Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING ÁHUGAFIÐLULEIKARINN Ro- bert Napier varð heldur betur fyrir stórtjóni á dögunum þegar hann gleymdi fiðlunni sinni á farang- ursvagni í lestarstöð í Taunton á Englandi. Fiðlan er af gerðinni Goffriller og metin á 180.000 pund. Samkvæmt gengi pundsins þegar þessi frétt var skrifuð í gær þá er það að jafnvirði 26,4 milljónum króna. Fiðlan var smíðuð af fiðlu- smiðnum Matteo Goffriller í Fen- eyjum árið 1698 en Napier-ættin hefur átt hana í 100 ár, að því er breska dagblaðið Times greinir frá. Napier áttaði sig á þessu þegar hann var kominn heim til sín og seg- ir augnablikið hafa verið hræðilegt þegar hann áttaði sig á því að hann hefði gleymt fiðlunni. Tryggingafyrirtækið Allianz, sem fiðlan var tryggð hjá, heitir 10.000 punda fundarlaunum fyrir ætt- argripinn. Dýrkeypt gleymska Dýrgripur Fiðla af gerðinni Goffriller frá Feneyjum. RÉTTARHÖLD fara þessa dag- ana fram vegna meints brots á höfundarrétti J.K. Rowling á bókunum um Harry Potter. Málið höfðaði Rowling gegn út- gefanda alfræði- rits um Potter, Harry Potter Lex- icon, og fara réttarhöldin fram í New York. Vitni í málinu virðast eiga erfitt með að halda aftur af tárunum, ekki síst Rowling sem sagði fyrir rétti að hún vildi alls ekki gráta, hún væri nú einu sinni bresk. Henni fyndist sem verkum sínum hefði verið stolið af höfundi ritsins, Steve Vander Ark. Ark var einnig með grátstafina í kverkunum í gær og sagði málaferl- in hafa tekið verulega á enda hefur hann mátt þola harða gagnrýni og þá ekki síst frá Rowling. Málið er þó ekki höfðað gegn honum heldur út- gáfufyrirtækinu RDR Books. Rowling fer fram á að varanlegt lögbann verði sett á alfræðiritið og segir stóra hluta Potter-bókanna af- ritaða án þess að nokkru sé við bætt í túlkun eða öðru. Gráti nær yfir Potter Steve Vander Ark DANSKA söngvaskáldið, tón- listarmaðurinn og fræðimað- urinn Per Warming heldur fyr- irlestur um neðanjarðarsöngva á dögum Sovétríkjanna í Reykjavíkurakademíunni kl. 17 í dag. Í fyrirlestri sínum fjallar hann einkum um and- ófssöngvarana Vladimir Vy- sotskij og Bulat Okudzjava og lofar áheyrendum að heyra söngva þeirra við eigin gít- arleik. Bæði þessi söngvaskáld höfða sterkt til ungs fólks í Rússlandi nú á dögum. Per Warming á að baki störf sem skólastjóri og kennari við lýðháskóla í Danmörku. Hann hefur ferðast tals- vert um sem fyrirlesari og vísnasöngvari. Tónlist Neðanjarðarsöngv- ar í Sovétríkjunum Per Warming STRANDFERÐ eftir Steinar Sigurjónsson er leikrit kvölds- ins kl. 22.15 í Útvarpsleikhús- inu á Rás eitt. Sjana og vinir hennar, þeir Manni og Stússi, reika um á jaðri samfélagsins og sjá heiminn í vímu ofskynj- ana. Á ferð sinni rekast þau á þekktan tónlistarmann og ákveða að fá hann til að horfast í augu við afleiðingar gerða sinna. Þau halda með hann til strandarinnar… Leikendur eru Guðrún S. Gísla- dóttir, Pétur Einarsson, Stefán Jónsson og Jón Júlíusson. Tónlist er eftir Pétur Grétarsson, Georg Magnússon sá um hljóðvinnslu og Hallmar Sigurðsson leikstýrir. Leiklist Strandferð í Útvarpsleikhúsinu Steinar Sigurjónsson Á TÓNLEIKUM Múlans á Domo í kvöld leikur hljóm- sveitin Moses Hightower. Hljómsveitina skipa nú: Stein- grímur Teague