Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 35
sex, en nýfæddan son misstu þau. Það urðu eiginlega tvær kynslóðir barna. Þau eldri fóru að heiman í framhaldsnám, yngri börnin voru heima þannig að enn var nóg að gera. Fóstursynir voru tveir. Á sumrin eftir 1973 leyfðu þau sér að ferðast pabbi og mamma og létu mér heimilið eftir við mismiklar vin- sældir litlu systkina minna. Barna- börn fæddust og sum nutu uppeldis ömmu og afa fyrstu árin. Að loknu ævistarfi fluttu þau í Hveragerði – og undu sér vel. Pabbi dó árið 2000 og hafði árin á undan ekki gengið heill til skógar. Mamma bjó áfram á heimili sínu til æviloka. Síðustu árin glímdi hún við erfiðan lungnasjúkdóm. Með sinni ótrúlegu seiglu og viljann að vopni átti hún góða daga. Hún stóð ekki ein. Hún átti marga að enda hafði hún unnið til þess. Hún hélt góðu sambandi við systkini sín og marga vini sína. Hún hafði ótrúlegt tengslanet og frábæra samskiptahæfileika. Mamma var afar falleg og glæsileg kona og bar veik- indi yngri ára ekki utan á sér. Allir afkomendurnir voru henni ástfólgnir. 12 þeirra sátu við dánar- beð hennar – og við vissum að hún fengi góða heimkomu. Þessar ljóðlínur eftir Örn Arnar- son kenndi hún mér sem barni þegar hún lýsti sorg sinni við móðurmiss- inn. Þá vildi ég móðir mín, að mildin þín, svæfði mig svefninum langa … Og kannski var það hún Imba amma sem sótti sál dóttur sinnar með honum Kjartani hennar. Vertu kært kvödd mamma mín og hafðu þökk fyrir allt og allt. Blessuð sé minning þín. Þín dóttir Ingibjörg Þorgerður (Imba). Elsku amma. Margar minningar koma í hugann á þessari stundu og erfitt er að henda reiður á þeim öllum. Allar stundirnar sem ég átti með þér á Kolfreyjustað þar sem við gerðum ýmislegt saman og þú kenndir mér svo margt. Við bökuðum, elduðum, lásum, spjölluð- um saman ásamt því að vinna hin ýmsu verk sem til féllu á heimilinu. Þú sast aldrei auðum höndum en allt- af hafðir þú tíma fyrir að spjalla við litlu forvitnu stúlkuna sem var á vappi í kringum þig. Eitt af því sem mér fannst skemmtilegt að gera með þér var að taka á móti gestum á Kolfreyjustað. Þú varst mjög gestrisin og gerðir allt til að gestum liði vel hjá þér og tókst það ætíð. Þá fékk ég að ganga um beina og aðstoða þig. Það fannst mér vera toppurinn á tilveru minni. Eftir að ég átti börnin mín þá hringdir þú reglulega til að fylgjast með okkur og fá fréttir af okkur, hvernig börnin hefðu það, hvort þau döfnuðu ekki vel. Ég er mjög glöð með síðustu samverustund okkar þar sem þú hittir litla drenginn minn en þú hafðir fylgst með honum reglulega frá því hann fæddist. Elsku amma mín ég veit að nú ertu komin til afa og að nú líður ykkur vel saman aftur á ný. Takk fyrir allt sem þú kenndir mér, takk fyrir allt sem þú sagðir mér og takk fyrir að vera amma mín. Þín, Þórhildur. Elsku amma. Við viljum þakka þér allar yndislegu minningarnar sem við eigum um þig. Alltaf var heimilið þitt opið fyrir okkur og fyrir sum okkar var það eins og okkar annað heimili. Þú varst alltaf með allt á hreinu um fjölskylduna þína, hafðir alltaf fréttir að færa þegar við hittumst, eða heyrðum í þér, barnabörnin og lang- ömmubörnin voru svo greinilega í uppáhaldi hjá þér. Þú varst alltaf svo fín og flott og passaðir vel að allt í kringum þig væri hreint og fínt. Það verður erfitt að keyra fram hjá Hveragerði núna og ekki geta komið við í Kambahrauninu og sjá þig sitj- andi við eldhúsborðið með gleraugun á nefinu að lesa Moggann og heyra góðlátlegt malið í vélinni þinni, að fá ekki að sjá brosið sem færðist