Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 17
Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 17 MENNING Það getur verið lærdómsríktfyrir þá sem hjá standa aðfylgjast með, hvernig fólk mætir því að örlögin mæli þeim lokadag. Ekki þar fyrir að það eina sem okkur öllum er ætlað með vissu er að deyja, en sumir fá notið langra og frjórra daga með ævi- kvöldi meðan aðrir hverfa af svið- inu fyrir aldur fram. Ólafi Ragnarssyni var ákveðinn ótímabær lokadagur. Hann fékk ekki langan frest en fjarri honum var að sitja hann í sút, hann lauk við bók um samskipti sín og nób- elsskáldsins og hann orti ljóð sem komu á bók; Agnarsmá brot úr ei- lífð, sem honum auðnaðist að sjá eintak af áður en hann féll frá.    Jóhann Jónsson orti í Söknuði: Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glat- að … Í einu ljóða sinna henti Ólafur þetta minni Jóhanns á lofti, en leit ekki um öxl grátbólgnum augum heldur hvessti sjónir á okkur hin í hvatningarskyni: Látt’ ekki daga lífs þíns lit sínum glata, þótt birtur þér hafi verið bráðþungur dómur. Meðan sjúkdómurinn sótti á leit Ólafur á hann sem áskorun og kunni ekki aðra vörn en að sækja og líta á veikindin sem „vænlega reynslu sem veitir þér viðbót- arþroska“. Það er þetta æðruleysi Ólafs sem vekur athygli lesanda ljóða hans. Það kostar ekkert að horfast í augu við ódagsettan dauða. Annað mál þegar hann er kominn á dagskrá. Og við þá reisn að sjá hann sem í spegli og geta samt haft af honum einhver not set- ur okkur hin hljóð. Hann Ólafur Ragnarsson glataðiengu nema talandanum á lokasprettinum. Hlýjan og húm- orinn yfirgáfu hann ekki. Eða hvað segja menn um ljóð eins og Hring- ingu: Lífslogi blaktir á skari. Langri vegferð að ljúka. Maður með ljá er mættur á vettvang. Við hinsta andvarp hringir síminn: Tilboð um áskrift að Nýju lífi. Því miður – of seint. Svo rík hlýja sem var í fari Ólafs Ragnarssonar hlaut að finna sér farveg inn í ljóð hans til þeirra sem voru honum kærir; Návist þín: Ef væri ég fiðrildi og flögraði vítt út um veröld værir þú fegursta blóm er ég liti í lífsins garði. Og svo líka til landsins og náttúr- unnar. Frá þeirra faðmi naut Ólaf- ur ríkulega og þess sér stað í ljóð- um hans, t.d. Sumardýrð: Alhvítar kvaka álftir á afskekktu fjallavatni lagboða sinn um lífið og tilveruna. Vængjum nú berja við bláan spegil og búast til flugs. Siglfirðingur sem hann var geymdi hann hjá sér glaðar síld- arminningar: Hafir þú barnsskónum slitið í blómstrandi síldarbæ og unnið á iðandi plönum, áttu þitt ævintýri um ókomna tíð, átt merlandi minningasafn í sálu þinni og sinni.    Og hvaða mælikvarða skal setjaá ljóð Ólafs Ragnarssonar? Matthías Johannessen segir að Ólafur hafi haft ljóðskáldstaugar og engum treysti ég betur en Matthíasi til að nema það. Þær aðstæður sem ljóðin spruttu úr setja mark sitt á þau. Þau eru svanasöngur sigrandi sálar. Lífið þú hefur í hendi og höndlar það enn. Staðfastur njóttu og sterkur þeirra stunda sem gefast. Svanasöngur sigrandi sálar AF LISTUM Freysteinn Jóhannsson » Það kostar ekkert aðhorfast í augu við ódagsettan dauða. Ann- að mál þegar hann er kominn á dagskrá. Og við þá reisn að sjá hann sem í spegli og geta samt haft af honum ein- hver not setur okkur hin hljóð. Morgunblaðið/RAX Æðrulaus Ólafur Ragnarsson slær hugrakkan tón í ljóðum sínum. freysteinn@mbl.is TÓNLISTARSKÓLINN Í REYKJAVÍK 2008-2009 Innritun stendur yfir Nánari upplýsingar á tono.is Innritun og upplýsingar í síma 561 5620. www.schballett.is 4 vikna vornámskeið hefst 26. apríl Upplagt til kynningar fyrir byrjendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.