hljómborðs- leikari, Magnús Tryggvason trommuleikari, Daníel Böðv- arsson gítarleikari og Andri Ólafsson bassaleikari, en auk þeirra lúðurþeytararnir Ingi- mar Andersen, Ari Bragi Kárason, Samúel Samúelsson, Kjartan Há- konarson og Óskar Guðjónsson, Ómar Guð- jónsson gítarleikari og Helgi Svavar Helgason slagverksmaður. Leikin verður „afrobeat“ tónlist í anda Nígeríumannsins Fela Kuti; bræðingur djass, fönks og afrískrar tónlistar. Tónlist Afróbít í anda Fela Kuti í Múlanum Fela Kuti Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is NÆSTA Ritþing Gerðubergs ber yf- irskriftina Þar sem sögueyjan rís, og eins og nafnið ber með sér verður Einar Kárason rithöfundur og verk hans þar til umræðu. „Það verður far- ið yfir allt sem ég er búinn að vera að gaufa við,“ segir Einar. „Ég var að reikna það út að það eru 29 ár síðan fyrsta bókin kom út, sem var ljóða- bók, og síðan eru þetta orðnar tíu skáldsögur og tíu öðruvísi bækur, kvikmyndahandrit og fleira. Það verður fjallað um allan minn höfund- arferil frá upphafi.“ Einar segist enn vera svolítið taugaóstyrkur þegar hann þarf að koma fram og tala um verk sín. „Ég er búinn að lesa mikið upp og vera með svona alls konar uppistand lengi. Ég er nú með þá kenningu að þann dag sem maður finnur ekki lengur fyrir sviðsskrekk þá verði maður hættur að taka það alvarlega sem maður er að gera.“ Skemmtun gesta í Gerðubergi um helgina er þó tryggð að sögn Einars, sama hvernig hann kemur til með að standa sig. „Ég hef engar áhyggjur af því þótt ég verði drumbslegur og leið- inlegur. Þetta er svo skemmtilegt fólk sem á að stjórna þessu,“ segir Einar og á þar við þau Halldór Guðmunds- son, Sjón og Gerði Kristnýju sem hafa það hlutverk á þinginu að spyrja Einar spjörunum úr. „Þau munu sjá um að þetta glansi,“ segir hann. Ný skáldsaga á leiðinni Einar segir það fyrst og fremst heiður að fá að koma fram á Ritþingi, en það gæti líka verið að þingið yrði honum innblástur til nýrra verka. „Ég spurði hann Sigurð Pálsson sem skrifaði sína Minnisbók um daginn hvaðan honum hefði komið hug- myndin og hann sagði að þetta hefði kviknað á Ritþingi í Gerðubergi fyrir nokkrum árum.“ Endurminningar Einars verða að bíða í bili því hann er upptekinn við annað verkefni. „Ég er að skrifa skáldsögu,“ segir hann. Síðasta skáldsaga hans, Stormur, kom út fyr- ir næstum fimm árum og lesendur hans orðnir spenntir að fá þá næstu í hendur. „Ég segi eins og Soffía frænka þegar hún var beðin að syngja á bæjarhátíðinni í Kardemom- mubæ: Það á eftir að koma í ljós hversu gaman það verður.“ Einar er tregur til þess að ræða þetta verk nánar, enda gæti það spillt fyrir skriftunum. „Ég hef aldrei get- að talað um svoleiðis fyrr en ég þarf að skila því af mér.“ Stefnt er að út- gáfu bókarinnar á þessu ári, en Einar slær varnagla með tilvitnun í Dag Sigurðarson: „Enginn veit sína ævina fyrr en hann fer í hundana.