yfir andlitið á þér þegar við komum við, sérstaklega þegar Viktoría Líf, lang- ömmubarnið þitt, var með í för. Minningarnar eru margar sem hell- ast yfir okkur núna, eins og þegar þú komst til okkar út í eyjar til að halda með okkur jól, þegar þú bjóst hjá okkur á Seljaveginum meðan afi var veikur og var á Landspítalanum, við dáðumst að því hvað þú varst sterk þá, þú varst hans, og okkar, stoð og stytta. Í vetur gat ég sagt með sanni: Svart er yfir þessu ranni. Sérhvert gleðibros í banni, blasir næturauðnin við. Drottinn, þá er döprum manni dýrsta gjöfin sólskinið! (Stefán frá Hvítadal) Elsku amma, takk fyrir allt og allt, við elskum þig. Þín ömmubörn Kjartan, Ragnar, Styrmir og Jóhanna. Elsku amma Dídí, mig langaði í fá- einum orðum að fá að kveðja þig. Ég kynntist þér fljótlega eftir að ég tók saman við barnabarn þitt Kjartan og urðum við fljótt góðar vinkonur. Ég hafði alltaf gaman af heim- sóknum mínum í Kambahraunið, þú tókst alltaf vel á móti okkur og þú varðst alltaf mjög glöð þegar Vikt- oría Líf var með í för, litla langömm- ustelpan sem þér þótti svo vænt um. Þú hafðir frá miklu að segja og fékk ég að heyra mikið frá Kol- freyjustað sem þér leið afskaplega vel á. Einnig töluðum við oft saman í síma og fékk ég iðulega þá spurn- ingu hvort hún Viktoría Líf væri ekki örugglega enn með fallega rauða hárið sitt. Ég fékk einnig þann heiður að kynnast sr. Þorleifi manninum þín- um sem dó árið 2000. Ég gleymi aldrei fyrsta skiptinu sem ég hitti hann, hann sat í stól í stofunni í Kambahrauni og stóð upp til að heilsa mér og ég hreinlega hélt að hann ætlaði aldrei að hætta að standa upp, svona stóran mann hafði ég aldrei séð áður. Ég kveð þig með söknuði og þakka fyrir þær stundir sem við áttum saman. Kristín Eva. Sæmdarkona er fallin frá, lífs- reynd og hreinskiptin. Þórhildur eða Dídí eins og við kölluðum hana var ósérhlífin og einstaklega trúföst kona. Við minnumst hennar með kærleik í hjarta. Við töluðum saman oft í viku í síma, Dídí vildi fá fréttir af fjölskyldu og vinum. Við minnumst ferðanna til Hveragerðis, hvíti skeljasandurinn í skottinu frá Garð- skaga en skeljasandurinn heillaði Dídí frá barnæsku. Hvergi er hægt að fá svona fallegan og hvítan sand, sagði hún. Þegar hún bjó á Kol- freyjustað sendum við henni sand með báti. Mikið var gaman að geta gert henni greiða, hún var alltaf þakklát og lét í ljós tilfinningar sem merluðu í hjarta hennar, sennilega bernskuminningar úr Garðinum. Á þriðjudags- og laugardags- kvöldum heyrum við hjónin og sjáum systur okkar í Kaliforníu í gegnum tölvuna. Á fallegu þriðjudagskvöldi síðasta sumar kom Dídí við í Garð- inum ásamt Helgu dóttur sinni og hitti systkini sín í Flösinni á Garð- skagavita, stað sem henni þótti vænt um. Glatt var á hjalla og tilfinninga- þrungin stund ríkti þegar hún kom við í Kríulandinu og sá Öllu og Svövu systur sínar í tölvunni, hún gat talað við þær, kvöldstund sem aldrei gleymist, þvílík tækni. Mæt og merkileg kona er farin, hetja sem unni sínum. Elsku systir, við þökk- um liðnar stundir, þú lifir í minning- unni. Alla og Svava í Californiu biðja fyrir samúðarkveðjur til aðstand- enda, einnig Guðrún Eyjólfsdóttir í Pennsylvaníu. Hvíl þú í friði, kristna sál. Eyjólfur Gíslason og fjölskylda. Byrði betri berr-at maðr brautu at en sé mannvit mikit; (Úr Hávamálum) Þórhildur Gísladóttir, dyggur vin- ur og félagi, er horfin af sjónarsvið- inu, en ekki úr huga og hjarta okkar sem áttum með henni samleið á langri vegferð. Við Þórhildur áttum báðar bernsku okkar við