsókn var gerð á kan- ínum í háskólanum í Norður-Dakóta. Svo virðist sem kaffi (eða koffínið sem finnst jú í kaffidrykknum) komi að einhverju leyti í veg fyrir þær skemmdir sem kólesteról getur unn- ið á líkamanum, en kólesteról er ein- mitt talið vera eitt af því sem veikir varnir heilans og miðtaugakerfisins. Sumir segja að þetta séu „bestu sannanir hingað til“ fyrir jákvæðum áhrifum kaffidrykkju. Í rannsókninni var koffínskammti sem samsvarar því magni sem er í einum kaffibolla bætt í fituríkt fóður hjá ákveðnum hópi af kanínum á degi hverjum, en koffíninu var sleppt í samanburðarhópnum. Í ljós kom eftir 12 vikur að varnarkerfi miðtaugakerfisins hjá þeim kanínum sem fengu koffín hafði orðið fyrir miklu minni skemmdum vegna fitu- ríku fæðunnar. Reuters Kaffisopinn góði Þetta fólk er augljóslega sólgið í kaffi. Kaffibolli á dag fyrir heilann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.