“ Rithöfundarferill Einars Kárasonar til umfjöllunar á Ritþingi í Gerðubergi Þrír áratugir á sögueyjunni Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Áhyggjulaus „Ég hef engar áhyggjur af því þó ég verði drumbslegur og leiðinlegur. Það er svo skemmtilegt fólk sem á að stjórna þessu,“ segir Einar Kárason um Ritþing í Gerðubergi þar sem verk hans verða til umfjöllunar. Á Ritþingum í Gerðubergi er leitast við að gefa innsýn í líf og starf rit- höfunda. Þar er ekki aðeins fjallað um höfundarverk þeirra, heldur líka persónulegt líf og hvernig það blandast inn í ritstörfin. Meðal höfunda sem teknir hafa verið til umfjöllunar á Ritþingum eru Sigurður Pálsson, Einar Már Guðmundsson, Steinunn Sigurð- ardóttir, Arnaldur Indriðason og Thor Vilhjálmsson. Innsýn í líf og starf Á LISTAHÁTÍÐINNI „List án landamæra“ sýna listamenn, bæði fatlaðir og ófatlaðir, alls kyns sköpunarverk. Hátíðin hefst á morgun í Reykja- vík, en teygir sig síðan út um allt land og lýkur hinn 10. maí í Vestmannaeyjum. „Það er verið að vekja athygli á því að fatlaðir eru að skapa,“ segir Margrét M. Norðdahl, framkvæmdastýra hátíð- arinnar. „Í þessum hópi eru listamenn eins og í öðrum í samfélaginu. Við erum gjörn á að draga fólk í dilka og svo einblínir hver á sína kreðsu. Þetta er líka hugsað til þess að hvetja fólk til þess að njóta listar og menningar.“ Hátíðin á rætur að rekja til Evrópuárs fatlaðra árið 2003. Þá voru skipulagðir margir list- viðburðir og þótti tilefni til að halda árlega hátíð í sama anda. „Þetta vindur upp á sig með hverju árinu og hefur verið mjög vel sótt,“ segir Margrét. „Við höfum fengið marga gesti og það hefur verið mjög eftirsótt meðal listafólks að taka þátt.“ Á morgun klukkan fimm verður haldin opn- unarhátíð í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem fjöl- margir koma fram, meðal annars Danshópur Hins hússins ásamt Páli Óskari. Þar verður líka opnuð myndlistarsýning þar sem tuttugu listamenn sýna teikningar, textílverk og málverk. Magnús Halldórsson á akrílmálverk á sýning- unni. Hann er sjálfmenntaður í myndlistinni og er nú að taka þátt í sinni fyrstu sýningu. „Ég ætlaði ekki að taka þátt í henni fyrst, það var einhver skrekkur í mér. Svo sló ég þessu upp í kæruleysi og ákvað að vera með.“ Hann er ekki í nokkrum vafa um það hvað heillar hann mest við þetta listform. „Það er fjöl- breytileikinn. Það eru engir tveir listamenn eins og allir hafa sinn stíl. Það finnst mér jákvætt.“ Yfir landamæri og þvert á kreðsur Morgunblaðið/Brynjar Gauti Magnús Halldórsson „Það er enginn listamaður eins og allir hafa sinn stíl,“ segir listamaðurinn. www.listanlandamaera.blog.is ♦♦♦ ALLSÉRSTÖK kvikmyndahátíð verður haldin í Árósum í Dan- mörku 5.-6. september nk., Dansk Lomme- film Festival 08 eða danska vasakvikmyndahátíðin 08. Á hátíðinni verða sýndar kvik- myndir teknar með farsímum en blásið verður til samkeppni víða um Danmörku í dag í gerð slíkra kvikmynda og er hún ætluð ungu fólki, frá 12 ára aldri upp í 17 ára. Afraksturinn verður svo sýndur á hátíðinni og verður einnig boðið upp á kennslu á henni í gerð slíkra mynda. Ýmsar stofnanir og fyr- irtæki styrkja hátíðina. Farsímakvik- myndahátíð ♦♦♦ Í HNOTSKURN »Einar Kárason hefur skrifaðtíu skáldsögur. Meðal þeirra þekktustu er þríleikurinn Þar sem djöflaeyjan rís, Gulleyjan og Fyrirheitna landið sem fjalla um líf alþýðufólks í Reykjavík á stríðsárunum. »Ritþingið hefst klukkan 13.30á laugardaginnn í Menning- armiðstöðinni Gerðubergi og stendur til klukkan 16.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.