ómælda víðáttu hafs og himins sem mættust við sjón- deildarhring í órafjarlægð frá lágri strönd, sitthvorumegin við flóann sem geymdi lífsbjörgina. Þórhildur var þriðja elst fjórtán barna foreldra sinna og fyrsta stúlk- an í hópnum. Ég var elst fimmtán barna foreldra minna. Aldrei hvarf mér ættingi á æskuárum, en Þór- hildur og stóri systkinahópurinn hennar missti móður sína, þá öll inn- an við fermingu. Elstu börnin þá þrettán, tólf og ellefu ára. Þórhildur ellefu ára. Hópurinn dreifðist á bæina í kring. Í Garðinum bjó gott fólk. Elstu börnin þrjú fengu að vera hjá föður sínum, honum til halds og trausts, enda dugleg og sjálfbjarga. Þetta var á þeim árum þegar berklarnir geisuðu um landið og lögðu að velli ómældan fjölda æsku- fólks og aldraðra. Gísli, faðir Þór- hildar, reyndist sýktur og var sendur á hæli þar sem hann var næstu tvo tugi ára eða þangað til lyfin komu. En það var ekki bara Gísli sem var lagður inn. Nei, börnin hans tíndust þangað eitt og eitt og voru ýmist úti eða inni. Þessu undarlega lífi kynntust allir sem lentu á hælinu. Sundraði systk- inahópurinn hennar Þórhildar háði sína hörðu baráttu, en allir sem lifðu komust vel til manns. Þórhildur barðist lengst og harðast. Hennar hlutverk var líka að halda hópnum saman. Öll tengdust þau henni og sú taug slitnaði aldrei, hversu dreifð sem þau voru. Á hælisárunum stóð Þórhildur í fremstu víglínu í baráttu fyrir betra lífi berklasjúklinga. Hún fyllti þann hóp sem stofnaði SÍBS. Þetta var glaður, bjartsýnn, óbugaður og sterkur hópur sem hrósaði sigri í harðri baráttu þegar Reykjalundur reis frá grunni. Þar áttum við Þór- hildur athvarf og endurhæfingu vísa þegar í nauðir rak. En Þórhildur átti fleiri líf. Þegar Reykjalundur var risinn og Þórhild- ur búin að ganga í gegn um rifja- skurð og lungnapressu, svokallaða höggningu, giftist hún séra Þorleifi Kristmundssyni, prófasti á Kol- freyjustað við Fáskrúðsfjörð. Þar nutu þau hjónin lífsins í ríkum mæli. „Engin börn Þórhildur mín, engin börn, of mikið álag, of mikil áhætta.“ Þórhildur brosti þegar hún vitnaði í þessi orð læknanna sem höfðu ann- ast hana. Þau hjónin eignuðust fimm börn, glæsileg og vel af Guði gerð. Auk þess ólu þau upp tvö til viðbótar auk allra barnanna sem áttu hjónin að þegar nauðsyn krafði. Þórhildur hafði meðal annars lært kjólasaum og bjó að því þegar börnin komu. Fatnaður þeirra bar af og allt heimagert. Það hráefni sem barst henni til matargerðar var vel nýtt og veislukostur gjarnan á borðum hjá prófastsfrúnni. Allar stundir á Kol- freyjustað voru Þórhildi ómetanleg- ar. Þar komst hún í snertingu við líf- ið sjálft. Þórhildur elskaði lífið í allri sinni mynd. „Sjáðu,“ sagði hún og sýndi mér myndir úr æðarvarpinu. „Við hjónin þurftum aldrei að fórna lífi eða lóga dýri. Bara hlúa að lífinu og njóta þess.“ Þagalt ok hugalt skyldi þjóðans barn ok vígdjarft vera; glaðr ok reifr skyli gumna hverr, uns sinn bíðr bana. (Úr Hávamálum) Ég kveð Þórhildi vinkonu mína með virðingu og þakklæti og sendi öllum afkomendum hennar einlægar samúðarkveðjur. Rannveig Löve. Sumar manneskjur hafa meiri áhrif á mann en aðrir. Amma mín, Þórhildur Gísladóttir, var ein þeirra. Hún var mér afar kær og ég á eftir að sakna hennar mikið. Amma var lengst af prestsfrú á Kolfreyjustað þar sem afi minn heit- inn, Þorleifur Kjartan Kristmunds- son, var prestur. Hún sinnti með sóma stóru heimili þar sem ætíð var líf og fjör. Á sumrin var mikill gesta- gangur hjá þeim hjónum. Þegar hvert rúm var skipað var tjaldað úti í garði og við krakkarnir sváfum þar. Án fyrirhafnar voru töfraðar fram dýrindisveitingar og oft var þéttset- inn bekkurinn við matarborðið. Í minningunni var alltaf sól og gott veður á Kolfreyjustað, enda hvergi betra að vera en þar. Amma var einkar glæsileg kona, hún minnti einna helst á kvikmynda- stjörnu svo fögur var hún. Þegar ég var lítil var ég dauðhrædd um að allir piparsveinarnir í sveitinni væru skotnir í henni, því þeir gáfu henni oft fallegar gjafir. Amma hló þegar ég bar þessar áhyggur mínar undir hana, enda hvarflaði slík vitleysa ekki að henni. Amma var hæversk, einstaklega góðhjörtuð og vildi öllum vel. Hún var mjög barngóð og hændust börn að henni. Ég man að amma skamm- aði mig aldrei, ekki einu sinni ein ára- mótin þegar ég missti logandi stjörnuljós á stofuteppið svo það kom brunagat á það. Amma fann bara mottu og setti yfir brunagatið. Æska hennar sjálfrar var ham- ingjurík framan af þrátt fyrir fátækt en þegar amma var aðeins 11 ára missti hún móður sína. Það hafði mik- il áhrif á hana og hún talaði oft um hversu mikið áfall það var. Æsku- heimili hennar leystist upp og við tók tímabil erfiðleika en amma var þó alltaf bjartsýn og gerði gott úr erf- iðum aðstæðum. Amma veiktist ung af berklum en náði sér á undraverðan hátt eftir margra ára veikindi. Hún gekk í gegnum erfiðar læknismeð- ferðir en sagði sjálf að hún hefði gert allt til að ná heilsu á ný. Það var ekki að sjá á þessari glæsilegu konu að hún hefði misst heilsuna ung að ár- um. Hún var ávallt teinrétt og tign- arleg. Þau afi kynntust síðan þegar hún var orðin 25 ára. Þau sátu bak í bak á dansleik og tóku tal saman. Það endaði með hamingjusömu hjónabandi. Þegar afi lét af prestskap fluttu þau amma til Hveragerðis og bjuggu sér fallegt heimili. Afi lést fyrir tæp- um átta árum og amma bjó ein eftir það. Hún sýndi mikinn dugnað og æðruleysi í eigin veikindum, gafst aldrei upp þótt á móti blési. Ég kveð ömmu mína með sorg í hjarta. Blessuð sé minning hennar. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Sigríður Inga Sigurðardóttir. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 35 ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, KRISTÍN MARTEINSDÓTTIR, Hafraholti 30, Ísafirði, sem lést laugardaginn 5. apríl, verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 19. apríl kl. 14.00. Minningarathöfn verður í Fríkirkjunni í Hafnarfirði þann sama dag kl. 16.30. Svanbjörn Tryggvason, Brynjar Svanbjörnsson, Bára Berg Sævarsdóttir, Marteinn Svanbjörnsson, Elín Hólm, Tryggvi Svanbjörnsson, Aron Svanbjörnsson, barnabörn, systkini og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar sambýliskonu, móður, tengdamóður, ömmu, dóttur, tengdadóttur, systur og mágkonu, SIGNÝJAR VILHJÁLMSDÓTTUR, Laugarholti 3d, Húsavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga fyrir alúð og góða umönnun. Jóhannes Jóhannesson, Elísa Rún Heimisdóttir, Þorsteinn Pálmason Axfjörð, Leifur Þór Heimisson, Lilja Randversdóttir, Hilmar Henning Heimisson, Kristófer Daði Axfjörð, Sigrún Baldursdóttir, Vilhjálmur Jónasson, Bára Hermannsdóttir, Jóhannes G. Jóhannesson, systkini og aðrir ástvinir. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EINARÍNA MAGNÚSDÓTTIR, áður til heimilis að Blikabraut 3, Keflavík, lést 10. apríl á hjúkrunarheimilinu Garðvangi. Jarðsett verður frá Hvalsneskirkju, föstudaginn 18. apríl kl. 11.00. Samúel Björnsson, Guðbjörg Samúelsdóttir, Kristján Þórðarson, Björn Samúelsson, Svanhildur Gunnarsdóttir, Rósa Samúelsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.